Morgunblaðið - 15.04.1976, Side 29

Morgunblaðið - 15.04.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRtL 1976 73 Þessar tvær myndir sýna glögglega hinn mikla mun sem er á veðurfari og aðstöðumun í austur rfsku ölpunum og á Islandi. byrjað var að setja upp lyftur og halda vegum opnum er fært er. Annars varð þetta ekki gott fyrr en Reykjavikurborg tók að sér að sjá um snjóruðning á þessu svæði. Enda sjáum við nú árangurinn. Reykvikingar eru að eignast mjög efnilegt skíða- fólk. Þátttaka almennings á skiðum hefur lika aukist með ótrúlegum hraða og þar eiga þeir ágætu Kerlingarfjalla- menn stóran hlut að máli. Starf þeirra fyrir fslenzka skíðaíþrótt verður ekki metið til fjár.“ 50 ÞÚS. MANNS í BLAFJÖLL Þá vék Asgeir að þvi að engin íþrótt á lslandi væri stunduð eins mikið af almenningi. I fyrra vetur hefðu mest komið á einum degi 5—6 þúsund manns í Bláfjöll, en alls myndu hafa komið þar 40—50 þúsund manns. „Fólk er farið að tala um, að helzt vanti aðstöðu til að gæta barna i Bláfjöllum, enda er komið þangað með allt niður í 6 mánaða gömul börn." En hvernig hefur veðrið hagað sér í vetur?“ Tiðin hefur verið með eindæmum slæm og min persónulega skoðun er að gera þurfi einhverjar breytingar á, að koma fólki inn i Kóngsgil. Helzt hef ég látið mér til hugar koma, að sett verði upp löng togbraut frá Eldborgu inn að Borgarskála. Þessi braut þyrfti að draga fólk með jöfnum hraða inn úr og til baka. í vetur hefur ástandið verið þannig, að mjög oft hefur fennt i slóðina um heið og búið hefur verið ryðja. Þetta hefur lika haft i för með sér gifurleg fjárútlát, fyrir þá aðila, sem sjá um að halda veginum opnum. Islenzka veðurfarið er okkur erfitt." Nú ræddum við um hinnn mikla aðstöðumun, sem er hér á landi og t.d. í Ölpunum i Mið- Evrópu. í hlíðum Alpafjalla getur fólk fundið sér brekkur, sem eru 7—10 kilómetrar að lengd og á takmörkuðu svæði eru kannski 50 stórar lyftur, en lyftur á Reykjavíkursvæðinu eru að vísu 22, en hver þeirra er ekki nema brot af lengd meðallyftu í Austurriki t.d. Eftir áramót er veður í Alpa- fjöllum yfirleitt mjög gott, heiðríkja og heitt yfir daginn. 1 bláfjöllum aftur á móti virðist ekki vera hægt að stunda SKÍðin með góðu móti fyrr en komið er fram i apríl. EFNIVIÐURINN NÓGUR Þó að svona sé ætlast margir til hins ótrúlega; að íslenzkir skíðamenn standi algjörlega jafnfætis skíðamönnum annarra landa, sem bæði hafa fjármagn og aðstöðu. Það vantar ekki að efniviðurinn er nógu góður hér, en aðstöðuna, — sem aldrei verður hægt að byggja fullkomnlega, því ekki kaupir maður veðrið, — vantar til að reka smiðshöggið á. „Ég tel,“ segir Ásgeir, „að úr þessu ætti vegurinn inn í Blá- fjöll að fara að haldast opinn. Sólin ætti nú að fara að vinna eitthvað á snjónum, og er hún nær til þess á snjórinn að hætta að fjúka. Snjór á BláfjallasVæð- inu er nú meiri en verið hefur í fjölda ára og ættum við því getað verið á skíðum þar fram í júní.“ Að undanförnu hefur verið erfitt að nota aðra skíða- lyftuna i Bláfjöllum, þar sem eitt af möstrunum i henni er svo til horfið i snjóskafl." Við spurðum Ásgeir hvort lyfturn- ar væru ekki rétt staðsettar. ÖNNUR LYFTAN VITLAUSTSTAÐSETT „Það er allt í lagi með ytri lyftuna, en innri lyftan er alls ekki rétt staðsett að mínu mati. Hún hefi átt að koma upp sjálft Kóngsgilið, vinstra megin i þvi og síðan hefði átt að ryðja ofan í það, til að gera brekkuna skemmtilegri fyrir almenning. Þá er það mín skoðun, að það hefði þurft að kann Bláfjalla- svæðið betur áður en farið var að, setja þarna upp lyftur og sæmilegan veg og skála. Á þessu svæði er mjög