Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 27

Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 71 lukkast. Með öðfum orðum: Þegar maður er í banastuði. Nokkur ár eru siðan ég gerði upp hug minn um það hvar ég vildi helzt geta leikið i þeim eldmóði, sem sjaldnast endist lengur en einn dag: Það er á Gleneagles uppi i hálöndunum norður af Forth-Firði. Sú skoðun hefur ekki breytzt þó ég hafi víða komið siðan. Leiðin til Gleneagles frá Edinborg liggur yfir nýju brúna á firðinum og síðan eftir sífellt mjórri vegum og þrengri dalskorum, unz gróðurfarið minnir á islenzk einu geysistórt hótel uppúr heiðlendinu eins og höll úr ævintýri. Hér er Gleneagles; nafntogað hótel, sem skozku járnbrautirnar reka og þaðan sézt nægilega mikið af völlunum tveimur, Kings Course og Queens’ Course, til að gera sér grein fyrir svipmóti þeirra. Drottningarvöll hef ég ekki leikið, en Kóngsvöllur er tröll- aukinn, hrikafagur og erfiður. Þar er ýmist leikið upp á háa hjalla eftir hryggjum og stund- um eftir dölum; niður í gljúfur 100 metrum niður brekkurnar, sem þar verða. Og þaðan er auðvelt að ná inn á flötina í öðru höggi. Þegar sá gállinn er á manni að hitta illa og kannske þar að auki skakkt, hefur Kóngsvöllur óendanlegt basl í för með sér. Utan brautanna er grófgert lyng, sem reynist hverjum aukvisa erfitt og víða þarf langt og beint högg til þess eins að draga inn á braut. Fyrir byrjendur hefur kannske litla þýðingu að glíma við Gleneagles, enda nóg af auð- stórmeistarar, heimsins í golfi þrá mest að vinna. Lang oftast er hún haldin á skozku völlunum í júlimánuði ár hvert og brezka sjónvarpið fylgist þar með hverju smáatriði. t fyrra fór hún fram á Carnoustie; þar áður á Troon og Muirfield. Á þessum stöðum kunna heima- menn sögur af afreksmönnum heimsins, sem komu, sáu og sigruðu fyrir árum og áratug- um. Þeir muna uppá hár, hvernig Ben Hogan lék, þegar hann ' vann yfirburðasigur sinn á Carnoustie 1953 — eða Líkamsþreki Islendinga er hins vegar svo farið að það er talið afrek að komast 36 holur og þá búast menn við að verða eftir sig næstu daga. Þess ber þó að gæta, að eftir langan islenzkan vetur er þrekið í lágmarki og menn ekki komnir í teljandi æfingu í maí, þegar farið hefur verið til Skot- lands. Það hefur stundum verið þreytt lið, sem tínist inn úr dyrunum á Marine-Hotel I North Berwick, þegar liða tek- ur á daginn og minnti mig stundum á það, þegar menn Svona fagurt er Skotland, f jalluvötnin fagurblá, en sumstaðar heiðlendi eins og á tslandi. Marine Hotel f North Berwick austur með Forth-firði. I hinum árlegu Skotlandsferðum hefur fslenzki golfhöpurinn búið þarna. heiðalönd. Þó eru innanum og saman við stórvaxin tré. A þessari leið blasir við aug- um skozkur hálandabúskapur; Angus-nautgripir og dindilsftt Cheviot-sauðfé í girðingarhólf- um, sem oft eru úr borðviði. En um það leyti er manni finnst að brátt hljóti að taka að halla niðuraf hinum megin, rís allt í og um tvítugt var hann farinn að starfrækja eigið leikhús í Múnch- en. Þar hefur hann sett ótal leik- rit á svið og mörg þeirra eftir hann sjálfan. Upphaflega kallaði hann leikhús sitt Action- leikhúsið. Það var æði byltingar- kennt í uppsetningum á verkum meistaranna og annarra tízkuhöf- unda. Svo fór lika að leikhúsið komst í kast við borgaryfirvöld og laganna verði og var þá nafni þess breytt í Anti-Theater. Fassbinder hafði þó ætfð hug á að snúa sér að kvikmyndum, og með því að nurla saman 10 þúsund mörkum tókst honum að gera myndina Ástin er kaldari en dauðinn. I kjölfarið sigldi sfðan Katzelmacher, sem gerð var fyrir lánsfé og tókst hon- um að selja hana sjónvarpinu til sýninga, sem nægði til að borga skuldirnar. Fyrir afganginn gat hann sfðan gert Guð plágunnar. Með honum unnu við þessar myndir leikhópurinn úr Andleik- húsinu hans, sem hefur síðan haldið tryggð við hann fram á þennan dag og ýmsir leikaranna hafa einnig sett mark sitt á mynd- ir annarra þýzkra leikstjóra. Sjálfur hefur Fassbinder leikið í myndum annarra leikstjóra og eigin, og f Úttinn étur sálina, lék hann t.d. tengdason þvottakon- unnar með tilþrifum. Fassbinder segir sjálfur um þessar fyrstu myndir sfnar sem hann gerði eftir samnefndum leikritum sínum: „Myndirnar voru ákaflega leik- húslegar á sama hátt og leikritin voru filmisk. Mér fannst, að það sem mér hafði tekizt með leikur- unum f leikhúsinu, væri hægt að reyna í kvikmynd, maður var að finna út hvað maður getur notað úr einum miðlinum öðrum til ábata. En fljótlega kom þó að því að ég fór að leita fyrir mér af einhverju hreinna í kvikmynda- legum skilningi.” Fassbinder var undir sterkum áhrifum frá bandarískum kvik- myndum framan af — hann segir að helftin af þeim hafi verið til- raun til að yfirfæra andann í bandarískum kvikmyndum á út- hverfi Múnchen, en hinar hafi og fram af bröttum brekku- brúnum. Minnisstæðust er mér sfðasta holan, nokkuð löng par fimm. Þar verður að leggja allt f upphafshöggið, en takist manni að hitta fram af þröskt'ldi og gegnum skarð f nærri 200 metra fjarlægð, fær maður ríkulegan bónus, þegar boltinn bætir kannske við sig veldari völlum í Skotlandi. Ég á þó von á, að flestum þyki mikið til koma að sjá þá fjölbreytni, sem hvarvetna blasir við aug- um í nánd við Gleneagles, hvort sem þeir hafa leikið á 80 eða 100. Opna brezka golfkeppnin, British Open, er vegna sögu- legrar hefðar sú keppni sem þegar Nicklaus fór úr peysunni á sjðasta teig ó Muirfield og sló á fjórða hundrað metra í éinu höggi og yfirskaut flötina. Rafmangsbflar eru ekki til á skozkum golfvöllum svo ég viti. Þar þykir ekki nein vorkunn að ganga og samkvæmt gamalli skozkri venju er rétt mátulegt að fara 36 holur f einu. verið könnun á þýzkum dægur- málum. „Það sem aðallega mátti læra af bandarískum kvikmynd- um var að koma að hálfu til móts við afþreyingarþátt þeirra. Hið eftirsóknarverða er að gera myndirnar eins fallegar og hin- ar bandarísku en jafnframt að beina inntakinu inn á önnur svið. Ég finn örla á tilburðum f þessa veru f myndum Douglas Sirk og einnig f mynd Hitchcock — Suspicion, þar sem þú yfirgefur bíoðið með þeirri tilfinningu að hjónabandið sé glatað,“ segir hann í viðtali við Sight and Sound. Skyldleikinn við Douglas Sirk er sérstaklega sterkur í mörgum mynda hans, enda lýsir Fassbind- er yfir mikilli aðdáun sinni á þessum þýzka leikstjóra, sem hélt til Bandaríkjanna í kringum 1940 og gerði fjölda melódramatískra mynda í Hoilywood. Ýmsir þykj- ast sjá veruleg tengsl milli mynd- ar Sirk — All That Heaven Allows og Óttinn étur sálina. Fassbinder hafði hins vegar lengi gengið með hugmyndina að þeirri mynd í maganum, og í myndinni Bandarfskur hermaður, sem Fass- binder gerði fyrir nokkrum árum kemur þessi saga raunar fyrir á hljóðbandinu — af vörum einnar persónunnar. Fassbinder segist hins vegar ekki hafa þekkt ofan- greinda mynd Sirk, þegar hann datt niður á hugmyndina að Ótt- inn étur sálina. „Sirk hafði hug- rekki til að segja söguna. Ég hef líklega ekki treyst mér til að gera einfaldlega það. Mig var búið að langa til þess í mörg ár ... Ég átti ekki völ á leikkonu fyrr en ég hitti Brigitte Mira (þvottakon- una) og uppdagaði að hún gat gert það.