Morgunblaðið - 21.01.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1976
15
Framtalið ’76
fjcisunuicyd uiuiu/
hér að framan
II. Skuldir alls.
INNGANGSORÐ
1. Áritun.
Framtalseyðublaðið, sem áritað er i
skýrsluvélum, skal senda
skattyfirvöldum. sbr þó 3 mgr Notið
aukaeintak af eyðublaði til að taka afrit
af framtali yðar og geymið afritið með
þeim upplýsingum og gögnum til
stoðnings framtali sem yður ber að
geyma a.m.k. I 6 ár. Framteljanda skal
bent á að athuga hvort áritanir, gerðar
af skýrsluvélum, nöfn, fæðingardagar
og -ár, svo og heimilisfang, séu réttar
miðað við 1. des. sl., sbr. 2. mgr. Ef
svo er ekki skal leiðrétta það á
framtalinu. Einnig skal bæta við
upplýsingum um breytingar á fjölskyldu
I desember, t d. giftur (gift), hverrr
(hverjum), hvaða dag, nafn barns og
fæðingardagur eða óskírð(ur) dóttif
(sonur) fædd(ur) hvaða dag.
Ef áritanir eru ekki réttar miðað við 1.
des. sl. skal framteljanda bent á að
senda einnig leiðréttingu til Hagstofu
íslands (þjóðskrá), Reykjavlk.
Ef áritað eyðublað er ekki fyrir hend
skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins
sem ætlaðar eru fyrir nafn og
nafnnúmer framteljanda, fæðingardag
hans og -ár, svo og heimilisfang hans
1. des. sl. Eyður fyrir nafn eiginkonu,
nafnnun.or hennar, fæðingardag og -ár,
svo og nöfn, fæðingardag og -ár barna,
sem fædd eru árið 1 960 og siðar. ska.
útfylla á sama hátt.
Leiðbeiningar
ríkisskattstjóra
SERSTOK ATHUGASEMD
VARÐANDI
„SAMBÝLISFÓLK"
Við áritun á framtalseyðublöð karls
og konu, sem búa saman i óvlgðrii
sambúð, hafa öll börn á heimili þeirra'
verið skrifuð á framtal
sambýliskonunnar eins og áður hvort
sem hún er móðir þeirra eða ekki.
Skattfrádrætti vegna barnanna var
áður skipt milli sambýliskonu og
sambýlismanns I samræmi við ákvæði
skattalaga eins og þau þá voru en skv.
lögum nr. 11/1975 gildir nú
eftirfarandi:
a Börn á heimili sambýlisfólks, sem áti
hefur barn saman, skulu öll talin hjé
sambýlismanninum hvort sem hann ei
faðir þeirra eða ekki
b. Börn á heimili sambýlisfólks, sem
ekki hefur átt barn saman, skulu talin*
hvert hjá sinu foreldri.
2. Fengið meðlag og barnalffeyrir.
Fengið meðlag og barnalifeyrir frá
almannatryggingum ef annað hvon
foreldra er látið eða barn er ófeðrað er
nú skattskyldar tekjur að hálfu hjá
móttakanda nema um sé að ræða
einstætt foreldri, sbr. tölulið 10, III.
Fengið meðlag með börnum, yngri
en 1 7 ára, skal að fullu færa i þar til
ætlaða eyðu á bls. 1 neðan við nöfn
barna heima hjá framteljanda sem fædd
eru árið 1960 eða siðar. Sé um að
ræða fengið meðlag með börnum sem
urðu 1 6 og 17 ára á árinu 1975, þ.e.
með börnum fæddum á árunum 1959
og 1 958, skal það meðlag einnig talið i
áðurnefndri eyðu á bls 1 en nöfn þeirra
barna skráð I G-lið á bls. 4 og þar tekið
fram að fengið meðlag með þeim sé
talið á bls. 1
Sama gildir um barnalifeyri frá
almannatryggingum ef annað hvort
foreldra er látið eða barn ófeðrað.
Sé um að ræða slikan barnalifeyri eða
meðlag með barni til móður, sem býr i
óvigðri sambúð með manni sem hún
hefur átt barn með, skal slikur
barnalífeyrir eða meðlag talinn í
áðurnefndri eyðu á bls. 1 á framtali
sambýlismannsins. Á framtali
sambýliskonunnar skal jafnframt tekið
fram að barnalifeyririnn eða meðlagið
sé talinn á framtali sambýlismannsins.
