Morgunblaðið - 15.04.1976, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.04.1976, Qupperneq 2
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 Það er að vísu vika eftir af þessum makaíausa vetri, en höfundur vill samt ólmur fá að segja strax ... FRANS! (f't'ir Gída J. Adfxrrsson Snjótitlingarnir hafa verið hér eins og mý á mykjuskán annað slagið í vetur á flötinni undir stofuglugganum, en þeir eru svo styggir þessir vesl- ingar að það þarf ekki ann- að en skrönglast dálítið brenglulegur bíll hér eftir veginum (sem er þó fjarri því að vera oní húsinu) og þá eru þeir roknir útí veð- ur og vind, það er að segja hér upp á þakbrúnina hjá okkur ellegar upp á þökin nágrannanna eða jafnvel alla leið upp á sjónvarps- loftnetin þéirra, þeir sem eru verst komnir á taug- um. Þö líður sjaldnast á löngu þar til þeir eru komnir aftur og rignir þá aftur eins og fljúgandi bandhnyklum ofan á reit- inn undir stofuglugganum sem við höfum verið að reyna að halda hreinum fyrir þá í vetur: þeir reka stélið í vindinn og taka enn einu sinni til óspilltra mál- anna að kroppa í sig lífs- björgina sem við sáldrum fyrir þá úr myndskreyttum plastpokum sem Sól- skrikjusjóður mælir m''-' Einn háski vofir samt sí- fellt yfir þeim sem er stór- um háskalegri en brenglað- ir bílar, nefnilega þeir milljón kettir sem eru bú- settir hér í hverfinu ásamt svo sem fimm hundruð for boðnum hundum. Kettirn ir sækja i þessa lifand fjaðrabolta (eða fljúgand mýs) eins og varðskip Bretager, og liklega hefur einum þeirra tekist að næla sér í einn kostgangar- ann okkar núna um dag- inn, því að við fundum hálf tuskulegar stélfjaðrir og ósköp einmanalegar ofan á klakanum í tröppunum þegar við komum út, hvað veit varla á gott fyrir titl- inginn þann er ég hræddur um. Það er aðallega næstum drifhvitur skúrkur með slóttugt fés sem er iðnastur við kolann, og við höfum séð hann næstum daglega í vetur í eilífðarskaflinum fyrir vestan hús þar sem hann er að leika hroðalega ógnvekjandi tígrisdýr á antilópuveiðum suður í Afríku eða hvitabjörn í Is- hafinu að eltast við sérlega fallegan sel, sem er enda meira í takt við þetta end- emis tiðarfar. Þá bölsót- umst við fyrir innan glugg- ann og böðum út öllum öngum og gerum okkur eins ófrýnileg í framan og framast er unnt, eða við ryðjumst jafnvel út úr hús- inu með ópum og óhljóð- um, eins og skruggufullir indíánar á striðsbrókunum í fádæma kjánalegri kúr- ekamynd. Líklegast heldur aumingja skepnan að við séum öll orðin vitskert. Og svo þegar sumrar þá byrj- um við vitanlega með svip- uðu offorsi að viðra okkur upp við hana, og þá hugsar hún með sjálfri sér sem er líka von: Hvílík hræsni! Og i vetur ætlaði bölvað hysk- ið að drepa mig lifandi! Hvílíkur vetur raunar! Snjór og rok og snjótitling- ar og blóðþyrstir kettir. Aldrei hafa fleiri Reykvik- ingar staðið gapandi yfir fleiri strönduðum beyglum en núna i vetur. Meir" ð segja seint í mars ók ég fram á kvenmann á leið- inni i vinnuna sem hafði einhvernveginn tekist að tylla beyglunni sinni upp á beinfrosinn skafl á Hring- brautinni og sat þarna und- ir stýrinu og starði útí blá- inn og var ólánsamasta manneskjan á Islandi þá í svipinn. Ég bjóst til að stöðva mína beyglu og að drattast út og manna mig uppí að láta riddaralega, en í því bar að annan borg- ara sem var líka riddara- lega innréttaður, hvað var lika líklega alveg eins gott fyrir þá stjörfu og beygl- una hennar. Ég veit eins lítið um beyglur og hægt er að komast upp með án þess að hafna á fávitahæli. Ég veit til hvers stýrið er og ég veit að skottið er venju- lega þar sem vélin er ekki og vélin oftast þar sem skottið er ekki, en jafn- skjótt og menn fara að tala um hásingar og svoleiðis dót, þá sundlar mig bara. Jú, ég veit raunar líka til hvers baksýnisspegillinn er, því að auk þess sem ég hafði sterkan grun um það áður en ég tók bílprófið þá stóð það skírum stöfum í kverinu sem mér var uppá- lagt að lesa fyrir próf og gat enda (að ég uppgötvaði mér til nokkurrar furðu) allt eins komið sem ein af spurningunum á fyrr- nefndu prófi. Ég á kverið ennþá og þar er þessi vísdómur á blað- siðu tólf og hljóðar þannig: Spurning — Til hvers er baksýnisspegillinn? Svar — Baksýnisspegill- inn er til að fylgjast með umferðinni sem á eftir fer. Jafnvel mér, hinum al- gjöra idjót um allt það sem lýtur að beyglum (utan hvar stýrið er) — jafnvel mér fannst spurningin langsótt og þóttist ekki þurfa að láta segja mér það af sérfróðum mönnum með gyllta hnappa að baksýnis- spegillinn væri ekki til þess að ég gæti skælbrosað við aksturinn eins og gal- inn maður framan í farþeg- ana í baksætinu heldur ætti hann að gera mér kleift að fylgjast með því hvað dótið í bílunum fyrir aftan mig væri að bardúsa núna án þess að þurfa hverju sinni að snúa mig úr hálsliðnum. Það flaug meira að segja að mér að slá þessu upp í góðlátlegt grín ef ég drægi spurninguna á prófinu og drepa titlinga kumpánlega yfir borðið, eins og við vissum það nú líklega báð- ir, fullorðnir mennirnir, að svona fávitalega spurningu væri ekki hægt að taka al- varlega. Þegar hann spyrði með niðurbældum hlátri (eins og ég átti alveg eins von á): „Til hvers er baksýnis- spegillinn?