“ Sagan um ástir þvottakonunnar og verkamannsins frá Marokkó hefur síðan borið hróður Fass- binder víðar en nokkur önnur mynd hans. Myndin er einkenni- legt sambland af raunsæi og stíl- færslu, þar sem Fassbinder tekst að rata hinn gullna meðalveg — hann fellur ekki í pytti alhæfinga eða einfaldaðrar prédikunar held- ur sýnir okkur samskipti tveggja ólfkra heima f sinni margbrotnu mynd. Hið sama virðist Fassbinder hafa tekizt i síðustu mynd sinni, Mutter Kústers Fhart zum Himmel, þar sem Brigitte Mira fer einnig með aðalhlutverkið. Efnisþráðurinn er á þá leið, að eiginmaður Mutter Kúster er verkamaður í efnaverksmiðju, sem í reiðikasti verður ein- um yfirboðara sínum að bana og sviptir sjálfan sig síðan lífi. Mutter Kúster lenti því mjög í sviðsljósinu um tíma, börn henn- ar eru full samúðar og fréttamiðl- ar hampa henni, þar sem hún er sakleysinginn f áhrifaríkri og óvenjulegri frétt. Hún uppgötvar þó fljótlega að ekki er allt sem sýnist börnin hennar yfirgefa hana og blöðin kasta rýrð á hana og eiginmann hennar með skáld- uðum frásögnum af ýmsu tagi. Hins vegar taka róttækar vinstri hreyfingar hana upp á arma sér, en hún kemst einnig að raun um það að það er ekki af neinni sam- úð við örlög hennar heldur þykj- ast þær hafa fundið píslar- vott málstað sínum til fram- dráttar. Móðirin vill hins vegar aðeins fá að vera manneskja, njóta viðurkenningar sem slfk, eiga vini og persónulegt frelsi, en umhverfið sér til þess að þessar óskir rætast aldrei. ★ EINKENNILEGUR MAÐUR — EINKENNILEGAR MYNDIR Werner Herzog er ekki sami afkastamaóur og Fassbinder en er þó sá hinna þýzku kvikmynda- gerðarmanna, sem mestrar hylli nýtur í Vesturálfu um þessar Lina Carsten f Lina Brakke — beztu þýsku mvndinni á sfðasta ári voru að koma örþreyttir heim úr erfiðum smalamennskum. En þreytan er fljót að líða úr og eftir verða ánægjulegar endurminningar um góðan félagsskap f fallegu umhverfi. Sá sem aldrei hefur leikið golf i Skotlandi, hefur misst af miklu. Um það trúi ég að allir séu sammála sem reynt hafa. mundir. Má til dæmis nefna, að þegar undirritaður gerði stuttan stanz í Amsterdam i fyrrahaust, var að hefjast þar kvikmyndavika i tilefni 700 ára afmælis borgar- innar, þar sem eingöngu voru sýndar myndir Herzog, og efast ég um að margir kvikmyndaleik- stjórar innan við fertugt hafi orð- ið sliks heiðurs aðnjótandi frá því veldi nýbylgjuleikstjóranna frönsku stóð sem hæst. Herzog er einkennilegur maður og gerir skrítnar myndir. Hann er ! ákafur ferðamaður, hleypti heim- draganum 19 ára að aldri og hélt út í heim — og fyrr en varði var ein heimsálfan á eftir annarri að baki. Hann hefur gert aðeins örfá- ar myndir sínar í heimalandi; sumar þeirra eru teknar við hinar erfiðustu aðstæður í S-Ameríku eða Afriku einhverju nágranna- landinu en yfirleitt ekki í Þýzka- landi. Herzog er einnig ákafur íþróttaunnandi, sérstaklega knattspyrnu en mikill göngugarp- ur sjálfur. Síðasta mynd hans er heimildamynd um svissneskan skiðastökkvara, gerð fyrir þýzka sjónvarpið. Sjálfur segist hann skynja kvikmyndina og kvik- myndagerð á líkamlegan hátt. „Ég mun halda áfram að gera myndir svo lengi sem ég er líkam- lega heill. I sannleika, ef ég missti fótinn á morgun myndi ég hætta að gera kvikmyndir, jafnvel þótt hugurinn og afgangurinn væri í lagi,” hefur hann látið hafa eftir sér. Engin mynda hans getur heldur beinlínis talizt venjuleg og fyrir suma, þótt ýmsu óvæntu séu van- ir, er erfitt að meðtaka þær þegar við fyrstu sýningu. Sjálfur segist hann ekki líta á sig sem mennta- mann en menntamenn hafa tekið verk hans upp á arma sér og haft i hávegum. Sumir segja að hann sé í reynd rómantikus með þá grund- vallarsannfæringu, að hinir skritnu og sérstæðu meðal okkar séu heilli en við hinir sem vondur og spilltur heimur telur venju- lega. I myndum sínum hefur hann verið gagntekinn af þvi að Framhald á bls.7 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.