Morgunblaðið - 25.09.1975, Side 35

Morgunblaðið - 25.09.1975, Side 35
35 Enska knattspyrnan NOKKRIR leikir fóru fram í ensku knattspyrnunni í gær- kvöldi. 1 1. deild urðu úrslit þau, að Derby vann Manchester Uni- ted 2—1. Manchester City vann Stoke 1—0. I 2. deild urðu úrslit þau, að Blackpool vann Black- burn Rovers 2—0, Luton og Plymouth gerðu jafntefli 1—1. — Hafnaði Framhald af bls. 36 ekki imyndað mér þann dómstól, sem ekki mundi sýkna í slíku máli. Þetta er sú ályktun, sem ég dreg af því sem hér hefur farið fram um þetta mál.“ — En hvað finnst þér um að mál sem þetta sé tekið fyrir á ársfundi Norræna rithöfunda- ráðsins? „I lögum ráðsins er kveðið svo á að starfssvið þess eigi annars veg- ar að vera áð gæta faglegra hags- muna rithöfunda og hinsvegar að vaka yfir því að rithöfundar njóti tjáningarfrelsis. Ég lít á það sem ögrun við tjáningarfrelsi að gera svona lagað að dómsmáli. Það hef- ur það í för með sér, að fólk veigrar sér við að setja fram skoð- anir sínar og hugsanir í heyranda hljóði. Mér finnst því eðlilegt, að málið skuli hafa verið tekið fyrir í Norræna rithöfundaráðinu,“ sagði Per Olof Sundmann að lok- um. Norski rithöfundurinn Björn Nielsen formaður norska rithöf- undasambandsins sagði: „Fundinum barst greinargerð frá Vörðu landi um málavexti, en vegna anna hefur ekki verið hægt að gera málinu fullnægjandi skil á þessum fundi. Sameiginleg á- lyktun um málið kemur því ekki frá þessum fundi, en fulltrúar aðildarfélaganna fara með þetta heim með sér og afgreiða það síðan eins og ákveðið verður á hverjum stað. Hins vegar kom greinilega fram f umræðum hér, að skoðanir manna voru mjög skiptar.“ Björn Nielsen var þá spurður, hvort ekki væri óvenjulegt, að pólitísk mál væru tekin til með- ferðar á fundum Norræna rithöf- undaráðsins. Hann svaraði spurn- ingunni óbeint, en sagði flest mál hafa pólitískar hliðar, en það væri hvorki óvenjulegt né erfitt að ræða slík mál, þótt að sjálfsögðu yrði jafnan ágreiningur um þau eins og önnur. Þá var hann inntur eftir því, hvort fundurinn hefði fjallað um önnur meiðyrðamál. Hann sagði, að aðalmál fundarins hefðu verið höfundarréttarmál og endurskoð- un löggjafar þar að lútandi á Norðurlöndunum. Væri tjáning- arfrelsi einn liður höfundarréttar „ og þegar um er að ræða tjáning- arfrelsi þá er fullkomlega eðlilegt að samtök rithöfunda láti þau mál til sín taka og hafi áhuga á þeim. Það kom sterklega fram hér, að flestum fannst rangt að nota dóm- stóla til að hefta tjáningarfrelsi og nota þetta sem vopn í pólitískri baráttu.“ Björn Nielsen kvað greinargerð ;Varins lands hafa verið eina af forsendum þeirra umræðna, sem fram fóru um málið, og hefði ver- ið almenn ánægja með að heyra um málið frá fleiri en einni hlið. Þá var spurt, hver hefðu verið tildrög þess að Sigurður A. Magnússon fjallaði um þett> mál á fundinum: „Því er þannig háttað í ráðinu, að hvert aðildarfélag ákveður sjálft hvaða mál fulltrúi þess flyt- ur á fundinum. Þegar dagskrá fundarins hér í Sundvollen var skipulögð, lá fyrir, að fulltrúi Is- lands mundi ræða þetta mál.