Morgunblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976
Sementsverksmiðja ríkisins:
Heildarsalan
nam 1.551 millj.
SEMENTSSALA nam alls Er það mjög svipað og árið
159 þús. tonnum á s.l. ári. áður. Tæpur helmingur
þessa magns var sekkjað
sement. Portlandsement
nam um 3A hlutum magns-
ins.
Til Sigöldu voru seld um
20 þús. tonn. Er það
nokkurn veginn það sem
salan minnkaði um á Suð-
vesturlandi. Á Stór-
Reykjavíkursvæðinu
minnkaði salan um 23%.
A árinu voru keypt til verk-
smiðjunnar 61 þús. tonn af
sementsgjalli frá Danmörku, en
þessi kaup námu 35 þús. tonnum
árið áður. Stafar þessi mismunur
m.a. af verkfallinu á s.l. ári.
Einnig eykur þetta afköst verk-
smiðjunnar, en hún var upphaf-
lega hönnuð til framleiðslu á 75
þús. tonnum.
Heildarsala Sementsverksmiðj-
unnar nam á árinu 1.551.5 millj.
króna og er það um 50% aukning
frá 1974. Heiidarlaun námu 265.5
millj. króna og er það einnig
nærri 50% aukning.
Flugumferð eykst lítið
I frétt frá Alþjóða flug-
málastofnuninni (ICAO)
segir að áætlunarflug
síðasta árs hafi aukist um
aðeins 2% frá fyrra ári,
miðað við árið 1974, en þá
var aukningin 6%. Virðist
þessi litla aukning spegla
versnandi efnahag margra
aðildarlanda ICAO.
Um 529 millj. farþegar
ferðuðust flugleiðis á
árinu, sem er 3% aukning
frá fyrra ári. Sætaframboð
jókst þó um 5%, þannig að
sætanýting mun hafa
versnað.
Alþjóða flugmálastofn-
unin var stofnuð árið 1944.
Aðildarlöndin eru nú 132
og eru aðalstöðvarnar í
Montreal.
Vitni vantar
að 3 ákeyrslum
VITNI vantar að tveimur ákeyrslum. I fyrra tilfellinu var ekið á
bifreiðina G-3398, þar sem hún stóð við Leirubakka 26. Bifreiðin
er fólksbifreið af Sunbeamgerð. Vinstra afturbretti er allmikið
beyglað. Talið er að þetta hafi gerst miðvikudaginn 7. janúar eða
fimmtudaginn 8. janúar.
Þriðjudaginn 13. janúar var
svo ekið á bifreiðina L-1034,
þar sem hún stóð vestast á bif-
reiðastæðinu á Kirkjutorgi,
næst Templarasundi. Bifreiðin
er fólksbifreið af Fiat-gerð.
Vinstra afturbretti og aftur-
stuðari hefur beyglast. Þetta
geróist um morguninn klukkan
11.20 til 11.30, en stór Dodge
fólksbifreið stóð þarna þegar
komið var með bílinn, en var
farin þegar bílstjórinn kom
aftur. Taldi hann ekki ósenni-
legt að hún væri tjónvaldur.
Rannsóknarlögregian lýsir
eftir vitnum að ákeyrslu, sem
átti sér stað við Austurbrún 2 í
vikunni, nánar tiltekið frá
klukkan 16 á þriðjudag til
klukkan 7 að morgni miðviku-
dagsins 14. janúar. Bifreiðin er
gul Austin mini, R-39008, og
beyglaðist hún að aftan.
Bílstjóri á bláum
Range Rover beðinn
um að gefa sig fram
MÁNUDAGINN 29. desember um klukkan 13.30 var fólksbif-
reiðin Y-5082 að aka niður Nóatún þegar Volkswagen fólksbifreið
var skyndilega ekið austur Skipholt og inn á gatnamótin í veg
fyrir Kópavogsbifreiðina. ökumanni hennar tókst að koma í veg
fyrir árekstur með því að beygja undan en lenti við það á
mannlausri bifreið sem stóð á Nóatúni norðan við gatnamótin.
Ökumaður á bláum Ranges Rover sá þegar þetta gerðist og lét
ökumann Y-bílsins hafa númer bifreiðarinnar sem olli þessu.
Ökumaður þessi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við
slysarannsóknadeild lögreglunnar, Hverfisgötu, simar 10200,
10202 eða 11166.
Að undanförnu hefur tfðin verið heldur erfið, bæði fyrir menn og málleysingja.
Snjór hefur hulið jörð og fyrir fugiana á Tjörninni jafnt sem annars staðar hefur
verið lftið um æti. (ljósm. RAX).
