Morgunblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 32
JUDO BYRJENDANÁMSKEIÐ JUDÓDEILD ÁRMANNS MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976 4ÁRSKERINN SKÚLAGÖTUS4 OPIÐ LAUGAROAGA GÓÐ BÍLASTÆOI P. MELSTED Botn Mývatns hækkaði ekki FRÉTTIR um að botn Mývatns, ströndin frá Reykjahlíð að Geit- eyjarströnd hafi lyfzt um 11 sm þegar gaus I Leirhnjúk 20. des. sl. hafa reynzt rangar. Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, hefur athugað og borið saman sfritandi mæla og aflestur af föstum mæl- um o.fl. og ber þessa frétt til baka. Síritandi mælar eru í Álfta- gerði og á Grímsstöðum og auk þess fast vatnshæðarviðmiðunar- merki hjá Vogum. Hæsta vatns- staða á því merki á að sýna 57,5—58,3 sm hjá Grímsstöðum og er stilJt með 8 mm nákvæmni. Sigurjón sagði, að mistökin hefðu orðið við það að ekki var tekið tillit til þess merkis. En álestrar á því dagana fyrir gosið og daglega síðan gefa til kynna að um 1 — l‘A sm mismun sé að ræða frá 1970 til þessa dags og ströndin milli Voga og Grímsstaða hafi á þessum fimm árum getað risið um það. Hæðarmerkið hjá Grímsstöðum er i mælinganetinu síðan 1949, er Rögnvaldur Þorláksson nú- verandi yfirverkfræðingur Landsvirkjunar gerði nákvæmnismælingar við Mývatn. Það hefur komið í ljós að Laxár- virkjun notaði meira vatn og opnaði þann 20. des. meira en venjulega. Lækkunin kom greini- lega fram í nyrðri hiuta Mývatns, enda var suðvestanátt þegar gosið hófst. Þegar allir mælarnir eru Framhald á bls. 31. Beztu viðbrögðin á ítaHu — segir Pétur Thorsteinsson — AF þeim löndum, sem ég hef heimsótt enn, finnast mér heztu viðbrögðin hafa verið á Italfu, sagði Pétur Thorsteinsson, ráðu- neytisstjóri, f samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi, en hann var þá nýkominn til Lissabon, þar sem hann mun eiga viðræður við portúgalska ráðamenn f dag. Pétur sagði að hann myndi kynna málstað Islands i land- helgisdeilunni við portúgalska ráðamenn árdegis i dag. Ekki væri enn ákveðið hverjír það yrðu. Hann sagðist hafa farið beint til Lissabon frá Aþenu, þar sem hann hefði bæði rætt við utanríkisráðherra og varnarmála- ráðherra landsins. Grikkirnir hefðu tekið málstað vel eins og alls staðar raunin á, þó svo að hefðu verið bezt á Italí Þá sagði hann, að i hann til Parísar, og eftir að heimsækja löndin, þ.e. Holland, Islendinga hefði orðið viðbrögðin u. dag héldi ætti síðan Benelux- Belgiu og Luxemborg. Ég veit ekki enn hvort hin nýju viðhorf í land- helgisdeilunni munu breyta ferðaáætlun minni, sagði Pétur Thorsteinsson. 1 gönguferð við Tjörnina. Ljósm. Mbl.: RAX. Vitlaust veður hjátoguninuni Ekki vitað um freigáturnar — Það hefur verið vitlaust veður á veiðisvæðum brezku togaranna úti af Langanesi og á Vopnaf jarðargrunni, þar sem þeir halda sig nú, þannig að við höfum Iftið getað fylgzt með hvort freigáturnar eru farnar út fyrir fiskveiðitakmörkin, sagði talsmaður Landhelgisgæzlunnar þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann f gær. Hann sagði að þetta nýja veiði- svæði togaranna næði allt út í röskar 50 mílur frá landi og þeir hefðu flutt sig á það eftir að fisk- ur fór að verða mjög tregur á svæðinu kringum Hvalbak. Eitt varðskipanna var sett i að reyna fylgjast með ferðum frei- gátanna í gær, en varð lítið ágengt vegna veðurs, eins og fyrr sagði. Þá var ekkert hægt að fljúga yfir veiðisvæðið af sömu ástæðum í gær. -------------.— Scott-Ice slitinn Sæsfmastrengurinn Scott-Ice slitnaði í gærmorgun milli Fær-' eyja og Skotlands. Samband milli Islands og Evrópu rofnaði þó ekki við þetta, þar sem annar strengur er milli Færeyja og Skotlands. Álitsgerð 4ra sérfræðinga til iðnaðarráðherra: Óráðlegt að halda framkvæmdum við FJÓRIR sérfræðingar f jarðvfs- indum við Raunvfsindastofnun Háskóla tslands segja f bréfi til iðnaðarráðherra, Gunnars Thor- oddsens, að verulegar Ifkur séu á að eldgos taki sig upp aftur á Mývatnssvæðinu, og sé Ifklegast að slfkt framhald eldsumbrota Verulegar líkur eru á því að eld- gos taki sig upp á Mývatnssvæðinu Álitsgerð um sjóða- kerfi sjávarútvegs liggur nú fyrir NEFND sú, sem skipuð var tií að endurskoða sjóðakerfi sjávarút- vegsins á sfnum tíma, skilaði álitsgerð til Matthfasar Bjarna- sonar sjávarútvegsráðherra í gær- morgun, en eins og kunnugt er, þá var að þvf stefnt að niðurstöð- ur nefndarinnar lægju fvrir f þessum mánuði. Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra sagði í gærkvöldi, að hann gæti lítið sagt um þetta mál. Álitsgerðin væri stór í sniðum og hann ætti því eftir að kynna sér málið ítarlega, auk þess sem hann ætti eftir að leggja hana fyrir ríkisstjórnina. En hinu væri ekki að leyna, að ef tillögur nefndarinnar ættu að taka gildi, þyrftu margvislegar lagabreyt- ingar að komá til. verði á gossprungunni sem liggur um Leirhnjúk suður f Bjarnar- flag. Telja þeir óráðlegt að halda áfram framkvæmdum við Kröflu öðrum en þeim, sem stuðla að verndun þeirra mannvirkja sem fyrir eru. Hins vegar telja þcir litlar líkur á jarðeldum f Axar- firði og Kelduhverfi. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra, hef- ur þegar gert öðrum ráðherrum rfkisstjórnarinnar grein fyrir álitsgerð sérfræðinganna og þvf hættuástandi sem nú rfkir á Mý- vatnssvæðinu, svo og öðrum aðil- um, er málið skiptir, þ.á m. Al- mannavarnaráði, Kröfluncfnd, Orkustofnun, oddvita Skútustaða- hrepps og forráðamönnum Kísil- iðjunnar, þar eð mannvirki f Bjarnarflagi og Kísiliðjan eru f verulegri hættu samkvæmt álits- gerð sérfræðinganna. Sérfræðingarnir fjórir eru þeir dr. Sigurður Þórarinsson prófess- or, Þorleifur Einarsson prófessor, Eysteinn Tryggvason , jarð- skjálftafræðingur og Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur, og er bréf þeirra til iðnaðarráðherra svohljóðandi: „Vona að athygK manna beinist meira að íslenzkri tónlist en verið hefur” segir Atli Heimir Sveinsson tönskáld sem fékk tónlistarverðlaun Norðurlanda í gær „Ég vona að þessi viðurkenn- ing til mfn verði til þess, að hér heima og erlendis beinist at- hygli manna meira að fslenzkri tónlist en verið hefur. tslend- ingar hafa oft átt góð tónskáld — kannski betri en við höfum gert okkur grein fyrir,“ sagði Atli Heimir Sveinsson tónskáld f samtali við Morgunblaðið f gærkvöldi, en honum var í gær úthlutað tónlistarverðlaunum Norðurlanda fyrir árið 1976 en þau eru nú að upphæð 50 þús. danskar krónur. Þessum verð- launum er úthlutað annað hvert ár og er þetta f sjötta sinn sem það er gert. Atli Heimir Sveinsson hlaut verðlaunin fyrir verkið „Konsert fyrir flautu og hljómsveit". „Þessi verðlaunaúthlutun til mín kom mér mjög á óvart. Ég hafði í raun ekkert hugsað um, hver myndi fá verðlaunin. Enn síður hef ég hugsað um til hvers ég nota verðlaunin. Reyndar er ég.að byggja uppi í Breiðholti og því geta allir séð hvar peningarnir bezt. Það er síðan koma sér hægt að ein- beita sér betur að tónlistinni siðar.“ Morgunblaðið spurði Atla hvort hann væri ánægður með flautukonsertinn og hvenær hann hefði verið saminn. „Ég var á ýmsan hátt ánægður með flautukonsertinn, en eftir á fannst mér að ég hefði getað gert betur, en svo er víst um flest mannanna verk. Upphaf- lega samdi ég þetta verk fyrir hinn fræga kanadíska flautu- snilling Robert Aitken, sem oft hefur komið til Islands. Óhætt er að fullyrða, að þetta er óvanalega erfitt verk, en Aitken frumflutti verkið Framhald á bls. 31. áfram Kröflu Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð- herra Iðnaðarráðuneytinu Arnarhvoli Reykjavík I tilefni af miklum almennum umræðum um mannvirkjagerð við Kröfluvirkjun og jarðskjálfta og eldvirkni I Mývatnssvæðinu vildum við undirritaðir sérfræð- ingar í jarðvísindum við jarðvis- indastofu Raunvísindastofnunar Háskóla tslands beina athygli yð- ar ,að því, sem vitað er um eldgos og jarðskjálfta á þessu svæði: Mývatnseldar 1724—1729: Að- fararnótt 17. maí 1724 urðu miklir jarðskjálftar i Mývatnssveit. Um- morguninn varð allmikið sprengi- gos vestan i Kröflu og myndaðist þá gigurinn Viti. Næst varð smá- gos í Leirhnjúk 11. jan. 1725. Hinn 21. ágúst 1727 hófst mikið hraungos á gossprungu, sem gengur gegnum Leirhnjúk og hélzt gos þar siðan, að visu með hléum, fram I september 1729. Hinn 18. apríl 1728 varð einnig gos i Hrossadal og Bjarnarflagi. AUan tímann meðan gosið stóð Framhald á bls. 31. Fituinnihald loðnu minna en í fyrra — ÞVt ER ekki að neita að þau loðnusýni, sem við höfum nú fengið, innihalda minni búkfitu en loðna sem veidd var á sama tíma I fyrra og munar um kring- um l%,sagði dr. Björn Dagbjarts- son forstjóri Rannsóknastofnun- ar fiskiðnaðarins þegar Morgun- blaðið hafði samband við hann I gær. Björn sagði að þeir væru búnir að fá fjögur loðnusýni og fitan hefði að meðaltali mælzt 11.3% Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.