Morgunblaðið - 21.05.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
17
Brezkar frei-
gátur styrktar
London 20. maí.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
BREZKI flotinn er nú að útbúa
freigátur úr brezka flotanum með
vmsu móti til að þær séu til taks í
þorskastríðinu, að því er tals-
maður varnamálaráðuneytisins
sagði f dag. Freigátan Jaguar,
sem er 2.250 tonn að stærð, hefur
verið styrkt sérstaklega með tré-
verki við stefni og skut og treyst
með sandpokum, að sögn hans.
Önnur freigáta, Lincoln, verður
einnig gerð þannig úr garði, að
þvf er heimildir innan flotans
höfðu fyrir satt.
Bæði skipin hafa viðbúnar
áhafnir til að taka við þeim þegar
þörf gerist. Þessar aðgerðir
flotans fylgja í kjölfar árekstra í
þorskastríðinu á íslandsmiðum,
en i þeim hafa nokkrar brezkar
freigátur orðið fyrir umtalsverð-
um skemmdum. Talsmaður
flotans sagði að hlutverk Jaguars
yrði einvörðungu „varnastarf“ og
myndu sendar á vettvang til að
leysa aðrar af sem hefðu lokið
ákveðnum tíma við íslands-
strendur.
Fleiri skærulið-
ar inn 1 Ródesíu
Salisbury 20. maí. AP
VARNARMALARAÐHERRA
Ródesfu sagði f dag, að rösklega
eitt þúsund svartir skæruliðar
þjóðernissinna hefðu farið inn f
Ródesfu frá stöðvum f Mósambik.
Van der Vyl varnarmálaráðherra
sagði þetta í viðtali við sænska
sjónvarpsmenn sem var flutt f
Salisbury í dag. Hann sagðist
búast við þvf að enn fleiri skæru-
liðar myndu fara inn f Ródesfu og
styrkja vfglfnu sfna meðfram
landamærum rfkjanna.
Tvö hundruð og sex skæruliðar
og 38 Ródesíumenn, flestir lög-
reglumenn og hermenn hafa
látist í bardögum í grennd við
Hundur
réðst á
hákarl
Bisbane,
AP
Astralíu, 20. mai
Fjölskylduhundurinn Dollar
barg í dag lífi fjögurra ára
gamals drengs er varð fyrir
árás hákarls er hann var
staddur á baðströnd. Drengur-
inn Tammy sem er fjögurra
ára hafði vaðið allangt út og
réðst hákarlinn á drenginn.
Hundur fjölskyldunnar sem
var með í strandferðinni réðst
þá til atlögu við hákarlinn og á
meðan tókst föður drengsins
að ná syni sínum á land og
siðan heppnaðist einnig að ná
bjargvættinum lítt sárum til
lands.
Síðan var lagt til atlögu við
hákarlinn og var ráðið niður-
lögum hans i morgun að því er
AP-fréttastofan segir.
landamærahéruðin það sem af er
þessu ári.
Ráðherrann sagði að hann væri
sannfærður um að herinn myndi
fullkomlega fær um að brjóta
skæruliðana á bak aftur og lofaði
þann góða anda sem ríkti meðal
hvítra hermanna Ródesíu. Hann
sagði að það væri rangnefni að
kalla þessa innrásarmenn skæru-
liða því að hér væru á ferðinni
hættulegir hryðjuverkamenn
kommúnista.
Þá segir I AP-fréttum frá
Washington að stjórnin þar herði
nú á tilraunum sínum að fá Ian
Smith, forsætisráðherra Ródesíu,
til að setjast að samningaborði
með það fyrir augum að svert-
ingjar fái síðan meirihlutaaðstöðu
í stjórn landsins.
FLÓÐVARNIR — Hundruð manna vinna við smíði flóðgarða meðfram vestri
bakka Brahmaputra í Bangladesh. Verkið er unnið með stuðningi alþjóðlegrar
matvælastofnunar, WFP. Á vegum hennar vinna tvær milljónir manna við viðgerð
á áveitukerfum í Bangladesh. AP
Hundruð handteknir í
Sýrlandi vegna kurrs
Beirút, 20. maí.
Reuter. AP.
ALLT að 400 Sýrlendingar hafa
verið handteknir fyrir að gagn-
rýna hlutverk sýrlenzka herliðs-
ins I Lfbanon og gagnrýnin hefur
valdið sýrlenzku stjórninni alvar-
Námafyrirtæki vilja
hraða lagasetningu
Washington, 20. mai. AP.
