Morgunblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976
11
Sigurjón
leikmynda-
maður
á Mokka
Sigurjón Jóhannsson leik-
myndagerðarmaður hefur nú
opnað sýningu á Mokka þar
sem hann sýnir búninga-
teikningar og sviðsmyndir frá
uppfærslu sviðssetningar Góðu
listasp
rang
Eftir
Arna Johnsen
Inúk til
Venezuela
og víðar
INUK-leikarar Þjóðleikhúss-
ins, sem um þessar mundir
sýna Inúk á kjallarasviði Þjóð-
leikhússins, munu fara með
sýninguna á listahátíð I Caracas
í Venezuela í vor. Leikflokkur-
inn mun halda héðan 20. apríl á
alþjóðlega leiklistarhátfð í
Caracas en í sambandi við þá
hátíð verður einnig haldið al-
þjóðlegt leikhúsþing, ITI. Frá
Venezuela munu leikararnir
halda með sýninguna til
Guatemala og Los Angeles og ef
til vill viðar, en sem kunnugt er
fór leikflokkurinn í vel heppn-
aða sýningarferð um Evrópu i
fyrra.
Sigurjón Jóhannsson við eina
mynda sinna.
sálarinnar frá Sesúan, sem er
verið að sýna í Þjóðleikhúsinu
um þessar mundir. Sigurjón
sýnir þarna 23 myndir af
búningateikningum og sviðs-
myndum, bæði teikningar og
vatnslitamyndir, en sviðs-
myndirnar eru 9 og búninga-
teikningarnar eru 14. Sigurjón
hefur verið leikmyndagerðar-
maður við Þjóðleikhúsið s.l. 3
ár. Allar myndirnar á sýning-
unni eru til sölu.
„Glerdýrin”
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-
sýndi leikritið „Glerdýrin"
eftir ameríska höfundinn
Tenessie Williams föstudaginn
16. janúar. Þýðingu leiksins gerði
Gísli Asmundsson. Leikstjóri er
Gísli Halldórsson, en hann hefur
starfað með Leikfélagi Akureyrar
að undanförnu (Kristnihald und-
ir Jökli eftir Halldór Laxness).
Leikmynd gerir Jónas Þór Páls-
son sem vel er þekktur fyrir
vinnu sína hjá sínu heimaleikfé-
lagi, á Sauðárkróki, en hefur ekki
á Akureyri
gert mikið af því að starfa í öðrum
sóknum og vinnur nú í fyrsta
sinni fyrir L.A. Aðstoðarleikstjóri
er Gestur E. Jónasson. Leikarar
eru Saga Jónsdóttir, Aðalsteinn
Bergdal, Sigurveig Jónsdóttir og
Þórir Steingrímsson, en sá siðast-
taldi var ráðinn til L.A. nú i
haust.
Þessi sýning hefur verið boðin
fram sem framlag Leikfélags
Akureyrar til Listahátíðar í
Reykjavik næsta sumar.
Veggteppi til Norrœna hússins
Statens Kunstfond í Danmörku hefur gefið Norræna
húsinu stórt ofið veggteppi. Listaverkið er 2x3 metr-
ar að stæró og nefnist „Mennesker i dyreham".
Mogens Zieler málari og grafíklistamaður teiknaði
frummyndina, og kona hans, Bennie Zieler, óf
teppið. Ljósmynd Mbl. Kristján Valsson.
Brezkir skólapiltar:
í jöklaleiðang-
ur til íslands
FJÓRIR brezkir skólapiltar
hyggjast fara f jöklaleiðangur til
tslands f ágúst f sumar, ganga á
Vatnajökul og klffa Hvannadals-
hnjúk, hæsta tind landsins, að því
er fram kemur f blaðinu Cornish-
man f Cornwall, en þaðan eru
piltarnir. Leiðangurinn er farinn
til að vekja athygli á verðlauna-
sjóði sem kenndur er við hertog-
ann af Edinborg, en jöklafararnir
f jórir eru styrkþegar hans.
Rannsóknaráð
ríkisins:
Ráðstefna
um þróun sjávarútvegs
RANNSÓKNARAÐ rfkisins hef-
ur ákveðið að efna til ráðstefnu
„um þróun sjávarútvegs" á Hótel
Loftleiðum, miðvikudaginn 21.
janúar. Til ráðstefnunnar hefur
verið boðið 120 stjórnmálamönn-
um, embættismönnum, vfsinda-
mönnum og tæknímönnum, svo
og aðilum atvinnulffsins.
Inngangserindi flytur Már Elfs-
son fiskimálastjóri og Bjarni
Bragi Jónsson frá Framkvæmda-
stofnun rfkisins. A ráðstefnunni
munu starfa 10 umræðuhópar og
þar verða tekin fyrir margvfsleg
atriði.
I fréttatilkynningu frá Rann-
sóknarráðinu segir, að eftirtalin
atriði beri hæst á ráðstefnunni:
1. Stjórnun fiskveiða.
2. Hvernig er unnt að auka
verðmæti íslenzkra sjávarafurða?
3. Sala sjávarafurða og
markaðsathuganir.
4. Framtiðarhlutverk sjávarút-
vegsins í íslenzku þjóðlífi.
