Morgunblaðið - 21.05.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
11
Upplýsingaþjónusta bænda:
Mjólk var hellt niður fyrir
tæpar 30 millj. í verkfallinu
SAMKVÆMT innvigtun á mjólk
fyrir og eftir verkfallið f vetur,
virðist sem 750 þúsund lftrar af
mjólk hafi ekki komið til skila f
mjólkursamlögin. Samkvæmt
upplvsingum Agnars Guðnasonar
hjá Upplýsingaþjónustu landbún-
aðarins, er Ifklegt að 550 þúsund
lftrum hafi verið hellt niður af
þessu magni en afgangurinn hafi
farið til neytenda eða verið nýtt-
ur á sveitabæjunum. A þessum
tfma var verð til bænda 54 krónur
fyrir hvern Iftra mjólkur, þannig
að nærri lætur að tjón bænda
vegna verkfallsins hafi numið 30
milljónum króna.
Fyrstu 3 mánuði þessa árs var
innvegin mjólk á öllum mjólkur-
samlögum landsins 19,2 millj. kg.
Það var 1,4 millj. kg. minna en
sömu mánuði 1975, eða hafði
minnkað um 6.78%. Aðeins var
aukning i innveginni mjólk hjá 6
mjólkursamlögum, og mest mun-
aði um þá aukningu sem varð hjá
samlögunum á Húsavfk og Egils-
stöðum, en þar varð aukning um
11.9% á Húsavík en 14.2% á
Egilsstöðum. Nokkur samdráttur
hefur orðið á sölu nýmjólkur, sem
fyrst og fremst stafaði af verkfall-
inu en nýmjólkursalan varð 5.7%
minni en í fyrra. Af rjóma seldust
nú 242 þús. ltr. en það var rúmum
71 þús. ltr. minna en í fyrra.
Sala á skyri var svipuð, en af
því voru seldar 372 lestir. Smjör-
framleiðslan var 47% meiri en f
fyrra, samtals voru nú framleidd-
ar 186,6 lestir. Aftur á móti varð
verulegur samdráttur í fram-
leiðslu osta, eða 55% minni en i
fyrra.
1 upphafi ársins voru birgðir af
smjöri i landinu 328 lestir það var
um 20 lestum meira en árið áður.
Sala á smjöri varð óvenju mikil
þessa fyrstu 3 mánuði ársins, hún
reyndist vera 472 lestir, sem var
56% meiri sala en sömu mánuði í
fyrra.
Birgðir 1. apríl voru aðeins 41
lest, eða tæplega 100 lestum
minni en 1. apríl 1975. Sala á
ostum gekk vel, þar varð aukning
um 11.1%.
Stefnir
kominn út
NVLEGA kom út 1. — 2. tölublað
af Stefni. Blaðið er að mestu helg-
að fslenzkri nútímamenningu. Er
þar að finna samræður, greinar
og ljóð. Þetta er sfðasta tölublað
Stefnis sem Kjartan Gunnar
Kjartansson ritstýrir, en hann
hefur ritstýrt blaðinu sfðan í árs-
byrjun 1973. Tekur Gestur Ólafs-
son arkitekt nú við ritstjórn.
Meðal efnis má nefna Samræð-
ur um islenzka skemmtimenn-
ingu', en þátttakendur voru Hauk-
ur Hjaltason, Jakob Magnússon,
Jörundur Ingi, Kjartan Gunnar
Kjartansson og Ragnar Tómasson.
Að baki morgunkuldans Ljóð
eftir Kristján Hreinsmög.
Quibble — Vér vatrarhugar tvö
ljóð,
„Menning" og menning Ritstjórn-
argrein, o.s.frv.
Afmælishátíð
í Siglufirði
Siglufirði, 19. maf.
EFNT verður til hátíðahalda á
Siglufirði á morgun og næstu
daga f tilefni afmælis kaup-
staðarins hinn 20. maf. Hátfða-
samkoma verður f Nýja bfó á
morgun, þar sem Knútur Jónsson,
forseti bæjarstjórnar, setur hátfð-
ina en sfðan leikur Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir einleik á pfanó.
