Morgunblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
21
Skip Eimskips komu 830 sinnum
á 90 hafnir í
17 þjóðlöndum
Heildartekjur félagsins
5,3 milljarðar á sl. ári
AÐALFUNDUR Eimskipafélags íslands var haldinn í gær. I ræSu
formanns stjórnar, Halldórs H. Jónssonar, kom fram aS tap varS á
rekstri félagsins eSa sem nam 1 7 milljónum króna en þá hafSi veriS
afskrifaS af eignum þess 600 milljónir króna. Heildartekjur félagsins
áriS 1975 voru 5.340 milljónir króna en voru 3.628 milljónir áriS
áSur. Heildargjöld án fyrninga voru á sl. ári 4.756 milljónir króna, en
3.247 milljónir áriS áSur. Rekstrarútgjöld námu sem næst 13 milljón-
um króna hvem dag ársins 1975.
Á aSalfundinum var samþykkt aS greiSa hluthöfum 13% arS.
Jafnframt voru samþykktar tillögur um aS auka hlutafé félagsins um
10%, og fól fundurinn félagsstjórn aS leita til núverandi hluthafa um
þessa hlutfjáraukningu. Skal hluthöfum gefinn kostur á aS kaupa
aukningarhlutí á nafnverSi í réttu hlutfalli, þ.e. 10% viS hlutafjáreign
þeirra og er forkaupsréttur hluthafa til 31. desember. Þá var ákveSiS
aS félagiS neytti þeirrar heimildar I skattalögum um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa, þannig aS hlutafé félagsins er tvöfaldaS — úr 210.6
milljónum i 421,2 milljónir kr. Á útgáfa jöfnunarhlutabréfa aS fara
fram fyrir lok þessa árs. Þá staSfesti aSalfundurinn endanlega fækkun
stjórnarmanna úr 9 i 7, þar eS V-íslendingar hafa afsalaS sér aS eiga
fulltrúa I stjóm félagsins, eins og fram kom á aSalfundinum ifyrra.
Efri myndin: Halldór H. Jónsson flytur skýrslu stjómar. NeSri myndin: Hluthafar á aSalfundi Eimskipafélagsins i
gœr.
Sjöföldun byggingar-
kostnaðar á 5 árum
I ræðu formanns kom ennfremur
fram, að hagnaður af rekstri
félagsins er miklu lægri en hann
þyrfti að vera til að mæta eðlilegri
endurnýjun skipaflotans til að geta
komið við fyllstu hagræðingu og til
að eignir félagsins bæru eðlilegan
arð. Hann kvað innlenda verðbólgu
og erlenda hafa i för með sér svo
örar hækkanir að afskriftir mættu
ekki kostnaði við endurnýjun hvað
þá uppbyggingu Nefndi hann sem
dæmi um þá hækkun er orðið hefði
á byggingarkostnaði skipa, að þegar
Goðafoss og Dettifoss voru smíðaðir
í Álaborg 1970, kostuðu skipin um
200 milljónir króna, en mundu nú
kosta um 1 400 milljónir hvort skip,
þannig að hér væri um að ræða
sjöföldun á byggingarkostnaði skipa
á 5 árum
Um efnahag félagsins kom fram,
að hann er mjög góður miðað við
islenzkar aðstæður í árslok 1975
námu eignir félagsins 4.725
milljónum króna en skuldir að með-
töldu hlutafé 4.496. Bókfærðar
eignir umfram skuldir námu þannig
í árslok 229 milljónum króna en i
árslok 1974 258 milljónum. Skip
félagsins 20 að tölu eru i árslok
1975 bókfærð á 2.072 milljónir
króna en voru i árslok 1974 19 að
tölu bókfærð á 1 745 milljónir
króna Fasteignir eru bókfærðar á
680 milljónir króna en voru 1974
537 milljónir, og hlutafé félagsins
var I árslok 203 milljónir, þar af á
félagið sjálft 1 7 8 milljónir
22 skip sigldu 971 sjómílu
Skip Eimskipafélagsins annast nú
91% af flutningum félagsins. Árið
1975 voru alls 22 skip í förum á
vegum E í. og fóru 333 ferðir milli
íslands og útlanda. Eigin skip fé-
lagsins 20 að tölu, fóru 300 ferðir
milli landa en það er 49 ferðum
fleira en árið áður en leiguskipin tvö
fóru 33 ferðir, sem er 41 ferð færra
en árið áður Skip félagsins sigldu
898 þúsund sjómílur á árinu milli
landa en 73 þúsund sjóm. milli
hafna innanlands. Alls komu skip
félagsins og leiguskip þess 830
sinnum á 90 hafnir í 1 7 löndum og
878 sinnum á 48 hafnir úti á landi
Á sl. ári voru vöruflutningar með
skipum félagsins og leiguskipum
þess samtals 529 þúsund tonn en
voru 540 þúsund tonn árið áður,
þannig að flutningarnir hafa dregizt
örlítið saman hvað þyngd viðvikur
en aukizt talsvert miðað við rúmmál
vörunnar
Þreföldun geymslurýmis á
10 árum.