þokusamt og ísmyndun f lofti getur verið hreint ótrúlega mikil og ég gæti trúað að úrkoma þar efra væri 7 til 10 sinnum meiri en í Þeir dagar koma, sem hægt er að drekka kaffið undir berum himni ( fslenzku fjallalofti Þótt skíðalyfturnar séu orðnar tvær I Bláfjöllum, þarf að fjölga þeim, enda er oftast biðröð við þær. Reykjavik. Þá hef ég tekið eftir því, að þegar veður er af SA eru stundum ein 8 vindstig á Eyrar- bakka, en ekki nema 2 á Þing- völlum. Veðurhæðin í Bláfjöll- um er hins vegar miklu hærri en á Eyrarbakka. Að þessu séðu, gæti ég trúað, að jafnvel hefði verið betra að byggja upp skiðasvæði Reykvíkinga nálægt Þingvöllum, við Bolabás eða Svartagil. Þetta hefði átt að kanna áður en lagt var út í framkvæmdir. I sambandi við lyfturnar i Bláfjöllum má geta þess, að þær eru ekki nógu vel hannaðar miðað við íslenzkar aðstæður. Ef við reynum að nota þær í hvassviðri þá er mikil hætta á því að dráttarvir- inn fjúki út af hjólunum. Til þess að fyrirbyggja þetta, hefði verið nóg að hafa styttra á milli mastra.“ Á ekki mikið eftir að gera á Bláfjallasvæðinu? ÞARF AÐ FJÖLGA LYFTUM „Það eru ótal margir hlutir sem á eftir að gera þar og sjálf- sagt verður alltaf hægt að bæta aðstöðuna. Búið er að byggja skála og setja upp tvær lyftur. Fyrir skömmu kom snjótroðari uppeftir sem þegar hefur sýnt að er ómetanlegt tæki. Það sem þarf að gera i sumar, er að slétta úr brekkunum i kringum lyfturnar, til að fá flatari brekkur fyrir almenning. Fyrir veturinn 77—78 tel ég að verði að setja upp eina lyftu til við- bótar þeim sem fyrir eru og reyndar þarf að bæta við einum 4—5 lyftum í Kóngsgil og upp undir Kóngstopp inn af Hákolli. Eins og ástandið er núna sér maður 10—12 manns renna sér í brekkunum, en hundruð biða síðan við lyfturn- ar og það er ekki nógu gott að svo til allur timi fólks skuli fara i að bíða eftir lyftum þegar það er á skíðum þarna. Um aðstöðuna i Hveradölum er bað að segja, að ekkert verður sennilega gert til að bæta hana mikið á allra næstu árum. En mjög gott er fyrir keppnismenn að æfa þar á kvöldin. Þar er sæmileg lyfta, sem sett var upp fyrir 5 árum, en helzti gallinn á því svæði er hvað snjór tollir illa í brekkum. En umsjónarmenn skíðastaða í Reykjavík og nágrenni mega halda vel á spöðunum ef þeir ætla sér að hafa undan að byggja upp aðstöðu fyrir skiða- fólk miðað við þann fjölda sem bætist við á hverju ári. Það er að verða ótrúlegt hve áhuginn er mikill og á það bæði við um unga og aldna." Að lokum spurðum við As- geir hvar honum fyndist skemmtilegasta og bezta skiða- land á Islandi, en hann hefur viða farið bæði til keppni og eins verið við kennslu á hinum ýmsu stöðum. AUSTFIRÐIR SKEMMTILEGASTIR „Því er auðsvarað," segir hann, „af þeim stöðum, sem ég hef kynnst eru Austfirðir lang- skemmtilegastir. A þar ég við Gagnheiðina Stafina i Fjaðar- heiði og Oddsdal. Á þessum stöðum er hægt að fá allt að 7—9 kílómetra beint rennsli og ég veit ekki til að hægt sé að ná jafn löngu rennsli annars staðar á landinu. Þá er veðursæld einkum siðla vetrar oft á tíðum mikil á Austfjörðum og man ég t.d. að ég var eitt sinn við kennslu i þrjár vikur fyrir austan og var heiðríkja og logn allan tímann. Ekki þessi bölvaði hraglandi sem alltaf er hér. Vissulega geta orðið mjög slæm veður þar, en standa yfir- leitt í frekar stuttan tíma. Að minu viti verða Austfirðingar að fara að byggja upp góða skiðaaðstöðu hjá sér. Þeir eiga alla möguleika á að geta komið upp mjög góðum skíðamönnum, hafa miklu betri möguleika til þess en flestir aðrir lands- menn."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.