Morgunblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MAt 1976
29
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar i síma 10-100
kl 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags
% Ungbarna-
eftirlit
Húsmóðir í Vesturbænum skrif-
ar:
Þriðjudaginn 11. 5. 1976 birtist
í Morgunblaðinu ályktun Banda-
lags kvenna frá aðalfundi þess á
s.l. vetri. Þar kemur fram, að aðal-
fundurinn fer þess á leit við borg-
aryfirvöld, að komið verði á ung-
barnaeftirliti í öllum úthverfum
borgarinnar og óskar eindregið
eftir, að slíkar deildir séu undir
umsjón barnalækna.
Nú er það svo, að Barnadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavik-
ur hefur verið starfandi um ára-
tuga skeið og er nú starfrækt á 4
stöðum í borginni.
Alla tíð hafa barnalæknar ann-
azt þessa læknisþjónustu.
Heyrzt hefur, að stjórn H.R.
með borgarlækni i broddi fylking-
ar hafi áform um að leggja nið-
ur Barnadeild Heilsuv.stöðvar
Reykjavíkur í því formi, sem ver-
ið hefur, og afhenda þá starfsem
heimilislæknaþjónustunni
Reykjavík. En kannski tilefn
fyrrnefndrar ályktunar Banda-
lags kvenna afleiðing þessara
áforma stjórnar Heilsuverndar-
stofnunar Reykjavíkur og Borgar-
læknis?
Eiga reykvískar mæður virki-
lega áð trúa því, að ungbarnaeft-
irlitið í höndum heimilislækna
verði betur rækt en önnur starf-
semi heimilislæknaþjónustunnar
í Reykjavik?
Þannig var bréf „Húsmóðurinn-
ar í Vesturbænum", og birtir Vel-
vakandi að sjálfsögðu upplýsing-
ar og svör, hvort sem er frá borg-
arlækni, Bandalagi kvenna eða
einhverjum sem er öðrum, sem
vill ræða þetta mál.
# Alltaf
versna sögurnar
Og svo er það bréf frá annarri
,,Húsmóður“, þeirri sem oft skrif-
ar i Velvakanda:
Þá eru íbúar Stór-
Reykjavíkursvæðisins nýbúnir að
sjá eina Keflavíkurgönguna enn.
Ævinlega er það jafn ömurlegt að
sjá vel lærða og frjálsa íslendinga
beita sér fyrir striðs- og kúgunar-
vagn kommúnismans, og með
ánægður með svör hennar. Hann
hafði á tilfinningunni að hún
væri að dvlja hann einhvers. Og
þegar kom I Ijós að Þjóðverjum
hafði verið alls ókunnugt um að
senda átti peningana fannst
ýmsum hvggilegra að fvlgja
málinu eftir og láta ekki þar við
búið sitja. Ég tek fram að það var
ekki nærri strax sem við fengum
vitneskju um að Þjóðverjum
hafði ekki verið kunnugt um hvað
til stóð. Við töidum rétt að halda
rannsókninni áfram. Það kom í
ljós hver hafði erft Herault-húsíð.
Þá kom til tals að einhver tengsl
kvnnu að vera þar I millum. Leit-
að var með fullri levnd að sjálf-
sögðu í húsinu en ekkert fannst.
En sumt fólk getur verið ákaflega
þolinmótt ef því býður svo við að
horfa. Og ef mér leyfist að tjá hug
minn virtist frú Simone Hurst
ákaflega þolinmóð og yfirveguð
manneskja.
— Það er öldungis rétt lýsing,
sagðj David. — Hún var vissulega
þannig gerð.
— Svo að það var talið ómaks-
ins vert að fylgjast með henni, til
dæmis ef hún færi til útlanda.
Hér er komin fram myndin, sem hafði misfarizt um daginn, af
telpunum fjórum sem urðu sér úti um bllskúr og efndu til hlutaveltu
til ágóða fyrir Iljálparstofnun kirkjunnar og höfðu næstum hálft
þriðja þúsund upp úr þessu framtaki sfnu. Nú vitum við meira að
segja nöfnin á þeim lika, nefnilega: Ingunn Egilsdóttir, Björk Har-
aldsdóttir, Olöf Jónsdóttir og Halla Jóhannesdóttir.
hverju árinu sem líður versna af
honum sögurnar. Sízt ættu þær að
vera gleðiefni lærðum mönnum
sögurnar frá Suður-Víet Namog
Kambódíu. Fyrst var slátrað öll-
um höfuðóvinunum, og síðan eru
þeir sem eftir lifa settir í endur-
hæfingu i öldungadeild og heila-
þvegnir í þágu kommúnismans.
Þegar talað er um samskipti
þjóða á milli. þá má minnast á það
hvernig Rússar hafa komið fram
við okkur. Þegar við, stórhreyknir
af því að einn af frægustu Rúss-
um í dag er orðinn íslenzkur ríkis-
borgari, þá neita Rússar föður
hans að koma hingað, þrátt fyrir
að fjölmargir merkismenn hafa
sent Brezhnev bænarskjal og beð-
ið um að fá leyfi handa honum.
