Morgunblaðið - 15.04.1976, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.04.1976, Qupperneq 16
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 1,1 ; unni hverju sem það væri nú að í þakka, minni spíra í umferð, áfengishækkunum eða einhverju öðru. Þá hefði það sitt að segja um fækkun gistinótta i Hverfis- steini, að aðbúnaður áfengissjúkl- inga í höfuðborginni hefði batnað til stórra muna á síðustu árum og ætti Bjarki Elíasson yfirlögreglu- þjónn ekki minnstan þátt í því. — Ég hef nú verið í lögreglunni i 20 ár, sagði Friðrik, og mér finnst áberandi að það eru færri, sem núna leggjast alveg i drykkjuskap en var fyrr á árum. Hins vegar hefur fíkniefnaneyzia vafalaust vaxið mikið en við verðum hennar nú ekki mikið vör, sem vinnum hérna i fanga- geymslunni. VATNIÐ VINSÆLT 1 HVERFIS- STEINI Kvenfólk er í miklum minni- hluta í spjaldskrám Hverfissteins og það kemur sjaldan fyrir að klefarnir 5, sem ætlaðir eru kven- fólki, fyllist. Þessa nótt kom eng- in kona í geymsluna og engin kvöldið áður. Aftur á móti komu þá tvær 15 ára stúlkur til Frið- riks, en þær höfðu verið teknar með 5 pela flösku af vodka. Þær lugu fyrst til nafns, en þegar Frið- ri, sýndi þeim fangaklefann iosnaði um málbeinið og réttu nöfnin komu í ljós. Það mun síðast hafa gerzt nótt eina i marz að klefarnir fylltust. Þá nótt var óvenju mikió að gera, 34 settir inn í það heila. Þegar svo margir eru Þetta er utanbæjarmaður, sem átti að sofa úr sér áfengisvfmuna áður en honum var trevst til heimferðar. inni er oft mikill hávaði á fang- elsisganginum hrópað og öskrað og barið fast á klefadyrnar. En nóttina sem blaðamaður dvaldi þarna var ósköp rólegt. Einstaka sinnum blikkaði ljós, sem gaf til kynna að „gesturinn“ vildi ná tali af fangaverðinum. Var erindið þá oftast að fá að skreppa á salernið eða þá að beðið var um vatn. I slíkum tilfellum er vatn látið renna í plastílát inni í klefanum. Er það að vonum æði oft, sem skenkja þarf mönnum vatn I Hverfissteini. Stundum hringja menn og biðja um bibliu. Það er samt afar sjaldan. Með vissu milli- bili fór Loftur fangavörður og að- gætti í gegnum lúgu hvort ekki væri allt í lagi hjá föngunum, eins og honum ber að gera samkvæmt reglum, upphengdum I fangels- inu. Siminn i Hverfissteini hringir oft á næturnar. Er þá gjarnan verið að spyrja um það hvort ákveðnir menn séu þarna inni. Getur þá verið um að ræða for- eldra unglinga, sem eru farnir að svipast um eftir þeim og byrja þá að athuga versta möguleikann, að þeim hafi verið stungið inn. Einn- ig kemur fyrir að fólk hringi og spyrji eftir kunningjum, sem það hefur farið með út að skemmta sér en orðið viðskila við og vitað í klandri við lögreglu. En á laugar- dagsnóttina átti sér stað kyndugt simtal. Það var laust eftir mið- nætti að síminn hringdi og Anna svaraði. I símanum var mjög drukkinn maður, sem spurði hvort hægt væri að tala við hann núna þegar tugum milljóna er hent í sjóinn. Það var smávegis sem kunum var gefið. Það var nú ekki nema svolítið sem mátti gefa þeim. Ef gefið var of mikið kom bragð af mjólkinni. Eg held að I það hafi verið svona hálft kg sem mátti gefa í mál. En kýrnar voru alveg æstar í þetta. Vöruskipti á vorin — Svo a vorin komu sveita- |i mennirnir með klyfjahestana og i hirtu allt saman. Það var svona um lokin, 14. mai að það hreinsaðist allt. Það muna margir eftir hestaferðunum þá á vorin, það var alltaf um lokin. — Þetta voru yfirleitt hrein \ vöruskipti. Skiptin voru þannig að það voru 100 saltaðar og sól- þurrkaðar grásleppur á móti ein- um fjórðungi af smjöri. Og ég get sagt þér það að þetta þóttu yfir- j leitt góð skípti á báða bóga. — Það voru oftast nær til svona 50—60 fjórðungar af smjöri og það dugði heimilinu langt fram á vetur. Þá var náttúrulega enginn frystir heldur var þetta allt hnoðað ofan í tunnur. Það var nú stundum orðið andskoti súrt þegar leið fram á veturinn, en maður tók samt ekki svo mikið eftir því. Þetta kom svona smátt og smátt. Núna er það t.d. þannig að ég held að mér finnist bara betra smjör ef það er aðeins farið að súrna. Já, svona er nú vaninn. — Oft var erfitt að fá nýmeti. Voru ýmsir sem skutu þá æðar- kolluna hér úti á firðinum. Við stunduðum þetta nú aldrei. En oft voru svona 5—6 bátar hérna úti að skjóta ef gott var veður. Svo voru nokkrir bæir sem voru með sérstök æðarkollunet. Þetta var bara gert til að bjarga lífinu. — Svo var pabbi sjálfur með útgerð. Hann átti þarna línu- veiðara að hálfu í mörg ár sem var Rifsnesið. Hann var nú orðinn svo fullorðinn maður, að