Morgunblaðið - 21.05.1976, Side 1
36 SIÐUR
109. tbl. 63. árg._______________________FÖSTUDAGUR 21. MAt 1976___________________Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Óformlegur fundur Einars Ágústssonar og Croslands í gær:
Breyttur tónn í Bretum
Vilji hjá Crosland til að leysa landhelgis-
deiluna segir utanríkisráðherra
Utanríkisráðherrar
NATO á fundi sín-
um f ráðhúsinu í
Ósló.
AP.
Ósló — Frá Magnúsi Finnssyni
IIEIMILDIR Morgunblaðsins f Ósló herma, að Einar Agústsson, utan-
rfkisráðherra hafi í gær átt annan fund með Anthony Crosland,
utanrfkisráðherra Breta, en að aðilar hafi orðið ásáttir um að skýra
ekki frá þessum fundi. Einar Agústsson neitaði þvf f gær að slfkur
fundur hefði farið fram og blaðafulltrúi Croslands neitaði þvf einnig.
1 viðtali við fréttamann Morgunblaðsins f Osló í gær, sagði utanrfkis-
ráðherra, að sér fyndist mjög breyttur tónn f Bretum miðað við það,
sem áður hefði verið og að Crosland hefði greinilega vilja til að leysa
landhelgismálið.
I ræðu, sem Einar Agústsson hélt á ráðherrafundi Atlantshafsbanda-
lagsins f gær, sagði utanrfkisráðherra, að það væri óskiljanlegur þrái
hjá Bretum að neita þeim staðreyndum, sem fyrir liggja á hafréttar-
ráðstefnunni með því að halda áfram fiskveiðum við lsland, sem
gengju f berhögg við tillögur sem fyrir lægju á ráðstefnunni.
A blaðamannafundi f Osló f gær, sagði utanrfkisráðherra, að ts-
lendingar vildu enga aðra verndara en Atlantshafsbandalagið og að ef
Island færi úr bandalaginu mundi landið verða hlutlaust og lands-
menn mundu ekki vopnast. lltanrfkisráðherra sagði ennfremur á
blaðamannafundinum, að varnarliðið yrði á lslandi meðan meirihluti
Sjálfstæðisflokksins væri þvf fylgjandi. Frásögn af blaðamannafundi
utanrfkisráðherra er á bls. 16 svo og frásögn af setningu ráðherra-
fundarins.
Viðtakanda upplýsinga
frá frú Berger leitað
Var rætt um
brotthvarf freigátna?
STJÓRNMALALEGIR heimilda-
menn hér á göngum Ilótels
Scandinavfa segja að í dag hafi
þeir Einar Agústsson og Anthony
Crosland hitzt f annað sinn frá
því er þeir komu til Ósló. Fundur
Frjálsleg
túlkun
erlendra
fréttastofa
— á ummælum
utanríkisráðherra
t AP-frétt frá Osló í gær sagði,
að Einar Ágústsson, utanríkis-
ráðherra, hefði sagt við frétta-
menn i gær, að það væri mjög
líklegt að tsland mundi gefa
Bandaríkjunum sex mánaða
frest til þess að loka varnar-
stöðinni í Keflavik ef Banda-
ríkin veittu islandi ekki stuðn-
Framhald á bls. 20
þeirra hafi verið sfðdegis í dag,
en aðilar hafi orðið ásáttir um að
skýra ekki frá þessum fundi. Ein-
ar Agústsson neitaði þvf í dag að
hann hefði átt annan fund með
Crosland og blaðafulltrúi Cros-
lands neitaði þessu einnig.
Ef rétt er hermt — Einar
Ágústsson sagði raunar á blaða-
mannafundi hér í dag að hann
hefði aðeins skipzt á orðum við
Crosland á ráðherrafundinum —
má getum að því leiða að Crosland
hafi á einhvern hátt verið að ræða
hugsantegt brotthvarf freigátn-
anna af íslandsmiðum, svo að
unnt yrði að hefja formlegar við-
ræður. A.m.k. sagði Einar eftir
fundinn seint í gærkveldi að hann
hefði gert Crosland skiljanlegt þá
að ekki þýddi fyrir hann að ræða
málið frekar, nema freigáturnar
færu á brott.
Einar Ágústsson sagði við
Morgunblaðið er hann ræddi um
fund sinn með Crosland í gær-
kveldi, að sér fyndist mjög breytt-
ur tónn í Bretum miðað við það
sem áður hefði verið. Einar kvað
þetta ekki óeðlilegt þar sem Cros-
land væri þingmaður fyrir Grims-
by og vandamálin þar væru svip-
aðs eðlis og vandamál íslendinga.
Kvað Einar Crosland greinilega
hafa vilja til þess að leysa málið.
Einar kvað ekkert vera unnt að
Framhald á bls. 20
Bonn, 20. maf. Reuter.
