Morgunblaðið - 15.04.1976, Qupperneq 32
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
Páskakræsingar
kvikmyndahúsanna
Óskar Gfslason 1960, við sýningu myndar sinnar, „Sfðasti
bærinn f dalnum, f Bæjarbfði, en þessi mynd, ásamt
„björgunarafrekinu við Látrabjarg" eru þekktustu
myndir hans.
*
Arnað heilla
75 ára er í dag Óskar Gíslason, einn helsti brautryðjandi
islenskrar kvikmyndagerðar.
Félag kvikmyndagerðarmanna óskar honum og konu
hans frú Ingu Laxness heilla á þessum tímamótum.
Óskar verður að heiman í dag.
ÞAÐ ER fyrir löngu orð-
in hefð hjá kvikmynda-
húsum borgarinnar, að
stilla upp myndum yfir
páskana, sem eiga að
standa uppúr meðal-
mennskunni. Forráða-
menn þeirra skipta þó
ógjarnan um mynd, ef að
sú sem er í gangi nýtur
góðrar aðsóknar.
Um þessar hátfðar er
um ágætis myndaval að
ræða, svo fólk ætti að
hafa úr nógu að velja. En
þetta verða semsagt
páskamyndirnar í ár:
• LAUGARÁSBtÓ frumsýnir
bandarísku stórmyndina
EARTQUAKE, eða JARÐ-
SKJ ÁLFTANN, á páskum.
Þetta er tæknilega mjög vel
unnin mynd, en hún lýsir jarð-
skjálftahrinum sem leggja San
Fransiscoborg í rúst. (Endur-
gerð myndarinnar San
Fransisco, frá árinu 1936, og
fjallaði um samskonar atburði
þar í borg. Þá fóru Spencer
Tracy, Clark Cable og Jeanette
MacDonald með aðalhlutverk-
in. Erich Von Stroheim leik-
stýrði.) Eins og sjá má af lýs-
ingunni, þá er hér á ferðinni
ein af „hamfaramyndunum",
svokölluðu, sem á þriðja ár
hafa verið feykivinsælar meðal
kvikmyndahúsgesta. Þessar
myndir hafa jafnan af mörgum
þekktum leikurum að státa, þar
er Jarðskjálftinn engin undan-
tekning, því að Charlton Hest-
on, George Kennedy, Ava
Gardner, Marjoe Grotner,
Genevieve Bujold, Lloyd Nolan
ofl. prýða tjaldið. Leikstjóri er
Mark Robson. Myndin fékk
nokkur Oscarsverðlaun í fyrra
fyrir tæknileg afrek, m.a. fyrir
„Special Effects".
• BÆJARBtÓ í Hafnarfirði
mun endursýna jólamynd Aust-
urbæjarbíós frá því í fyrra,
Trúðana, með þeim félögum
Trinity bræðrum, Bud Spencer
og Terence Hill.
• HÁSKÓLABtÓ Yfir páskana
verður sýnd hér nýleg og
spennandi bresk leynilögreglu-
mynd með Edward Woodward
og gömlum kunningja úr sjón-
varpinu, Eric Porter. Nefnist
hún Gallan, og er byggð á bók-
inn Red File for Callan. Leik-
stjóri er Don Sharp.
Fljótlega eftir páska sýnir
svo kvikmyndahúsið hina
heimsfrægu mynd Polanski,
Chinatown, með hinum nýbak-
aða Oscarsverðlaunahafa, Jack
Nicholson í aðalhlutverki. Þau
Faye Dunaway og John Huston
fara einnig með stór hlutverk.
Þetta er leynilögreglumynd af
gamla skólanum, í Marlowe stíl.
Handritið skrifaði besti kvik-
myndahandritahöfundur Holly-
wood í dag, Robert Towne, og
hlaut hann Oscarsverðlaunin
fyrir.
• HAFBARBfÓ. Hér verður
ekki sýnd ómerkari mynd en
Lion On Winter. Hún er byggð
á samnefndu leikriti eftir John
Goldman, en það naut mikilla
vinsælda beggja vegna Atlants-
hafsins á síðasta áratug. Gold-
man sá sjálfur um kvikmynda-
gerð leikritsins, og fékk Oscars-
verðlaunin fyrir handritið þau
hlaut einnig John Barry fyrir
tónlist myndarinnar, og
Katharine Hepburn deildi þeim
með Barböru Streisand það ár-
ið, fyrir bestan leik konu f aðal-
hlutverki.
Myndití er ákaflega efnismik-
il, en hún segir frá valdabar-
áttu innan bresku krúnunnar.
Hún gerist á einum sólarhring í
Chinon kastalanum í þeim
hluta Frakklands sem þá
heyrði undir England. Þar eru
samankomin Hinrik II., Eng-
landskonungur, (Peter
O’Toole), Elanor drottning af
Aquitaine, Katharine Hep-
burn, Filipuss Frakklandskon-
ungur, (Timothy Dalton), og
hinir þrfr synir Hinriks,
Geoffrey, (John Castle), Philip
og Ríkharður, (Ljónshjarta).
