Morgunblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976 5 Ránargata 6 sem Reykjavfkurborg hefur keypt undir rekstur á endur- hæfingarheimili fyrir áfcngissjúklinga, en félagar úr AA- samtökunum munu annast reksturinn. Ljósmynd Mbl. RAX. Borgin kaupir íbúðarhús: Endurhæfingarheimili fyrir áfengissjúklinga AA-félagar sjá um reksturinn REYKJAVÍKURBORG hefur fest kaup á húseigninni Ránargötu 6 til þess að koma þar upp aðstöðu fyrir áfengissjúklinga sem eru út- skrifaðir af hælum. Reykjavíkur- borg ræðst í þessa framkvæmd í samvinnu við hópa félaga úr AA- samtökunum, en þeir munu annast reksturinn á heimiiinu, sem verður nokkurs konar endur- hæfingarheimili. Morgunblaðið hafði samband við Markús Örn Antonsson borgarfulltrúa og for- mann félagsmálaráðs til þess að fá upplýsingar um málið. Markús sagði að Félagsmálaráð borg- arinnar hefði stefnt að því að koma á fót slíku endurhæfingar- heimili, þvi mikil þörf væri á slíku og þarna hefði þvi farið saman vilji Félagsmálaráðs og ósk AA-manna. Húseignin sem hefur verið keypt er kjaliari og tvær hæðir og er reiknað með að 8—10 menn verði þar heimilisfastir. Reykjavíkurborg ræður um- sjónarmann fyrir húsið, en AA- félagar reka það og sjá um við- hald og heimilismenn greiða húsaleigu fyrir herbergi sin, enda er reiknað með að þeir vinni reglulega vinnu utan heimilisins. Þá er einnig reiknað með að AA- samtökin hafi einhverja félagsað- stöðu I húsinu. Bandalag íslenzkra listamanna: Gleðimót BIL í Valhöll 1 maílok AÐALFUNDUR Bandalags ís- lenskra listamanna var haldinn fyrir skömmu og segir f fréttatil- kynningu frá bandalaginu að á fundinum hafi verið fagnað lyktum 1 Kjarvalsstaðadeilu og öðrum árangri sem náðst hefði f baráttumálum listamanna. A sfðasta ári opnaði BlL skrif- Thor Vilhjálmsson forseti Banda- lags fslenzkra listamanna . . . stofu i samvinnu við Rithöfunda- samband Islands að Skólavörðu- stíg í Reykjavík. Þá segir einnig í fréttatilkynningunni að banda- lagið ráðgeri að halda gleðimót fyrir meðlimi sína í Valhöll á Þingvöllum i lok mánaðarins og hvetur bandalagið listamenn til að fjölmenna. Einnig er ráðgert að halda listamannaþing i byrjun júní að Kjarvalsstöðum, umræðu- fund um tilgang listahátiðar. Þá var einnig á aðalfundinum samþykkt einróma ályktun þar sem Bandalag islenskra lista- manna harmar aðför einstakra listamanna gegn starfsbróður sin- um i umræðum um úthlutun við- bótarritlauna, að þvi er segir i tilkynningunni. Stjórn bandalagsins skipa nú Thor Vilhjálmsson forseti, Magnús A. Árnason varaforseti, Þorsteinn Gunnarsson ritari og Hinrik Bjarnason gjaldkeri. Aðrir i stjórn eru Gunnar Reynir Sveinsson, Kristín Björnsdóttir, Stefán Jónsson og Þorgerður Ingólfsdóttir. Landssamband iðnaðarmanna: Breytingar á vaxtakjör- um iðnaðinuin i óhag STJÓRN Landssambands iðnaðarmanna fjallaði nýlega á fundi sfnum um lánamál iðnaðar- ins f Ijósi þeirra breytinga sem nýlega hafa verið gerðar á al- mennum vaxtakjörum. t fréttatil- kynningu sem Mbl. hefur borizt segir, að fagnað sé auknum skiln- ingi ráðamanna á nauðsyn sam- ræmingar lánakjara og lána- möguleika atvinnuveganna, sem Landssamband iðnaðarmanna hafi svo lengi barizt fyrir. Þessi skilningur kom m.a. fram f ræðu seðlabankastjóra, dr. Jóhannesar Nordal, á aðalfundi Seðlabank- ans, er hann sagði að skipulag bankakerfisins, en þó fyrst og fremst fjárfestingalánasjóðanna. hefði áreiðanlega hamlað gegn því, að lánsfé beindist með eðli- legum hætti til þeirra fram- leiðslugreina og fyrirtækja, sem arðbærust væru hverju sinni fyrir þjóðarbúið. Þá er i fréttatilkynningunni vitnað i orð seðlabankastjóra þar sem fram kemur að á s.l. ári fóru 58% af atvinnuvegaútlánum fjár- festingasjóðanna til sjávarútvegs, 17% til Iandbúnaðar en aðeins 15% til iðnaðarins. Hér verður að verða breyting á, ef takast á að tryggja viðunandi hagvöxt næstu árin sagði seðlabankastjóri. Stjórn Landssambands iðnaðar- manna tekur undir orð seðla- bankastjóra um að stórauka fjár- streymi til iðnaðarins, en bendir á að þetta megi auðveldlega gera með markvissri stýringu fjár- magnsins, án þess að breyta skipulagi bankakerfisins og fjár- festingalánasjóðanna. Þá telur Landssamband iðnaðarmanna að hækkun vaxta af almennum útlánum, hækkun forvaxta og hækkun vaxta af yfir- dráttarlánum ásamt lækkun vaxta af innstæðum hlaupa- og ávísana- reikninga muni valda mestri aukningu útgjalda hjá þeim at- vinnugreinum sem verst eru sett- ar, bæði hvað varðar lánamögu- leika og vaxtabyrði. Telur Lands- sambandið að þessi vaxtabreyting komi ekki jafnt niður á öllum atvinnuvegunum. AUGLÝSINGASÍMTNN ER: ^>22480 J Jtiorðunþlabib

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.