Morgunblaðið - 18.10.1975, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975
Agúst Petersen sýnir
í Norræna húsinu
ÁGÚST Petersen listmálari
opnar f dag málverkasýningu f
kjallara Norræna hússins. Á
sýningunni eru 87 myndir, sem
Ágúst sagði að spönnuðu f raun
10 ára tímabil, en langfiestar
myndanna væru þú málaðar á
þessu ári og hinu sfðasta.
Hér er um að ræða olíumynd-
ir og vatnslita- og pastelmyndir,
en oiíumyndirnar eru þó iang
fyrirferðarmestar á sýning-
unni. Vatnslita- og pastelmynd-
irnar er aðallega að finna í
ganginum áður en kemur inn í
salinn.
I samtali við Morgunblaðið i
gær sagðist Ágúst hafa unnið
vel siðustu misseri og verið af-
kastamikill. ,,Menn skulu ekki
eiga von á neinni formbyltingu
hjá mér,“ sagði hann, „heldur
er þetta hæg og sigandi þróun."
Sýning Ágústs i Norræna
húsinu verður opnuð í dag frá
kl. 3—5 fyrir boðsgesti en síðan
öllum opin til kl. 10 þann dag.
Upp frá því verður hún opin
alla daga frá kl. 2—10 fraríi til
28. október næstkomandi. Allar,
myndirnar eru til sölu fyrir
utan fimm sem eru i einkaeign.
Einar hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum alþjóðlegum sýningum
auk samsýninga hér innanlands
og hlotið verðlaun bæði fyrir
málverk og grafík erlendis.
Hann starfar nú sem kennari
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands.
Á síðastliðnu ári sá hann um
sögUsýninguna Island — Is-
lendingar á Kjarvalsstöðum.
Sýning sú, sem nú verður
opnuð I sýningarsal Byggingar-
þjónustu Arkitektafélags ís-
lands er fjórða einkasýning
hans í Reykjavik. Á sýningunni
eru 45 olíumálverk flest ný eða
nýleg. Málverkin eru öll til
sölu.
Málverk
Drífu
Viðar í
Bogasalnum
MYNDLISTARSYNING með
36 málverkum eftir Drifu
Viðar verður opnuð í Boga-
sal Þjóðminjasafnsins i dag
kl. 3, en það eru ættingjar
og vinir Drífu heitinnar sem
standa að sýningunni. Þorvald-
ur Skúlason listmálari valdi
myndirnar, sem hafa ekki áður
verið sýndar opinberlega, en
eru frá ýmsum tímabilum á
ferli listakonunnar. Meðal
annars er á sýningunni mynda-
flokkur sem Drífa málaði í
París á þeim árum sem hún
nam þar, en hún var þar m.a.
samtíma Ninu Tryggvadóttur.
Elztu myndirnar á sýningunni
eru málaðar 1946, en skömmu
fyrir andlát Drifu 1971 hélt
Sýningin varir frá 18.—30.
okt. og er opin daglega frá kl.
14.00 — 22.00.
Tvær af myndum Ragnars Páls.
Gestafjöldi hjá
Ragnari Páli
Sýningarlok
á sunnudag
SÝNING Ragnars Páls list-
málara að Kjarvalsstöðum
hefur verið mjög vel sótt þá
viku sem hún hefur verið opin
og í gær höfðu 2500 manns séð
sýninguna, en eins og kunnugt
er seldust allar þær myndir
sem voru til sölu á fyrsta
klukkutíma sýningarinnar, alls
33 af 75 sem á sýningunni eru.
Sýningunni lýkur á sunnudags-
kvöld.
I stuttu spjalli við Mbl. sagði
Ragnar Páll að hann hefði
málað mjög mikið að undan-
förnu og ferðast víða til að afla
fyrirmynda. Aðallega hefur
hann verið á Vestfjörðum og
Snæfellsnesi i sumar, „en aðrir
staðir hafa einnig komið inn í
myndina,“ sagði hann. „Það
hefur glatt mig mjög að mikill
fjöldi fólks hefur séð sýningu
mína og þar sem svo margir
hafa látið i ljós ánægju sína, get
ég vel við unað. Það er líka
skemmtilegt að sýna i sal eins
og í Kjarvalsstöðum og ein-
hvernveginn finnst mér það
eðlilegra að islenzkir málarar
eigi þess kost að vera þar innan
dyra, en utan með verk sin ef
þeir hafa hug á og húsnæðið er
til staðar. Ég fékk fljótlega
reisupassann út úr listamanna-
samfélaginu á mínum lista-
mannsferli. Það var árið 1961
að ég vildi fá að sýna 3 myndir
á haustsýningu Félags is-
lenzkra myndlistarmanna þá
nýkominn frá námi erlendis,en
í bréfi fyrir opnun sýningar-
innar fékk ég tilkynningu um
að ég gæti hirt myndirnar úr
Listamannaskálanum fyrir opn-
un. Þarna fannst mér ég sjá
strax í gegn um félagsandann
og hópinn sem réð ríkjum og
hef þrátt fyrir það ekkert upp á
hann að klaga, enda er ég ekki
að þessu til að vera að eltast við
einn eða annan á neikvæðan
hátt.“
Áð Iokinni uppsetningu á
verkum Jóns Engilbcrts í Lista-
safni Islands: Frá vinstri í
fremri röð eru: Birgitta Engil-
berts dóttir Engilberts, dr.
