Morgunblaðið - 18.10.1975, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. OKTÖBER 1975
— Glæpirnir
Framhald af bls. 1
flokkskreddu og hugsjórialegs
einræðis. Hann og félagar hans
voru allir handteknir 1963 og
dregnir fyrir rétt, sakaðir um
and-sovézkan áróður. Þeir neit-
uðu allir sekt sinni, en voru
dæmdir í 10 ára fangelsi. Var
Balashov sjálfur í fangelsum
KGB í Moskvu og Vladimir, geð-
veikrahæli 1 Serbasky og fanga-
búðum í Morovia og Pot’ma. Hann
sagðist allan þann tima hafa verið
trúr hugsjónum sínum og haldið
fast við kröfu sína um að fá að
halda áfram störfum sínum í
fangelsinu. Eftir að hafa afplánað
refsingu sina var hann í tvö ár
undir stöðugu eftirliti KGB, unz
honum tókst að fá útflytjenda-
leyfi 1974. Hann nefndi þrjá aðra
af vinum sínum, sem reyndu að
komast frá Sovétríkjunum, þá
Eduard Kuznetsov, Yurii Fedorov
og Hleksei Murzhenko, en þeir
voru allir dregnir aftur fyrir rétt
og dæmdir i 15 ára fangelsi. Siðan
nefndi hann nokkra af þeim
mönnum, sem hann hitti á meðan
á fangelsisvist hans stóð og þær
sakir, sem þeir voru dæmdir fyr-
ir. Hann lýsti þvi næst fangelsis-
aðstæðum og sagði að í dag
byggju allir fangar við slæma að-
búð og mikinn likamlegan skort
og stöðugar sálfræðilegar pynt-
ingar fangelsisyfirvalda. Hver
maðurfær aðeinsSOO g afbrauði
daglega og það sé eina raunveru-
lega næringin, sem fangar fái því
að vökvinn, sem þeir fái með sé
óhæfur til neyzlu þrátt fyrir
hungur og brauðið sjálft svo lé-
legt að hungurverkföll séu al-
geng. I vinnubúðum fá fangar 2,5
rúblur á mánuði í laun. Balashov
sagði að meðan á fangelsisdvöl
sinni hefði staðið hefði hann
orðið vitni að óbeinum aftökum
95 fanga, sem hefðu tekið þátt i
mótmælaaðgerðum eða flóttatil-
raunum. Auk þess sem hundruð
hefðu látizt á sóttarsæng.
Alexander Vardy
Einna mesta athygli vöktu ræður
þeirra Alexanders Vardys og Dimitre
Panines. Hinn fyrrnefndi fjallaði um
opinberan áróður í Sovétríkjunum, en
hinn síðarnefndi um glæpi sovézkra
yfirvalda gegn íbúum landsins
í sinni ræðu sagði Vardy, að sovézk
yfirvöld stefndu að því að rækta með
sovézku þjóðinni frá barnæsku hatur í
garð vestrænna þjóða. Hann bentí i
þessu sambandi á bók, sem gefin var
út i Bonn 1971, „Þjóðverjar i sovézk-
um barnabókum'' eftir Olgu Pravosud-
ovitch, eftir 5 ára rannsóknir á slikum
bókum. Þar sýnir hún fram á,að sögn
Vardys, að byrjað er að innleiða með
börnum, jafnvel áður en þau byrja að
lesa hatur á „þýzkum fasistum" og er
það gert með teikningum fyrir yngstu
börnin Heldur hún því fram, að þessi
orð, „þýzkir fasistar", séu samnefnarar
fyrir allt fólk á Vesturlöndum. Jafn-
framt er reynt að hefja hernað og
hermennsku upp til skýjanna. Vardy
vitnaði siðan í skáldsögu franska rithöf-
undarins Romans Garys, „Promise at
Sunrise", þar sem hann segir i fyrsta
kafla: „Þetta er Filoche, guð grimmdar,
hjátrúar, fyrirlitningar og haturs Hann
öskrar bölvaðir Bandaríkjamenn,
bölvaðir Arabarnir, bölvaðir Gyðingarn
ir, bölvaðir Sovétmennirnir, bölvaðir
Kinverjarnir, bölvaðir negrarnir
Filoche skipuleggur styrjaldir, misrétti
og hræðsluherferð. Hann er faðir öfga-
hreyfinga, útrýminQarherferða og sá
sem æsir til trúarstyrjalda Hann er
voldugastur guða "
Siðan sagði Vardy: „Er það ekki
einmitt Filoche, sem sovézkir leiðtogar
hafa tekið sér til fyrirmyndar, það eru
þeir sem innræta fólki neikvæða
hugsun og hatur i öllum myndum og
það sem samræmist ekki kommúnisma
i hugsjónum, menningu, þjóðfélögum,
löndum Þetta eru mennirnir, sem sá
hatri milli þjóða og þessu byrja þeir á
um leið og ungviði byrjar að skynja"
Undir lokin vitnaði Vardy i Nóbelsræðu
Alexanders Solzhenitsyns, þar sem
hann segir: „Innan heyrnarlausa
svæðisins býr fólk, sem væri það ekki
ibúar jarðar heldur Marsbúar. Það veit
ekkert um aðra staði á jörðunni og er
tilbúið til að traðka þá i svaðið í þeirri
heilögu trú, að það sé að frelsa það "
Hann lauk máli sinu með þvi að segja:
„Hinn illi siður sovézkra ráðamanna að
innleiða hatur gegn orðum er ógnun
við allt mannkyn."
Hins vegar væri vart hægt aö kalla
dauða þeirra af eðlilegum orsökum,
vegna þess að föngum væri neitað um
læknishjálp eða lyf Af 470 föngum í
Vladimir og Potmafangelsunum 1963
hefðu aðeins 1 80 verið á lífi 1 972. Af
þessum 180 væru 100, sem telja
mætti lífstiðarfanga, en til þess að
halda þeim í fangelsum viðhefði KGB
aðferðir, sem fengju menn, jafnvel
sterkustu menn, til að rísa upp og
mótmæla og það nægði til að fá þá á
ný dæmda til langrar fangelsisvistar.
Hann sagði að menn litu á lausn úr
fangelsi sem kraftaverk, sem fáir leyfðu
sér að vonast eftir. Hver dagur í fanga-
vist gæti orðið sá siðasti i lífi manna,
en meiri möguleiki væri á krafta-
verkum ef nöfn hinna fangelsuðu yrðu
birt þannig að þau féllu ekki í
gleymsku manna i Sovétríkjunum eða
á Vesturlöndum Það hafi verið vonin,
sem hélt honum og samföngum hans á
lifi. Hann sagðist vona að þessi réttar-
höld yrðu atburður, þar sem fyrrver-
andi fangar úr sovézkum fangabúðum
bæru einlægan vitnisburð um mesta
óvin mannréttinda og frelsis, Sovét-
rikin, og hann næði eyrum allra þeirra,
sem vildu vita sannleikann um lifið i
Sovétrikjunum.
Eftir þetta lögðu fyrirspyrjendur
nokkrar spurningar fyrir Balashov um
atriði, sem þeir vildu fá nánari skýringu
á og hann svaraði þeim skýrt og skor-
inort. Það vakti athygli viðstaddra, að
allar spurningarnar, sem beint var til
vitnanna, beindust eingöngu að því að
fá ýmis atriði skýrar fram þannig að
menn kæmust ekki upp með að slá
einhverjum staðhæfingum fram án
þess að geta rökstutt þær. Kom
nokkrum sinnum til snarpra orða-
skipta, er sum vitnanna tóku óstinnt
upp spurningar um tölur, sem þeir
höfðu nefnt, en Thyregod stjórnaði
röggsamlega og kvað nauðsynlegt að
öllum spurningum yrði svarað þannig
að sannleikurinn og sannleikurinn einn
kæmi fram
Panine, sem var 1 6 ár i fangelsum á
Stalinstímunum frá 1940—1956,
sagði að glæpir sovétstjórnarinnar
væru orðnir svo stjarnfræðilegir að
vöxtum, að fólk tryði ekki sínum eigin
augum, þótt hægt væri að staðfesta
málið. Það hefði verið Lenin i upphafi,
sem lagði blessun sína yfir aftökur án
réttarhalda, pyntingar, morð á gislum,
morðárásir á verkamenn í mótmæla-
göngum, valdniðslu flokksleiðtoganna
á hverjum stað og rupl og rán á
landsbyggðinni, þegar efnahagskerfið
var að gliðna í sundur, og hungur og
sjúkdómar voru í algleymingi vegna
borgarastyrjaldarinnar. Á árunum
1917 til 1923 hefðu 20 milljónir
manna látið lifið og aðrar 60 milljónir
á árunum frá 1917 til 1 953, og væru
þá ekki meðtaldir þeir sem fallið hefðu
I styrjöldum Þetta væru tölur, sem
töluðu sinu máli.