Þá flytur Jón Skaftason, alþingis-
maður, hátfðarræðu en sfðan
syngur John Speike, barfton-
söngvari, einsöng við undirleik
Sveinbjargar.
Að loknu hléi verður rit-
höfundakynning, þar sem Birgir
Svan, Þorgeir Þorgeirsson og Vé-
steinn Lúðvíksson lesa úr verkum
sinum.
Á föstudagskvöld kl. 21 sýnir
Alþýðuleikhúsið Krummagull
eftir Böðvar Guðmundsson, dag-
inn eftir verður opnuð mynd-
listarsýning í Alþýðuhúsinu, sem
standa mun næstu daga en um
kvöldið efnir karlakórinn Vísir til
dansleiks þar sem ýmislegt
verður til skemmtunar.
Á sunnudag verður söng-
skemmtun í Nýja bíói, þar sem
þau koma aftur fram Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir og John Speike.
— mj
Skemmdarverk
í BYRJUN vikunnar voru mikil
skemmdarverk unnin á tækjum í
sandnámi Þórisóss hf við Hafnar-
fjarðarveg. Voru brotnar allar
rúður, mælar og ljós í tveimur
sandmulningsvélum og einni vél-
skólfu. Rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði vinnur að rannsókn
þessa máls og eru þeir, sem ein-
hverjar upplýsingar geta gefið
um málið beðnir að hafa samband
við hana, en þarna voru unnin
skemmdarverk fyrir tugi þús-
unda króna.
Ljósmyndasýning
OPNUÐ hefur verið sýning á ljós-
myndum eftir Sigurjón Jóhanns-
son, blaðamann, á innrömmunar-
verkstæði Guðmundar Árnasonar
að Bergstaðastræti 15. A sýning-
unni gefur að líta myndir af fólki,
sem í fæstum tilfellum hefur
stillt sér upp fyrir myndatöku.
Uppistaða sýningarinnar eru
myndir frá hinum eftirminnilega
kvennafrídegi 24. október sl. Enn-
fremur eru á sýningunni nokkrar
myndir úr skáklífinu — skák-
kappar og áhorfendur. Elztu
myndirnar eru teknar árið 1958.
Sýningin er opin á venjulegum
verzlunartíma í tvær vikur.
Friðfinnur Ólafsson forstjóri Háskólabfós ásamt Anatoly Kuznetsov,
rússneska leikaranum, sem nú er staddur hér á landi.
Rússneskar kvikmyndir sýndar í Reykjavík:
Þekktur rússnesk-
ur leikari á Islandi
I kvöld og annað kvöld verða
sýndar í Reykjavfk tvær rússn-
eskar kvikmyndir. Fyrri myndin
verður f Háskólabfói og nefnist
hún Flótti en hin sfðari Eyði-
merkursól f Laugarásbfói. 1 til-
efni af þessum kvikmyndasýning-
um er nú staddur á Islandi leikar-
inn Anatoly Kuznetsov en hann
leikur aðalhlutverkið í myndinni
f Laugarásbfói.
A blaðamannafundi f gær
ræddi Kuznetsov um kvikmynda-
iðnað f Sovétrfkjunum og sagði að
hann væri f miklum vexti. Sjálfur
starfar Kuznetsov við stórt kvik-
myndaver f Moskvu þar sem
vinna um 5 þúsund manns. Þetta
kvikmyndaver framleiðir á
hverju ári um 40 myndir en í
Rússlandi eru framleiddar um
140 myndir á ári.
Þá gat hann einnig um tölu-
verða samvinnu við önnur lönd á
sviði kvikmyndagerðar, nefndi
hann sérstaklega Pólland, Ung-
verjaland, Júgóslavíu, og Búlgar-
íu. Kuznetsov lék fyrir skömmu i
kvikmynd í Tékkóslóvakiu og
sagði hann að það væri í fyrsta
sinn sem hann lék ekki Rússa
Framhald á bls. 23
SMIDJUVEGI6 SIMI44544 m KJÖRGARDI SÍMI16975
Verðlækkun
Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju-
vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega:
Bergamo
Sófasettið hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000
Staðgreiðsluverð í dag kr. 179.000
Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner” stíl.
Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt.
Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð