Morgunblaðið - 21.01.1976, Síða 1
32 SÍÐUR
16. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Brezki flotinn farinn
út fyrir 200 mílurnar
Orðsending frá Wilson til Geirs: Boðið til viðræðna í Lundúnum í þessum mánuði
Brezku herskipin sem hafa
verið til verndar brezkum togur-
um á lslandsmiðum sigldu út úr
íslenzkri fiskveiðilögsögu i gær-
kvöldi en verða rétt fyrir utan 200
mflna mörkin og við þvf búin
sigla aftur á veiðisvæði togaranna
ef fslenzku varðskipin halda
áfram aðgerðum gegn þeim.
Dráttarbátarnir Statesman og
Euroman verða eftir hjá togurun-
um, sem nú eru um 45 talsins og
dráttarbáturinn Lloydsman kem-
ur þeim til aðstoðar einhvern
næstu daga. Togararnir halda sig
enn úti fyrir Langanesi og á
Vopnafjarðargrunni.
Frydenlund
ræðir við
Hattersley
Öslö, 20. janúar. Reuter.
KNUT Frydenlund, utanrfkis-
ráðherra Norðmanna, fagnaði
f dag þeirri ákvörðun Breta að
kalla herskipin út fyrir 200
mílurnar við Island.
Hann sagði f viðtali við
Reuter, að hann mundi ræða
fiskimál við Roy Hattersley að-
stoðarutanrfkisráðherra Breta,
sem kemur til Úslóar á morg-
un f þriggja daga opinbera
Framhald á bls. 14
t Bretlandi mótast viðbrögð við
þeirri ákvörðun brezku rfkis-
stjórnarinnar að kveðja burtu
herskipin af gætni og efasemdum
en f Brússel er sagt að auknar
lfkur séu nú á þvf að samið verði
um lausn fiskveiðideilunnar.
Morgunblaðið sneri sér i gær-
kvöldi til Einars Ágústssonar
utanríkisráðherra og spurði hann
hvort fslenzku ríkisstjórninni
hefði borizt orðsending frá þeirri
brezku um landhelgisdeiluna.
Utanríkisráðherra sagði:
„Geir Hallgrímssyni forsætis-
ráðherra hefur borizt siðdegis f
dag formleg tilkynning frá Wil-
son, forsætisráðherra Breta, þar
sem hann segír að brezku herskip-
in verði kvödd út fyrir 200
mílurnar í því skyni að greiða
fyrir samtölum ríkisstjórna Is-
lands og Bretlands vegna land-
helgisdeilunnar og auk þess
býður Wilson forsætisráðherra ís-
lands til viðræðna i London mjög
fljótlega í þessum mánuði."
BROTTKVAÐNINGIN
Brottkvaðning brezku herskip-
anna hófst í dögun þegar freigát-
urnar Naiad, Falmouth og
Baechante sigldu á brott á fullri
ferð ásamt birgðaskipinu Alwen
og dráttarbát flotans, Rollicker.
Framhald á bls. 14
Fastaráð NATO þakkar
íslendingum og Bretum
Einkaskeyti til Mbi.
Brtissel, 20. janúar. AP.
ATLANTSHAFSRAÐIÐ þakkaði
f dag tslendingum og Bretum —
en þó sérstaklega Bretum — fyrir
að nálgast samkomulag í fisk-
veiðideilunni.
Eftir sérstakan fund I ráðinu
var gefin út yfirlýsing þar sem
sagði að það væri „fullkomiega Islendinga hefði breytzt i veiga- Josep Luns, framkvæmdastjóri
sammála þeirri lausn sem hefði
náðst og þakkaði hlutaðeigandi
rfkisstjórnum, einkum Bretlandi,
og léti jafnframt f ljós þá von að
sú braut sem hefði verið mörkuð
leiddi til sanngjarnar lausnar."
Haft var eftir brezkum heim-
ildum eftir fundinn að afstaða
miklum atriðum. Heimildirnar
hermdu qð nú væri góð von til
þess að Geir Hallgrímsson for-
sætisráðherra mundi þekkjast
boð Harold Wilsons forsætisráð-
herra og koma til Lundúna sem
fyrst.
Embættismenn NATO sögðu að
Uppgjöf segja brezk
blöð í fgrirsögnum
SJÖ af nfu helztu blöðunum f
Bretlandi birtu fréttina um
brottköllun brezku herskip-
anna frá Islandsmiðum á for-
sfðu. Tvö þeirra töluðu um
„uppgjöf“ í fyrirsögnum en
fréttin barst svo seint að ekki
var fjallað um málið f forystu-
greinum.
Fréttin var aðalmálið á for-
sfðu Daily Express sem er
hægrisinnað blað og birtist
undir fyrirsögninni „Uppgjöf f
þorskaslrfðinu" sem náði yfir
alla sfðuna. Blaðið sagði f frétt-
inni: „Bretar hafa gefizt upp
fyrir kröfu sem Islendingar
settu fram í úrslitakostum f
gær og munu kalla burtu frei-
gátur og könnunarflugvélar
brezka flotans frá tslands-
miðum.“
1 frétt Daily Express er þvi
bætt við að látið sé í það skina í
ráðuneytum „að Bretar muni
reka smiðshöggið á undanláts-
semina með því að fallast á
fyrri kröfu íslendinga um
65.000 tonna ársafla brezkra
togara.“
Daily Mail, sem er einnig
hægrisinnað blað, segir i fyrir-
sögn á sinni frétt sem birtist
einnig á forsiðu: „Callaghan
gefst upp í þorskastriðinu.“
Blaðið segir að endanlegur
árskvóti sem brezkir togarar fái
að veiða innan 200 mílnanna
við Island „verði líklega kring-
um 80.000 lestir.“ Þar með seg-
ir blaðið að fiskverð muni
hækka í Bretlandi og atvinna
minnka i brezkum sjávarút-
Framhald á bls. 31.
NATO, teldi nú að milligöngu-
starfi sínu væri lokið nema því
aðeins að deilan blossaði upp að
nýju.
I yfirlýsingunni eftir fundinn i
ráðinu er Luns þakkað fyrir til-
raunir hans til að tryggja hags-
muni bandalagsins og áherzla
lögð á stuðning ráðsins við að-
gerðir hans.
Brezku heimiidirnar sögðu að
málflutningur brezka fulltrúans,
Sir John Killick, hefði fengið
góðar undirtektir. Bretar hefðu
fengið töluverða samúð, bæði fyr-
ir málstað sinn og hvernig þeir
hefðu haldið á málunum.
I aðalstöðvum NATO var ekkert
um það sagt hvort íslendingar
hefði formlega dregið til baka
hótun sína um stjórnmálaslit nú
þegar Bretar hafa gengið að skil-
yrðum þeirra. Á það er bent að
Islendingar hafi einnig rætt um
að endurskoða stöðu sína í banda-
laginu og að það gæti stofnað
Keflavíkurstöðinni í hættu og þvi
hiutverki hennar að fylgjast með
ferðum sovézkra skipa og kafbáta.
Heimildir í Brússel herma að
flutningur stöðvarinnar mundi
hafa mikinn kostnað i för með sér
og að það hafi verið bandaríski
Framhald á bls. 31.