Morgunblaðið - 21.05.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
3
Kannað hvort Air
á kröfur á hendur
AÐ SÖGN Unnsteins Beck skipta-
ráðanda í Reykjavfk, mun það
einhvern tfma á næstunni verða
kannað hvort þrotabú Flugfélags-
ins Air Viking eigi hugsanlega
kröfur á hendur Ferðaskrifstof-
unni Sunnu. Sem kunnugt er
voru þessi tvö fyrirtæki rekin af
sömu aðilum og var Sunna lang-
stærsti viðskiptavinur Air Vik-
ing.
Unnsteinn Beck sagði að það
myndi verða kannað í bókhaldi
Air Viking hvaða kjara Sunna
naut hjá Flugfélaginu. Ef það
kæmi í ljós að leigan á flugvélun-
um væri það lág að ekki fengi
staðist, myndu kröfuhafar hugs-
Afneitar
stuðningi
við Z
EGGERT G. Þorsteinsson alþing-
ismaður hefur beðið Morgunblað-
ið að geta þess, að það sé ekki rétt,
sem haft er eftir Sverri Her-
mannssyni í bláðinu í gær, að
hann, Eggert, styðji frumvarpið
um z. Eggert kvaðst hafa greitt
atkvæði með því í efri deild að
vfsa frumvarpinu til ríkisstjórn-
arinnar og sjá þannig um að það
fengi hægan dauðdaga.
anlega fara fram á viðbótar-
greiðslur frá Sunnu þannig að
raunhæft leiguverð fengist. Sagði
Unnsteinn að bera þyrfti saman
bókhald Air Viking, þar sem
koma fram greiðslur Sunnu til
félagsins og leiðarbækur flug-
véla, en þar væru skráðar allar
flugferðir. Sagði Unnsteinn að
A STJÓRNARFUNDI I íslenzka
járnblendifélaginu hf. í gær voru
til umræðu hugsanlegar breyting-
ar á eignaraðild einstakra hlut-
hafa I félaginu, en sem kunnugt
er hefur komið til tals að Union
Carbide dragi sig út úr félaginu
og jafnframt þvf hefur iðnaðar-
ráðuneytið átt viðræður við full-
trúa Elkem-Spigerverket a/s í
Noregi, sem hugsanlega aðila að
lslenzka járnblendifélaginu, ef
Union Carbide skyldi semja um
að draga sig til baka.
Morgunblaðið óskaði nýlega
eftir yfirlýsingu frá forráðamönn-
um Union Carbide vegna þessa
máls, og i svari sinu lagði tals-
maður félagsins áherslu á að
Viking
Sunnu
niðurstöðurnar myndu siðan
verða lagðar fyrir skiptafund.
Loks var Unnsteinn að því
spurður hvort enn bærust kröfur
í bú Air Viking og kvað hann svo
vera. Ekki hafði hann handbærar
nákvæmar tölur um upphæð
krafna. Innköllunarfrestur er úti
í júlímánuði n.k.
óhagstæðar markaðshorfur í kísil-
járni á Evrópumarkaði vegna
spár um hægari þróun í stáliðnaði
Evrópu yllu því að hagkvæmni
Járnblendiverksmiðjunnar hefði
að mati Union Carbide versnað.
Union Carbide gat þess, að
sjónarmið þeirra þyrfti ekki að
fara saman við sjónarmið annarra
framleiðenda járnblendis varð-
andi framtið íslenzka járnblendi-
félagsins h.f.
Þrir fulltrúar frá Union
Carbide komu hingað til lands
vegna stjórnarfundarins í gær, og
áttu þeir viðræður við fulltrúa
iðnaðarráðuneytisins um þann
möguleika að fyrirtækið dragi sig
út úr íslenzka járnblendifélaginu.
Að sögn Ásgeirs Magnússonar,
forstjóra islenzka járnblendi-
félagsins, munu þessar viðræður
halda áfram, og jafnframt verða
frekari viðræður milli Elkem í
Noregi og íslenzlra aðila, en
meðan á þessum viðræðum
stendur verður framkvæmdum á
vegum félagsins frestað áfram.