Aðrar barnalifeyrisgreiðslur frá
almannatryggingum og allar
barnalifeyrisgreiðslur frá öðrum (t.d.
lifeyrissjóðum) skal hins vegar telja
undir tekjulið 13, „Aðrar tekjur", hjá
móttakanda. Þó skulu þær greiðslur
sem um ræðir í þessari mgr., greiddar
til konu sem býr i óvígðri sambúð með
manni sem hún hefur átt barn með,
allar taldar til tekna i tekjulið 13 á
framtali sambýlismannsins.
3. Greidd meðlög
Meðlög, sem framteljandi greiðir
með barni til 1 7 ára aldurs þess, eru nú
frádráttarbær að hálfu hjá þeim sem
greiðir, sbr tölulið 7, IV.
Upplýsingar um greidd meðlög með
börnum til 17 ára aldurs skal
framteljandi færa i þar til ætlaðan reit á
fyrstu síðu framtalsins.
4. Greidd heimilisaðstoð
Greidda heimilisaðstoð, sem ber að
gefa upp á launamiðum (eyðublöð fást
hjá skattyfirvöldum), skal tilgreina i kr
dálk.
5. Hjálagt útsvar
Hér skal tilgreina i kr dálk álagt
útsvar á gjaldárinu 1975.
6. Greidd húsaleiga
Hér skal tilgreina i kr dálk greidda
húsaleigu og aðrar þær upplýsingar
sem um er beðið i þessum reit.
7. Slysatrygging við heimilisstörf
Skv ákvæðum 30. gr laga nr
67/1971 um almannatryggingar geta
þeir sem heimilisstörf stunda, tryggt sér
rétt til slysabóta við þau störf með þvi
að skrá í framtal sitt ósk um það i þar til
gerðan reit/ Ársiðgjald verður nú 2.392
kr
Þeir sem atvinnurekstur hafa með;
höndum geta tryggt sér og mökum
sinum, sem með þeim starfa að
atvinnurekstrinum, rétt til slysabóta,
sbr. upplýsingar þar um á,
launamiðafylgiskjölum Óski þessir
aðilar að tryggja sér eða mökum sinum
jafnframt rétt til slysabóta við
heimilisstörf skulu þeir geta þess í
umræddum reit og mun þá
slysatryggingin i heild reiknast 52 vikur
á vikugjaldi þess áhættuflokks sem
hærri er.
Eignir
31. des. 1975
1. Hrein eign samkv.
meðfylgjandi efnahagsreikningi.
Framtölum þeirra, sem
bókhaldsskyldir eru skv ákvæðum laga
nr. 51/1968 um bókhald. skal fylgja
efnahagsreikningur.
I efnahagsreikningi eða I gögnum,
með honum skal vera sundurliðun á
öllum eignum sem máli skipta, svo sem
innstæðum I bönkum og sparisjóðum,
vixileignum og öðrum útistandandij
kröfum (nafngreina þarf þó ekki kröfui;
undir 10 000 kr. ) birgðum (hráefnum.
rekstrarvörum, hálfunnum eða
fullunnum vörum), skuldabréfum,
hlutabréfum og öðrum verðbréfum,
stofnsjóðsinnstæðum, fasteignum
(nafngreindum á þann veg er greinir i
3 tl. — Fasteignir), vélum og tækjum
og öðrum þeim eignum sem eru i eigu
framteljanda Allar fyrnanlegar eignir
skulu tilgreindar á fyrningaskýrslu.
Greinargerð um mat birgða skal fylgja
framtali á þar til gerðu eyðublaði. Sjá 1
mgr. 1. tl. III. kafla leiðbeininganna.
Á sama hátt ber að sundurliða allar
skuldir, svo sem yfirdráttarlán,
samþykkta vixla og aðrar
viðskiptaskuldir (nafngreina þarf þó
ekki viðskiptaskuldir undir 10 000 kr),
veðskuldir og önnur föst lán, svo og
aðrar skuldir framteljanda.
Einnig skal sýna á efnahagsreikningi
hvernig eigið fé framteljanda breytist á
uppgjörsárinu.
