Morgunblaðið - 21.05.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
HVERAGERÐI — í tilefni 200 ára afmælis póstþjónustunnar kom starfsfólk Pósts
og síma austan Fjalls saman til kaffidrykkju í Eden. Hér er Garðar póstmeistari í
Hveragerði til borðs með 23 föngulegum vinnufélögum. — Ljósm ceore.
Arsrit
Vestmannaeyja:
BLIK
komið út
Frá frumflutningi kantötunnar 12. okt. 1975. Höfundur hennar, dr.
Hallgrfmur Helgason, stendur fremst á sviðinu og þakkar fyrir ágæta
uppfærslu.
50 ára afmæli skáta-
starfs á Akranesi
ÞANN 13. mal voru liðin 50 ár
síðan skátastarf hðst á Akranesi.
Skátar minnast þess með af-
mælismóti f landi Stóru-
Drageyrar f Skoradal 2—4. júlf
n.k. Þar verður mikil og fjöl-
breytt dagskrá.
Skátafélagið Væringjar var
stofnað 13. maí 1926. Það var
félag drengjaskáta. Fyrsti foringi
þess var Jón Hallgrímsson. Kven-
skátafélag Akraness var stofnað
25. marz 1928. Fyrsti foringi þess
var Svava Þorleifsdóttir. 2.
nóvember 1952 voru félögin sam-
einuð í eitt félag, Skátafélag
Akraness. Fyrsti félagsforingi
þess var Hans Jörgensson.
Skátastarf hefur yfirleitt verið
gott á Akranesi þessi 50 ár P’élög-
in hófu sameiginlega byggingu
skátaheimilis 1929. Var það mikið
átak á þeim tima og byggt af
bjartsýni. Þetta skátaheimili
hefur síðan verið stækkað og
endurbyggt. Það er nú lang-
stærsta og bezt búna skátaheimili
landsins. Félagið á einnig útilegu-
skála við rætur Akrafjalls, og
hljómsveit var skipuð 80 hljóðfæraleik-
urum
Konsertinn var ákaflega vel sóttur,
með á þriðja þúsund áheyrendum.
Hófst hann á forleik Wagners, Hol-
lendingnum fljúgandi Þá kom skozka
symfónian eftir Mendelssohn og að
síðustu Sandy Bar Var auðfundið, að
Ijóð Guttorms, eflt af kór, einsöngvara
og hljómsveit skirskotaði beint til
áheyrenda, enda þótt söngur kvæðis
færi fram á ensku, í þýðingu Páls
Bjarnasonar Eh kvæðið allt er tiu löng
erindi Þar af eru þrjár einsöngs-aríur,
en hin erindin sjö eru felld saman í
fimm kóra
Ummæli um tónverkið voru mjög á
einn veg Þannig segir ritstjóri Lög-
annan við rætur Skarðsheiðar. Þá
eru i byggingu sumarbúðir í landi
Stóru-Drageyrar í Skorradal. Þar
hafa skátarnir 700 metra strand-
lengju meðfram Skorradalsvatni.
Búið er að byggja þar hús, sem er
yfir 300 ferm að stærð og innrétta
hluta af því.
Skátarnir á Akranesi hafa
unnið mikið og gott starf fyrir
æskuna í bænum. Stjórn félagins
er nú skipuð ungu og bjartsýnu
fólki, sem mun halda merki
skátanna hátt.
Hallgrlmur Helgason.
BLIK, ársrit Vestmannaeyja, er
nú komið út í 32. sinn, en út-
gefandi er Þorsteinn Þ. Víglunds-
son fyrrverandi skólastjóri og
sparisjóðsstjóri í Vestmannaeyj-
um. BLIK er mjög vandað að
vanda, og í því eru fjölmargar
ritsmíðar um menn og málefni í
Eyjum. 21 grein er i Bliki og eru
þær flestar skrifaðar af Þorsteini
Þ. Viglundssyni, sem í áratugi
hefur ritað og komið á framfæri
þáttum úr sögu Vestmannaeyja.
Blik er 240 blaðsíður að stærð
með litprentuðum gosmyndum á
forsíðu.
Blik fæst hjá útgefanda og í
bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar og bókaverzlun Isafoldar.
Þorsteinn Þ. Vfglundsson.
Simmsalabimm heitir ný barna-
plata, sem hljómplötuútgáfan
Judas hefur gefið út. 11 lög eru á
plötunni og aðalsöngvarinn er 6
ára gömul stúlka, Ruth Reginalds.
Lög og textar á plötunni eru m.a.
eftir Gylfa Ægisson, Þorstein
Eggertsson, Magnús Kjartansson
og Vigni Bergmann.