“ þá var ég að hugsa um að svara með yf- irdrifnum sakleysissvip (en þó með glettnisglampa í augum): „Hann er til þess að menn geti rakað sig á leiðinni i bæinn.“ Svo reiknaði ég með að við svarið mundum við báðir velta af stólum okkar yfirkomnir af kæti og brölta þá á fætur og gefa hvor öðrum olnbogaskot, kímandi góðlátlega. En þegar á hólminn var komið þá gugnaði ég. Mér leist ekki þannig á mann- inn að hann kynni að meta svona gantalæti. Hann hvessti á mig aug- um og þrumaði yfir borð- plötuna: „Til hvers er bak- sýnisspegillinn?" Og ég lagði niður rófuna og stamaði eins og rola: „Baksýnisspegillinn er til þess að fylgjast með um- ferðinn sem á eftir fer.“ Hvílikur vetur! Öláns- konur vegandi salt uppá snjóhengjum í miðju um- ferðarþvarginu, Bretinn eins og naut i flagi á mið- unum (hvað hann kemst að fyrir Islenskum veiði- þjófum) og einn góðan veðurdag umhverfist sjón- varpstækið okkar og verð- nr eins og það sé búið að taka rauðu hundana í hvítu og svörtu og sjái tvöfalt að auki. Asjónurnar á frétta- mönnunum urðu eins og ógreiðfært hraun og við vorum næstum búin að missa af sjónvarpsauglýs- ingunni um bílaskattinn sem var þó svo stórkostleg. Fyrst voru sjónvarpsáhorf- endur minntir á að skattur- inn félli í gjalddaga þann fyrsta apríl, og þá kom hót- unin: „Þeir sem greiða skattinn fyrir þann tíma komast hjá ÖÞÆGILEG- UM AÐGERÐUM yfir- valda.“ Maður heyrði næst- um brestina í andlitsbein- um þularins þegar hann var að setja upp ógnunar- svipinn. Það var eins og maður væri kominn til Chile og maður sá næstum pyndingatólin. Það er þessi digurbarkalegi tónn í opin- berum meldingum sem manni húar ekki alltaf. „Óþægilegar aðgerðir.“ Allt í einu er ríkisapparat- ið orðið svo nákvæmt og ósveigjanlegt: með lögum skal land byggja og rétt skal vera rétt og sá sem dirfist að reyna að spila á kerfið hann verður ekki tekinn neinum vettlinga- tökum#lagsi! Þó verður «ú tilfinning sífellt ásækn- ari hér uppá islandi að þessi hvassa rödd og þessi óskeikula stjórn- semi sé nú einkum lát- in gilda þegar smáfólk- ið eigi hlut að máli. Hvað sem veldur og hverj- ir sem eiga sökina, þá hef- ur sú skoðun magnast með okkur Islendingum núna ár eftir ár að ef menn séu bara nógu stórtækir á svindlið og nógu staðfastir í svínaríinu — nú, þá bless- ist þetta nú allt saman, þannig séð. Þessi trú er raunar ekki einungis bundin við okkur kotungana hér útá enda- mörkum hins byggilega heims, því að með stórþjóð- unum finnst smáfólkinu vissulega líka að það sé allur munurinn að vera með væna vömb i viðskipt- um sínum við ríkisvaldið. Menn gerast kaldhæðnir og finnst réttlætið heldur óburðugt, segir i banda- risku timariti sem fjallaði um þessi mál fyrir skemmstu: þeir smáu eru teknir í karphúsið með brauki og bramli, en þeir stóru forða sér á bakvið hauga af lögfræðingum með dollarasprautur að vopni. Eitt af stærstu olíu- félögum Bandaríkjanna var á dögunum dæmt til að greiða ríkissjóði 3.000 dala sekt fyrir að þverbrjóta all- ar reglur um fjármögnun stjórnmálamanna og hafði meðal annars Iaumað um- talsverðri summu I kosn- ingasjóð Nixons sem var. Fyrrgreint tímarit upplýs- ir að þessi fjárhæð sé að- eins brot af þeim fúlgum sem olíufélagið góflar í fjárhirslur sínar — á hverjum einasta klukku- tíma! „Refsingin“ hefur með öðrum orðum verið eins sársaukafull eins og ef handlama maður reyndi að þjarma að fil með því að gefa honum selbita. Til- svarandi straff venjulegs borgara hefði líklega átt að nema svosem tíu sentum. Sjónvarpstækið okkar varð laust við rauðu hund- ana jafn snögglega og það hafði tekið þá. Hraunflyks- urnar hurfu af ásjónum fólksins á skerminum og bullandi leirhverir hættu að skvettast útum vitin á því. Það byrjaði bara að bulla sjálft. Okkur var til- kynnt með talsveröum bægslagangi að tiltekinn sjónvarpsþáttur yrði „end- urtekinn aftur“. Þá var okkur sagt frá því með við- eigandi andakt að hér sé félagsskapur sem „starf- rækir fjölbreytt tóm- stundastarf". Eg hripaði líka hjá mér snemma í vet- ur eina ambögu sem mér fannst alveg sérlega listi-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.