Ef I efnahagsreikningi eru fjárhæðir,
sem ekki eru í samræmi við ákvæði
skattalaga, svo sem tilfært verð
fasteigna, eða eru undanþegnar
eignarskatti, sbr t.d 21. gr. skattalaga,
skal úr þvi bætt með áritun á
efnahagsreikninginn eða gögn með
honum. Hreina skattskylda eign skal
slðan færa á framtal í 1. tölulið I kafla
eða Skuldir umfram eignir í C-lið, bls.
3
2. Bústofn skv. meSf.
landbúnaðarskýrslu.
Framtölum bænda og annarra, sem
bústofn eiga, skulu fylgja
landbúnaðarskýrslur og færist bústofg
skv þeim undir þennan lið
3. Fasteignir.
Fasteignir skal telja til eignar á
gildandi fasteignamatsverði skv.
aðalmati sem gildi tók 31. des. 1971
eða slðar staðfestum matsgjörðum fyrir
árslok 1975. Ef staðfest fasteignamat á
fullbyggðu mannvirki er ekki fyrir hendi
má þó áætla matsverð.
Margföldun á verðmæti fasteigna
með 1,7 skv lögum nr. 97/1975
verður framkvæmd af skattstjórum
Metnar fasteignir ber að tilgreina I
lesmálsdálk og kr dálk á þann veg er
hér greinir:
Rita skal nafn eða heiti hverrar
sérmetinnar fasteignar i lesmálsdálk
eins og það er tilgreint i
fasteignamatsskrá. Sé fasteign staðsett
utan heimilissveitar framteljanda ber
einnig að tilgreina það sveitarfélag þar
sem fasteignin er.
í fasteignamatsskrám er hverri
fasteign skipt niður i ýmsa matshluta
eða matsþætti. T.d. er jörðum i sveitum
skipt i eftirtalda matsþætti: tún, land,
hlunnindi, íbúðarhús, útihús o.s.frv
Öðrum sérmetnum fasteignum er skipt i
eftirtalda matshluta eða-þætti: land eða
lóð. hlunnindi, sérbyggðar (sérgreindar)
byggingar eða önnur mannvirki Hins
vegar er sérbyggðum byggingum ekki
skipt eftir afnotum, t.d i ibúðar- og
verxlunarhúsnæði sem vera kann í
sömu sérbyggðri byggingu
í lesmálsdálk ber að tilgreina einstaka
matshluta eða -þætti fasteignarinnar.
sem eru í eigu framteljanda. á sama
hátt og með sama nafni og þeir eru
tilgreindir i fasteignamatsskrá. Sé
matshluti eða -þáttur ekki að fullu eign
framteljanda ber að geta
eignarhlutdeildar. Séu sérbyggðar
byggingar notaðar að hluta til Ibúðar og
að hluta sem atvinnurekstrarhúsnæði
ber einnig að skipta þeim eftir afnotum
og skal skiptingin gerð i hlutfalli við
rúmmál. Sérreglur, sbr. næstu
málsgrein, gilda þó um skiptingu
leigulanda og leigulóða til eignar milli* 1 * 3
landeiganda og leigutaka. Fjárhæð
fasteignamats hvers matshluta
eða þáttar skal færð í samræmi við
eignar- eða afnotahlutdeild.
Eigendur leigulanda og leigulóða
skulu telja afgjaldskvaðarverðmæti
þeirra til eignar
Afgjaldskvaðarverðmætið er fundið
með þvi að margfalda ársleigu ársins
1975 með 15. f lesmálsdálk skal
tilgreina nafn landsins eða lóðarinnar
ásamt ársleigu en i kr. dálk skal
tilgreina ársleigu x 15
Leigjendur leigulanda og leigulóða
skulu telja sér til eignar
mismun fasteignamatsverðs og
afgjaldskvaðarverðmætis leigulandsins
eða -lóðarinnar. í lesmálsdálk skal
tilgreina nafn landsins eða lóðarinnar.
svo og fullt fasteignamatsverð
lóðarinnar eða landsins eða þess hluta
sem framteljandi hefur á leigu og
auðkenna sem „Ll." en i kr. dálk skal
tilgreina mismun fasteignamatsverðs og
afgjaldskvaðarverðmætis (sem er land-
eða lóðarleiga ársins 1975 X 15).
Hafi eigandi bygginga eða annarra
mannvirkja sem byygð eru á leigulandi
eða leigulóð, ekki greitt leigu fyrir
landið eða lóðiria á árinu 1975 ber
land- eða lóðareiganda að telja
fasteignamatsverð lands eða lóðar að
fullu til eignar.
