Morgunblaðið - 21.01.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976
31
Enn ein ást-
kona Kennedys
gefur sig fram
San Francisco,
17. janúar — Reuter.
VEIZLUFRU ein velþekkt í
San Francisco, Joan Hitchock,
staðfesti í gær blaðafrétt um
að hún hefði verið ástkona
John F. Kennedys, áður en
hann varð forseti Bandarfkj-
anna og sagði jafnframt að
hún hefði orðið ófrfsk af hans
völdum en fengið fóstrinu
eytt. I samtali við Reuter-
fréttastofuna segir frú
Hitchcock, sem er 43 ára að
aldri, að Kennedy hafi sent
henni 400 dollara í pósti þegar
hún varð ófrfsk. Þau hefðu
verið elskendur frá 1956 til
1958 og Kennedy sleit sam-
bandinu endanlega er hann
varð forseti 1960. Er frúin var
spurð hvort Kennedy hefði
verið bezti elskhugi sem hún
hefði haft, en hún er fjórgift,
svaraði hún: „Það er allt af-
stætt og fer eftir því með
hverjum maður er daginn eft-
ir.“
Eldur í skúr
í Laugardal
I GÆRMORGUN kom upp eldur í
útihúsi hússins Laugardalur við
Holtaveg í Reykjavík. I útihúsinu
er bifreiðageymsla og geymsla
fyrir Skólagarða borgarinnar.
Eldurinn kom upp í bílskúrnum,
en þar voru menn að vinna. Þeir
gátu forðað sér út og sömuleiðis
gátu þeir komið bifreið á brott
sem var þarna til viðgerðar, en
hún mun þó eitthvað hafa
skemmzt. Bílskúrinn brann mikið
að innan en slökkviliðinu tókst aö
mestu aó koma í veg fyrir að
geymsla skólagarðanna brynni en
ýmislegt sem þar var inni
skemmdist af vatni, sóti og reyk,
svo sem áburður og fræ. Eldurinn
mun hafa kviknað vegna lélegs
útbúnaðar á rafmagnsljósi.
60þús. bamajakk-
ar til Rússlands
FYRIR skömmu var undirritaður
í Reykjavík samningur um sölu á
60 þúsund barnajökkum á Rúss-
landsmarkað. Aðilar að samn-
ingnum eru Iðnaðardeild S.I.S.,
og Prjónastofan Katla í Vík í Mýr-
dal, Dyngja á Egilsstöðum og sam-
band sex prjónastofa á Norður-
landi. Þetta er fimmti samningur-
inn, sem gerður er á milli þessara
aðila um sölu á þessari flík, sem
upphaflega var hönnuð fyrir
Kötlu í Vík í Mýrdal.
— Atli Heimir
Framhald af bls. 32
sjálfur hér á Islandi veturinn
1973. Verkið samdi ég i
Kanada, en þar dvaldi ég
sumarið 1972 við gerð
eletrónískrar tónlistar. Þá barst
það í tal, að ég skrifaði flautu-
verk fyrir Aitken, sem er mikill
Islandsvinur og hefur oft
komið hingaó. Eg vann undir
mikilli pressu við að Ijúka við
verkið og segja mátti að siðustu
nótnablöðin væru blaut þegar
hann frumflutti verkið. Hann
varð svo veðurtepptur hér og
missti af mörgum tónleikum,
sem hann hafði verið búinn að
ráða sig á.“
Þetta er i sjötta sinn, sem
tónlistarverðlaunum Norður-
landa er úthlutað eins og fyrr
segir. Áður hafa fengið þau:
Karl-Birger Blomdahl, Svíþjóð
(1965), Joonas Kokkonen,
Finnlandi (1968), Lars Johan
Werle Svíþjóð (1970), Arne
Norheim, Noregi (1972), og
Per Norgaard, Danmörku
(1974).
Að þessu sinni komu verk 10
tónskálda fyrir dómefndina,
tveggja frá hverju landi. Auk
Atla Heimis Sveinssonar var
lagt fram fyrir Islands hönd
verk Leifs Þórarinssonar,"
Angelus Domini", fyrir
sópransóló og kammerhljóm-
sveit. Fulltrúar Islands í dóm-
nefndinni voru Árni Kristjáns-
son og Páll Pálsson.