“ — En nú hefur .Sigurður A. Magnússon sagt hér á íslandi, að honum hafi borizt ósk frá ráðinu, að hann fjallaði um þetta mál á fundinum. Er sú staðhæfing ekki rétt? „Það er rétt að svo miklu leyti sem okkur hér í Noregi varðar, en ég get ekki svarað fyrir samtök hinna landanna,“ sagði Björn Nielsen. Á fundi, sem haldinn var með fréttamönnum að loknum árs- fundinum I Noregi kom m.a. fram, að Björn Nielsen, formaður norsku rithöfundasamtakanna, hyggst kalla stjórn þeirra saman við fyrsta tækifæri til að leggja drög að mótmælaorðsendingu, samkvæmt fregnum frá NTB. Á fundinum bar Nielsen saman skrifin vegna Varins lands og deilur, sem áttu sér stað fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um inngöngu Noregs í Efnahags- bandalagið. Sagði hann, að ef allir stuðningsmenn inngöngunnar hefðu stefnt fyrir skeyti, sem þá var að þeim beint, þá væru þau mál enn á döfinni. Greinargerð Varins lands, sem lögð var fram á fundi ráðsins, var dreift meðal fréttamanna, en Sig- urður A. Magnússon kvaðst ekki vilja tjá sig um málið, þar sem hann væri einn þeirra, sem stefnt hefði verið. Þar sem málið er Norðmönnum ókunnugt gerði hann fréttamönnum hins vegar grein fyrir málsatvikum og rakti þau ummæli, sem „hinum 10 rit- höfundum og blaðamönnum hefur verið stefnt fyrir,“ að því er segir í fréttaskeyti NTB. — Brandt Framhald af bls. 20 Leonid Brezhnev flokksleiðtogi harmað njósnamálið í viðtali við sig. „Við ræddum málið án þess að nefna sakborninginn á nafn og hann kvaðst harma það,“ sagði hann. — Hearst Framhald af bls. 1 verið felldar niður. Það er sagt gert til að einfalda málið en sakargiftirnar eru nálægt 20. Dómarinn í máli Patty Hearst, Oliver Carter, hefur ákveðið að yfirheyrslur fari fram á þriðju- dag til að ákveða hvernig haga skuli geðrannsókn hennar. Þegar geðrannsókn lýkur er talið að ákveðið verði hvort ungfrú Hearst verður látin laus gegn 500.000 dollara tryggingu, sem foreldrar hennar eru fúsir að greiða. Aðspurður sagði sækjandinn í málinu, James Browning, að hann teldi liklegt, að ungfrú Hearst yrði lögð í geðsjúkrahús ef hún yrði ekki talin sakhæf. — Portúgal Framhald af bls. 1 skelfing greip um sig þegar her- menn komu á vettvang og tóku að skjóta af byssum og mikið öng- þveiti varð um langa hríð í grennd við torgið. Samkvæmt síð- ustu fréttum urðu ekki slys á fólki. Mario Soares, leiðtogi Sósíalista sagði í París í dag, að loknum fundi með Giscard d’Estaing, Frakklandsforseta, að hann væri bjartsýnni nú en um Ianga hrið betri dagar væru i vændum Portúgal til handa. Hann sagði að Portúgalar þyrftu mjög átakan- lega á erlendri aðstoð að halda og kvaðst hann trúaður á að lönd Efnahagsbandalagsins myndu hlaupa undir bagga. Einnig von- aðist hann eftir stuðningi EFTA landanna og þegin yrði aðstoð Ar- aba og „Sósialískra” ríkja eins og Soares orðaði það. — Margir teknir Framhald af bls. 36 gegnum græna hliðið og ætlað sér að sleppa á ódýran máta i gegn. Þetta fólk hefði sloppið betur, ef það hefði farið i gegn- um rauða hliðið og sýnt sinn varning, því þar hefði það aldrei þurft að greiða nema tollinn. Og ef eitthvað fyndist hjá þeim, sem færu í gegnum græna hliðið, væri allur far- angur þeirra skoðaður gaum- gæfilega. „Ég ráðlegg öllum, sem eru í einhverjum vafa um hvort þeir eigi að fara í gegnum græna eða rauða hliðið, að fara frekar í gegnum það rauða,“ sagði Friðrik að lokum. Rithöfundar Framhald af bls. 3. KRISTINN REYR „Eining innan rithöfunda- samtakanna er fyrir hendi. Varð það með stofnun Rithöf- undasambands tslands 12. maí á þjóðhátiðarárinu 1974. Þar með er ekki sagt, að hver og einn félagsmaður hafi verið heilaþveginn um aldur og