Mannvirki sem enn eru i byggingu
eða ófullgerð, svo sem hús, ibúðir,
bílskúra og sumarbústaði, svo og
ómetnar viðbyggingar og breytingar
eða endurbætur á þegar metnum
byggingum eða öðrum mannvirkjum,
skal tilgreina sérstaklega i lesmálsdálki
undir nafni skv. byggingarsamþykkt
eða byggingarleyfi og kostnaðarverð
þeirra I árslok 1975 i kr
dálk. Eigendum slíkra eigna ber að
útfylla húsbyggingarskýrslu sem fylgja
skal framtali
4. Vélar, verkfærSi og áhöld.
Hér skal færa í kr dálk bókfært verð
landbúnaðarvéla og -tækja skv.
landbúnaðarskýrslu. Enn fremur skal
hér færa eignarverðmæti véla,
verkfæra, tækja og áhalda, annarra en
bifreiða sem ekki eru notuð i
atvinnurekstrarskyni eða ekki ber að
telja i efnahagsreikningi, sbr tölulið 1.
Slikar eignir skulu teljast á kaup- eða
kostnaðarverði í kr dálk. Heimilt er þó
að lækka þetta verð um 8% fyrningu á
ári miðaða við kaup- eða kostnaðarverð,
svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó
má aldrei telja eignarverð lægra en
10% af kaup- eða kostnaðarverði
Fyrning þessi kemur aðeins til lækkunar
á eign en ekki til frádráttar tekjum
5. Bifreið.
Hér skal færa i kr. dálk kaup- eða
kostnaðarverð bifreiða sem ekki eru
notaðar i atvinnurekstrarskyni eða ekki
ber að telja i efnahagsreikningi sbr
tölulið 1. Heimilt er þó að lækka verðið
um 10% fyrningu á ári miðaða við
kaup- eða kostnaðarverð, svo og um
áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei
telja eignarverð lægra en 10% af
kaupverði Fyrning þessi kemur aðeins
til lækkunar á eign en ekki til frádráttar
tekjum
6. Peningar.
Hér á aðeins að færa peningaeign um
áramót en ekki aðrar eignir, svo sem
bankainnstæður, víxla eða verðbréf
7. Inneignir.
Hér skal færa i kr. dálk samtölu
skattskyldra innstæðna og verðbréfa i
A-lið, bls 3, i samræmi við
leiðbeiningar um útfyllingu hans.
8. Hlutabréf.
Rita skal nafn hlutafélags i lesmálsdálk
og nafnverð hlutabréfa I kr dálk ef
hlutafé er óskert Sé hlutafé skert skal
aðeins færa raunverulegt verðmæti
þess til eignar.
9. VerSbréf, útlán,
stofnsjóSsinnstæSur o.fl.
Hér skal færa r kr. dálk samtölu eigna
I B-lið, bls. 3. i samræmi við
leiðbeiningar um útfyllingu hans
10. Eignirbarna.
Hér skal færa I kr. dálk samtölu
skattskyldra eigna barna i E-lið, bls. 4, i
samræmi við leiðbeiningar um
útfyllingu hans nema farið sé fram á
sérsköttun barns (barna) til
eignarskatts.
11. ASrareignir.
Hér skal færa þær eignir (aðrar en
fatnað, bækur, húsgögn og aðra
Hér skal færa i kr dálk samtölu
skulda i C-lið. bls. 3, I samræmi við
leiðbeiningar um útfyllingu hans.
Tekjur árið 1975
1. Hreinar tekjur af atvinnurekatri
eða sjálfstæðri starfsemi samkv.
meðfylgjandi rekstrarreikningi eða
landbúnaðarskýrslu.
Framtölum þeirra sem
bókhaldsskyldir eru skv ákvæðum
laga nr. 51/1968 um bókhald skal
fylgja rekstrarreikningur. Þeir sem
landbúnað stunda skulu nota þar til
gerða landbúnaðarskýrslu Gögnum
þessum skal fylgja fyrningaskýrsla þar
sem fram komi a.m.k. sömu
upplýsingar og til er ætlast að komi
fram á fyrningaskýrslueyðublöðum
sem fást hjá skattyfirvöldum Enn
fremur skal fylgja á þar til gerðu
eyðublaði greinargerð um mat
vörubirgða, , samanburður
söluskattsskýrslna og ársreikninga og
yfirlit um launagreiðslur eftir þvi sem
við á.