— Krafla
Framhald af bls. 32
voru jarðskjálftar tiðir, en mestar
urðu hrinurnar þegar nýjar eld-
stöðvar fóru í gang eða þegar
gosvirkni færðist í aukana. I Mý-
vatnseldum kom upp 0.7 km1 af
gosefnum og hraunin þekja um 35
kml lands.
Gos f Leirhnjúk 1746: Hinn 10.
júlí 1746 urðu snarpir jarðskjálft-
ar í Mývatnssveit samfara litlu
eldgosi í Leirhnjúk.
Sveinagjárgos 1875: Frá miðj-
um desember 1874 varð vart við
jarðhræringar i Mývatnssveit
með sterkum kippum inn á milli.
Litið gos hófst síðan í Sveinagjá
18. febrúar 1875 og stóð sú hrina
stutt. Siðan komu stærri goshrin-
ur 10. marz, 4. april og 15. ágúst
sama ár. Magn gosefna varð 0.3
kmx og flatarmál hrauns 28 km?
Jarðskjálftar fundust öðru hverju
allan gostimann, en sumir þeirra
gætu hafa stafað frá eldsumbrot-
um i Öskju í Dyngjufjöllum fyrri
hluta árs 1875.
Jarðskjálftahrinan, sem hófst
20. desember 1975 samtimis smá-
gosi við Leirhnjúk, stendur enn
og er mjög sambærileg jarð-
skjálftahrinunum, sem fóru á
undan gosinu i Sveinagjá 1875 og
fylgdu Mývatnseldum 1724—
1729. I Mývatnseldum liðu rúm
tvö ár frá fyrstu byrjun gossins í
Leirhnjúk þar til mikið hraun-
rennsli hófst. í Sveinagjárgosi
liðu tveir mánuðir frá því að jarð-
skjálftahrinan hófst og þar til gos-
virkni byrjaði, en verulegt hraun-
rennsli hófst svo þrem vikum síð-
ar . . .
Langvarandi jarðskjálftahrin-
ur eða snarpir jarðskjálftakippir
hafa ekki orðið á Mývatnssvæð-
inu, svo vitað sé, nema sem und-
anfari eldgosa og samtfmis þeim.
Hins vegar er vitað um mikla
jarðskjálfta í Axarfirði og Keldu-
hverfi á liðnum áratugum og öld-
um, þótt ekki hafi gosið þar á
söglulegum tíma.
I ljósi þessara staðreynda verð-
ur að telja verulegar Iíkur á því,
að gos taki sig upp aftur á Mý-
vatnssvæðinu. Liklegast er að
slíkt framhald eldsumbrota yrði á
gossprungunni sem liggur um
Leirhnjúk suður í Bjarnarflag.
Við teljum þvi óráðlegt að halda
áfram framkvæmdum við Kröflu-
virkjum öðrum en þeim, sem
stuðla að verndun þeirra mann-
virkja sem þegar hefur verið fjár-
fest i, meðan jarðskjálftahrinan,
sem hófst 20. desember 1975,
stendur yfir.
Virðingarfyllst
Eysteinn Tryggvason, dósent
Sigurður Þórarinssoi^ prófessor
Sigurður Steinþórsson, dósent
Þorleifur Einarsson, prófessor
Morgunblaðið ræddi í gær við
Gunnar Thoroddsen um álitsgerð
sérfræðinganna og spurði hann
hver viðbrögð stjórnvalda við
henni yrðu.
„Mér barst í gærkvöldi þessi
álitsgerð frá fjórum sérfræð-
ingum i jarðvísindum við Raun-
visindadeild Háskóla Islands,
þeim prófessor Sigurði Þórarins-
syni, prófessor, Þorleifi Einars-
syni, prófessor, og dósentunum
Eysteini Tryggvasyni og Sigurði
Steinþórssyni," sagði iðnaðarráð-
herra. „Strax eftir að mér barst
þessi álitsgerð ræddi ég málið
nánar við Þorleif Einarsson, pró-
fessor. Hingað til hefur aldrei
legið fyvir álitsgerð um atburðina
fyrir norðan, heldur aðeins laus-
leg samtöl í fjölmiðlum við ýmsa
sérfræðinga, og þá stundum
komið nokkuð óljósar umsagnir
og spár. Ég taldi þess vegna
mikinn feng í þvi að fá þannig
skriflega álitsgerð frá þessum
fjórum ágætu vísindamönnum."
