Morgunblaðið - 25.09.1975, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975
33
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar I sima 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Heilbrigðis-
eftirlit
Pálfna Kristinsdóttir skrif-
ar:
„Mig iangar til að biðja þig
fyrir nokkrar línur, sem ég hef
verið með nokkuð iengi I hug-
anum, og er ég að hugsa um að
beina orðum minum til heil-
brigðiseftirlitsins.
Hvernig er með bækur, sem eru
lánaðar út frá bókasöfnum og
fara á milli margra? Eru þær eitt-
hvað sótthreinsaðar?
Er það leyfilegt, að fólk, sem
vinnur við matarframleiðslu t.d.
fisk, fari heim í vinnuslopp-
unum? Ég hefi séð þetta oft og
meira að segja einn morguninn
tók ég eftir því að stúlka beið
eftir bíl, sem tók hana, og var hún
yzt fata i sloppnum.
Fólk, sem er fastráðið á vinnu-
stað er skoðað einu sinni á ári
með myndatöku eða gegnumlýs-
ingu, og er það vel, en svo kemur
nýtt starfsfólk á sama vinnustað á
árinu og það þarf ekki einu sinni
að leggja fram heilbrigðisvottorð.
Á það ekki að gera slíkt?
Pálina Kristinsdóttir.“
0 Svava
Jakobsdóttir
skrifar
handa börnum
Erla Sigurjónsdóttir, Háa-
leiti 27, Keflavík, skrifar:
„Sonur minn er að byrja í
fimmta bekk gagnfræðaskólans.
Hann keypti bækur fyrir 20.000
krónur. Þar af er ein bók, sem ég
vil gera að umtalsefni.
Þessi bók er eftir Svövu Jakobs-
dóttur og heitir Saga handa
börnum.
Þetta er sá mesti óþverri, sem
ég hef lesið, og virðist vera
tilraun til að gera foreldra að
algjörum hálfvitum i augum
barna sinna. „Velunnari ung-
menna“, sem skrifar í Veivak-
anda 18. september ætti að lesa
þessa bók áður en hann fer að
skamma bíóin. Þangað fer enginn
skyldugur, en þetta er skyldunám
að lesa.
Hver velur svona lesefni handa
börnum?
Erla Sigurjónsdóttir."
0 Stofnum
kattavinafélag
Nanna Pétursdóttir skrifar:
„Hinn 16. september birtist í
Velvakanda athyglisverð grein
eftir Þóru Stefánsdóttur um stöðu
kattarins í þéttbýlinu. Það er ekki
oft, að um slík mál er rætt i fjöl-
miðlum af góðum skilningi.
Sízt er ofmælt, að sú meðferð sé
slæm, sem kettir verða fyrir, bæði
hér í borg og á þeim stöðum, sem
fólk hefur þjappað sér saman á.
Kettir eru af mörgum ekki með-
höndlaðir sem lifandi verur, og
mjög algengt er, að kettlingar séu
fengnir sem leikföng handa
krökkum og sæti þá sömu
meðferð og gervidýr. Til er það
og, að köttum sé beinlinis sparkað
út og kuldinn og hungrið látið sjá
fyrir þeim. Þarf varla orðum að
þvi að eyða hve slikt athæfi er
glæpsamlegt og er raunar hlið-
stætt því þegar börn voru borin út
i heiðnum sið.
Stundum dettur mér I hug, að
ef líkaminn væri ekki stærri en
sálin er I sumum mönnum, þyrfti
engar likkistur eða umstang við
fráfall þeirra, því örlitil peninga-
budda mundi nægja sem hinztu
umbúðir.
Flækingskettir eiga ekki að
vera til. En ef nauðsynlegt þykir
að hafa takmarkaðan fjölda katta
til þess að halda rottum í skef jum
þá ber að hlynna að þeim á allan
hátt og sjá svo um, að illa inn-
rættum mönnum liðist ekki
strafflaust að gera þeim mein.
Það er ánægjulegt, að nú skuli
vera vaknaður áhugi á því að
stofna kattavinafélag. Á þvi er
sannarlega ekki vanþörf. Og nú
vil ég mælast til þess, að katta-
vinir taki höndum saman og
stofní Kattavinafélag Islands.
Nanna Pétursdóttir."
0 Frekja að
senda glæpa-
myndir inn
á stofugólf
Og til þess að kvenfólkið
kveði karlmennina ekki alveg i
kútinn á þessu herrans kvenna-
ári, þá er hér bréf frá karlmanni,
sem að visu er ekki uppburða-
meiri en svo, að hann kýs að
nefnast „heimilisfaðir":
„Heiðraði Velvakandi.