Ruth tók þátt í gerð plötunnar
um Róbert bangsa, en á þessari
plötu syngur hún með stórri
hljómsveit og er eins og hún hafi
aldrei gert annað þótt ekki sé hún
eldri að árum.
Um frumflutning Sandy Bar
Bar, og á hún kannski eftir að geyma
betur minningu landnemanna en flest
annað, sem þeim hefur verið gert til
heiðurs þetta ár." í blaðmu Leader Post
lætur dr Howard Leyton Brown svo
um mælt: ..Menn risu úr sætum í virð-
ingarskyni og vottuðu fögnuð sinn
meðáköfu lófataki, bæði flytjendum og
höfundi tónverks Svo mjög voru
Framhald á bls. 23
Snæbjörg Snæbjarnardóttir
söngstjóri
— synfónískrar
kantötu eftir
Hallgrím Helgason
ÁRIÐ 1975 voru hundrað ár liðin
síðan íslendingar fyrst námu land í
Kanada Var af þvi tilefni efnt til
mikilla hátíðahalda í Winnipeg. í
kynningarriti um aldarafmælið segir,
að hámark hátiðar verði frum-
flutningur á symfónískri kantötu eft-
ir prófessor Hallgrim Helgason,
Sandy Bar.
Tildrög þessa viðburðar voru þau, að
formaður hátíðarnefndar, dr Thor-
björn Thorláksson. hafði um vorið
1 974 farið þess á leit við dr Hallgrím,
sem þá var enn prófessor við músik-
deild háskólans i Saskatchewan i
Kanada. að hann semdi tónverk i tilefni
þessarar aldarminningar Samkomulag
varð um að nota kvæði Guttorms J
Guttormssonar, Sandy Bar
Dr Hallgrímur ákvað að semja við
þetta eftirlætiskvæði Vestur-islendmga
kantótu fynr blandaðan kór. sóló-tenór
(rödd Guttorms sjálfs í eigin hug-
leiðingum) og stóra hljómsveit Hófst
hann þeyar handa og ritaði meginhluta
verksms í Kanada en lauk því hér, eftir
að hann aftur var horfinn heim
Frumuppfærsla fór fram á konsert í
Manitoba Centennial Concert Hall,
sunnudaginn 12 október 1975 í
Winmpeg Stjórnandi var fastur hljóm-
sveitarstjón Winnipeg Symphony
Orchestra, Piero Gamba, en
einsöngvari Reginald Frederickson,
vestur-islenzkur tenór, sem nú er
prófessor við háskólann i Edmonton i
Alberta-fylki í Kanada Winnipeg
Philharmonic Choir annaðist kórhlut-
verk allt, með 1 50 söngvurum, en
bergs-Heimskringlu í leiðara blaðsins
Aðfangadagur nýrrar aldar, 23 okt
1975 ,,Þá var samt enn eftir að birta
almenningi kantötu dr Hallgríms
Helgasonar, sem er byggð á Ijóði
Guttorms J Guttormssonar, Sandy
Skagfirzka söngsveitin:
íslenzk lög frumflutt
á samsöng á laugardag
SKAGFIRSKA Söngsveitin efnir
til samsöngs f Austurbæjarbíói
kl. 15 á morgun, laugardag, og í
Félagsbíói f Keflavfk laugar-
daginn 29. maf kl. 17. Þetta er í
fimmta sinn sem söngsveitin efn-
ir til opinbers samsöngs. Söng-
stjóri er Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir.
A söngskránni að þessu sinni
eru lög eftir Eyþór Stefánsson,
Maríu Brynjólfsdóttur og Skúla
Halldórsson, Offenbaeh,
Donizetti, Denza o.fl. Frumflutt
verður lag eftir Eyþór Stefánsson
lög eftir Maríu Brynjólfsdóttur.
Þá kemur fram kvennakór og
karlakór. Einsöngvari með
kvennakórnum er Snæbjörg Snæ
bjarnardóttir, söngstjóri. Ein-
söngvari með karlakórnum er
Þorbergur Jósefsson.
Eirísöngvari með söngsveitinni
er Hjálmtýr Hjálmtýsson og duett
með söngsveitinni syngja þær
Kamma Karlsdóttir og Margrét
Matthíasdóttir.
Undirleikari er Ólafur Vignir
Albertsson, píanóleikari, en Sig-
ríður Auðuns, píanóleikari, hefur
aðstoðað söngsveitina á æfingum.
Stjórn Skagfirzku söngsveitarinn
ar skipa: Gunnar S. Björnsson
formaður, Lovfsa Hannesdóttir,
varaformaður, Gestur Pálsson,
ritari og Margrét Eggertsdóttir,
gjaldkeri.
RUIH REGtMLPS
SIMMS4M8IMM
Simmsalabimm með
Ruth Reginalds