Selma Jónsdóttir, frú Tove
Engllberts eiginkona Engil-
berts og Karla Kristjánsdóttir
hjá Listasafni íslands og fyrir
aftan eru Jóhannes Jóhannes-
son og Olafur Kvaran sem báðir
eru f stjórn safnsins. Ljósmynd
Mbl. — á.j.
LISTASAFN Íslands opnar í
dag yfirlitssýningu á verkum
Jóns Engilberts listmálara í
sölum safnsins og eru þar sýnd
162 verk, það elzta frá 18.
aldursári listamannsins. Yfir-
litssýningin verður opin í einn
mánuð daglega frá kl. 13,30 til
22, en sýningin verður opnuð
kl. 5 í dag.
Að sögn dr. Selmu Jóns-
dóttur, forstöðumanns Lista-
safns ríkisins, hafa listaverkin
verið fengin að Iáni hjá frú
Tove Engilberts, Reykjavikur-
borg, Listasafni ASl og hjá
ýmsum einkaaðilum. í’rú Tove
gaf Listasafni Islands stóra
mynd eftir Engilberts í tilefni
sýningarinnar. Heitir sú mynd
„Úr vínnustofu málarans“ og er
178x250 sm á stærð.
I vandaðri sýningarskrá, sem
m.a. hefur að geyma svart-
hvítar myndir af verkum Engil-
berts og einnig litmyndir, ritar
dr. Selma grein um listamann-
inn þar sem hún segir m.a.
„Þegar skoðuð er yfirlitssýning
þessi á verkum Jóns Engilberts
er sem maðurinn sjálfur birtist
I verkunum, þróttmikill tilfinn-
ingaríkur heimsmaður, fullur
lífsþorsta, en einnig kemur þar
fram viðkvæm rómantisk sál.
Hér í Listasafni íslands kemur
Islendingum nú fyrst fyrir
sjónir heildarmynd af þessum
stórbrotna málara.“
Jón Engilberts er fæddur í
Reykjavík 23. maí 1908. Hann
var nemandi I einkaskóla Guð-
mundar Thorsteinssonar i
Reykjavík 1921—22 og víð Sam-
vinnuskólann 1925—26. Stund-
aði teikninám við Teknisk
Skole í Kaupmannahöfn á ár-
inu 1927 og við Listaháskólann
Þessa mynd tókum við í Bogasalnum f fyrradag þegar börn Drífu
Viðar voru að vinna við uppsetningu sýningarinnar ásamt Þor-
valdi Skúlasyni. Frá vinstri eru hver með sína myndina Einar
Thoroddsen, þá Jón, Theódóra og Guðmundur. Ljósmynd Mbl.
á.j.
hún málverkasýningu í Boga- verður opin daglega frá kl.
salnum. Drífa var fædd 1920. 3—10 til sunnudagskvöldsins
Sýnfngin í Bogasalnum 26. okt.
Einar Hákonarson við nokkur
verka sinna.
H
Einar
Hákonarson
sýnir við
Grensásveginn
EINAR Hákonarson listmálari
opnar i dag málverkasýningu
að Grensásvegi II, 2. hæð, i
sýningarsal Byggingarþjónustu
Arkitektafélags Islands.
Einar Hákonarson er fæddur
i Reykjavík. Hann stundaði list-
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1960 — 64 og
Valands listaháskólann í Gauta-
borg 1964—67.
í Kaupmannahöfn 1928—31, og
voru aðalkennarar háns Ejnar
Nielsen og Aksel Jörgensen. Á
árunum 1931—33 stundaði
hann nám við Listaháskólann I
Ósló og var aðalkennari hans
þar Axel Revold.
Jón Engilberts var búsettur i
Reykjavík 1933—34 og siðan í
Kaupmannahöfn 1934—40, er
hann fluttist alkominn heim til
Islands. Á þessu tímabili hélt
hann nokkrar sýningar í
Reykjavík m.a. 1929, 1930, 1934
og 1939. Á árunum 1934—40
tók hann virkan þátt í dönsku
listalifi og var m.a. kjörinn
félagi í sýningarhópnum
Kammeraterne 1936 og í Graf-
isk Kunstnersamfund.
Þegar heim kom 1940. varð
hann kennari við Handíða- og
myndlistarskóla Islands
1941—42 og 1948—49 og tók
jafnframt þátt í félagsstörfum
myndlistarmanna. Hann var
ritari i Félagi islenskra mynd-
listarmanna 1945—47, ritari ís-
landsdeildar norræna list-
bandalagsins, í stjórn Banda-
lags islenskra listamanna á
sama tíma og formaður félags-
ins Islensk grafik.
Verk eftir Jón Engilberts eru
í mörgum einkasöfnum og opin-
berum listasöfnum víðsvegar
um heim.'til að mynda í Statens
Museum for Kunst í Kaup-
mannahöfn, Cincinnati
Museum of Art, U.S.A., Colby
College Art Museum, Maine,
U.S.A. og Listasafni Islands.
Jón Engilberts lést i Reykja-
vík 12. febrúar 1972.
162 inálvak á yfirlits-
sýningu Engilberts
„Fyrsta heildarsýningin með þessum stórbrotna málara”