Húrra fyrir grein um glæpa-
myndir i sjónvarpinu. Þetta voru
orð i tíma töluð. Ég tek I streng,
eins og greinarhöfuhdur biður
um. Ég vil láta banna allar glæpa-
og siðleysismyndir í sjónvarpinu.
Ég spyr: Hverjum er greiði
gerður með þvi að fá ómengaða
glæpareifara í myndum inn i stof-
una sina, þar sem börn sitja ásamt
foreldrunum?
Þeir menn, sem standa að því að
koma heimilum í uppnám út af
því að ábyrgir foreldrar eru að
reyna að forða börnum sínum frá
óhugnaði í sjónvarpinu, ættu að
víkja fyrir öðrum með skýrari
dómgreind og minni frekju. Það
er frekja i fyllsta máta að senda
allskyns óþverra, sbr. Lénharð,
inn á heimili manna. Þeir, sem
vilja þjóna lund sinni með hryðju-
verkamyndum og klámi, ættu að
kaupa sér miða í klámmyndabíóin
— þau eru á hverju horni.
Látið okkur, sem heima sitjum
vera í friði.
Heimilisfaðir."
% Skepna
veldur slysi
M.B. skrifar:
„Fyrir nokkrum dögum var
frétt í blaði um það, að lamb hefði
hlaupið fyrir bíl og drepizt á
veginum fyrir ofan Árbæ. Var
sagt frá þvi að ökumaðurinn hefði
orðið að greiða kr. 7.600 í bætur
fyrir lambið, en upphæðin væri í
samræmi við „skala“, sem
bændur hefðu sjálfir sett. Það var
tekið fram sérstaklega, að lambið
hefði verið svart að lit.
Alls staðar annars staðar í
Evrópu hefði verið farið öfugt að.
Þar hefði eigandi lambsins verið
dæmdur I sekt og bætur fyrir að
láta skepnuna ganga hirðulausa
þarna.
M.B.“
— Minntist hún nokkuð á hvert
hún ætlaði?
— Á skrásetningarskrifstof-
una, held ég áreiðanlega.
— Já, grunaði ekki gvend,
sagði David og kastaði f flýti
kveðju á Watts.
Kannski var búið að loka skrá-
setningarskrifstofunni af þvf að
það var laugardagur, fór David
skyndilega að hugsa um. En hon-
um til léttis kom f ljós að skrif-
stofan var opin enn. Hann hallaði
sér óþolinmóður yfir afgreiðslu-
borðið og beindi máli sfnu til
manns sem sat þarna við skrif-
borðið.
— Gæti ég fengið að sjá lista
yfir hjónavfgslur í september-
mánuði?
— Augnablik!
Maðurinn reis hægt úr sæti og
dró fram mikinn doðrant.
— Ung kona sagði að við mætt-
um eiga von á yður áður en langt
um liði sagði hann og blaðaði f
bókinni.
— Þarna. þriðja Ifna ofánfrá er
vfst það sem þér eruð að leita að.
David þurfti ekki annað en
HÖGNI HREKKVISI
Blcssaður taktu það rólega!
PhilipsArgenta’
SuperLux
kefluperan með
ovtójafnanlega birtuglugganum
PHILIPS
30% meira ljós
á vinnuflötinn
samí
orkukostnaðui
r
Okeypis
Ijósaskoðun
til 1 október á öllum gerðum Skodabifreiða.
Tékkneska bifreiðaumboðið á íslandi,
Auðbrekku 44—46, Kópavogi.
4- ■<
10, 12, 16, 18, 19, 22 mm.
Eiite vatnsþéttar
1 2 og 16 mm.
á sérlega hagstæðu verði
Klapparstig 1. Skeifan 19.
novlf
FYRIR VIÐRAÐANLEGT
Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki
ó öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lausn fyrir þö, sem
leita að litríkum hillu- og sköpasamstæðum,
sem byggja mö upp í einingum, eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ.
VERÐ
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf.
I L Húsið
Híbýlaprýði
Dúna
Siglufjörður:
Akureyri:
Húsavík:
Selfoss:
Keflavík:
Bólsturgerðin
Augsýn hf.
Hlynur sf.
Kjörhúsgögn
Garðarshólmi hf.
Akranes: Verzl. Bjarg
Borgarnes: Verzl. Stjaman
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA