Morgunblaðið - 29.10.1975, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÖBER 1975
Þjóðleikhúsið frumsýn-
ir Carmen á föstudag
Frumsýningin á óperunni
Carmen eftir Bizet verður I Þjóð-
leikhúsinu á föstudaginn og er
það I fyrsta skipti að Carmen er
sýnd á sviði á Islandi. Hljóm-
sveitarst jóri er Bohdan
Wodiczko, en Jón Sigurbjörnsson
er leikstjóri. Þegar er uppselt á
fyrstu sýningarnar.
Óperan Carmen var fyrst frum-
sýnd fyrir réttum hundrað árum
og þótti frumsýningin mistakast
og áhorfendur og gagnrýnendur
tóku verkinu fálega. En brátt
snerist blaðið við og fyrr en varði
tók hvert óperuhúsið á fætur öðru
verkið til flutnings og færði það
fram til sigurs og fram á þennan
dag hefur Carmen verið i hópi
þeirra verka, sem vinsælust hafa
verið með öllum almenningi.
Bizet sótti efni óperunnar i smá-
sögu eftir Prosper Merimée, en
texti hennar er eftir Henri
Meilhac og Ludovic Halévy, og
gerist leikurinn i Sevillu. Þor-
steinn Valdimarsson skáld hefur
snúið textanum á íslensku. I
flutningnum hér er I megindrátt-
um fylgt upprunalegri gerð, hinni
svokölluðu Parísarútgáfu með töl-
uðum texta á milli, en þó á nokkr-
um stöðum notuð recitativin, sem
algengast er. Um hið spænska um-
hverfi atburðanna, leikmynd og
búninga sér málarinn Baltasar.
Þær Sigriður E. Magnúsdóttir
og Rut Magnússon hafa æft hlut-
verk Carmenar og mun Rut
syngja það nokkrum sinnum. Á
frumsýningunni syngur Sigríður
Carmen og þá verður i hlutverki
Escamillos gestur, finnski
baritonsöngvarinn Walton
Grönroos. Þessi ungi söngvari
þreytti frumraun sína i Helsing-
forsóperunni í fyrra, en nú í
haust var hann ráðinn f eitt
fremsta óperuhús veraldar,
Deutsche Oper í Berlfn. Grönroos
mun syngja hlutverk nautaban-
ans á nokkrum fyrstu sýning-
Gestkvæmt hjá Höllu
á Kjarvalsstöðum
Helmingur myndanna seldist strax
HALLA Haraldsdóttir listmálari
opnaði sýningu á 62 myndum I
Kjarvalsstöðum s.l. laugardag, en
nokkrar myndanna eru I einka-
eign. Liðlega helmingur mynd-
anna seldist á fyrstu tveimur
tímum sýningarinnar og mjög
góð aðsókn var að sýningunni um
helgina. Sýningin verður opin til
2. nóv.
Myndirnar hefur Halla unnið á
síðustu tveimur árum og eru flest-
ar þeirra unnar í sement og
mosaik, en einnig eru nokkur
olíumálverk á sýningunni. Ein
steinmynd á sýningunni er unnin
eftir mynd Höllu af dr. Oiedte-
mann og fyrirtæki hans í Þýzka-
landi, sem m.a. hefur unnið
margar af myndum Gerðar Helga-
dóttur i stein. Er þýzka fyrirtækið
búið að panta myndir hjá Höllu til
þess að vinna eftir og er nú verið
að byrja á fyrstu myndinni til
stækkunar fyrir erlenda aðila.
Sýning Höllu í Kjarvalsstöðum
er áttunda einkasýning hennar
heimg og heiman, en hún hefur
tekið þátt í 5 samsýningum bæði
hér heima og erlendis.
Halla Haraldsdóttir við eitt verka sinna á Kjarvalsstöðum.
Islandssögupróf-
ið á Eskifirði
NýJega urðu nokkur blaða-
skrif um sögupróf, sem lagt
hafði verið fyrir 10 ára börn á
Eskifirði.
Mbl. óskaði eftir því við
menntamálaráðuneytið, að það
útvegaði prófið til birtingar
hér f blaðinu og barst það sfðari
hluta vikunnar sem Ieið.
Yfirskrift á prófblaði er:
B.G.E. — Islandssaga — 4.
bekkur.
Spurningarnar eru þessar:
1) Naddoður nefndi Island a)
Undraland b) Snæland c)
Thúle d) Island.
2) Garðar Svavarsson var a)
sænskur b) norskur c) hol-
lenzkurd) færeyskur.
3) Hrafna-Flóki bar Islandi
ekki vel söguna vegna a) meng-
unar b) vetrarhörku c) at-
vinnuleysis.
4) Þegar Atli jarl rak Hjör-
leif og Ingólf frá Noregi héldu
þeir a) kjafti b) niðri í sér
andanum c) til Islands.
5) Þegar Ingólfur nálgaðist
Islands kastaði hann a) upp b)
öndvegissúlunum fyrir borð c)
af sér vatni d) sér í sjóinn.
6) Tfmabilið 874—930 er
nefnt a) geimöld b) landnáms-
öld c) fornöld d) friðaröld.
7) Aður en Skalla-Grimur og
Kveldúlfur fóru til tslands
drápu þeir a) Harald hárfagra
b) allt búfé sitt c) tengdason
Haralds hárfagra d) tittlinga e)
frændur Haralds tvo
8) Auður djúpúðga nam land
i a) Vatnsfirði b) Bjarnarhöfn
c) Dalasýslu d) Kolbeinsey.
unum, en sfðan tekur Jón Sigur-
björnsson við hlutverkinu. Eins
og áður hefur komið fram, er það
Magnús Jónsson sem fer með
hlutverk Don José, en sem
Michaelu kynnast íslenskir leik-
húsgestir Ingveldi Hjaltested í
sínu fyrsta stóra hlutverki. Ann-
ars eru ýmsir kunnir söngvarar í
hinum hlutverkunum. Svala
Nielsen, Elín Sigurvinsdóttir,
Kristinn Hallsson, Garðar Cortes,
Hjálmar Kjartansson og Halldór
Vilhelmsson.
Erik Bidsted kom til landsins til
að æfa dansatriðin, en þar koma
fram örn Guðmundsson og fimm
dansmeyjar úr islenska dans-
flokknum, þær Helga Bernhard,
Guðrún og Ingibjörg Pálsdætur,
Nanna Ólafsdóttir og Auður
Bjarnadóttir. Þjóðleikhúskórinn
gegnir að sjálfsögðu miklu hlut-
verki I þessum flutningi en i
kórnum eru að þessu sinni 36
söngvarar. Þá kemur og fram í
sýningunni drengjakór og svo eru
nokkrir aukaleikarar, þannig að
samtals koma fram á sviðið i sýn-
ingunni nálega 70 manns. Þá er
ótalinn hlutur Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands, sem leikur þarna
undir forystu konsertmeistar-
anna Guðnýjar Guðmundsdóttur
og Þorvalds Steingrimssonar.
(Frá Þjóðleikhúsinu).
Þing UMFI
í Borgarfirði
SAMBANDSÞING UMFl, það 29.
í röðinni, verður háð á Varma-
landi f Borgarfirði dagana 15. og
16. nóvember n.k. og hefst þingið
kl. 15.30 á laugardag.
I frétt frá UMFl segir, að búizt
sé við góðri þátttöku á þinginu,
enda óvenju viðburðaríkt starfs-
tfmabil að baki frá siðasta þingi
félagsins.
Gert er ráð fyrir, að helzta mál
þingsins veri staða UMFÍ og fjár-
mál hreyfingarinnar, fræðslumál
og nýafstaðið landsmót.
Starfslið á St. Jósefsspftala f Hafnarfirði f hinum nýju húsakynn-
um. Frá vinstri: Systir Ann, Guðrún Jónsdóttir, Dóróthea Sigur-
jónsdóttir, Jósef Ólafsson yfirlæknir, Sigríður H. Aðalsteinsdóttir,
Bjarnheiður Ingþórsdóttir, systir Theresita, systir Deirdre, systir
Maud og príorinnan, systir Eulalia.
Ný álma við St Jós-
efsspítala í Hafnar-
fírði tekin í notkun
S.L. fimmtudag var tekin í
notkun ný álma f Sankti Jósefs-
spftala i Hafnarfirði. Það var
fyrsti áfangi álmunnar, sem
tekinn var í notkun, en þar eru
12 sjúkrarúm, — til viðbótar
hinum 42, sem fyrir voru i
sjúkrahúsinu.
Þá er ólokið við frágang hins
nýja eldhúss, sem verða mun f
kjallara nýbyggingarinnar, og
skurðstofu, sem verður á ann-
arri hæð, en i risi eru íbúðir
þeirra St. Jósefssystra, sem
starfa f sjúkrahúsinu. Fram-
kvæmdir við nýbygginguna
hófust fyrir rúmum tveimur ár-
um.
Fyrstu sjúklingarnir komu f nýju álmuna kl. 2 s.l. fimmtudag. Voru
það þær Hera Karlsdóttir, sem reyndar starfar sem nætur-
hjúkrunarkona í sjúkrahúsinu, og Eygerður Björnsdóttir. Mjög
fullkomin aðstaða er f nýju álmunni. Kiwanisklúbbur Hafnarfjarð-
ar hefur fært sjúkrahúsinu að gjöf tvö sjúkrarúm og tvö náttborð.
Nýr leikskóli tekur
til starfa í Reykjavík
ÞAÐ ER á allra vitorði að mikijl
skortur er á barnaheimilum f
Reykjavfk. Hefur borgin ekki
haft undan að reisa Ieikskóla og
dagheimili og jafnvel þótt ýmsir
einkaaðilar og félagasamtök hafi
stofnsett slfk heimili hefur enn
vantað nokkuð á að þörfinni væri
fullnægt.
Nú hafa KFUM og KFUK í
Reykjavik ákveðið að hef ja rekst-
ur leikskóla í einu af félagshúsum
sínum. Lengi hefur það verið rætt
i stjórnum félaganna hvernig
nýta megi húsin meira heldur en
fyrir almennt starf þeirra. Áhugi
manna beindist fljótt að hug-
myndinni um leikskóla, þar sem
sú starfsemi samræmist einna
helst starfi KFUM & K og nýting
húsanna yrði þar með mjög hag-
kvæm.
Forstöðukona leikskóla KFUM
& K hefur verið ráðin Ragnhildur
Ragnarsdóttir fóstra og er hún nú
að undirbúa starfsemina, sem
verður í Langagerði,ásamt öðrum
starfsstúlkum.
„Ýmsar innréttingar þarf að
setja hér upp, snaga, bretti undir
vaska, útbúa skrifstofu og mála,
svo eitthvað sé nefnt. Leiktæki
ýmiss konar verða hér, svipað og
gerist á venjulegum leikskólum.
Eins og sjá má þarf lfka að gera
eitt og annað fyrir lóðina, girða
Frá vinstri Sigrún Hjartardóttir og Ragnhildur Ragnarsdóttir for-
stöðukona leikskólans við vinnu sfna við undirbúning.
hana, koma upp sandkassa og
fleiri útileiktækjum.“
Hvenær gerirðu ráð fyrir að
Ieikskólinn taki til starfa?
„Það eru komnar nokkrar um-
sóknir nú þegar og ég vonast til að
við getum byrjað um mánaðamót-
in. Starfsdagur hefst hér 8—8:30
þegar börnin koma, þau eru frá
tveggja og hálfs árs til fimm ára
fyrir hádegi og þriggja til fimm
ára eftir hádegi, þ.e. börn geta
ekki verið allan daginn, heldur
aðeins annaðhvort fyrir eða eftir
hádegi. Þau hafa með sér nesti og
eftir föndur og leik drékka þau og
eru síðan úti eða inni að leik eftir
atvikum. Við höfum rúm fyrir 30
börn í hvorum hópi og skiptist
hvor hópur í tvær deildir, 15 börn
í hverri.“
Er starfsemi þessa leikskóla
öðruvísi en starf annarra?
„Þessi leikskóli er á vegum
KFUM & K og er starfið mjög líkt
og á hinum ýmsu leikskólum.
Nefna má að svokallaðar sam-
verustundir, sem tfðkast á flest-
um leikskólum, eru notaðar til að
sýna börnunum og útskýra ýmis-
legt og þar verður lögð áherzla á
uppfræðslu í kristindómi við hæfi
barnanna, sagðar sögur úr Biblí-
unni, sungið o.fl.“
Starfsfólk á Ieikskólanum verð-
ur alls fimm manns og eins og
fyrr segir hefst starfsemin nú um
mánaðamótin. Hægt er ennþá að
koma umsóknum til skrifstofu
KFUM & K, Amtmannsstíg 2b kl.
13—17, slmi 13437.