ÞEIR sem hafa með höndum
rannsókn njósnamálsins f vestur-
þýzka utanrfkisráðuneytinu leit-
uðu í dag að dularfullum, fertug-
um málara. sem kallar sig Klaus
Wöhler.
Maðurinn komst hjá handtöku
þegar Helge Berger, ritari f ráðu-
neytinu, var tekin höndum, grun-
uð um að hafa njósnað í þágu
Austur-Þjóðverja f 10 ár. Lýst er
eftir honum þar sem talið er að
hann hafi tekið við upplýsingum
frá frú Bergers.
Lögregluskýrslur sögðu að mað-
urinn héti Klaus Wöhler og væri
frá Dortmund en hins vegar var
slóð hins raunverulega Klaus
Wöhlers rakin til Wellington í
Nýja Sjálandi. Þar sagði hann í
viðtali við Reuter að hann væri
málari i g starfaði við innanhús-
skreytingar en neitaði þvi að
standa í tengslum við Berger.
Klaus Fischer vararíkissak-
sóknari sagði í dag. „Við leitum
að Klaus Wöhler eða manni sem
notar það nafn. Maðurinn virðist
hafa brugðið sér i gervi hins
mannsins."
Á það er bent að leyniþjónustu-
starfsmenn kommúnistaríkja taki
Framhald á bls. 20
íoJöö
misstu
heimili
Moskvu, 20. mai. Reuter. AP.
TtU þúsund manns misstu
heimili sfn f eyðimerkurbænum
Gazli f Uzbekistan f jarðskjálftan-
um f Mið-Asíuhlutum Sovétríkj-
anna á mánudag. Mikið tjón varð
á byggingum og manntjón varð f
Tadzhikistan og Turkmeníu að
sögn fréttastofunnar Tass í dag.
Tass sagði að manntjónið hefði
orðið í miklum skriðuföllum af
völdum jarðskjálftans og gffur-
legra rigninga og ofsaveðurs á
nokkrum svæðum f þessum sovét-
lýðveldum. Moskvu-útvarpið
sagði að „nokkrir" hefðu farizt en
nefndi engar tölur og Tass ekki
heldur, hvorki um látna né
slasaða.
Nær öll hús, skrifstofur og
verzlanir þurrkuðúst út i Gazli
sem var 70 km suður af upptökum
Framhald á bls. 20
Kínverjar segja að NATO
verði að vera vel á verði
Osló, 20. maí. Reuter.
ANTHONY Crosland, utanrfk-
isráðherra Breta, sagði á ráð-
herrafundi NATO f dag að Kín-
verjar teldu Evrópu vettvang
árekstra og Vesturveldin yrðu
að vera á verði gegn Rússum
samkvæmt heimildum á ráð-
stefnunni f dag.
Crosland sagði þetta þegar
hann gaf skýrslu um ferð sfna
til Kfna nýlega og kom fram f
fyrsta skipti sem utanrfkisráð-
herra á ráðherrafundi NATO.
Hann sagði að Kínverjar
hefðu ítrekað að þeir teidu
styrjöld milli risaveldanna
óhjákvæmilega. Hann kvað
Kínverja hafa haldið því fram
að þremur fjórðu hlutum sov-
ézka heraflans væri beint gegn
Evrópu, en einum fjórða gegn
Asíu. 1 Asíu segðu Kínverjar að
meginliði Rússa væri beint
gegn Bandaríkjamönnum, því
næst gegn Japönum og siðan
Kínverjum.
Þess vegna sagði Crosland að
Kínverjar héldu þvf fram að
það væri undir NATO komið að
halda vöku sinni og vera á verði
þar sem bandalagið væri á víg-
línunni gagnvart Sovétríkjun-
um.
Utanríkisráðherrann kvaðst
hafa tjáð Kínverjum að Bretar
stæðu dyggan vörð um NATO
og Evrópu og einnig talað um
kjarnorkumátt bandalagsins og
sagt að ekki þyrfti að draga
mátt og vilja bandalagsins í efa.
Hann sagði Kínverjum einnig
að þeir mættu ekki vanmeta
styrk, þrautseigju, útsjónar-
semi og festu Bandarikja-
manna. Hann lýsti yfir stuðn-
ingi við fyrri yfirlýsingar
Henry Kissingers utanrikisráð-
herra um samskipti austurs og
vesturs og hernaðarjafnvægið.
Crosland kvaðst hafa gert
grein fyrir stefnu Breta i
Afríku og reynt að fá fram sjón-
armið Kínverja í málefnum
suðurhluta álfunnar en fá svör
fengið.
Hann sagði að rólegt væri á
ytra borðinu i Kina en ekki
færi á milli mála að undir niðri
syði og kraumaði. Hann taldi að
pólitísk valdaeyða hefði mynd-
azt eftir lát Chou-En-lais og
kvað óvfst um framtíðarþróun-
ina i Kína.