Morgunblaðið - 21.05.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21 MAI 1976
13
Fyrir skömmu fengu skátar nýja starfsstöð sem reist er í tengslum við (þróttabyggingu við Hagaskóla.
Myndin var tekin er æskulýðsráð heimsótti skátafélagið Ægisbúa f þetta nýja húsnæði. Á myndinni er
Tómas Grétar Ólafsson félagsforingi Ægisbúa að ræða við meðlimi Æskulýðsráðs Revkjavlkur, Davfð
Oddsson, Stein Jónsson, Bessf Jóhannsdóttur. Helgu Gröndal og Margréti Margeirsdóttur og tvo
starfsmenn ráðsins þá Hinrik Bjarnason og Kolbein Pálsson.
ryrst a félagsmiðstöð-
in sem teiknuð er og
W O
nönnuð sem slík í Arnæ
Viðtal við Davíð Oddson, formann Æskulýðsríðs Reykjavíkur
Á vegum æskulýðsráðs Reykja-
vfkur eru ýmis verkefni á döf-
inni á þessu ári. Er ætlunin að
opna f sumar nýja félagsmið-
stöð f kjallara Bústaðakirkju
sem væntanlega verður rekin
með Ifku sniði og Fellahellir f
Breiðholti.
Þá verður f sumar hafist
handa við byggingu nýrrar
félagsmiðstöðvar sem rfsa mun
f Arbæ og er hún jafnframt
fyrsta félagsmiðstöðin sem
teiknuð er og hönnuð til slfkrar
notkunar 1 miðstöðinni verða
nokkrar nýjungar s.s. að f stað
stiga verða skábrautir þannig
að fólk f hjólastóum um eiga
greiðan aðgang um húsið sem
aðrir.
Morgunblaðið hafði samband
við Davíð Oddsson og ræddi við
hann um framkvæmdir Æsku-
lýðsráðs.
Æskulýðsráð
— Æskulýðsráð fer með
æslulýðsmál í borginni í um-
boði borgarráðs. Þetta er sjö
manna ráð sem er raunveru-
lega einungis ráðgefandi og
getur ekki tekið endanlegar
ákvarðanir um peningaútgjöld
og framkvæmdir. Hins vegar
hefur það afgerandi áhrif á
mörkun stefnu í æskulýðs-
málum og fer með stjórn þeirra
stofnana sem undir það heyra.
Þær eru núna Fríkirkjuvegur
11 þar sem höfuðstöðvar ráðs-
ins eru en auk þess er það hús
lánað út til fundahalda og
félagsstarfsemi.
— Þá er Tónabær við Skafta-
hlíð. Það er dansstaður fyrir
unglinga. Má segja að hann sé
hinn eini sinnar tegundar í
borginni og sennilega landinu
öllu.
— Svo er það Fellahellir sem
er félagsmiðstöð i Breiðholti III
í kjallara undir Fellaskóla.
— I fjórða lagi er það svo
Saltvík á Kjalarnesi en þar fer
ekki fram nein eiginleg starf-
semi á vegum æskuliðsráðs
utan reiðskóli á sumrin í sam-
Frá borgarafundinum er
teikningar að félagsmið-
stöðinni f Arbæ voru kynntar.
Davfð Odsson og Margrét
Einarsdóttir sem var fundar-
stjóri.
vinnu við Fák. Hins vegar er
staðurinn mikið notaður til
helgardvalar af ýmsum félög-
um og samtökum.
— Þá er æskulýðsráð með
siglingaklúbb i Nauthólsvík og
er þar aðstaða til bátasmíða.
Nýjar félagsmiðstödvar
— I sumar gerum vió ráð
fyrir að opna nýja félagsmið-
stöð i kjallara Bústaðakirkju
gegnt útibúi borgarbóka-
safnsins. Þetta er 350 fm
húsnæði sem við vonumst til að
geta rekið með svipuðum hætti
og Fellahelli.
— En fyrsta félagsmiðstöðin
sem teiknuð er og hönnuð sem
slík verður reist í Árbæ. Hafa
teikningar af henni þegar verið
samþykktar i æskulýðsráði og
borgarráði.
— Æskulýðsráð samþykkti í
nóvember 1974 að reisa æsku-
lýðsmiðstöð í Árbæ en áður
höfðu verið ýmsar bolla-
leggingar um það með hvaða
hætti húsnæðisvandræði undir
félagsmálastarf i hverfinu yrði
leyst.
