Morgunblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1976 15 Framtalið ’76 fjcisunuicyd uiuiu/ hér að framan II. Skuldir alls. INNGANGSORÐ 1. Áritun. Framtalseyðublaðið, sem áritað er i skýrsluvélum, skal senda skattyfirvöldum. sbr þó 3 mgr Notið aukaeintak af eyðublaði til að taka afrit af framtali yðar og geymið afritið með þeim upplýsingum og gögnum til stoðnings framtali sem yður ber að geyma a.m.k. I 6 ár. Framteljanda skal bent á að athuga hvort áritanir, gerðar af skýrsluvélum, nöfn, fæðingardagar og -ár, svo og heimilisfang, séu réttar miðað við 1. des. sl., sbr. 2. mgr. Ef svo er ekki skal leiðrétta það á framtalinu. Einnig skal bæta við upplýsingum um breytingar á fjölskyldu I desember, t d. giftur (gift), hverrr (hverjum), hvaða dag, nafn barns og fæðingardagur eða óskírð(ur) dóttif (sonur) fædd(ur) hvaða dag. Ef áritanir eru ekki réttar miðað við 1. des. sl. skal framteljanda bent á að senda einnig leiðréttingu til Hagstofu íslands (þjóðskrá), Reykjavlk. Ef áritað eyðublað er ekki fyrir hend skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins sem ætlaðar eru fyrir nafn og nafnnúmer framteljanda, fæðingardag hans og -ár, svo og heimilisfang hans 1. des. sl. Eyður fyrir nafn eiginkonu, nafnnun.or hennar, fæðingardag og -ár, svo og nöfn, fæðingardag og -ár barna, sem fædd eru árið 1 960 og siðar. ska. útfylla á sama hátt. Leiðbeiningar ríkisskattstjóra SERSTOK ATHUGASEMD VARÐANDI „SAMBÝLISFÓLK" Við áritun á framtalseyðublöð karls og konu, sem búa saman i óvlgðrii sambúð, hafa öll börn á heimili þeirra' verið skrifuð á framtal sambýliskonunnar eins og áður hvort sem hún er móðir þeirra eða ekki. Skattfrádrætti vegna barnanna var áður skipt milli sambýliskonu og sambýlismanns I samræmi við ákvæði skattalaga eins og þau þá voru en skv. lögum nr. 11/1975 gildir nú eftirfarandi: a Börn á heimili sambýlisfólks, sem áti hefur barn saman, skulu öll talin hjé sambýlismanninum hvort sem hann ei faðir þeirra eða ekki b. Börn á heimili sambýlisfólks, sem ekki hefur átt barn saman, skulu talin* hvert hjá sinu foreldri. 2. Fengið meðlag og barnalffeyrir. Fengið meðlag og barnalifeyrir frá almannatryggingum ef annað hvon foreldra er látið eða barn er ófeðrað er nú skattskyldar tekjur að hálfu hjá móttakanda nema um sé að ræða einstætt foreldri, sbr. tölulið 10, III. Fengið meðlag með börnum, yngri en 1 7 ára, skal að fullu færa i þar til ætlaða eyðu á bls. 1 neðan við nöfn barna heima hjá framteljanda sem fædd eru árið 1960 eða siðar. Sé um að ræða fengið meðlag með börnum sem urðu 1 6 og 17 ára á árinu 1975, þ.e. með börnum fæddum á árunum 1959 og 1 958, skal það meðlag einnig talið i áðurnefndri eyðu á bls 1 en nöfn þeirra barna skráð I G-lið á bls. 4 og þar tekið fram að fengið meðlag með þeim sé talið á bls. 1 Sama gildir um barnalifeyri frá almannatryggingum ef annað hvort foreldra er látið eða barn ófeðrað. Sé um að ræða slikan barnalifeyri eða meðlag með barni til móður, sem býr i óvigðri sambúð með manni sem hún hefur átt barn með, skal slikur barnalífeyrir eða meðlag talinn í áðurnefndri eyðu á bls. 1 á framtali sambýlismannsins. Á framtali sambýliskonunnar skal jafnframt tekið fram að barnalifeyririnn eða meðlagið sé talinn á framtali sambýlismannsins. Aðrar barnalifeyrisgreiðslur frá almannatryggingum og allar barnalifeyrisgreiðslur frá öðrum (t.d. lifeyrissjóðum) skal hins vegar telja undir tekjulið 13, „Aðrar tekjur", hjá móttakanda. Þó skulu þær greiðslur sem um ræðir í þessari mgr., greiddar til konu sem býr i óvígðri sambúð með manni sem hún hefur átt barn með, allar taldar til tekna i tekjulið 13 á framtali sambýlismannsins. 