Þegar notuð er heimild i D-lið 22.
gr skattalaga til sérstaks frádráttar frá
matsverði birgða skal breyting
frádráttar milli ára tilgreind sem
sérliður I rekstrarreikningi, sbr,
áðurnefnda greinargerð um mat
birgða.
Þegar notuð er heimild 4. tl. 7 gr.
laga nr. 7/1.972 um breyting á lögum
nr. 68/1971 til óbeinna fyrninga skv
verðhækkunarstuðlun sem fjár-
málaráðuneytið ákveður skal fylgja
framtali fullnægjandi greinargerð um
notkun heimildarinnar. Fjárhæð
óbeinna fyrninga skal ekki færa á
fyrningaskýrslu heldur sem sérlið á
rekstrarreikning, sjávarútvegs- eða
landbúnaðarskýrslu Þessi óbeina
fyrning breytir ekki bókfærðu verði
eignanna
Ef I rekstrarreikningi (þ.m.t.
landbúnaðarskýrsla) eru fjárhæðir sem
ekki eru i samræmi við ákvæði
skattalaga, svo sem þegar taldar eru til
tekna fjárhæðir sem ekki eru
skattskyldar eða til gjalda fjárhæðir
sem ekki eru frádráttarbærar, skal úr
þvl bætt með áritun á
rekstrarreikninginn eða gögn með
honum Sama gildir ef framteljandi vill
nota heimild til frestunar á
skattlagningu skattskylds hluta
söluhagnaðar eigna en sú fjárhæð skal
enn fremur sérgreind á
efnahagsreikningi
Gæta skal þess sérstaklega að i
rekstrarreikningi séu aðeins þeir liðir
færðir er tilheyra þeim atvinnurekstri
sem reikningurinn á að vera heimild
um. Þannig skal t d aðeins færa til
gjalda vexti af þeim skuldum sem til
hefur verið stofnað vegna
atvinnurekstrarins en ekki vexti af
öðrum skuldum og ekki skal færa til
gjalda á rekstrarreikning önnur
persónuleg gjöld sem ekki tilheyra
atvinnurekstrinum þótt frádráttarbær
séu, svo sem lifeyris- og
liftryggingariðgjöld, heldur skal færa
þau í viðkomandi liði i frádráttarhlið
framtals Sama gildir um tekjur sem
ekki eru tengdar atvinnurekstrinum,
svo sem eigin húsaleigu, vaxtatekjur
og arð Þessar tekjur skal færa i
viðkomandi liði I teknahlið framtals.
Tekjur af útleigu eða reiknaða
húsaleigu af íbúðarhúsnæði, svo og öll
gjöld vegna hennar, svo sem
fasteignagjöld, fyrningu, viðhald og
vaxtagjöld, sem tilgreind eru á
rekstrarreikningi. ber á sama hátt að
draga út úr rekstrarreikningi með
áritun þar á eða gögn með honum.
Hreinar tekjur af útleigðu
ibúðarhúsnæði ber að telja til tekna I
tölulið 2 eins og þar er fyrir mælt.
Reiknaða húsaleigu skal telja til tekna I
tölulið 3 en gjöld tengd henni til
frádráttar, sbr töluliði 1 og 2 I V kafla
framtals
Endurgjaldslaus afnot launþega og
(og fjölskyldu hans) af ibúðarhúsnæði I
eigu vinnuveitanda hans ber
vinnuveitandanum að telja til gjalda i
rekstrarreikningi með 5% af giidandi
fasteignamati hlutaðeigandi
ibúðarhúsnæðis og lóðar en sömu
fjárhæð ber honum að telja til tekna i
tölulið 3 i teknahlið framtals. Sama
gildir ef hluti ibúðarhúsnæðis i eigu
atvinnurekanda er notaður vegna
atvinnurekstrarins.
Láti vinnuveitandi starfsmönnum
sinum i té bifreiðar til afnota
endurgjaldslaust eða gegn óeðlilega
lágu endurgjaldi ber að láta fylgja
rekstrarreikningi sundurliðun á
rekstrarkostnaði bifreiðanna að
meðtöldum fyrningum, ásamt
upplýsingum um afnotin l eknum km,
fjárhæð endurgjalds og nöfn notenda.
Hafi atvinnurekandi hins vegar sjálfur,
fjölskylda hans eða aðrir aðilar
bifreiðar hans til afnota ber að láta