Gunnar kvaðst á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun hafa skýrt
ráðherrunum frá þessari álits-
gerð. „Ég gerði einnig strax ráð-
stafanir til þess, að hún yrði
kunngerð þeim aðilum, sem málið
skiptir mest, svo sem Almanna-
varnaráði, oddvita Skútustaða-
hrepps, orkumálastjóra, formanni
Kröflunefndar og formanni og
framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar.
Fyrir nokkru hef ég beðið Orku-
stofnun, Kröflunefnd og fleiri
aðila um greinargerð og tillögur
varðandi framkvæmdir við
Kröflu og eru þær væntanlegar
næstu daga. I stórum dráttum
standa málin þannig' nú, að við
Kröflu standa aðeins yfir fram-
kvæmdir til að styrkja þau mann-
virki sem þar eru fyrir, m.a.
ganga frá þaki stöðvarhússins og
styrkja sjálft húsið. Vélar eru
hins vegar ekki væntanlegar fyrr
en með vorinu, og ekki hefur
verið áætlað að hefja boranir að
nýju fyrr en í vor.“
Ráðherra kvað sama máli gegna
um háspennulínu milli Kröflu og
Akureyrar. „Þetta er því í sam-
ræmi við það sem vfsindamenn-
irnir ráðleggja í niðurlagi bréfs-
ins, að meðan jarðskjálftahrinan
stendur yfir, verði aðeins unnið
að þeim framkvæmdum við
Kröfluvirkjun, sem stuðla að
verndun þeirra mannvirkja, sem
þegar hafa verið reist.“
Þá sagði iðnaðarráðherra, að
enda þótt Kröfluvirkjun væri
mikilvæg vegna hins mikla orku-
skorts á Norðurlandi, þá væri
aðalatriðið í dag sú hætta, sem
steðjaði að byggðinni í Mývatns-
sveit og að mannvirkjum í
Bjarnarflagi, svo sem Kísiliðj-
unni.
— Botn Mývatns
Framhald af bls. 32
bornir saman kemur þetta greini-
lega fram. Vatnshæó Mývatns er
alltaf sýnt í ritinu Orkumál og
sagði Sigurjón, að þeim sem hana
þekkja, ætti að vera ljóst hve
vatnsborð Mývatns sveiflast
mikið eftir vindstöðu. Getur orðið
80—90 sm mismunur milli norð-
ur- og suðurflóans.
Heimildamenn Sigurjóns sem
lesa á fastamerkin við vatnið, eru
Hallgrímur og Einar í Vogum,
Steingrímur og Haukur á Gríms-
stöðum, Dagbjartur í Alftagerði
og Árni Gíslason á Laxárbakka,
sem gefur upplýsingar um lokuna
við Geirastaði. Sigurjón hefur svo
fengið blöðin úr síritandi mælun-
um og borið allt saman.
— Uppgjöf
Framhald af bls. 1
vegi. I fréttinni segir síðan að
„Bretar hafi haft alþjóðleg lög
mér sér í deilunni en stjórnin
hafi ■ gert sér grein fyrir að
heimurinn liti svo á að þorska-
stríðið væri tilraun stórveldis
til þess að níðast á 200.000
manna þjóð — álíka mörgu
fólki og býr í einu hverfi Lund-
úna.“
Daily Mirror, sem túlkar oft
skoðanir Verkamannaflokks-
stjórnar Harold Wilsons for-
sætisráðherra, birtir fréttina
einnig á forsíðu. Fyrirsögnin á
fréttinni hljóðar „Flotinn hætt-
ir þorskastríði" og í undirfyrir-
sögn segir: „Togaramenh for-
dæma svik.“
I frétt Daily Mirrors er vitnað
i talsmann brezka togarasam-
bandsins sem segir: „Mannslíf
gætu verið í hættu nema þvi
aðeins að Islendingar hafi lofað
að ráðast ekki á togarana. Við
trúum því ekki að stjórnin
mundi ofurselja togarana fall-
byssubátunum. Það mundi nán-
ast jafngilda því að senda
mennina út í opinn dauðann."
Blaðið bætir því við að aðrir
togaramenn hafi sagt að þetta
séu svik af hálfu brezku stjórn-
arinnar.
Daily Telegraph, sem er
hægrisinnað blað, er eitt þeirra
blaða sem birtir fréttina sem
aðalfrétt en Guardian, sem er
frjálslynt, The Times, óháð
blað, og Financial Times, einn-
ig óháð blað birta fréttina á
áberandi hátt á forsíðum.