ævi til einnar og sömu skoðunar á hverju máli — innan sem utan sambandsins. Mig rámar í, að áminnst „Var- ið land“ i spurningunni, hafi upphaflega farið á flot sem ætt- jarðarást — eða eitthvað háleitt og heilagt, sem ekki mætti hafa i flimtingum. Sé hið sama Varið land orðið „stórpólitískt” í dag — og þar af leiðandi hvorki háleitt né heilagt lengur, er aðra um að saka en Rithöfundasamband ts- lands. Félag er fjölskylda. Og dautt má það vera, komi aldrei upp vandamál við að glíma. Sé eitt slikt á döfinni i Rithöf- undasambandinu nú — einsog spurningin virðist stíluð uppá, þá ætla ég, að að við höfundar séum menn til að ráða fram úr því og leiða til lykta innan okk- ar vébanda. Við erum að hefja vetrar- starfið, búin að halda einn stjórnarfund — þetta réttinda- snauðasta og lægst launaða fólk, mitt í öllu velferðarbrúk- inu á íslandi. Meðan önnur stéttarfélög ná samningum og kaup og kjör eft- ir skamma hríð á misserisfresti — þurfa rithöfundar að standa í linnulausu þrefi og þjarki ár- um saman, svosem við ríkisút- gáfu námsbóka, leikhús og bókaútgefendur um samnings- uppkastið eitt. Til stuðnings okkur rithöf- undum í þeirri nauðþurftarbar- áttu, viljum við gjarnan eiga Morgunblaðið og aðra velvilj- aða fjölmiðla að.“ JENNA JENSDÓTTIR „Það stuðlar hvorki að ein- ingu né er i anda þeirrar sam- einingar, sem flestir rithöfund- ar vildu trúa á. Hér er um svo pólitískt mál að ræða, að ég tel það aldrei hafa átt erindi inn í rithöfundasambandið. I lögum sambandsins er kveðið svo á, að það hafi ekki afskipti af pólitískum málum. Þessi ákvæði eru samt enn strangari i lögum hinna rithöfundasam- bandanna á Norðurlöndum. Við, sem sátum umræddan stjórnarfund Rithöfundasam- bandsins, hljótum að harma þau vinnubrögð, að okkur var sagt frá þessu máli f lok fund- arins — fullbúnu frá hendi for- manns — eins og hverri ann- arri lftilli frétt. Ég hefði ekki trúað þvi að óreyndu, að sú einlæga viðvörun, sem for- maður fékk á þessum fundi, frá Ingimar Erlendi og öðrum stjórnarmönnum, verði til einskis. Reglan hefur fram til þessa verið sú, að skýrslan, sem flutt er á fundi norræna rithöf- undaráðsins frá hverju landi, er unnin í sameiningu af öllum stjórnarmönnum hvers rithöf- undasambands og þeim á einnig að vera kunnugt um ef formaður þeirra æskir þess að flytja sérstakt mál frá landi sínu. Þvi miður braut formaður Rithöfundasambands tslands þessa reglu." JÓN BJÖRNSSON Nei. — Slík afskipti af stór- pólitískum málum á vegum rit- höfundasambands fslands, sem formaðurinn hefur flækt sig i í sambandi við Varið land, bæði í fyrra skiptið, þegar tekin var afstaða til máls Einars Braga og val svokallaðra 12 manna nefndar f sambandi við það, sem að sjálfsögðu gat engan veginn verið á vegum rithöf- undasamtakanna, og ekki síður nú, þegar til mála hefur komið að formaðurinn, Sigurður A. Magnússon, sem sjálfur er aðili að málaferlunum, flytti erindi um þau á ársþingi Norræna rit- höfundaráðsins, tel ég vera gróft brot á þvf samkomulagi sem gert var á sínum tima og var forsenda fyrir stofnun hins nýja rithöfundasambands, og er því til þess eins fallið að stofna samtökunum í hættu. „Beiðni“ Norræna rithöf- undaráðsins um að fjalla um þessi mál á þingi þess tel ég móðgandi i garð tslendinga og óviðurkvæmileg afskipti af fs- lenzkum innanlandsmálum, enda ótrúlegt að slík „beiðni" sé framkomin