3. Greidd meðlög Meðlög, sem framteljandi greiðir með barni til 1 7 ára aldurs þess, eru nú frádráttarbær að hálfu hjá þeim sem greiðir, sbr tölulið 7, IV. Upplýsingar um greidd meðlög með börnum til 17 ára aldurs skal framteljandi færa i þar til ætlaðan reit á fyrstu síðu framtalsins. 4. Greidd heimilisaðstoð Greidda heimilisaðstoð, sem ber að gefa upp á launamiðum (eyðublöð fást hjá skattyfirvöldum), skal tilgreina i kr dálk. 5. Hjálagt útsvar Hér skal tilgreina i kr dálk álagt útsvar á gjaldárinu 1975. 6. Greidd húsaleiga Hér skal tilgreina i kr dálk greidda húsaleigu og aðrar þær upplýsingar sem um er beðið i þessum reit. 7. Slysatrygging við heimilisstörf Skv ákvæðum 30. gr laga nr 67/1971 um almannatryggingar geta þeir sem heimilisstörf stunda, tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf með þvi að skrá í framtal sitt ósk um það i þar til gerðan reit/ Ársiðgjald verður nú 2.392 kr Þeir sem atvinnurekstur hafa með; höndum geta tryggt sér og mökum sinum, sem með þeim starfa að atvinnurekstrinum, rétt til slysabóta, sbr. upplýsingar þar um á, launamiðafylgiskjölum Óski þessir aðilar að tryggja sér eða mökum sinum jafnframt rétt til slysabóta við heimilisstörf skulu þeir geta þess í umræddum reit og mun þá slysatryggingin i heild reiknast 52 vikur á vikugjaldi þess áhættuflokks sem hærri er. Eignir 31. des. 1975 1. Hrein eign samkv. meðfylgjandi efnahagsreikningi. Framtölum þeirra, sem bókhaldsskyldir eru skv ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald. skal fylgja efnahagsreikningur. I efnahagsreikningi eða I gögnum, með honum skal vera sundurliðun á öllum eignum sem máli skipta, svo sem innstæðum I bönkum og sparisjóðum, vixileignum og öðrum útistandandij kröfum (nafngreina þarf þó ekki kröfui; undir 10 000 kr. ) birgðum (hráefnum. rekstrarvörum, hálfunnum eða fullunnum vörum), skuldabréfum, hlutabréfum og öðrum verðbréfum, stofnsjóðsinnstæðum, fasteignum (nafngreindum á þann veg er greinir i 3 tl. — Fasteignir), vélum og tækjum og öðrum þeim eignum sem eru i eigu framteljanda Allar fyrnanlegar eignir skulu tilgreindar á fyrningaskýrslu. Greinargerð um mat birgða skal fylgja framtali á þar til gerðu eyðublaði. Sjá 1 mgr. 1. tl. III. kafla leiðbeininganna. Á sama hátt ber að sundurliða allar skuldir, svo sem yfirdráttarlán, samþykkta vixla og aðrar viðskiptaskuldir (nafngreina þarf þó ekki viðskiptaskuldir undir 10 000 kr), veðskuldir og önnur föst lán, svo og aðrar skuldir framteljanda. Einnig skal sýna á efnahagsreikningi hvernig eigið fé framteljanda breytist á uppgjörsárinu. Ef I efnahagsreikningi eru fjárhæðir, sem ekki eru í samræmi við ákvæði skattalaga, svo sem tilfært verð fasteigna, eða eru undanþegnar eignarskatti, sbr t.d 21. gr. skattalaga, skal