Financial Times segir að
Bretar hafi „beygt sig fyrir
kröfu Islendinga um brott-
kvaðningu brezka sjóhersins
frá miðum sínum sem hafi ver-
ið fyrirfram skilyrði fyrir því
að viðræður gætu hafizt að nýju
til að binda enda á „þorska-
stríðið“.“
— Forsvarsmenn
stéttarfélaga
Framhald af bls. 5
engin af brezku togurunum eftir
að herskipin voru kölluð út úr
landhelginni.
Ég hef alltaf óttazt að beiðni um
að NATO miðli málum í deilunni
leiddi til þess að samið yrði við
Breta, en ég er andvígur samning-
um við þá vegna þess að við höf-
um ekki um neitt að semja eins og
alþjóð er kunnugt um.
• Ég lft einnig svo á að okkar
samningamenn komist aldrei frá
tilboðinu um 65 þús. tonn, hvað
svo sem þeir segja, en það tilboð
var með öllu óafsakanlega hátt á
sínum tíma. Ef kemur til samn-
inga verður um meira magn að
ræða en 65 þús. tonn, en til þess
má þó aldrei koma.
Að undanförnu hefur starfað
nefnd sem sjávarútvegsráðuneyt-
ið skipaði til þess að ræða með
hvaða hætti sé hægt að minnka
sókn í þorskstofninn við landið.
Hafi menn gert sér vonir um
árangur af því starfi, verður hann
enginn ef samið verður við
Breta“.
„EKKERT TILEFNI
TIL UNDANSLATTAR."
Björn Jónsson forseti Alþýðu-
sambands Islands sagði:
„Mér finnst út af fyrir sig
ánægjulegt að Bretar skuli fara út
fyrir 200 mílurnar með herskip
sín, bara að það verði ekki leikinn
sami leikur og áður þegar brezku
togararnir fengu að fiska í friði.
Ef stjórnvöld skipa varnarieysi,
þykir mér þróunin miður, en ef
varðskipin verða nýtt eins og eðli-
legt er til varnar fiskveiðilögsög-
unni, þá fagna ég, því án her-
skipaihlutunarinnar getum við
varið okkar landhelgi."
„Var varðskipunum skipað að-
gerðarleysi í sfðasta þorskastríði
eftir að herskipin voru kölluð út
úr landhelginni af Bretum?“
„Það var víst ekki opinberlega í
síðasta stríði, en dómsmálaráð-
herra þá hefur örugglega gert
það, þvf það gerðist ekkert eftir
það, ekkert var klippt og enginn
togari tekinn. Það er þvf augljóst
að skipanir hafa verið gefnar þá.
Ég tel þessa ákvörðun Breta
ekki gefa okkur neitt tilefni til
undansláttar, en að öðru leyti er
ákvörðunin ánægjuleg."
„ÞORSKMAGNIÐ
AÐEINS FYRIR
ISLENDINGA."
Jón Sigurðsson forseti Sjó-
mannasambands Islands sagði:
„Mitt álit í sambandi við 200
mílna útfærsluna hefur alltaf
verið og er að það eigi enga samn-
inga að gera við útlendinga. Sjó-
mannasamband Islands gerði i
sumar samþykkt þar sem ráðið
var frá að gera nokkra samninga
um veiðiheimildir við útlenda
aðila. Svarta skýrslan var ekki
komin fram formlega þá, en menn
renndi i grun hvernig komið væri
fyrir fiskstofnum okkar og það er
ekkert til skiptanna og þvf ekkert
um að semja. Það er t.d. álit fiski-
fræðinga varðandi þorskinn að nú
megi ekki veiða meira magn af
honum en íslendingar veiddu
sjálfir s.l. ár.
Hitt er svo varðandi stöðuna í
málinu nú eftir að Bretar hafa
tilkynnt að kalla herskipin út, að
ef þeir vilja eitthvað tala við
okkur og við við þá, þá eiga þeir
að koma hingað til viðræðna, en
ekki að vera að setja sig á háan
hest og kalla okkar menn út.“
— Samningar
Framhald af bls. 5
ríkisstjórninni til að ganga frá
bráðabirgðasamkomulagi við
Breta. Var hún samþykkt á Al-
þingi 13. nóvember með 53 at-
kvæðum gegn 6, en einn sat
hjá. Skv. samkomulaginu máttu
Bretar veiða 130 þúsund lestir
á ári við Islandsstrendur og
frystiskip útilokuð af miðunum
svo og 15 stærstu togarar Breta
og 15 aðrir miðað vió fjölda
brezkra skipa við veiðar hér við
land 1971. Þá var samið um
friðun fjölda svæða á vissum
árstímum. Gerður var listryfir
skip, sem veiðar máttu stunda
við landið skv. samkomulaginu
og samþykkt að strika skip, sem
gerðust brotleg við samkomu-
lagið, út af listanum.