Hér eru öll meðöl notuð til að
skara eld að sinni köku, og
handritið er svo sannarlega
safarfkt. Það var vissulega kom-
in tfmi til að sýna þessa merku
mynd hérlendis
• NYJA BtÓ sýnir á Páskun-
um glænýja bandariska mynd,
Three Days of The Condor.
Hún fjallar um efni sem á und-
anförnum misserum hefur ver-
ið mjög í fréttum og f sviðsljós-
inu, leyniþjónustu Bandaríkj-
anna C.I.A. Myndin segir frá
einum starfsmanni hennar sem
verður var við að svo virðist
sem önnur leyniþjónusta sé
starfandi innan stofnunarinn-
ar. Honum eru sýnd nokkur
banatilræði, og á meðan hann
er að upplýsa málið á hann fót-
um sfnum fjör að launa. Uppá
síðkastið hefur þetta verið eina
vinsælasta myndin vestra, og
það er einvalalið sem fer með
aðalhlutverkin; Robert Red-
ford, Faye Dunaway, Cliff
Robertson og Max Von Sydow.
Three Days of The Condor er
framleidd af de Laurentiis,
myndum hans er dreift af Para-
mount vestan hafs, en dreifing-
arrétturinn fyrir Evrópu er
seldur á frjálsum markaði.
• STJÖRNUBlÓ frumsýnir
um þessa páska næst nýjustu
mynd Robert Altman,
(NASHVILLE), CALIFORNIA
SPLIT. Aðalleikarar f mynd-
inni eru þeir félagar Georg Seg-
al og Elliot Gould. Þeir eru for-
fallnir fjárhættuspilarar og
fjallar myndin um hina ólækn-
andi áráttu þeirra og ærið
strembna lífsbaráttuna f undir-
heimum Californfu.
% TÓNABtÓ Það verður mynd
fyrir alla fjölskylduna á boð-
stólum hér um hátíðarnar. Það
er söngvamyndin TOM SWAY-
ER, með Johnny Whitaker,
Warren Oates og Celeste Holm
f aðalhlutverkunum. Langflest-
ir kannast við ævintýri þeirra
Toms og stikilsberja Finns,
hinar frægu unglingasögu per-
sónur Mark Twain. Þó að mynd-
in sé með miklu tónlistarívafi,
þá er söguþræðinum fylgt, svo
að flestir meðlimir fjölskyld-
unnar ættu að geta átt góða
stund f Tónabíó á næstunni.
• AUSTURBÆJARBIÓ, frum-
sýnir um páskana, ekki árs-
gamla, bandaríska kvikmynd
sem nefnist MANDINGO . Hún
er framleidd af hinum ítalsk-
ættaða kvikmyndajöfri Dino de
Laurentiis.
MANDINGO fjallar um fjöl-
skylduerjur á stórum búgarði f
Suður-ríkjunum á árunum fyrir
Þrælastríðið. Inní myndina
blandast kynþáttamisréttið,
framhjáhöld milli svartra og
hvítra og ýmiss annar rusta-
skapur. Með aðalhlutverk fara
James Mason, Susan Georg,
Ken Norton og Perry King.
Leikstjóri er Richard Fleischer.
• GAMLA BlÓ THE
PASSENGER nefnist nýjasta
verk meistara Antonionis, og
hefur hún hlotið lofsamlega
dóma víða um heim. Antonioni
er einn af sjálfstæðustu og
frumlegustu leikstjórum okkar
tíma, Um árabil hafa myndir
hansverið lofaðar óspart, rifnar
niður, jafnan vakið miklar um-
ræður og eftir þeim hefur verið
beðið með eftirvæntingu sem
kvikmyndasögulegum viðburði.
THE PASSENGER segir frá
manni sem er að reyna að flýja
sitt fyrra líf með því að taka
upp líferni manns sem hann
finnur látinn. Hinn ný-kjörni
Óskarsverðlaunaþegi, Jack
Nicholson, fer með aðalhlut-
verkið, ásamt hinni óviðjafnan-
legu Marfu Schneider, sem allir
muna örugglega eftir (að
minnsta kosti af karlkyninu),
sem sáu LAST TANGO IN
PARIS.
Þar sem að vestrinn sem
Gamla Bíó hefur sýnt að undan-
förnu hefur hlotið mikla að-
sókn mun kvikmyndahúsið
halda áfram sýningum á mynd-
inni meðan ekkert lát er á vin-
sældum hennar. Menn verða
því að bfða eitthvað frameftir
mánuðinum áður en sýningar
hefjast á listaverki Antonionis,
THE PASSENGER. Burt Reyn-
olds & Co standa fyrir sínu á
meðan.
SV
Atriði úr páskamvnd Stjörnubfós, CALIFORNIA SPLIT.
Níja Bíó: Þau Faye Dunaway, Cliff Robertson og Robert Redford f
C.I.A. þrillernum THREE DAYS OF THE CONDÖR
Afburðaleikararnir Peter O’Toole og Katharine Hepburn f páska-
mvnd Hafnarbíós, LION IN WINTER.
„Súperstjörnurnar" Jack Nicholson og Maria Schneider f nvjustu
mynd Antonionis, THE PASSENGER. Væntanleg fljótlega f Gamla
bfó.