Morgunblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
7
Allir vildu Lilju
kveðið hafa
Það hefur vakið athygli
lesenda Þjóðviljans und-
anfarna daga og vikur,
hve oft og áfergjulega rit-
stjórar þess blaðs gæla
við „hugarfóstur" um
nýja nýsköpunarstjórn.
þ.e. stjórnarsamvinnu
Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðubandalags. sennilega
ásamt Alþýðuflokki og
SFV, en f öllu falli án
Framsóknarflokks. Að
vísu er jafnan látið að því
liggja í Þjóðviljanum að
slík stjórnarsamvinna sé
ekki draumsýn Alþýðu-
bandalagsmanna, heldur
forystumanna Alþýðu-
flokks. Ef þessi hugmynd
er ekki þann veg viðruð f
blóra við Gylfa Þ. Gfsla-
son eða aðra þingmenn
Alþýðuflokksins, er gripið
til staðhæfinga í Tím-
anum, sem hafi í leiðara
fullyrt, „að mikil von-
brigðj rfki hjá Alþýðu-
bandalagsmönnum yfir
því að slfk samvinna (við
íhaldið) skuli ekki komast
á strax á morgun!" Þjóð-
viljinn segir þetta að vfsu
„glórulausan heilaspuna
Þórarins Þórarinssonar,"
en þessi tíðu Þjóðvilja-
skrif um „nýsköpunar-
stjóm", undir yfirskini
mótmæla, eru grunsam
lega tfð og fyrirferðarmik-
il. Ekkert skal hér fullyrt
um réttmæti gagnstæðra
fullyrðinga Tímans og
Þjóðviljans um þetta mál.
Staðreyndin er einfald-
lega sú að Framsóknar-
flokkurinn er í stjórnar-
samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn, og að málgagn
hans, Tíminn, segir Al-
þýðubandalagið fúsara en
allt sem fúst er til stjórn-
arsamstarfs við Sjálfstæð-
isflokkinn. Þjóðviljinn
mótmælir í orði — en
segir Alþýðuflokkinn
bráðfúsan í slíkt samstarf.
Máski er það svo, þrátt
fyrir allar „skammirnar
um fhaldið", að allir vildu
þá Lilju kveðiðhafa.
Hér skal engum getum
að þvf leitt, hvað að baki
búi f hugarfylgsnum for-
ingja Alþýðubandalagsins.
Hitt vakti nokkra furðu,
eins og drepið var á f
þessum dálkum f gær, að
Lúðvfk Jósepsson, sá sem
f raun leiðir hjörðina f Al-
þýðubandalaginu, þrátt
fyrir annan formann að
nafninu til, nefndi ekki á
nafn fyrirbærið „vinstri
stjóm", er hann horfði
fram á veginn í almennum
útvarpsumræðum um
þjóðmál á dögunum. Hins
vegar fjallaði hann um
„framfarastjórn", sem
lykilorð að lausn vanda-
mála á sviði þjóðlffs
okkar. Nánar fór hann
ekki út f merkingu þess
orðs. Hann talaði sum sé i
véfréttastíl, sem þó varð
Þórarni Þórarinssyni, rit-
stjóra Tímans, efni i
heilan leiðara um hugsan-
legt samstarf Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðis-
flokks; hér væri Lúðvík að
feta í slóð ítalskra komm-
únista, sem ólmir vildu í
stjómarsamstarf við
kristilega demókrata þar í
landi. Hins vegar bætir
Þórarinn þvf við „að
draumurinn um það muni
ekki rætast næstu
misseri". Núverandi rikis-
stjórn muni halda velli út
kjörtfmabilið.
Vinstri stjórn
feimnismál?
Þessar hugleiðingar
Þjóðviljans kalla óhjá-
kvæmilega fram minn-
ingar frá vinstri stjórninni
sálugu. Hvern veg þolir
hún samanburð við núver-
andi rfkisstjórn, sem Þjóð-
viljinn málar svo dökkum
litum? Hvern veg stóð
hún t.d. við verkalýðsyfir-
lýsingar sínar? Rauf hún
ekki tengsl vísitölu og
launa? Lækkaði hún ekki
gengi gjaldmiðilsins?
Hækkaði hún ekki sölu-
skattinn, verðjöfnunar-
gjald raforku og opinbera
þjónustu margsinnis? Fór
ekki verðbólguvöxtur á
sfðasta ári hennar (1974)
í 54%, sem var Evrópu
met, jafnvel heimsmet?