Lauk þar með f bili land-
helgisdeilum Islendinga og
Breta, en ósamið var eftir sem
áður við V-Þjóðverja.
— Viðbrögðin
Framhald af bls. 19
með aðgerðir flotans. Hann
benti á að meirihluti brezku
þjóðarinnar, einkum fiskimenn
byggi við lakari lffskjör en Is-
lendingar. Hann sagði að hvers
konar aflarýrnun, sem Bretar
yrðu að samþykkja, mundi
koma niður á atvinnuöryggi,
einkum við Humberside og
fleiri svæðum þar sem 25.000
manns ynnu störf tengd sjávar-
útvegi.
— Mögulegt
Framhald af bls. 3
miðað við einn áfanga (uppruna-
lega tillagan), tvo áfanga eða þrjá
áfanga:
1976 1977 1978
Einn álangi 230 295 376
Tveir áfangar 280 280 360
Þrír áfangar 295 295 345
Ekki er mikill munur á þeim
valkostum, sem miða við tvo eða
þrjá áfanga, en sé stærð hrygn-
ingarstofnsins höfð í huga, þá
kemur í ljós, að tveir áfangar eru
miklu betri kostur en þrír, þar
sem ekki er gengið jafnnærri
hrygningarstofninum.
Hafrannsóknastofnunin vill þó
taka skýrt fram, að hún hefur
ekki breytt þeirri skoðun sinni, að
hámarksafli sá, sem hún lagði til í
skýrslu sinni frá 13. október s.l.
og miðar að því að æskileg sóknar-
minnkun sé tekin í einum áfanga,
er það sem æskilegast er.
Það skal ennfremur tekið fram,
að þar sem ný vitneskja um styrk-
leika árganganna og nýir ár-
gangar bætast við stofninn á
hverju ári, þá er nauðsynlegt að
endurmat á æskilegum hámarks-
afla fari fram arlega.
Hafrannsóknastofnunin vill að
lokum benda á, að ákvæði um
hámarksafla er ekki nægjanlegt,
ef ekki er samtímis beitt öllum
tiltækum ráðum til þess að draga
úr veiði smáfisks. Nauðsynlegt er
að herða allt eftirlit með veiði-
búnaði og má þar sérstaklega
nefna klæðningu poka í botnvörp-
um. Nýjustu rannsóknir stofn-
unarinnar benda til þess að nauð-
synlegt muni reynast að stækka
riðil í botnvörpu, flotvörpu og
dragnót verulega, jafnvel i 165
mm.
Virðingarfyllst,
Jón Jónsson (sign)“
— Leitað álits
Framhald af bls. 3
dregin til baka, og væri það
mikill áfangi fyrir Islendinga.
Hins vegar ríkti nú algjör
óvissa um það hvernig ástandið
yrði á miðunum og hvað gerðist
í viðræðum forsætisráðherra
við Harold Wilson.
Benedikt sagði, að um fram-
haldið væri ekkert hægt að
segja að svo komnu máli. Hann
minnti á, að í fyrsta þorska-
stríðinu, sem stóð í þrjú ár,
hefði það komið fyrir, að Bret-
arnir drógu skip sín til baka en
þrátt fyrir það hefði deilan
ekki leystst fyrr en um síðir.
Kvaðst hann því telja rétt að
bíða átekta þar til séð væri
hvað fylgdi áþreifanlegt í kjöl-
far þessarar brezku aógerðar.
Benedikt sagði ennfremur, að
Alþýðuflokkurinn hefði á
sínum tíma tekið afstöðu á móti
þýzku samningunum vegna
þeirra upplýsinga sem lágu
fyrir um ástand fiskstofnanna,
og hann sagði að sér þætti afar
ólfklegt að sú afstaða flokks
hans ætti eftir að breytast
meðan vísindamenn breyttu
ekki áliti sínu.