Morgunblaðið - 18.10.1975, Side 1
24 SÍÐUR OG LESBÓK
238. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
EBE hjálpar
siávarútvegi
Strassborg, 17. október.
Reuter.
LANDBÚNAÐRFULLTRtJI
Efnahagsbandalagsins, Pierre
Lardinois, hefur heitið þvf að
leggja fyrir þing bandalagsins
áætlun um stuðning við sjávarút-
veg í aðildarlöndunum. Þessi
áætlun mun feia í sér svar við
5 FÁ
NÓBEL
Stokkhólmi, 17. október.
AP — Reuter.
ENSKUR prófessor fæddur í
Ástralíu og svissneskur prófessor
fæddur í Júgóslavíu fengu
Nóbelsverðlaunin í efnafræði f
dag fyrir brautryðjendastörf í
nýrri grein efnafræðinnar, og
bandarfskur vfsindamaður og
tveir danskir vísindamenn fengu
Nóbelsverðlaunin f eðlisfræði
fyrir rannsóknir á kjarna frum-
eindanna.
Dr. John Cornforth, sem er
fæddur í Ástraliu en starfar nú i
Englandi, og prófessor Vladimir
Prelog, sem er fæddur í Júgó-
slavíu en starfar nú í Zúrich,
fengu Nóbelsverðlaunin i efna-
fræði.
Cornforth fékk verðlaunin fyrir
„rannsóknir sínar á rúmmyndum
af efnahvötum og tengslum
þeirra við efnahvörf," eins og
segir í rökstuðningi sænsku vís-
indaakademíunnar fyrir veiting-
unni.
Prelog fékk verðlaunin fyrir
„rannsóknir sínar á rúmmyndum
lífrænna sameinda og breytingum
á þeim.“
Nóbelsverðlaunin i eðlisfræði
voru veitt Dönunum prófessor
Aage Bohr og Ben Mottelson og
Bandaríkjamanninum James
Rainwater. Þeir fá verðlaunin
fyrir „uppgötvanir i sambandi við
breytingar á lögun kjarnans sem
heildar og hreyfingar einstakra
öreinda i kjarnanum."
stækkun íslenzku fiskveiðilögsög-
unnar í 200 mílur.
Landbúnaðarfulltrúinn sagði
frá þessu í umræðum Evrópu-
þingsins i svari við fyrirspurn frá
þingmönnum brezka íhalds-
flökksins, James Scott-Hopkins og
John Corrie.
Lardinois sagði, að mesti erfið-
leikatími sjávarútvegsins væri
um garð genginn en þó væri enn
við alvarlega erfiðleika að stríða.
Fulltrúi skozkra þjóðernis-
sinna, Winifred Ewing, sagði að
þriðjungur skozka togaraflotans
væri aðgerðarlaus og fór fram á
strangt eftirlit með veiðum verk-
smiðjuskipa sem hún taldi ógna
fiskstofnum á Norðursjó.
John Prescott, þingmaður
Verkamannaflokksins, hvatti tií
endurskipulagningar sjávarút-
vegsins. Hann sagði að henni væri
aðeins hægt að koma til leiðar
með fækkun fiskiskipa.
Simamynd AP
BLÓM TIL SAKHAROVS — þegar Sakharov-réttarhöldin hófust í gærmorgun f Kristjánsborgarhöll
barst þessi blómvöndur frá starfsfólki danska þingsins sem sendi hann sem kveðju til Sakharovs.
„Glæpirnir hafa aðeins
tekið á sig nýja mynd”
Hörkulegur vitnisburður við Sakharov-réttarhöldin
Frá Birni Jóhannssyni frétta-
stjóra og Ingva Hrafni Jónssyni
blaðamanni.
Kaupmannahöfn, 17. október.
□
Sjá ennfremur
á blaðsíðu 13
-□
D ....... ..................□
„Við erum ekki kornin saman
hér til að dæma Sovétríkin og
stjórnmálakerfi þeirra heldur til
að afla staðreynda um stöðu
mannréttinda innan kerfisins og
við skulum halda okkur við þá
stefnu,“ sagði Ernö Eszterhas for-
seti skipulagsnefndar Alþjóðlegu
Sakharovréttarhaldanna i setn-
ingarræðu sinni, er réttarhöldin
hófust fyrir troðfullu húsi frétta-
manna og áheyrnarfulltrúa f
salarkynnum danska þjóðþings-
ins f morgun kl. 9 árdegis. Eszter-
has sagði, að Sakharov gæti ekki
verið viðstaddur réttarhöldin, en
f huga sínum væri hann f Kaup-
mannahöfn og yfirlýsing frá
honum yrði lesin innan skamms.
Rétt í þvf kom einn af starfs-
mönnum undirbúningsnefnd-
arinnar með stóran blómvönd frá
Sakharov til vitnanna og kiöpp-
uðu viðstaddir ákaflega. Eszter-
has lagði áherzlu á að vegna tfma-
skorts yrðu réttarhöldin að ganga
hratt og örugglega fyrir sig og
hvatti vitni og spyrjendur til að
stytta mál sitt eftir mætti. Fól
hann stjórnina f hendur Ib Thyre-
god hæstaréttarlögmanni frá
Danmörku. Thyregod byrjaði á
þvf að biðja spyrjendur að kynna
sig en þeir eru Simon Wiesenthal
frá Austurríki, Eugene Ionesco
frá Frakklandi, Haakon Lie frá
Noregi, dr. Cornelia Gersten-
011 fjölskylda pólitísks fanga
í raun dæmd um leið og hann
Frá Birni Jóhannssyni frétta-
stjóra og Ingva Hrafni Jónssyni
blaðamanni.