Vitni vantar
MIÐVIKUDAGINN 5. maí klukk-
an 10.05—10.20 var ekið á bifreið-
ina R-39625, á bifreiðastæði fram-
an við Vörumarkaðinn i Ármúla.
Hægra afturbretti var beyglað og
hægri hurð einnig. Hin skemmda
bifreið er af gerðinni Fiat 128.
Líklegt er að tjónvaldurinn hafi
verið blágrá bifreið.
j Jóhanna sýnir í
Gallery SUM
LAUGARDAGINN 22. maí
1976, kl. 4.00 opnar Jóhanna
Bogadóttir myndlistarsýningu í
Gallerí SÚM, Vatnsstíg 3B,
Rvk.
Jóhanna er fædd í Vest-
mannaeyjum árið 1944; hún
stundaði nám í Paris, S-
Frakklandi og Kaupmanna-
höfn. Þetta er þriðja einka-
sýning hennar i Reykjavík, en
alls hefur hún haldið sjö einka-
sýningar úti á landi og auk þess
tekið þátt i fjölda samsýninga
hér heima og erlendis. Um
þessar mundir tekur hún m.a.
Framhald á bls. 20
Framkvæmdum ísl. járn-
blendifélagsins frestað áfram
Viðræður í gangi við Union
Carbide og Elkem Spigerverket
Tónleikar á Raufarhöfn,
Mývatnssveit og Húsavík
DAGANA 22., 23. og 25. maí
halda þau Margrét Bóasdóttir
sópransöngkona, Kjartan
Óskarsson klarinettleikari og
Hrefna Unnur Eggertsdóttir
píanóleikari tónleika í félags-
heimilinu Hnitbjörg Raufar-
höfn, Skjólbrekku Mývatns-
sveit og í félagsheimilinu á
Grafíksýning að
Kjarvalsstöðum
FÉLAGIÐ Islenzk grafík vinnur
nú að yfirlitssýningu á íslenzkri
grafík frá upphafi. I fréttatil-
kynningu^frá félaginu segir að
greiðlega hafi gengið að safna
myndum á sýninguna en þó hafi
þeir er að sýningunni vinna grun
um að grafíkmyndir, t.d. trérist-
ur, litógrafíur, ætingar o.fl. séu i
Húsavík.
Á efnisskrá eru sönglög eftir
islenska og erlenda höfunda
verk fyrir klarinett og píanó
eftir Saint Saéns og Pierné,
verk fyrir píanó eftir Brahms
og Debússy og verk fyrir
sópran, klarinett og píanó eftir
Spohr og Sehubert.
eigu ýmissa aðila sem félagið hafi
ekki náð í. Væri sýningarnefndin
þakklát ef fólk ætti eða gæti bent
á grafikmyndir eftir islenzka
listamenn og vildu lána þær á
fyrrnefnda sýningu.
Sýningin verður að Kjarvals-
stöðum á listahátið sem verður
opnuð 4. júní. Þeir sem eiga eða
geta bent á grafíkmyndir sem
hægt er að fá léðar á sýninguna
geta hringt i Jón Reykdal, Ólaf
Kvaran eða Þórð Hall.
Volkswagen ■ wm w m
- auói bflasyning
verður í sýningarsal okkar að Laugavegi 172,
laugardag frá kl. 12.00 til kl. 19.00
sunnudag frá kl. 10.00 til kl. 20.00
Þar verða sýndir:
Audi - Passat _
Volkswagen 1200 — sendibílar
Kynnum sérstaklega hinn nýja
LT SENDIFERÐABÍL
VCo
e^°
ð\ð
oV'ð, reV°
g\UO
Vóð
Auói -EOLF-oq LT-sendibílinn
Volkswagen 0000A.oði
HEKLAhf
Laugavegi 1 70—1 72 — Sími 21240