Morgunblaðið - 15.04.1976, Qupperneq 14
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
„Get ég
fengið að
tala við
Selsíus"
Moryunblqðsmerin fylyjcist með
i
rólegri. nótt í Hverjissteini
Eftir Sigtrygg
Sigsteinsson
— ÁFENGIÐ spilar meira
og minna inn f mál alls
þess fólks, sem hingað
kemur. Ef ekkert áfengi
væri tii væri hér ekkert að
gera. Til marks um það er
hægt að benda á lokun
áfengisverzlunarinnar á
dögunum. Þá daga, sem
hún var lokuð, sást hér
varla nokkur sála. Það er
Loftur Kristjánsson fanga-
vörður f fangageymslu lög-
reglunnar við Hverfisgötu,
sem þetta mælir við blaða-
mann Morgunblaðsins, en
blaðamaður fékk leyfi til
að dvelja f fangageymsl-
unni aðfararnótt s.l.
sunnudags og fylgjast með
þvf sem gerðist innan
veggja þess staðar, sem f
daglegu tali er nefndur
Hverfissteinn. Þessi nótt
var að mati fangavarða og
lögregluvarðstjóra fá-
dæma róleg, aðeins búið
að stinga 12 manns inn
þegar blaðamaður yfirgaf
Hverfisstein klukkan langt
gengin f fimm. En það
stóðst sem Loftur sagði,
áfengið var orsök þess að
allir þessir 12 menn gistu
fangageymslurnar þessa
köldu aprflnótt.
Það var líf og fjör á lögreglu-
stöðinni þegar blaðamaður og
ljósmyndari gengu á fund Greips
Kristjánssonar aðalvarðstjóra og
Rúnars Guðmundssonar varð-
stjóra á D-vakt lögreglunnar
klukkan 10 á laugardagskvöld.
Stefán Jónsson úr Möðrudal, sá
hinn sami og aflaði sér lands-
frægðar f sjónvarpi á dögunum,
var f heimsókn og hafði frá ýmsu
að segja rétt eins og í sjón-
varpinu. Tók hann jafnvel tvf-
söng ásamt Gunnari nokkrum,
Friðleifssyni sem ýmsir munu og
kannast við. Ekki höfðu þeir
félagar langan stanz, en lögreglu-
menn höfðu gaman af komu
þeirra.
SEX SKÓPÖR A
GANGINUM
Rúnar varðstjóri fylgdi Morg-
unblaðsmönnum upp í fanga-
geymslurnar, sem eru p 2. hæð
i norðurálmu lögreglustöðv-
arinnar. Þar voru fýrir Frið-
rik Hermannsson aðstoðarvarð-
stjóri og fangaverðirnir Loftur
Kristjánsson og Anna Ingvars-
dóttir. Þegar litið var inn eftir
grænmáluðum og kuldalegum
klefaganginum mátti sjá skópör
fyrir framan sex klefa. Þetta
þýddi að sex karlmenn voru þar í
geymslu. A kvennaganginum
voru allir klefar opnir. Það þýddi
aftur að enginn kvenmaður sat
inni og enginn kvenmaður lét sjá
sig þann tíma, sem blaðamaður
var á staðnum. Ymsar ástæður
Iágu að baki því að mennirnir sex
sátu inni. Þrir voru drykkjumenn
og höfðu ekki í annað hús að
vernda. Sá fjórði var ölvaður og
hálf lasinn. Leigubflstjóri hafði
komið með þann fimmta á
stöðina. Hann hafði ekki átt fyrir
leigubflnum. Maður þessi leigði
herbergi úti í bæ en vegna þess
hve drukkinn hann var, þótti lög-
reglunni vissara að láta hann sofa
úr sér mestu vimuna áður en
hann yrði keyrður heim. Og sá
sjötti, ungur maður, hafði verið
að drekka heima hjá sér og orðið
illur með víninu. Eiginkonan
hringdi þess vegna í lögregluna
og bað hana að geyma eiginmann-
inn þar til hann væri orðinn edrú.
Þetta var gert og þess vegna stpin-
svaf þessi ungi maður á Hverfis-
götu 118 aðfararnótt sunnudags-
ins 11. aprfl.
Þessi hafði yfirgefið fangelsið fyrir aðeins fjórum tímum og nú var
hann kominn aftur. Hér er verið að taka persónulega muni af
manninum svo og belti og annað sem hann gæti skaðað sig á.
100
grðsleppur
a moti
einum
fjörðungi
af smjöri
Viðtal við Jón úr Görðunum
Eftir Ásgeir Haraldsson
JÓN Sigurðsson skipstjóri úr Görðum varð sjötugur
fyrir skömmu. Jón er sonur hjónanna Sigurðar Jóns-
sonar frá Skildinganesi og Guðrúnar Pétursdóttur frá
Hrólfsskála á Seltjarnarnesi. Sigurður var kunnur
skútukarl og síðar útgerðarmaður og bóndi í Görðum
sem nú standa við Ægisíðu. Þá er Jón úr Görðunum og
kunnur við sjávarsfðuna ekki hvað sfzt sem sfldarskip-
stjóri. Nú á seinni árum hefur hann stundað grásleppu-
útgerð frá Görðum f frfstundum sfnum af kappi. Kona
Jóns er Ingibjörg Björnsdóttir og eiga þau f jögur börn.
Fyrir skömmu ræddi Mbl. við Jón um útgerðina og
búskapinn f Görðum eins og hann var á fyrri hluta
aldarinnar.