BANDARlSK námafyrirtæki
hafa hvatt til þess að hraðað verði
lagasetningu, þar sem kveðið er á
um leyfi til að leita að málmum
og öðrum auðlindum og nýta þær,
segir f AP-frétt f dag. Rfkisstjórn-
in hefur hvatt til að beðið verði
með að setja slfk lög unz niður-
staða hefur fengizt af hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Nýting auðlinda innan væntan-
legra 200 mflna lögsögu Banda-
rfkjanna yrði gerð með fjárstuðn-
ingi stjórnarinnar.
Marne A. Dubs talsmaður sam-
taka þeirra sem þarna eiga hlut
að máli skýrði mál sitt fyrir þeim
nefndum öldungadeildar Banda-
ríkjaþings sem um,'málið hafa
fjallað og munu fjalla um það í
dag og sagði hann að tæknilega
séð væri ekkert þvf til fyrirstöðu
að herða á slikri vinnslu og leit en
fjármunir væru ekki enn til
reiðu. Aftur á móti sagði talsmað-
ur bandaríska fjármálaráðuneyt-
isins að hyggilegra væri að biða
alþjóðlegs samkomulags þar sem
kveðið væri á um allt slíkt og
veruleg áhætta gæti verið því
samfara að þraða sér um of. Hann
sagði að einhliða gerð nú af hálfu
þingsins gæti reynst harla vafa-
söm og skapað óhagstætt for-
dæmi. Ef hins vegar ekki næðist
alþjóðleg samstaða á næsta fundi
hafréttarráðstefnunnar, mætti
síðan íhuga til hvaða ráða væri þá
jákvæðast að grípa.
legum erfiðleikum samkvæmt
áreiðanlegum heimildum f Beirút
í dag.
Þessir erfiðleikar geta verið ein
ástæðan til þess að frestað hefur
verið fyrirhuguðum fundi i
Saudi-Arabiu þar sem Sýr-
lendingar og Egyptar ætluðu'að
reyna að jafna ágreining sinn.
Önnur ástæðan getur verið bak-
tjaldamakk forsætisráðherra
Líbýu, Abdel-Salam Jalloud, sem
hefur farið þrívegis til Sýrlands
undanfarna daga og einnig farið
til Líbanons og íraks.
Fundinum í Saudi-Arabíu var
aflýst þegar Jalloud hafði tvisvar
sinnum farið til Sýrlands. Annars
er allt á huldu um tilganginn með
ferðalagi fians.
Palestínski skæruliðaforinginn
Yasser Arafat fór til Damaskus í
dag til viðræðna við Hafez A1
Assad forseta eftir fund sinn í
gærkvöldi með Elias Sarkis
nýkjörnum forseta og< sósialista-
foringjanum Kamal Junblatt,
fyrsta fundinn sem þeir hafa
haldið siðan stuðningsmenn
Junblatts reyndu að koma í veg
fyrir kosningu Sarkis með stór-
skotaárásum á svæðum umhverfis
þinghúsið.
Sarkis stakk upp á 48 tima
vopnahléi og viðræðum um lausn
deilunnar. Tilkynnt var að
Junblatt hefði samþykkt tillög-
una, en seinna var sagt að hann
hefði hafnað henni.
I hafnarborginni Tripoli hótaði
leiðtogi Líbanska Arabahersins
þar, Ahmed Maamari majór, að
hertaka Zagharta, heimabæ
Suleiman Franjieh forseta. Hann
sakaði hann um að bera ábyrgð á
dauða 20.000 manna og gaf hon-
um vikufrest til að segja af sér.
Hægrimenn og vinstrimenn
sögðu hvorir tveggja frá skotbar-
dögum á vígstöðvunum i nótt en
þeir hjöðnuðu þegar á daginn
leið.
„Njósnamálið”
í Bretlandi:
Callaghan telur víst að
rógsherferðin sé staðreynd
London 20. maí. Reuter.
JAMES Callaghan, forsætisráð-
herra Breta sagði I fyrirspurna-
tfma f neðri málstofunni f dag, að
allt benti til að einhverjir aðilar
væru með rógsherferð á hendur
stjórnmálamönnum úr röðum
Frjálslynda flokksins, þó svo að
sfðustu tilraunir f þessa átt hefði
orðið almennt hlátursefni.