úr þvi bætt með áritun á efnahagsreikninginn eða gögn með honum. Hreina skattskylda eign skal slðan færa á framtal í 1. tölulið I kafla eða Skuldir umfram eignir í C-lið, bls. 3 2. Bústofn skv. meSf. landbúnaðarskýrslu. Framtölum bænda og annarra, sem bústofn eiga, skulu fylgja landbúnaðarskýrslur og færist bústofg skv þeim undir þennan lið 3. Fasteignir. Fasteignir skal telja til eignar á gildandi fasteignamatsverði skv. aðalmati sem gildi tók 31. des. 1971 eða slðar staðfestum matsgjörðum fyrir árslok 1975. Ef staðfest fasteignamat á fullbyggðu mannvirki er ekki fyrir hendi má þó áætla matsverð. Margföldun á verðmæti fasteigna með 1,7 skv lögum nr. 97/1975 verður framkvæmd af skattstjórum Metnar fasteignir ber að tilgreina I lesmálsdálk og kr dálk á þann veg er hér greinir: Rita skal nafn eða heiti hverrar sérmetinnar fasteignar i lesmálsdálk eins og það er tilgreint i fasteignamatsskrá. Sé fasteign staðsett utan heimilissveitar framteljanda ber einnig að tilgreina það sveitarfélag þar sem fasteignin er. í fasteignamatsskrám er hverri fasteign skipt niður i ýmsa matshluta eða matsþætti. T.d. er jörðum i sveitum skipt i eftirtalda matsþætti: tún, land, hlunnindi, íbúðarhús, útihús o.s.frv Öðrum sérmetnum fasteignum er skipt i eftirtalda matshluta eða-þætti: land eða lóð. hlunnindi, sérbyggðar (sérgreindar) byggingar eða önnur mannvirki Hins vegar er sérbyggðum byggingum ekki skipt eftir afnotum, t.d i ibúðar- og verxlunarhúsnæði sem vera kann í sömu sérbyggðri byggingu í lesmálsdálk ber að tilgreina einstaka matshluta eða -þætti fasteignarinnar. sem eru í eigu framteljanda. á sama hátt og með sama nafni og þeir eru tilgreindir i fasteignamatsskrá. Sé matshluti eða -þáttur ekki að fullu eign framteljanda ber að geta eignarhlutdeildar. Séu sérbyggðar byggingar notaðar að hluta til Ibúðar og að hluta sem atvinnurekstrarhúsnæði ber einnig að skipta þeim eftir afnotum og skal skiptingin gerð i hlutfalli við rúmmál. Sérreglur, sbr. næstu málsgrein, gilda þó um skiptingu leigulanda og leigulóða til eignar milli* 1 * 3 landeiganda og leigutaka. Fjárhæð fasteignamats hvers matshluta eða þáttar skal færð í samræmi við eignar- eða afnotahlutdeild. Eigendur leigulanda og leigulóða skulu telja afgjaldskvaðarverðmæti þeirra til eignar Afgjaldskvaðarverðmætið er fundið með þvi að margfalda ársleigu ársins 1975 með 15. f lesmálsdálk skal tilgreina nafn landsins eða lóðarinnar ásamt ársleigu en i kr. dálk skal tilgreina ársleigu x 15 Leigjendur leigulanda og leigulóða skulu telja sér til eignar mismun fasteignamatsverðs og afgjaldskvaðarverðmætis leigulandsins eða -lóðarinnar. í lesmálsdálk skal tilgreina nafn landsins eða lóðarinnar. svo og fullt fasteignamatsverð lóðarinnar eða landsins eða þess hluta sem framteljandi hefur á leigu og auðkenna sem „Ll." en i kr. dálk skal tilgreina mismun fasteignamatsverðs og afgjaldskvaðarverðmætis (sem er land- eða lóðarleiga ársins 1975 X 15). Hafi eigandi bygginga eða annarra mannvirkja sem byygð eru á leigulandi eða leigulóð, ekki greitt leigu fyrir landið eða lóðiria á árinu 1975 ber land- eða lóðareiganda að telja fasteignamatsverð lands eða lóðar að fullu til eignar. Mannvirki sem enn eru