Kaupmannahöfn, 17. október.
AÐBÚNAÐUR pólitfskra fanga
f Sovétríkjunum hefur versnað
mjög síðustu árin, sagði frú
María Sinjavski í vitnisburði
sfnum við Sakharov-
réttarhöldin sem hér fara fram
í salarkynnum danska þjóð-
þingsins. Marfa Sinjavski er
kennari og rithöfundur og býr
nú í Parfs ásamt manni sfnum,
rithöfundinum fræga Andrei
Sinjavski sem ofsóttur hefur
verið af sovézkum yfirvöldum
um langt árabil.
Maria Sinjavski fjallaði i
vitnisburði sínum aðallega um
aðstæður fjölskyldna pólitískra
María Sinjavsky fékk ekki að elda
hafragraut handa syni „glæpamanns’
fanga í Rússlandi. Lýsti hún
fyrst og fremst eigin reynslu
sinni. Sovézka öryggislögreglan
ofsótti hana og mann hennar og
eftir að Andrei var fangelsaður
var beitt margvíslegum sál-
rænum þvingunum i þvi skyni
að fá Maríu til að fordæma
mann sinn opinberlega.
Andrei Sinjavski var á hinn
bóginn sagt, að kona hans yrði
fangelsuð og 8 mánaða sonur
þeirra sendur á upptökuheimili
ef hann ekki léti að vilja stjórn-
arinnar og tæki aftur gagnrýni
sina.
Maria sagði, að í Sovétrikjun-
um væri öll fjölskylda hins póli-
tíska fanga i raun dæmd um
leið og hann, kona hans, börn,
foreldrar og systkini, þótt þau
væru hinum megin gaddavírs-
ins. Hún lýsti þvi hvernig hún
missti atvinnu sína sem kenn-
ari eftir réttarhöldin yfir
manni hennar og hvernig hætt
var við að gefa út bækur
hennar, þótt um það hefði verið
samið.
Sinjavskihjónin bjuggu í f jöl-
býlishúsi þar sem var sameigin-
legt eldhús. Konan sem annað-
ist eldamennskuna þar lýsti þvi
yfir, að Maria fengi ekki að-
gang að pottum eldhússins til
að elda hafragraut handa syni
glæpamanns.
Þetta er dæmi um hvernig
minnstu hlutir eru notaðir til
að beygja fjölskyldur pólitískra
fanga. Að ekki sé talað um að
þeir hafa enga möguleika til að
vinna fyrir lifsviðurværi sínu
eftir atvinnusviptinguna og
verða að lifa á ættingjum sínum
og vinum. María Sinjavski
sagði, að hinn stóri þögli hópur
kvenna og barna pólitískra
fanga í Sovétríkjunum liði
Framhald á bls. 10
maier frá V-Þýzkalandi, próf. dr.
A. Shtromas frá Englandi, sér-
fræðingur í sovézkum lögum,
prófessor Michael Bourdeaux,
Englandi, prófessor Erling Bjoel
frá Danmörku, frú Zinaids
Schakovsky frá Frakklandi, dr.
Frantisek Janouch frá Svíþjóð,
próf. S. Stypulkowski frá Eng-
landi, próf. S. Swianiewicz frá
Englandi, Victor Sparre frá Nor-
egi og séra Michael Wurmbrand
frá Bandarfkjunum. Að þvf loknu
tók fyrsta vitnið til máls, Victor
Balashov, sem fjallaði um dag-
legt lff fanga í Sovétríkjunum.
Balashov, sem nú býr í Banda-
ríkjunum, var um 10 ára skeið i
fangabúðum i Sovétríkjunum
þótt hann sé aðeins 33 ára gamall.
Hann er fæddur i Moskvu, sonur
verkfræðings og herforingja i
Rauða hernum.
Hann innritaðist árið 1953 i
Suvorov-herforingjaskólann með
það í huga að þjóna landi sinu
eins og faðir hans hafði gert, en
hann féll í orustunni um Vínar-
borg 1945. Þegar Balashov hins
vegar varð vitni að því þegar upp-
reisnin i Ungverjalandi var brot-
in niður með hjálp sovétmanna
varð hann fráhverfur herþjón-
ustu og yfirgaf skólann áður en
hann átti að taka lokapróf. Hann
fékk starf sem ljósmyndari og
túlkur í varnamálaráðuneytinu í
Moskvu og nam einnig við
Moskvuháskóla. 1961 stofnaði
hann „Samtök um menntafrelsi“
ásamt öðrum stúdentum úr her-
foringjaskólanum, og sömdu þeir
yfirlýsingu sem send ,var út til
menntamanna og herforingja,
þar sem þeir kröfðust þess
að heimspekilegum skoðunum,
sköpunarhugsjónúm og
menningu'yrði sleppt úr viðjum
Framhald á bls. 10