Alvarlegast af öllu finnst mér
að með Keflavikurgöngunni erum
við að svíkja vinaþjóðir okkar. og
okkur sjálfa lika, að ég held. Við
eigum ekki að láta Norðmenn og
Dani i dag líða fyrir syndir
norskra og danskra konunga frá
því i gamla daga.
Norðmenn og Danir setja sitt
traust á Keflavíkurstöðina, þótt
hér kunni að finnast menn, sem
halda að kommaklíkan á Þjóðvilj-
anum geti frelsað okkur frá því að
hljóta örlög Eystrasaltslandanna.
Ég treysti betur á Keflavíkurstöð-
ina.
HOGNI HREKKVISI
T " MeNaught Synd., loc.
.. og svo gerir þú ekkert, sem ég m.vndi ekki
gera!“
—Minning
Isabella
Framhald af bls. 23
kveðjur svo og öllu fólki hennar
og þakka góða kynningu.
Þorsteinn Eirfksson
Veturinn 1949—1950 bjó hópur
ungra stúlkna sig undir lifsstarf
sitt sem mæður og húsmæður, á
Kvennaskólanum á Blönduósi.
F'jörutíu og ein talsins, lífsglaðar
og fuliar eftirvæntingar um hvað
framtiðin bæri i skauti sér.
Sú yngsta i þessum hópi, ísa-
bella Theódórsdóttir, sem þá átti
heima á Blönduósi er nú hórfin
sjónum okkar, aðeins 42ja ára að
aldri. Hún var rétt orðin 16 ára
þegar skólinn hófst.
Við skólasystur hennar eigum
bágt með að túa því að Bella sé
dáin. Þó mátti vita að hverju dró
eftir stranga sjúkdómslegu.
Hún giftist ung eftirlifandi
manni sinum Friðgeiri Eiríkssyni
og eignuðust þau sex börn, sem
nú eru á aldrinum 13—23ja ára og
litil dótturdóttir var skírð fyrir
nokkru og heitir Isabella.
Okkur er það hulin ráðgáta
hvers vegna ungri konu er varnað
að vera léngur með fjölskyldu
sinni, leiðbeina börnunum er þau
leggja út á sína lifsbraut og fá að
fylgjast með barnabörnum.
Það sem við verðum að hugga
okkur við, er að Guð hafi ætlað
henni að gegna sérstöku hlut-
verki á æðri stöðum. Við munum
ætíð frá skólaárum okkar minnast
litlu elskulegu og hláturmildu
stúlkunnar, sem átti svo létt með
að taka þátt í söng og leik með
náminu.
Þegar skólanum lauk dreifð-
umst við um landið, og sumar af
okkur hafa alltof sjaldan hist
eftir það. Þó tókst okkur nær
þrjátíu af hópnum að hittast í
skólanum okkar 20 árum eftir að
námi lauk. Þar á meðal var Bella.
Þá yngdumst við allar upp um
tuttugu ár um litla stund. Þá
ákváðum við að hittast aftur að 10
árum liðnum eða jafnvel 5 árum,
sem tókst þó ekki. Við vitum þó að
hún verður ávallt á meðal okkar
og biðjum góðan Guð að geyma
hana um alla framtið.
Ástvinum öllum sendum
við hlýjar huggunar- og samúðar-
kveðjur.
Skólasysturnar.
/ÍK Félas
/l járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 20. maí 1 976 kl.
8.30 e.h. í Félagsheimili Kópavogs, niðri.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Um öryggissjóð og sjúkrasjóð
3. önnur mál
4. Erindi: Frásögn af Afríkudvöl
Baldur Óskarsson ritstjóri.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna
GOLFKLUBBAR,
SPORTVÖRUVERZLANIR,
KYLFINGAR:
TAK hf., Reykjavík hefur tekið að sér einkaum-
boð á íslandi fyrir heimsþekkta golfvörufram-
leiðendur.
Eigum til afgreiðslu nú þegar:
Kylfurí öllum verðflokkum
Púttera
Poka fyrir kerrur og burðarpoka
Kerrur
Bolta til æfinga og keppni
Hanzka
Regngalla úr tvöföldu nylonefni
Handtöskur með sérhólfi fyrir skó
Einungis vönduðustu vörur.
Framleiðslufyrirtæki sérstaklega valin með ís-
lenzkan markað í huga, svo sem:
Macgregor, John Letters, Penfold, Ben Sayers, Ford-
ham og Sunderland.
Tak h.f.
pósthólf 10065, Reykjavík,
símar 73091 og 16260.
%\&eA V/öG^ í ‘OlveRan
WvSt í<L ?ALLí6ASTA tOtM
U\A V(J \l.íW WöKKoVN-
iím <öl\Va?
3-6
)PL\A VA, m V£M)R
IW\LIGA ®WL6)Am:
WtflK U'fAHVI6m<b00
VúVRT HÖHAÍ
VYWuTAHYIIú e/ns
o&tottt NÚlV/l^