Greiddi ekki Lúðvík
Jósepsson og þinglið Al-
þýðubandalagsins allt at-
kvæði með samningum
við Breta 1973, eftir víð-
varanir fiskif ræðinga
1972, um 130.000 árs-
afla þeim til handa af
þorski tvö ár fram f tím-
ann? Var ekki „ísland úr
Nato, herinn burt"
slagorðið harðlæst niður á
kistubotni á árum tveggja
vinstri stjórna, þó nú sé
dustað af því rykið? Verk-
fallsréttur opinberra
starfsmanna er umdeilt
atriði, sem Morgunblaðið
hefur m.a. talið meira en
hæpinn. Engu að sfður var
hann loforð vinstri stjórn-
ar, í sáttmála, „sem lesa
átti kvölds og morgna".
Hann fékkst þó ekki
viðurkenndur meðan
vinstri stjórnin var og hét.
Þá var allt á eina bók
lært. Efndir f öfugu hlut-
falli og mótsögn við lof-
orð. Það er engin furða þó
Lúðvík, „sólkonungur"
Alþýðubandalagsins, kjósi
heldur það, sem hann
nefnir „framfarastjórn",
en að bera sér það hvim-
leiða orð „vinstri stjórn"
f munn þegar hann horfir
fram á veginn í fslenzkum
þjóðmálum.
Alltaf lækkar verðið!!!!!
Allt á að seljast.
ENNÞÁ ER HÆGT AÐ GERA MJÖG
GÓÐ KAUP.
NÝJAR VÖRUR TEKNAR FRAM.
AÐEINS FÁEINIR DAGAR EFTIR.
□ HERRAFÖT 9.900 —□ STAKIR JAKKAR 3.900 —
□ TERYLENEBUXUR 2.390 — □ DÖMUJAKKAR 3.800 —
□ DÖMUJAKKAPEYSUR 2.900 —
□ HERRASKYRTUR 1.290 —
□ KJÓLAR ALLIR 2.900 —□ HETTUPEYSUR 1.390 —
□ SKÓR O.M.FL.
áfSm* T|ZKUVERZLUN unga folksins
uLjj) karnabær
Útsölumarkaöurinn,
Lauqavegi 66, sími 28155
Kranabíll óskast
Höfum verið beðnir að útvega kranabíl. Verðtilboð
ásamt upplýsingum um tegund, aldur, stærð og
annað sem máli skiptir, sendist okkur sem fyrst. —
Gefum nánari upplýsingar.
RAGNAR BERNBURG — vélasala,
Laugavegi 22. slmi 27020, kvöldsfmi 82933.
Tré- og málm-
gardínustangir í mörgum stærðum
PÓSTSENDUM
Málning & Járnvörur
Laugavegi 23 • Símar 1-12-95 & 1-28-76 • Reykjavík
Kaupmannahöfn
er stærsti
ferðamarkaður
Norðxnlanda
>
tr
m
Z
>
00
m
X
X,
>
30'
o-
X
O-
2
2
o
v)
7i
<
>
00
c
*
>
X
m
<fí
x
>
z
*
-n
C
X
H
O
m
í sumar fljúgum við 3 kvöld í viku til Kaup-
mannahafnar á mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum. Héðan verða farnar 4 ferðir í
viku til Narssarssuaq í sumar.
..Hvað er svo glatt sem góðra
vina fundur" kvað Jónas Hall-
grimsson í Kaupmannahöfn fynr
nærri 150 árum Enn má rekja
spor Jónasar i borginni við
sundið
Kaupmannahöfn er mesta sam-
göngumiðstöð á norðurlöndum
Þaðan liggja leiðir til allra átta Á
ferðamarkaði Kaupmannahafnar
er feikilegt úrval ferða um allan
heim Þar fást dýrar ferðir og
ódýrar, langar og stuttar, til aust-
urs og vesturs og til norðurs og
suðurs
SAS er áhrifamfkill aðili á ferða-
markaði Kaupmannahafnar
Góð þjónusta SAS saman-
stendur af mörgum þáttum og
miklu starfi Hér eru fáein atriði
nefnd, sem setja svipmót á starf-
semi SAS
Umhyggja fyrir farþegunum frá
upphafi ferðar til leiðarloka
Flugvélar af nýjustu og bestu
gerðum
Skandinaviskt starfsfólk um allan
heim
Sérstök sæti fyrir reykingar-
menn
Fyrirgreiðsla « fjarlægum
löndum
Matur fyrir sykursjúka, græn-
metisætur og smábörn, sé hann
pantaður i tæka tið Á löngum
flugleiðum skiptir slikt máli
Þjónusta SAS er rómuð um allan heim vegna
þess, að starfsmenn félagsins leggja sig fram
um að greiða fyrir viðskiptamönnunum eftir því
sem efni standa frekast til.
S4S
Laugavegi3
Simar 21199
22299
^ISSA SINGAPORE NAIRÓBÍ JÓHANNESARBORG TO^
PRAG AMSTERDAM LISSABON BRUXELLES BARCELONA PARÍS HAMBORG