Forsætisráðherrann var að
svara spurningum um staðhæf-
ingar i þá veru að útsendarar frá
Suður-Afríku væru að reyna að
eyðileggja orðstír þingmanna
Frjálslynda flokksins, en flokkur-
inn er mjög andvígur stefnu
stjórnar Suður-Afríku i kynþátta-
Callaghan sagði að þrátt fyrir
skens sem gert hefði verið að mál-
um þessum, þegar upp komst um
eina tilraunina, væri ljóst að
hverju viðleitnin beindist. Hann
sagði að á þessu stigi myndi hann
ekki geta tjáð sig um, hverjir
væru grunaðir um að vera upp-
hafsmenn málsins. öryggisþjón-
ustan kannaði nú málið og þær
skýrslur sem gerðar hefðu verið.
Orð Callaghans urðu til að færa
sérkennilegt mál og býsna fráleit-
legt inn á alvarlegra svið, segir í
frétt Reuter-fréttastofunnar.
Upphaf málsins er að dularfullur
maður, sem kallaði sig Frederick
Cheesman ofursta, sagði i sjón-
varpsviðtali að hann væri fyrrver-
andi foringi í bandarisku leyni-
þjónustunni og leyniþjónusta
Suður-Afríku hefði óskað eftir
því að hann legði henni lið í
ófrægingarherferð á hendur
nokkrum þingmanna Frjálslynda
flokksins. En Cheesman þessi við-
urkenndi i gær að saga hans væri
tilbúningur frá upphafi til enda.
Nágrannar hans í heimaþorpi
hans í Suður-Englandi, eru nú
sagðir með hlátursköst vegna að-
ildar hans að þessu furðulega
máli, sem slegið hefur verið upp í
öllum helztu blöðum i Englandi
síðustu daga. Cheesman gaf þá
skýringu á framferði sinu að
hann hefði orðið að gera eitthvað
til að vekja athygli á sjálfum sér.
Hann hefði verið alvinnulaus sið-
ustu þrjú ár og fjölskylda hans
búið við sult og seyru.
Áður hafði hann sagt að suður-
afríska íeyniþjónustan hefði sýnt
honum skýrslur um ýmsa þing-
menn Frjálslynda flokksins.
Hann viðurkenndi einnig i gær að
þetta væri allt saman uppspuni
frá rótum.
Cheesman birtist í sviðsljósinu
eftir að Guardian hefði sakað suð-
urafriskan diplómat fyrir að hafa
gert tilraun til að komast yfir
eintak af klámmynd, en sagt var
að brezkur stjórnmálamaður
kæmi fram i mynd þessari.
Landhelgis-
mál rædd i
lávarðadeild
London 20. maí
Einkaskeyti til Mbl. frá AP
CAMPELL lávarður sagði i
lávarðadeildinni í gærkvöldi,
að ekki ætti að biða með að
lýsa yfir 200 milna efnahags-
lögsögu og 12 mflna landhelgi.
Lávarðurinn hóf umræður um
hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í lávarðadeildinni og
sagði að fiskveiðiþjóðir ættu
ekki að hika með aðgerðir
sínar enda þótt landlukt og
landfræðilega afskipt riki
gerðu tilraunir til að tefja
framgang málsins.
Grononwy Roberts lávarður
sagði að 200 mílna efnahags-
lögsaga ætti vaxandi fylgi að
fagna. Um önnur atriði sagði
hann að Bretar ættu að leitast
við eftir föngum að ná mála-
miðlun. Hann ítrekaði rök
stjórnarinnar við 100 mílna
einkalögsögu rikja Efnahags-
bandalags Evrópu. Campell
lávarður, sem er fyrrverandi
ráðherra Skotlands, hafði fyrr
i umræðunum vísað harðlega á
bug gagnrýni skozkra þjóð-
ernissinna á aðgerðum Breta
við ísland. Hann sagði, að i
bréfi til forsætisráðherrans
hefði formaður flokksins,
William Woolf, ásakað flotann
um að stunda ásetningsárásar-
aðgerðir, meðal annars að sigla
visvitandi á íslenzk varðskip.
Campell lávarður sagði, að
Woolf væri bersýnilega fá
fróður um freigátur Breta. þar
sem þær væru ekki gerðar til
slíks. Kvaðst hann vona að for
sætisráðherrann tæki þarna af
öll tvímæli i svari sínu.