i byggingu eða ófullgerð, svo sem hús, ibúðir, bílskúra og sumarbústaði, svo og ómetnar viðbyggingar og breytingar eða endurbætur á þegar metnum byggingum eða öðrum mannvirkjum, skal tilgreina sérstaklega i lesmálsdálki undir nafni skv. byggingarsamþykkt eða byggingarleyfi og kostnaðarverð þeirra I árslok 1975 i kr dálk. Eigendum slíkra eigna ber að útfylla húsbyggingarskýrslu sem fylgja skal framtali 4. Vélar, verkfærSi og áhöld. Hér skal færa í kr dálk bókfært verð landbúnaðarvéla og -tækja skv. landbúnaðarskýrslu. Enn fremur skal hér færa eignarverðmæti véla, verkfæra, tækja og áhalda, annarra en bifreiða sem ekki eru notuð i atvinnurekstrarskyni eða ekki ber að telja i efnahagsreikningi, sbr tölulið 1. Slikar eignir skulu teljast á kaup- eða kostnaðarverði í kr dálk. Heimilt er þó að lækka þetta verð um 8% fyrningu á ári miðaða við kaup- eða kostnaðarverð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaup- eða kostnaðarverði Fyrning þessi kemur aðeins til lækkunar á eign en ekki til frádráttar tekjum 5. Bifreið. Hér skal færa i kr. dálk kaup- eða kostnaðarverð bifreiða sem ekki eru notaðar i atvinnurekstrarskyni eða ekki ber að telja i efnahagsreikningi sbr tölulið 1. Heimilt er þó að lækka verðið um 10% fyrningu á ári miðaða við kaup- eða kostnaðarverð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaupverði Fyrning þessi kemur aðeins til lækkunar á eign en ekki til frádráttar tekjum 6. Peningar. Hér á aðeins að færa peningaeign um áramót en ekki aðrar eignir, svo sem bankainnstæður, víxla eða verðbréf 7. Inneignir. Hér skal færa i kr. dálk samtölu skattskyldra innstæðna og verðbréfa i A-lið, bls 3, i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans. 8. Hlutabréf. Rita skal nafn hlutafélags i lesmálsdálk og nafnverð hlutabréfa I kr dálk ef hlutafé er óskert Sé hlutafé skert skal aðeins færa raunverulegt verðmæti þess til eignar. 9. VerSbréf, útlán, stofnsjóSsinnstæSur o.fl. Hér skal færa r kr. dálk samtölu eigna I B-lið, bls. 3. i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans 10. Eignirbarna. Hér skal færa I kr. dálk samtölu skattskyldra eigna barna i E-lið, bls. 4, i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans nema farið sé fram á sérsköttun barns (barna) til eignarskatts. 11. ASrareignir. Hér skal færa þær eignir (aðrar en fatnað, bækur, húsgögn og aðra Hér skal færa i kr dálk samtölu skulda i C-lið. bls. 3, I samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans. Tekjur árið 1975 1. Hreinar tekjur af atvinnurekatri eða sjálfstæðri starfsemi samkv. meðfylgjandi rekstrarreikningi eða landbúnaðarskýrslu. Framtölum þeirra sem bókhaldsskyldir eru skv ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald skal fylgja rekstrarreikningur. Þeir sem landbúnað stunda skulu nota þar til gerða landbúnaðarskýrslu Gögnum þessum skal fylgja fyrningaskýrsla þar sem fram komi a.m.k. sömu upplýsingar og til er ætlast að komi fram á fyrningaskýrslueyðublöðum sem fást hjá skattyfirvöldum Enn fremur skal fylgja á þar til gerðu eyðublaði greinargerð um mat vörubirgða, , samanburður söluskattsskýrslna og ársreikninga og yfirlit um launagreiðslur eftir þvi sem við á. Þegar notuð er heimild