Stalin, Krusjef og Brezhnev hefðu
fetað dyggilega í spor Lenins og þó
heldur magnað hryðjuverkin
Gott dæmi um þetta væru morðin i
Yakutak, sem Krusjef hefði fyrirskipað
1964. Eftir að atómsprengjutilraunir
hefðu verið framkvæmdar i háloft-
unum yfir heimskautabaugnum 1963
hefði mikið magn af geislavirku efni
fallið til jarðar Eskimóarnir og fólk áf
öðrum norðlægum kynstofnum hefði
ekkert skilið i þvi er hreindýr byrjuðu
að stráfalla Þetta fólk hefði undir lokin
ákveðið að fara til Yakutsk til að fá lyf
og hjálp. Er það kom að útjaðri borg-
arinnar kom á móti þeim sveit öryggis-
varða og skipaði þeim að snúa aftur
heim, sem hefði þýtt að ganga beint i
dauðann.
Þegar fólk reyndi að skýra mál sitt,
var þvi svarað að það hefði 30 mínútur
til að snúa við Meðan á viðræðunum
stóð hófu öryggisverðirnir skothrið á
fólkið úr vélbyssum og stráfelIdi það
nema nokkra, sem tókst að flýja Ekkert
fréttist af þessum morðum fyrr en
1970, er jarðfræðingur, sem var við
rannsóknir á þessum slóðum, heyrði
söguna hjá þeim sem eftir lifðu.
Þessi atburður er ekkert einsdæmi.
Þúsund önnur slik atvik hafa gerzt og
eru enn að gerast án þess að rússneska
þjóðm og umheimurinn fái um þau
vitneskju.
Nú á tímum brosandi Brezhnevs og
„détente" hafa glæpirnir aðeins tekið á
sig nokkuð aðra mynd Um 1.7
milljónir manna eru í pólitiskum fanga-
búðum, og alls eru um 3,5 milljónir
sovétmanna í einhvers konar fangavist
Þetta segir sína sögu. Eðli stjörnar
Brezhnevs er slikt, að engin von er til
þess að lýðræði og frelsi komi til á
næstu áratugum. Hins vegar er fólkið i
heimalandi okkar nægilega sterkt til að
leggja grundvöll að frelsi sinu með
„byltingu hugans", sem er friðsamleg-
asta leiðin til að móta virðingu fyrir
mannréttindum I Sovétríkjunum".
Spyrjendur lögðu hart að Panine að
styðja tölur sinar og gerði hann það
eftir ýmsum flóknum leiðum, sem
viðstaddir klöppuðu ákaft fyrir.
„Vitnisburður minn fjallar um
atvinnutap og þá kúgun, sem maður í
Sovétríkjunum sætir eftir að hið opin
bera hefur svipt hann rétti til að afla sér
lífsviðurværis," sagði Boris Shagrin I
upphafi ræðu sinnar. Hann lýsti þvi
hvernig með hann var farið eftir að
hann vár rekinn úr starfi eínu við
Listasögustofnunina i Moskvu „vegna
þess að hann gat ekki uppfyllt kröfur
hugsjónalegs eðlis sem voru gerðar til
visindalegra starfsmanna".
„I brottrekstrarbréfinu sagði hrein-
lega að ég væri stjórnmálalega óhæfur
og þvi gæti ég ekki fengið að halda
áfram kennslu i sérgrein minni, list-
heimspeki Þetta gerðist árið 1968 og
eftir það gat ég hvergi fengið að
starfa í 6 ár unz ég yfirgaf heimaland
mitt 1974. Það sem ég hafði mér til
sakar unnið var að senda ásamt 1 1
öðrum sovézkum borgurum bréf til
þings kommúnista, sem haldið var i
Búdapest, þar sem ég lýsti brotum á
mannréttindum í Sovétrikjunum
Einnig ritaði ég nafn mitt undir bréf
ásamt 67 öðrum visindamönnum í
Moskvu, þar sem fordæmdur var
loddaraleikur yfirvalda við réttarhöldin
gegn Galanskov, Ginsburg og fleirum.
Bréf þetta var sent ríkissaksóknaranum
í Moskvu og hæstarétti Hæstiréttur
gerði ekkert i málinu annað en að
senda það til yfit'manna þeirra, sem
það undirrituðu, því að það er þeirra
verk að þagga niður i þeim, sem hafa
uppi mótmæli Yfirmaður minn A.
Dimitriyevich, kallaði mig á sinn fund
og reyndi að fá mig til að afneita
bréfinu, segja að ég hefði verið afvega-
leiddur af borgaralegum áróðri, þá yrði
málið látið niður falla, annars yrði mér
vikið úr starfi Þegar ég sagði að slik
neitun væri óheiðarleg, var mér þegar I
stað vikið úr starfi "
Shagrin sagði, að þetta vopn væri
sovézkum yfirveldum ákaflega tamt,
því að því fylgdu engin réttarhöld og
engar skýringar væru nauðsynlegar
— Öll fjölskylda
Framhald af bls. 1
miklar þrengingar og ekki sízt
börnin sem sæju ekki feður
sina árum saman. Hún kvaðst
hafa mikinn áhuga á því að
stofnaður yrði sjóður til að
hjálpa börnum þessara fanga.
Hún lýsti því hvernig farið er
með eiginkonurnar þegar þær
fá að heimsækja menn sína í
fangabúðirnar, en það var áður
3—4 sinnum á ári, en hefur nú
verið takmarkað við 3 heim-
sóknir. Konan er klædd úr
hverri spjör bæði áður og eftir
að hún sér mann sinn og leitað í
fötum hennar. Það er hlustað á
hvert orð sem fer á milli hjón-
anna og eiginkonan er hrjáð á
margan annan hátt, m.a. með
því að neita henni um fleiri
heimsóknir reyni hún ekki að
fá mann sinn til að láta að vilja
yfirvaldanna. María sagði, að
bréfin til fanganna væru rit-
skoðuð og oft væru felldir
niður úr þeim kaflar. Mörg ráð
eru höfð til að leika á ritskoðun
ina. Hún nefndi sem dæmi, að
maður hennar hefði verið mik-
ill aðdáandi ljóðskáldsins
Mandelstam. Hún hefði komið
ljóðum hans til Andrei með því
að lýsa því i bréfum sínum,
hvernig hún væri að verða vit-
skert og þvi byrjuð á að yrkja
ljóð. Þannig fékk Andrei
Sinjavski ljóð Mandelstams í
fangabúðirnar. Maria sagði, að
það tæki oft margar vikur fyrir
fangana að fá bréf sín, nema
eitthvað dapurlegt og sorglegt
væri i þeim. Þá brygði svo
undarlega við, að fangarnir
fengju bréfin umsvifalaust.
María Sinjavski sagði, að
fangarnir hefðu áður fyrr mátt
hafa bækur hjá sér, eins
margar og þeir vildu, en nú
væri búið að skera það niður í
fimm bækur. Auk þess hefðu
yfirvöldin skorið niður pakka-
sendingar til fanganna, en það
er mjög alvarlegt, sökum þess
að matvæli sem þeim eru send
bjarga þeim oft frá heilsutjóni
og jafnvel dauða. María sagði,
að nú mætti aðeins senda póli-
tískum föngum einn pakka
eftir að þeir hafa afplánað
helming dómsins. María
Sinjavski sagði aðspurð, að hún
hefði ekki skýringu á því hvers
vegna aðbúnaður pólitískra
fanga færi versnandi nema þá
helzt, að þetta væru viðbrögð
ósjálfráðá kerfisins.
» V
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu
í Morgunblaðinu þann: ...........................
i i i i i l i l I______I_I__1_.J_I__I_I--1-1--1-1 Fyrirsögn 150
I I I l I l I..............I I I I__|_|_|__|__|_|_|__I--1-1 300
I I I I I I I I I I I I I I I I_I__I_I_I__I__I_I_I--1--1-1 450
I I I I I I I I I I I I I I_I__I_l__I_I_I__I--1-1-I--1--1-1 600
I I I I I I I I I I I I I I I I_J__I_I_I__I__I-1-1--1--1-1 750
I I I I I I I I I I I I I I_I__I__I_I_I_I—l---\-1-1--1--1-1 900
I I I I I I I I I I I I I I I I I I I l I I I I I I 11050
Hver lína kostar kr. 1 50 Meðfylgjandi er greiðsla kr......... ...
NAFN: ........................................
HEIMILI: .....................................SÍMI:
w
‘Athugið'
Skrifið með prentstöfum og <
setjið aðeins 1 staf í hvern reit
Áríðandi er að nafn, heimili
og sími fylgi.
—v—v-
.77,4 A£/Su
,'aJAWt rftfl TfiJrA W, ,/L£,/£m
,/<bmí\ ,/, 6*/ua
OtkiWfi. I AAurx ,/, M£,/nU,/,
WSAM,/Jt&KK ,/, S/nA ,1,6,0,a6, , :
* ‘ 1 ‘
/1 4.
Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
REYKJAVÍK:
KJÖTMIÐSTÖÐIN, Laugalæk 2,
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Háaleitisbraut 68,
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahlíð 45—47,
HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2 — 6
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Álfheimum 74,
ÁRBÆJARKJÖR,
Rofabæ 9,
HAFNARFJORÐUR:
LJÓSMYNDA-
OG GJAFAVÖRUR
Reykjavlkurvegi 64,
VERZLUN
ÞÓROAR ÞÓRÐARSONAR, «.
Suðurgötu36,
KÓPAVOGUR
Ásgeirsbúð. Hjallavegi 2
Borgarbúðin, Hófgerði 30
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
A A