Morgunblaðið - 25.09.1975, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975
Bræðurnir standa sig vel
í v-þýzka handknattleiknum
Gunnar kallaður „hinn nýi Hallsteinsson”
og Ólafur ýmist „Hamarinn” eða „Fallbyssan”
bræðra. Sagði Þórir að þeir væru
báðir í aðalhlutverkum hjá félög-
um sinum, sem bæði leika i suður-
deildum Þýzkalands. — Ölafur er
sá leikmaður Donstorf, sem á að
skjóta þeim upp í 1. deild og virð-
ist ekki skipta máli hve mörg skot
hann notar til þess, sagði Þórir er
Morgunblaðið ræddi við hann. —
öll uppstilling liðsins er miðuð
við það að Ólafur fái sem mest
svigrúm og honum er hjálpað á
allra handa máta. Ólafur virðist
vera í sérlega góðri æfingu og er
þegar orðinn mun stæltari og
sterkari allur en áður og skot-
harka hans er meiri en nokkru
sinni.
— Eftir því sem ég sá til Donst-
orf þá finnst mér líklegt að liðinu
takist að koma sér upp í 1. deild-
ina I vetur, en róðurinn verður
sennilega erfiður hjá Göppingen,
sagði Þórir. — Göppingen hefur
af ýmsum spámönnum verið spáð
falli niður í 2. deild í vetur og
byggja spámennirnir þær spár
sínar á því að undanfarið hefur
liðið misst marga af sínum sterk-
ustu leikmönnum. Gunnar sagðist
þó ekki vera þessum spámönnum
sammála, hann sagði að þeir
myndu koma á óvart f vetur. Liðið
væri ekkert afgerandi, en hefði
yfir góðum línumönnum að ráða,
spilið fyrir utan væri gott og liðs-
andinn mjög jákvæður. Sagði
Gunnar að þjálfunin hér heima
væri barnaleikur miðað við það
sem gerðist f Þýzkalandi og auk
þess væri leikið allan ársins
hring. Aðstaðan væri stórkostleg
og hefði Göppingen eigin höll til
afnota, sem þeir gætu notað á
hvaða tíma sólarhring sem þeir
vildu.
Gunnar hefur leikið nokkra
leiki með Göppingen í haust og
staðið sig mjög vel í þeim öllum.
Hefur hann verið einn markhæsti
leikmaður liðsins í þeim og vænta
forráðamenn Göppingen mikils af
honum. Eru þeir þegar farnir að
biðja Gunnar að vera lengur hjá
liðinu en í eitt ár, en Gunnar
gerði ekki samning við félagið til
lengri tíma. Er Gunnar gjarnan
kynntur sem „hinn nýi Hallsteins-
son“ f kynningu á leikmönnum
Göppingen og eiga Þjóðverjar
Ólafur gengur af velli eftir að
hafa skorað 10 mörk f æfingaleik
með Donstarf.
erfitt með að skilja þá miklu
tækni, sem þeir Hafnfirðingarnir
Gunnar og Geir búa yfir.
Að sögn Þóris Jónssonar hafa
þeir bræður komið sér mjög vel
fyrir í Þýzkalandi. Gunnar býr í
lítilli skemmtilegri íbúð og ekur
um á Fiat. Ólafur hefur stórt her-
bergi til umráða og hefur nýlega
fest kaup á Audi og vill félag hans
allt fyrir hann gera, en Ólafur
gengur ýmist undir nafninu
„Fallbyssan" eða „hamarinn“ hjá
stuðningsmönnum Donstorf.
- áij
sigu fram úr hægt og bitandi og
sigruðu 27—19. Eftir atvikum má
þetta teljast bærileg frammistaða
hjá Leiknismönnum, þar sem þeir
eru lítið eða ekkert byrjaðir að
æfa enn, þótt slíkt sé vitanlega
ekki til þess að hrósa sér af.
Staðan í hálfleik í leik Vals og
Fylkis var 11:8 fyrir Val og úrslit
leiksins urðu síðan 20:13 fyrir
Valsmenn. Heldur virtist áhugi
leikmanna vera lítill í þessum
leikjum, eins og stundum vill
verða þegar annað liðið er svo til
öruggur sigurvegari fyrirfram.
Gunnar Einarsson er annar Is-
lendingurinn sem leikur (
búningi Göppingen, fyrirrennari
hans var lærifaðir hans og félagi
Geir Hallsteinsson.