— Það hefur verið gott sam-
starf við ýmsa aðila í hverfinu
um undirbúning þessa máls og
er teikningar voru kynntar f jöl-
mennum borgarafundi nú fyrir
skömmu var samþykkt þar til-
laga þar sem lýst var yfir
stuðningi við þessar fram-
kvæmdir.
— Meginmarkmiðið með
þessari félagsmiðstöð er að
vera samastaður fyrir félagslif
innan hverfisins.
— Það hefur stundum komið
upp sá misskilningur að æsku-
lýðsráð ætli sér með slíkum
miðstöðvum að koma á fót víð-
tækri eigin starfsemi þar.
Markmiðið er hins vegar þver-
öfugt, félagsmiðstöðinni er
ætlað að vera athvarf fyrir þau
félög sem þegar eru starfandi i
hverfinu og skapa skilyrði fyrir
tilurð og starf fleiri félaga.
Enda er það reynslan t.d. í
Fellahelli að þar er starf æsku-
lýðsráðs um 25% af starf-
seminni en starf frjálsrá félaga
tæplega 75% En samkvæmt
samþykktum sínum hefur
æskulýðsráð skyldur við þá sem
ekki eru starfandi i neinum
félögum og grípur þar inn i sem
ekki eru önnur félög fyrir í
starfi.
— Félagsmiðstöðin i Árbæ
verður tæplega 800 fm stór og
þar er aðstaða til föndurs og
fundahalda í nokkrum her-
bergjum. Þá eru samkomusalur
og leikjasalur um 130 fm hvor
og siðan dálitil kaffistofa í
miðju hússins. Þá er ætluð sér-
stök álma fyrir skáta starf,
tæpir 100 fm en skátar hafa
tilhneigingu til að vera út af
fyrir sig með sitt starf en jafn-
framt eiga þeir möguleika á að
taka þátt í annarri sameigin-
legri starfsemi innan stofn-
unarinnar.
— Sú nýjung er i þessu húsi
að miðja hússins frá austri til
vesturs er umferðarleið sem
einkennist af skábrautum i stað
venjulegra stiga Með þessu er
hægt að tryggja að allir eigi
jafn greiðan aðgang um húsið
Framhald á bls. 23
Spurningar til menntamála-
ráðherra frá námsmönnum
SÁ HÓPUR íslenzkra náms-
manna, sem fyrir skömmu
kom sér fyrir I fslenzka sendiráð-
inu í Kaupmannahöfn og dvaldi
þar einn sólarhring, sendi
menntamálaráðherra nokkrar
spurningar á meðan hann dvaldi f
sendiráðinu. Morgunblaðið hefur
nú fengið þessar spurningar en f
skeyti til menntamálaráðherra
var sagt að námsmennirnir væntu
skjótra og greinargóðra svara.
Spurningarnar fara hér á eftir.
„Er það álit menntamálaráð-
herra að fjárhagslegt jafnrétti til
náms aukist nái frumvarp þetta
fram að ganga? Sé svo, þá hvern-
ig?
Á hvern hátt telur ráðherra að
með samþykkt frumvarpsins
verði námsfólki loksins tryggð út-
hlutun námslána á auglýstum
tíma?
Hvaða útreikningar hafa verið
gerðir um hlutfallslega inn-
heimtu lánanna samkvæmt
endurgreiðsluákvæðum frum-
varpsins og hverjar eru niðurstöð-
ur þeirra útreikninga?
Er það stefna ríkisstjórnarinn-
ar að námslán verði gerð að óhag-
stæðustu lánum ríkissjóðs? Ef
ekki, hvaða lán eru þá veitt á
lakari kjörum?
í lok skeytis til menntamálaráð-
herra er farið fram á það að ráð-
herra svari þessum spurningum
opinberlega.
Gunnars Majones 600 gr. 298
Ora grænar baunir 1/1 dós kr. 161
Smjörlíki 1 stk. 121
Appel- sínur 2 kg. 260
1/2 dós
Perur 129
1 kg.
Sykur 135
50 kg.
Sykur V >25 O
Opið til 10 í kvöld
og hádegis á morgun
NÆG BÍLASTÆÐI
bw
SKEIFUNNI 151■ SIMI 86566
)