hann var ekkert í þessu sjálfur en átti þó bátinn. — Áður n bílarnir komu þá komu Alftnesingar alltaf hingað á bátum til þess að draga björg i bú. Þá lentu þeir ýmist í Garðavör eða kannski meira i Þormóðs- staðarvör. Komu þeir hingað í bæinn til þess að verzla. — Það kom lika fyrir að ég ferjaði fólk á milli en það var nú sjaldan. — Þá þekktist ekki að taka peninga fyrir að ferja fólk yfir fjörðinn. Þó man ég eftir að einu sinni kom bóndi sem þá var á Bessastöðum til okkar um miðja nótt og þurfti að fá flutning yfir fjörðinn. Við bræðurnir ætluðum varla að vilja fara, en það varð úr að við fengum að tina í æðar- varpinu 40 egg fyrir flutninginn. — En hérna i Görðum var maður við búskap og fiskverkum þangað til maður fór að heiman. Togarasjómennska og síldveiði — Eg held að ég hafi verið 17 ára þegar ég fór fyrst á togara. Það var á Gylfa með Hafsteini Bergþórssyni skipstjóra. Það hefur líklegast vérið 1923 og ég þá orðið 18 ára um veturinn. — Þarna var ég í 3 ár en þá fór ég í Stýrimannaskólann. Þá varð maður að hafa verið 3 ár háseti eftir 16 ára aldur til að mega fara í Stýrimannaskólann. I Stýri- mannaskólanum var ég svo einn vetur. Það hefur verið veturinn 1927—28. — Þá ræð ég mig sem stýri- mann á Rifsnesið sem faðir minn átti að hálfu og var þar nokkuð lengi. Rifsnesið var gert út frá Görðum en það var 145 tonn. Þar var ég í 3 ár eða þar til ég varð skipstjóri. — Ég varð skipstjóri um leið og ég hafði réttindi til en maður varð að hafa verið 3 ár stýrimaður til þess að geta orðið skipstjóri. — Upp úr þessu koma voða- legir tímar. Það voru voðalegir tímar á árunum upp úr 1930. Þá var erfitt að halda þessu gang- andi. Þetta voru mestu þrenginga- tímar sem gengið hafa yfir landið. — Þegar hér er komið þá seldi pabbi sinn hlut í Rifsnesinu og við keyptum okkar eigin bát. Hann var nú minni, eða um 120 tonn. Það má segja að fjölskyldan hafi átt þennan bát sem hét Sæ- fari. Þarna byrjaði ég minn skip- stjóraferil og er þarna i 3—4 ár eða þar til báturinn var seldur. A þessum tíma var verð á afurðum í lágmarki og erfitt að selja aflann. Báturinn var því seldur og hefur siðan ekki verið gert út frá Görð- um. — Eftir þetta, eftir að við seld- um bátinn, þá hringdi til mín ein- hver mesti aflamaður sem uppi hefur verið á Islandi, Bjarni Ólafsson útgerðarmaður og skip- stjóri á Akranesi, og bað hann (Jr myndasafni Jóns Sigurðs- sonar úr Görðum. Á þessum myndaflokki má glöggt sjá hvernig farið var að við síldveiðarnar hér áður fyrr. Sjórinn er svartur af vaðandi sild en slíkt sést ekki lengur. Þá er farið í bátana en á þessum tíma voru alltaf notaðir tveir nótabátar. Siðan er róið að torf- unni og byrjað að kasta. Þegar nótinni hefur verið kastað er snurpað og var það allt að sjálf- sögðu gert með handafli. Þegar búið var að snurpa var hafist handa við að draga nótina og þurrka að síldinni. Þá var háfað upp úr nótinni og um borð í skipið sem í þessu tilfelli var Ólafur Bjarnason. Það var oft freistandi að setja mikið í bát- ana ef gott var í sjóinn og eins og myndirnar bera með sér var báturinn kjaftfylltur. Nótabát- arnir hanga á davíðunum þegar siglt er til hafnar. Þá bera myndirnar með sér að síldin var vel feit og stór á þessum tíma. Myndirnar eru teknar 1942 og voru gefnar Jóni. Það skal engan furða að þetta er sama árið og Jón var aflahæstur síld- arskipstjóranna og fékk 28.300 mál yfir sumarið. mig að vera stýrimaður hjá sér. Sagði ég umsvifalaust já. Það var miklu betra að vera stýrimaður hjá honum heldur en skipstjóri hjá öðrum. Þetta var á Ólafi Bjarnasyni sem var 208 tonn. — Eftir að ég hætti hjá Bjarna var ég á ýmsum skipum i u.þ.b. tvö ár. Þá er mér boðið að verða skipstjóri á Ólafi Bjarnasyni. Ég man nú ekki vel hvað ég var lengi á honum, en það var alia vega 3 af 4 stríðsárunum. A veturna vorum við aðallega í flutningum á fiski til Bretlands en bara smávegis á veiðum. Vorum við svo á síldveið- um á sumrin. — Það er 1942, þegar ég er á Olafi, að ég var aflahæstur á síld- inni með 28.300 mál. Oftast var ég þó ofarlega. Við vorum svona 16—17 á og vorum alltaf með tvo nótabáta. Manni þótti þetta ekk- ert erfitt þá þó maður þyrfti að snurpa og draga nótina á höndum og róa alltaf út með hana. Það þekktist heldur ekki annað. Það var hins vegar mjög erfitt að keyra öllutn aflanum upp i þró úr skipunum á handvögnum. Það var mikið verk ef vel fiskaðist. — Oft var landað á Siglufirði og á Hesteyri þar sem við þurft- um alltaf að keyra allri síldinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.