Knattspyrnumaðurinn kunni
úr Hafnarfirði, Þórir Jónsson, var
nýlega á ferð 1 V-Þýzkalandi, þar
sem hann heimsótti meðal annars
þá bræður Gunnar og Ólaf Einars-
syni. Gunnar leikur eins og kunn-
ugt er með Göppingen, félaginu,
sem Geir Hallsteinsson lék með á
slnum tíma og þykir Gunnar jafn-
vel enn betri en Geir, og var Geir
þó toppurinn meðal leikmanna
Göppingen, þann tlma sem hann
dvaidi þar. Ólafur leikur hins
vegar með 2. deildar félaginu
Donstorf og stendur sig sömuleið-
is með miklum ágætum.
Morgunblaðið ræddi nýlega við
Þóri um heimsókn hans til þeirra
Valur og KR unnu
í FYRRAKVÖLD fóru fram tveir
leikir I Reykjavíkurmótinu I
handknattleik og má segja að úr-
slit þeirra hafi orðið samkvæmt
áætlun. Valsmenn unnu öruggan
sigur yfir 2. deildar liði Fylkis og,
í viðureign 2. deildar liðanna, KR
og Leiknis, höfðu Vesturbæing-
arnir betur. Fyrri hálfleikir þess-
ara leikja voru þó nokkuð jafnir,
sérstaklega í leik KR. og Leiknis
þar sem staðan var 13:12 fyrir KR
eftir fyrri hálfleikinn. I seinni
hálfleiknum gerðist það svo að
mjög dofnaði yfir leik þeirra
Leiknismanna, og KR-ingarnir
FH-stúlkurnar tapa
EINS OG skýrt hefur verið frá
eru íslandsmeistarar FH i
kvennaknattspyrnu í keppnisferð
á Italíu um þessar mundir. Gerðu
FH-stúlkurnar jafntefli í fyrsta
leik sínum, en töpuðu sfðan
tveimur næstu, þeim fyrri 0-2 og
hinum seinni 0-6. Var seinni leik-
urinn við Italíumeistara Gamma
Eusebio til
Frakklands
PORTÚGALSKA knattspyrnustjarn-
an Eusebio hefur ákveðið að gera
samning við franska knattspyrnu-
félagið Red Star of Paris, og mun
ganga frá samningi slnum við félagið
innan tlðar. Eusebio er nú 33 ára ng
hefur i áraraðir verið meðal fremstu
knattspyrnumanna heims. Hann hef-
ur leikið með portúgalska liðinu
Benfica síðan 1960.
og fór leikurinn fram í San Dona.
Gamma-liðið er atvinnulið og hef-
ur innan sinna vébanda stúlkur
frá Danmörku og Svfþjóð. Náði
ítalska liðið fljótlega undirtökum
í leiknum og skoraði sitt fyrsta
mark á 20. mínútu. Staðan f hálf-
leik var 3—0, og í seinni hálfleik
bættust við þrjú mörk.
Þótt úrslit leiksins virðist óhag-
stæð fyrir FH-stúlkurnar verður
ekki annað sagt en að frammi-
staða þeirra hafi verið eftir atvik-
um góð, og a.m.k. betri en franska
kvennalandsliðsins sem lék ný-
lega við Gamma og tapaði 0—9.
Fram
AÐALFUNDUR Knattspyrnufé-
lagsins Fram verður haldinn í
kvöld f nýja Félagsheimílinu og
hefst klukkan 20.00.
Muggur fertugur
Guðmundur Jónsson, FH-ingur, er
40 ára I dag.
Guðmundur eða Muggur eins og
hann er alltaf kallaður meðal vina er
borinn og barnfæddur Hafnfirðingur
og FH-ingur
Ekkert er Mugg óviðkomandi þegar
FH er annars vegar. Hann mætir trú-
verðuglega á æfingar meistaraflokks,
alla leiki meistaraflokks, það er sama
hvað hjá FH er að gerast, þar er
Muggur viðstaddur svo framarlega
sem hann hefir fengið að vita en ef það
hefir gleymst þá er Muggur leiður því
tryggðin er svo mikil við sitt félag og
vini slna I félaginu að honum finnst
hann hafi á vissan hátt brugðist sé
hann ekki viðstaddur
Þeir eru orðnir margir vinir hans
Muggs og aldrei hefur hann skapað sér
annað en vini. Hann hefir átt við sína
stóru erfiðleika að giima i lifinu og
þurft að bera sinn kross en það finnur
enginn í návist hans, þar er það vin-
semdin, áhuginn og bjartsýnin sem
situr í fyrirrúmi. Hinir mörgu vinir
Muggs senda honum i dag beztu af-
mælisóskir
Lengi lifi Guðmundur Jónsson, FH-
ingur
Áfram FH.
Til hamingju með daginn.
Einar Þ. Mathiesen
Blakstarfhjá HK
BLAKDEILD HK er að hefja vetrar-
starfsemi sína. Meðlimir handknatt-
leiksdeildar og blakdeildar HK hafa
þegar hafið þrek- og þolæfingar
tvisvar I viku á Vallagerðisvelli f
Kópavogi undir leiðsögn Júliusar
Arnarsonar iþróttakennara.