Barnaleikrit eftir Astrid
Lindgren í Þjóðleikhúsinu
BARNALEIKRITIÐ Karlinn á þakinu verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu næstkomandi laugardag. Þetta leikrit er
eftir sænska barnabókarhöfundinn vinsæla, Astrid
Lindgren, sem hefur unnið hugi barna um allan heim fyrir
söguna af Línu langsokk, sem kom út fyrir 30 árum.
Minnir raunar önnur aðalpersónan í leiknum, karlinn
Kalli, I uppátækjum sínum nokkuð á Línu, en hann er að
auki talsvert hrekkjóttari. Um þessar mundir er verið að
lesa söguna „Bróðir minn Ijónshjarta" eftir Astrid Lind-
gren I útvarpinu og ævintýri hennar Elsku Míó minn, var
lesið í fyrra. Auk þess þekkja krakkar Karl Blómkvist,
Börnin í Ólátagötu o.fl. Karlinn á þakinu varfyrst sýndur
f Dramaten 1970 við miklar vinsældir, yfir 100 sýningar
og hefur verið víða sýndur síðan, m.a. lengi í Moskvu og
gerð kvikmynd eftir leiknum.
Karlinn á þakinu leikur Randver
Þorláksson, sem Brói, hin aðalper-
sónan, telur vera besta Kalla í heimi.
Kalli er gæddur þeim hæfileikum að
geta flogið og er fullur af uppátækj-
um og hrekkjum Leikritið greinir frá
Bróa litla, sem býr í borg með for-
eldrum sínum, systkinum og vinum.
Brói er leikinn á vixl af Stefáni
Jónssyni, sem leikurá frumsýningu,
og Eyþóri Arnalds Foreldrana leika
Þóra Friðriksdóttir og Gísli Alfreðs-
son, en systkinin Bjössa og Betu
leika Jón Gunnarsson og Lilja Þóris-
dóttir, sem nú leikur sitt fyrsta hlut-
verk eftir að hún kemur frá námi.
Sigriður Þorvaldsdóttir leikur hús-
hjálpina Hildi Krosshús, hús-
krossinn, sem Kalli vill losa vin sinn
Bróa við og aðra leika Sigurður
Skúlason, Gunnar Magnússon,
Agnar Steinarsson, Ólafur Baldurs-
son. Þórgunnur Sigurjónsdóttir og
Guðrún Hólmgeirsdóttir.
Karlinn á þakinu (Randver Þor-
láksson) kemur á nfingu á leikrit-
inu I heimsókn til vinar slns Bróa
(Stefáns Jónssonar).
Ekki má gleyma einum af aðalleik-
endunum þremur, en það er hvolp-
urinn Snati, sem ekki er nema
mánaðargamall og fenginn frá Saur-
bæ í Dölum, en hann er í fóstri hjá
vini sínum Stefáni Leikpersónan
Brói er langyngstur systkina sinna,
og einmana, langar að eignast vin
og fær Snata Hinn vinurinn, Kalli á
þakinu, kemur i heimsókn þegar
minnst varir og engin takmörk fyrir
því sem hann getur tekið upp á. En
foreldrarnir halda að þetta sé bara
fmyndaður karl og trúa honum ekki
Leikstjóri sýningarinnar er Sig-
mundur Örn Arngrímsson, þýðandi
og aðstoðarleikstjóri Sigrún Björns-
dóttir og leikmynd gerir Birgir Engil-
berts, en leikurinn gerist á þremur
stöðum á heimili Bróa og uppi á
þaki hjá Kalla Carl Billich annast
umsjón tónlistar og Nanna Ólafs-
dóttir hefur samið dansana en Krist-
inn Daníelsson sér um lýsingu.
Leikurinn verður sýndur á laugar-
dögum og sunnudögum fyrst um
sinn kl 3 og a m k á sunnudögum
áfram. hann er sýpdur á Stóra svið-
inu.
Á heimili Bróa. Foreldrar hans og systkini, sem leikin eru af Þóru
Friðriksdóttur, Glsla Alfreðssyni, Jóni Gunnarssyni og Lilju Þórisdóttur.
Myndina tók Óli Páll á æfingu.
Samningar leikrítahöfunda og leikhúsa
UM áramótin voru í fyrsta
skipti undirritaðir
samningar milli leik-
húsanna I Reykjavík og
leikritahöfunda um
greiðslu og flutning á
íslenzkum leikritum, en
áður hafa ekki verið til
formlegir samningar milli
þessara aðila. Á með-
fylgjandi mynd eru leik-
hússtjórarnir Sveinn
Einarsson og Vigdís Finn-
bogadóttir ásamt Sigurði
A. Magnússyni. formanni
Rithöfundasambands Is-
lands, og Örnólfi Árnasyni,
formanni Félags íslenzkra
leikritahöfunda.