i D-lið 22. gr skattalaga til sérstaks frádráttar frá matsverði birgða skal breyting frádráttar milli ára tilgreind sem sérliður I rekstrarreikningi, sbr, áðurnefnda greinargerð um mat birgða. Þegar notuð er heimild 4. tl. 7 gr. laga nr. 7/1.972 um breyting á lögum nr. 68/1971 til óbeinna fyrninga skv verðhækkunarstuðlun sem fjár- málaráðuneytið ákveður skal fylgja framtali fullnægjandi greinargerð um notkun heimildarinnar. Fjárhæð óbeinna fyrninga skal ekki færa á fyrningaskýrslu heldur sem sérlið á rekstrarreikning, sjávarútvegs- eða landbúnaðarskýrslu Þessi óbeina fyrning breytir ekki bókfærðu verði eignanna Ef I rekstrarreikningi (þ.m.t. landbúnaðarskýrsla) eru fjárhæðir sem ekki eru i samræmi við ákvæði skattalaga, svo sem þegar taldar eru til tekna fjárhæðir sem ekki eru skattskyldar eða til gjalda fjárhæðir sem ekki eru frádráttarbærar, skal úr þvl bætt með áritun á rekstrarreikninginn eða gögn með honum Sama gildir ef framteljandi vill nota heimild til frestunar á skattlagningu skattskylds hluta söluhagnaðar eigna en sú fjárhæð skal enn fremur sérgreind á efnahagsreikningi Gæta skal þess sérstaklega að i rekstrarreikningi séu aðeins þeir liðir færðir er tilheyra þeim atvinnurekstri sem reikningurinn á að vera heimild um. Þannig skal t d aðeins færa til gjalda vexti af þeim skuldum sem til hefur verið stofnað vegna atvinnurekstrarins en ekki vexti af öðrum skuldum og ekki skal færa til gjalda á rekstrarreikning önnur persónuleg gjöld sem ekki tilheyra atvinnurekstrinum þótt frádráttarbær séu, svo sem lifeyris- og liftryggingariðgjöld, heldur skal færa þau í viðkomandi liði i frádráttarhlið framtals Sama gildir um tekjur sem ekki eru tengdar atvinnurekstrinum, svo sem eigin húsaleigu, vaxtatekjur og arð Þessar tekjur skal færa i viðkomandi liði I teknahlið framtals. Tekjur af útleigu eða reiknaða húsaleigu af íbúðarhúsnæði, svo og öll gjöld vegna hennar, svo sem fasteignagjöld, fyrningu, viðhald og vaxtagjöld, sem tilgreind eru á rekstrarreikningi. ber á sama hátt að draga út úr rekstrarreikningi með áritun þar á eða gögn með honum. Hreinar tekjur af útleigðu ibúðarhúsnæði ber að telja til tekna I tölulið 2 eins og þar er fyrir mælt. Reiknaða húsaleigu skal telja til tekna I tölulið 3 en gjöld tengd henni til frádráttar, sbr töluliði 1 og 2 I V kafla framtals Endurgjaldslaus afnot launþega og (og fjölskyldu hans) af ibúðarhúsnæði I eigu vinnuveitanda hans ber vinnuveitandanum að telja til gjalda i rekstrarreikningi með 5% af giidandi fasteignamati hlutaðeigandi ibúðarhúsnæðis og lóðar en sömu fjárhæð ber honum að telja til tekna i tölulið 3 i teknahlið framtals. Sama gildir ef hluti ibúðarhúsnæðis i eigu atvinnurekanda er notaður vegna atvinnurekstrarins. Láti vinnuveitandi starfsmönnum sinum i té bifreiðar til afnota endurgjaldslaust eða gegn óeðlilega lágu endurgjaldi ber að láta fylgja rekstrarreikningi sundurliðun á rekstrarkostnaði bifreiðanna að meðtöldum fyrningum, ásamt upplýsingum um afnotin l eknum km, fjárhæð endurgjalds og nöfn notenda. Hafi atvinnurekandi hins vegar sjálfur, fjölskylda hans eða aðrir aðilar bifreiðar hans til afnota ber að láta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.