Blakmönnum hefur ekki ennþá
tekist að ráða þjálfara handa öllum
flokkum, en æfingar eiga að hefjast
af fullum krafti upp úr 20. septem-
ber.
S.l. vetur voru æfingar fyrir 1. og
2. flokk karla og kvenna. I vetur er
fyrirhugað að hafa æfingar fyrir
yngri flokka og öldunga (eldri en 30
ára). Æfingar verða f fþróttahúsi
Kópavogsskólans.
Aðalfundur Blakdeildar HK verður
haldinn í Félagsmálastofnun Kópa-
vogskaupstaðar Álfhólsvegi 32,
fimmtudaginn 25. sept. og hefst
hann kl. 20.30. Áhugafólk um iþrótt-
ir og þá einkum blak er velkomið á
fundinn.
Góð staða Malmö
ÞEGAR fjórar umferðir eru eftir
af 1. deildarkeppninni í Svíþjóð
hafa meistarar síðasta árs, Malmö
FF, svo gott sem tryggt sér meist-
aratitilinn. Liðið hefur hlotið 36
stig, en næstu Iið sem eru öster
og Djurgaarden eru með 30 stig.
Gunnar gefur stuðningsmanni Göppingen eiginhandar
áritun. (Ljðsm. Páll G. Pálsson).
A-námskeið í grunn-
skóla ISI
FIMMTUDAGINN 2. október n.k.
hefst á vegum IBR námskeið f
grunnskóla ISt. Kennt verður
tvisvar 1 viku, á þriðjudögum og
fimmtudögum, og verða kennslu-
stundir alls 70. Að loknu nám-
skeiðinu fá svo þátttakendur
viðurkenningu fyrir að hafa lokið
þvf, en hún opnar þeim sfðan
möguieika á að taka þátt f fram-
haldsnámskeiðum, þegar að þeim
kemur.
Þarna er um að ræða svokallað
A-námskeið, en grunnskóla ÍSÍ er
skipt í fjögur stig. A-stigið er und-
irstöðunám allra íþróttagreina. B-
stigið er upphafsnám sérsam-
banda innan ÍSl í séríþróttum.
Þátttakendur í B-námskeiðum
verða að hafa lokið A-námsstigi.
Síðan taka við C og D-námsstig,
þar sem um er að ræða framhalds-
menntun í ákveðnum íþrótta-
greinum.
Sem fyrr greinir eru 70
kennslustundir í A-námskeiðinu,
og eru þar tekin fyrir mismun-
andi viðfangsefni. Má nefna sem
dæmi að 4 tfmum er varið til
kennslu í félagsmálafræðslu, 10
kennslustundum er varið til þjálf-
fræði, 10 til líffæra- og lífeðlis-
fræði, 3 til kennslufræði, og 1 7
kennslustundum er fjallað um
íþróttir og meiðsli.
A-námskeiðið fer að þessu sinni
fram í Menntaskólanum í Reykja-
vík, en skrifstofa IBR tekur við
innritun, og er þeim sem ætla að
fara á námskeiðið ráðlagt að hafa
samband við skrifstofuna sem
fyrst, þar sem búast má við mjög
mikilli aðsókn.
QPR á
toppinn
QUEENS Park Rangers hefur nú skipað
sér við hlið Manchester United og West
Ham United á toppnum í ensku 1. deildar
keppninni í knattspyrnu, en þessi þrjú
lið hafa hlotið 13 stig f keppninni. í
fyrrakvöld lék Queens Park Rangers við
Leicester og sigraði 1—0. Það var Mick
Leach sem markíð skoraði á 57. mfnútu
leiksins. Þá gerðist það einnig f fyrra-
kvöld að botnliðið Sheffield United, vann
sinn fyrsta sigur í 1. deildar keppninni f
vetur með því að sigra Burnley 2—1.
Urslit einstaka leikja sem leiknir voru f
fyrrakvöld urðu sem hér segir:
1. DEILD.
Birmingham—Newcastle 3-2
Coventry—Middlesbrough 0-1
Ipswich — Norwich 2-0
Queens Park — Leicester 1-0
Sheffieid Utd. — Burnley 1-0
Wolves — Áston Villa 0-0
2. DEILD:
Briston Rovers — Bolton 2-2
HuII — Notts County 0-2
Orient — York 1-0
Portsmouth — Chelsea 1-1
Sunderland — Carlisle 3-2
3. DEILD:
Bury — Mansfield 2-1
Crystal Palace — Brighton 0-1
Gillingham—Rotherham 0-0
Grimsby — Halifax 2-2
4. DEILD:
Cambridge — Watford 4-1
Northampton — Workington 2-1
Swansea — Newport 2-2