Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 81 Hilmar Þórarins- son — Kveðjuorð Fæddur 21. marz 1930. Dáinn 29. marz 1976. Hann var fæddur 21. marz 1930 á Seyðisfirði, eitt af átta börnum hjónanna Þórarins Björnssonar og Guðbjargar Guðjónsdóttur. Ekki kann ég að rekja nánar ætt eða uppruna Hilla (en svo var hann kallaður af sinum kunningj- um). Veit að hann fluttist með foreldrum sinum frá Seyðisfirði fyrir allmörgum árum til Hafnar- fjarðar, og þar hófust okkar kynni. Það atvikaðist þannig að ég var búinn að vera með bát frá Hafnarfirði í nokkur ár að mig vantaði kokk, og vissi ég að Hilli var búinn að vera kokkur á bátum og togurum frá Hafnarfirði. Eg fðr því þess á leit við Hilla að hann gerðist kokkur á bátnum hjá okkur. Hann tók því vel, og var síðan kokkur hjá mér þangað til fyrir fimm árum að hann gerðist starfsmaður i Straumsvík. Það má kannski segja að ég hafi ekki haft kynni af Hilla í mjög mörg ár, en ég held að þvi sé þannig farið að menn kynnist hvergi betur en til sjós. Menn verða þar má segja eins og ein fjölskylda. Þar eiga allir svo mörg sameiginleg vel- ferðarmál bæði hvað snertir af- komu, og einnig hvað varðar öryggi. Þar verða allir að treysta svo mikið hver á annan. Þar verður ekkert til nema fyrir sameiginlegt átak, og árangurinn betri eftir því sem samstaðan og félagsandinn eru betri. Það er mjög mismunandi hvernig áhrif menn hafa til að byggja upp félagsanda, og þeir sem hafa góð áhrif í þeim efnum eru ómetan- legir um borð í hverjum bát, og það tel ég að hafi verið einn af góðum eiginleikum Hilla. Eitt er það sem mér finnst ég verði að minnast á þegar ég minnist hans, og er það sem fyrst vakti eftirtekt mína á honum. En það var fötlun hans. Mér þótti með ólíkindum að hann gæti stundað sjó, og aðstaðið við slæm skilyrði, því manni finnst oft á tíðum að nógu erfitt sé að standa þó maður hafi báða fætur jafnlanga. Aldrei stóð upp á hann í starfi af þeim sökum en oft held ég að hann hafi verið þreyttur og þurft að beita sig hörðu til að geta að- staðið í vondum veðrum. Ég minnist hér á það sem fyrst vakti athygli mína á Hilla. En eftir að Amma var að vísu heldur lltil- fjörleg núna síðustu æviárin, en ég minnist hennar heima á Hólmavík, þar sem hún var þekkt sem sómakona, og hraustleiki og vinnusemi einkenndi allt hennar líferni. Aldrei féll henni verk úr hendi, og hún var með afbrigðum lagin og frumleg við allt það sem hún snerti á, svo ekki sé talað um kappið og áhugann sem alltaf var fyrir hendi. Það er eigi að undra, að það hefur verið henni mikið áfall þegar sjónin tók að daprast' eftir að hún kom til Reykjavíkur, og hún varð að leggja sauma- skapinn og lesturimá hilluna. Þar stærri þáttur tekinn frá henni en nokkurn getur órað fyrir. Eins og ég þekkti ömmu, þá var það einn eiginleiki hennar, sem ég hef oft hugsað um og ber virðingu fyrir. Aldrei bar hún kala til nokkurrar mann- eskju, þrátt fyrir að hún hefði stundum haft ástæðu til og engan mátti hún vita óvin sinn. Fyrir- gefningin var hennar æðsta hug- sjón og hún átti til hlýju og um- burðarlyndi, þó hún léti það kannski ekki alltaf í ljós. Ég kveð ömmu með þessum fáu orðum og ber henni hjartans hakkir mlnar fyrir a!!t og að við skyldum fá að vera svo lengi saman hér í þessu jarðlífi, sem hefur gefið okkur margar skemmtilegar samverustundir. Ég finn fyrir tómleika núna þegar hún er farin, en eftir lifir minn- ingin um góða konu, og minn- ingin verður ekki frá mér tekin. Kristfn Björk ég fór að kynnast honum tók ég sífellt minna eftir þessari fötlun hans. Hann hafði svo marga meira áberandi eiginleika þegar maður fór að kynnast honum betur. Vil ég þar sérstaklega nefna hans léttu og góðu lund, sem hafði svo góð áhrif á um- hverfi hans, og gerði það að verk- um að hann aflaði sér margra góðra félaga. Einnig fannst mér iífsviðhorf hans svo jákvæð, fannst hann alltaf sjá björtu hliðarnar við lífið og tilveruna. Hann tók lifinu eins og það er, og var ekkert að víla eða vola eða vorkenna sér, sem ég held að mörgum hafi verið hætt til í hans sporum. Hann hafði mjög gaman af alls konar veiði- skap og fór oft í veiðiferðir með félögum sinum, sem hann átti marga og hann hafði aflað sér með sinni léttu lund. Eftir að hann gerðist starfsmaður í Straumsvík keypti hann sér lítinn bát í félagi við annan ogstunduðu þeir hroknkelsaveiðar og annan veiðiskap á honum í vaktafrium - og fóru þá í róður ýmist saman eða einir hvor fyrir sig. Og i eina slíka veiðiferð fór Hilli einn hinn 29. marz, en það varð hans síðasta sjóferð, því i þeirri ferð fórst hann. Ég veit að við fráfall Hilla verður söknuðurinn mestur hjá öldruðum foreldrum, og ellin verður þeim daprari eftir að hann er horfinn. En það er ekki í fyrsta sinn sem sorgin kveður dyra hjá' þeim, þar sem þau hafa eignast átta börn en eiga nú aðeins þrjú eftir. Að endingu vil ég biðja guð að blessa öldruðum foreldrum og öðrum aðstandendum allar góðar minningar um Hilla sem ég veit að þau eiga ótalmargar. Einnig veit ég að margir sem kynnst hafa honum minnast hans með hlýju og söknuði, og telja sig hafa haft ávinning af að kynnast honum. Og er ég einn af þeim. Emil Þórðarson. Afmælis- o g minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á i mið- vikudagsblaði, að berast i síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. S- 1 V ölundar-hur ðir Valin efni — Vönduð smíði Cullalmur Eitt mesta úrval landsins af fallegum innihurðum í mörgum gerðum. Stuttur afgreiðslufrestur og góðir greiðsluskilmálar. Komið og skoðið í sýningarsal okkar, Skeifunni 19 IIMBURVERZIIININ VfilUNDUR hf. Hvað er í JRDPICANJf ? Engum sykri er bætt í JRDPICANA Engum rotvarnar- efnum er bætt í JROPICANA Engum bragðefn- um er bætt í JROPICANA Engum litarefnum er bætt f JROPICANA JROPICANA er hreinn appelsínusafi og í hverju glasi (200 grömm) af JRÖPICAHif er: A-vítamln 400 ae Bi-vítamín (Thiamln) 0,18 mg Ba-vítamfn (Riboflavln) 0,02 — B-vítaminið Niacin 0,7 — C-vítamín 90 — Járn 0,2 — Natríum 2 — Kalíum 373 — Calcfum 18 — Fostór 32 — Eggjahv.efni (protein) 1,4 gr Kolvetni, það er: Sucrose 11 gr Fructose 4 — Glucose 7 —■ Orka 90 he Fékkst þú þér JROPICANA í morgun?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.