5. Rannsóknarmið i Ijósi nýrra
viðhorfa.
Sem kunnugt er, þá birti Rann-
sóknaráð niðurstöður athugana
starfshóps um þróun sjávarútvegs
f nóvember S.I., en starfshópnum'
var falið að gera yfirlit yfir stöðu
og spá um þróun islenzks sjávar-
útvega.næstu 5 árin.
Það urðu niðurstöður starfs-
hópsins, að ástandið væri allugg-
vekjandi og hafa skapast um þær
allnokkrar umræður. Fiskstofnar
voru taldir i stórhættu vegna of-
veiði, fiskiskipaflotinn var talinn
of stór og fiskiðnaðarrannsóknir á
alltof lágu stigi.
Þá segir, að það sé alkunna, að í
öllum tiltækum skýrslum OECD
um framlög til rannsókna og
tækniþróunarstarfsemi, sé Island
neðst á blaði. Það fjármagn, sem
varið sé til rannsóknarstarfsemi
hér á landi sé svo lítið, að Is-
lendingar skipi sér i flokk þjóða,
þar sem tækniþróun verði að telj-
ast fremur skammt á veg komin
og sé það venjulega talið greini-
legt hættumerki að verja svo litl-
um hluta sem Islendingar geri til
þessara mála. Islendingar muni
verja um 0.5% af þjóðarfram-
leiðslunni til rannsókna og tækni-
þróunarstarfsemi, en aðrar þjóð-
ir, sem búi í nágrenni við okkur
og við keppum við um markaði og
lífskjör, verji um 1—1.5% af
þjóðarframleiðslunni til þessara
mála.
„Af öllu þessu megi ráða, að
mikil nauðsyn sé á því, að það
litla fjármagn, sem þó er varið til
rannsóknarstarfsemi hér á landi,
nýtist eins vel og mögulegt sé.
Rannsóknaráð hefur af þessum
ástæðum tekizt á hendur að láta
gera yfirlit yfir stöðu og spá um
þróun fjögurra helztu atvinnu-
vega þjóðarinnar, þar með talinn
sjávarútvegur, til þess að geta séð
fyrir þau vandamál, sem upp
koma á næstu árum, og beitt sér
fyrir því, að rannsóknarstarfsem-
DAGANA 13.—16. nóvember s.l.
var staddur hér á landi f boði
Borgarspftalans prófessor Olaf
Alfthan frá Helsingfors. Hann er
vel þekktur á Norðurlöndunum f
sérgrein sinni sem er þvagfæra-
sjúkdómar. Kom hann hingað til
lands að framkvæma aðgerðir við
þvagleka og jafnframt til fyrir-
lestrarhalds f sérgrein sinni.
Prófessor Alfthan framkvæmdi
tvær skurðaðgerðir á sjúklingum
í Borgarspítalanum. Þessar að-
gerðir tókust báðar með miklum
ágætum. Notaði hann nýja aðferð
við þessar aðgerðir, aðferð sem
upprunanlega er frá Bandaríkj-
unum og hófust þessar aðgerðir
þar fyrir 4 árum. Er prófessor
Alfthan einn fyrsti læknirinn á
Noróurlöndum, sem þessa aðgerð
framkvæmir.
inni verði beint að lausn þeirra
áður en þau verða þjóðinni til
verulegs tjóns. Jafnframt vill
Rannsóknaráðið fá yfirlit yfir þá
möguleika til hagstæðrar þróunar
atvinnuveganna, sem taldir eru
vera fyrir hendi á næstu árum, til
þess að geta i tima beitt sér fyrir
þvi, að þessi tækifæri verði með
aðstoð rannsóknarstarfseminnar
hagnýtt á skynsamlegan og
•Tenningarlegan hátt.“
Ráðstefna um þróun sjávarút-
vegs verður haldin í beinum
tengslum við þetta verkefni og
munu niðurstöður ráðstefnunnar
verða notaðar sem grundvöllur að
mörkun vísindastefnu, er miðist
við það, að rannsóknarstarfsemi
verði beint að þeim verkefnum,
sem ætlað er að gefa muni mestan
árangur frá þjóðhagslegu sjónar-
miði.
Mikils er vænst af þessari að-
ferð, sem kennd var læknum
Borgarspítalans og leysir hún á
auðveldan og hagkvæman hátt
vanda þeirra er við áðurnefndan
sjúkdóm eiga að stríða. Er það
von allra er við þessi mál fást, að
framhald verði á þessum aðgerð-
um. Nauðsynleg tæki til þessara
aðgerða eru hins vegar mjög dýr,
en vonir standa til að þau lækki
þegar frá líður. Auk áðurnefndra
aðgerða flutti próf. Alfthan fyrir-
lestur í Domus Medica. Fyrirlest-
urinn fjallaði um krabbamein í
nýrum. Var hann fjölsóttur og var
gerður góður.rómur að erindinu. I
stuttu máli tókst þessi heimsókn
ákaflega vel og kann e.t.v. að vera
upphafið að auknum heimsókn-
um erlendra sérfræðinga til
Borgarspítalans.
(Frá Borgarspftalanum)
Finnskur sérfræðingur
hjá Borgarspítalanum