undirbúnings- Iaust. Hér á landi hefur ekkert það gerzt sem heimili sérstakar aðgerðir, hér hefur engum ver- ið neinað að láta uppi skoðanir sinar, hvort heldur er i blöðum eða öðrum fjölmiðlum, enda þött menn verði að vera við- búnir að bera ábyrgð á gifur- yrðum sínum samkvæmt lands- lögum, en það verða menn einnig að gera á hinum Norður- löndunum, eins og nýleg dæmi sanna, t.d. málið viðvíkjandi Otto Haugelin stórþingsmanni, þar sem ritstjóri einn var dæmdur í sektir samkvæmt norskri meiðyrðalöggjöf. Þetta ætti a.m.k. Norræna rit- höfundaráðinu að vera kunn- ugt um. Að endingu skora ég á með- limi rithöfundasamtakanna að standa allir sem einn gegn því að samningsbrot, eins og þau, sem því miður hafa átt sér stað, verði ekki endurtekin; undir því er framtið samtakanna komin.“ GUÐMUNDUR DANÍELSSON „Ég liki þessu við að varpað væri sprengju á rithöfundasam- bandið til að tæta það í sundur. Ég var á sínum tima I öðru rithöfundafélaganna, en þótti það of pólitískt, sagði mig úr þvi, og var utan slíkra samtaka i tvö eða þrjú ár. Þegar tillaga kom fram um það að sameina alla rithöfunda i einu fagfélagi, sem hvorki tæki afstöðu til trú- mála, stjórnmála né lista- stefna, heldur ýrði eingöngu hagsmunafélag, þá ákvað ég og lét verða af þvi að gerast stofn- félagi í Rithöfundasambandi ís- lands í fyrra. Mér finns sáttmál- inn, sem þá var gerður, hafa verið þverbrotinn með ræðu- efni formanns Rithöfundafé- lags tslands á fundi Norræna rithöfundaráðsins. Sigurður A. Magnússon hefði getað sagt norrænum rithöfundum margt fróðlegra af starfi fslenzkra rit- höfunda en þetta, sem kemur rithöfundasambandinu ekki við. Raunar er ég einn þeirra tólf manna, sem skipa Rithöfunda- ráð íslands, sem er sú stofnun innan Rithöfundasambands ts- lands, er á að gæta menningar- legra og siðferðilegra hags- muna rithöfunda. Rithöfunda- ráð er því sú stofnun, sem ætti að fjalla um mál af þessu tagi, en mér vitanlega hefur það ekki verið kallað saman af þessu tilefni.” GUÐMUNDUR G. HAGALÍN „Ég tel þetta algjörlega frá- leitt og ná engri átt. Þetta stríðir algjörlega á móti anda laga rithöfundasambandsins. Þetta hlýtur að draga dilk á eftir sér og gæti haft þær afleiðingar að spilla allri sam- heldni samtakanna um hags- munamál rithöfunda." GUÐMUNDUR FRÍMANN „Nei. Brölt Sigurðar A. Magnússonar innan samtak- anna með einkamál sín og trú- bræðra sinna, þ.á.m. Einars Braga, hefur lengi hneykslað mig og ég mótmæli þessum vinnubrögðum, sem eru til þess eins fallin að kljúfa samtökin eftirendilöngu og eru hreint til- ræði við hagsmuni rithöfunda i landinu. Ég skil ekki svona stjórn á hagsmunafélagi, sem í eðli sínu er, eða á að minnsta kosti að standa fyrir utan stjórnmálaafskipti. Að öðrum kosti er félagið bráðfeigt." Hin frábæru CONSTRI raðleikföng eru nú orðin landsþekkt, enda viðurkennd þroskaleikföng eftir- sótt á barnaheimili. HELZTU ÚTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Patreksfirði: LEIKFANGAHÚSIÐ, APÓTEKIÐ Skólavörðustíg 10 Vestmannaeyjar: Gunnar Ólafsson HOÐI, Selfoss: Hverfisgötu 98 VERZLUN H. B. Akureyri: Grundarfjörður: AMARO Verzlunarfél. GRUND Klemenz Guðmundsson, Sundaborg. Ennfremur hinar vinsælu „PARTY-BOMBUR“ sem fylltar eru með blöðrum o. fl o. fl. Miklð úrval af D. V. P. brúðum og tístudýrum. ESKIFELL HF. SÍMI 24 8 96

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.