Veruleg aukning hefur orðið á
vörugeymslurými Eimskipafélagsins
á undanförnum árum Arið 1966
eða fyrir réttum áratug var eigið
vörugeymslurými félagsins undir
þaki 1 1.386 fermetrar og útisvæði
37.449 ferm. en nú er rýmið undir
þaki 38 486 fermetrar, að mestu
vönduð steinsteypt vörugeymsluhús
en útisvæði er 101 718 fermetrar,
þar af 47 859 fermetrar malbikaðir,
sem ekki þekktist fyrir áratug Vöru-
pallar eru nú 26 þúsund talsins.
samtals 6 7 860 fermetrar og gámar
í eigu félagsins eru 980 og er rúm-
mál þeirra 1 5 400 rúmmetrar Vél-
knúin tæki í eigu félagsms eru 1 25
Samkvæmt hluthafaskrá var
hlutafé Eimskipafélagsins í árslok
rétt tæpar 203 milljónir kr og
skráðir hluthafar um 12 þúsund
Með þeirri samþykkt aðalfundarins
að tvöfalda hlutafé félagsins með
jöfnunarhlutabréfum, hefur hlutafé
EÍ verið 120 faldað sl 15 ár Auk
þess hefur verið samþykkt að bjóða
út nýtt hlutafé að upphæð 40 millj
króna eða 10% af hlutafé eftir
hækkun
E.í. kaupiS skip E.R.
Eimskipafélagið hefur átt nær öll
hlutabréf Eimskipafélags Reykjavík-
ur frá því 1 970 en félagið átti þá ms
Öskju í febrúar í ár keypti E.R
Skeiðsfoss og nú hefur stjórn Eim-
skipafélags Íslands ákveðið að félag-
ið kaupi bæði þessi skip í eigu
Eimskipafélags Reykjavikur. þar
sem sýnt er að verulegt hagræði
fylgir því að reksturinn heyri undir
Framhald á bls. 20
Skip Eimskipafélags íslands ásamt siglingaleiSum til erlendra hafna.
Geislarannsöknartæki
gefið Landakotsspítala
Oddfellowstúkan Hallveig I Reykja-
vik afhenti Landakotsspitala i gær
að gjöf sjálfvirkt rannsóknatæki sem
mælir geislavirk efni. Jóhanni L.
Jónassyni yfirlækni rannsóknadeild-
ar spítalans fórust svo orð i ávarpi
eftir afhendingu gjafarinnar, en með-
fylgjandi myndir eru af tækinu og
-athöfninni við afhendingu þess:
„í framhaldi orða dr Bjarna Jóns-
sonar yfirlæknis vil ég víkja nokkuð
nánar að þessari höfðinglegu og kær-
komnu gjöf, sem er BIOGAMMA-
ANALYZER, framleiddur hjá fyrir-
tækinu BECKMAN og er að verðmæti
u þ b 3.7 millj króna
Þetta er sjálfvirkt rannsóknatæki,
sem mælir geislavirkpi (gamma geisla),
en geislavirk efni eru nú i mjög vax-
andi mæli notuð til lækningarann-
sókna og veita þannig ómetanlega
hjálp við sjúkdómagreiningu og sjúk-
dómarannsóknir Á þetta jafnt við
sjúklinga innan sjúkrahúsa sem utan,
jafnt fyrir heimilislækna sem sér-
fræðinga
Þessi gjöf opnar þvi nýtt svið hér á
Landakotsspitala. Ég ætla ekki að
reyna að telja upp allar þær rannsókn-
ir, sem tækið gerir mögulegar, þvi að
eriiðara yrði að hætta þeirri tölu en
hefja En i stórum dráttum má segja að
kostirnir séu tviþættir, annars vegar að
gera mögulegar ýmsar rannsóknir sem
áður hefur þurft að senda til annarra
landa, svo sem sumar hormónarann-
sóknir, hins vegar að leysa af hólmi
sumar eldri rannsóknir með
nákvæmari og fljótvirkari aðferð Fyrst
og <remst verður tækið notað til blóð-
rapnsókna
Aðeins 5 ár eru siðan við vorum
hér samankomin við svipað tækifæri
Nú hafið þið rennt enn einni styrkri
stoð undir starfsemi Landakotsspitala
og lækningaþjónustu i landinu Ég
vona að þakklæti þeirra, sem njóta
munu gjafarinnar verði Oddfellow-
stúku ykkar HALLVEIGU styrkur um
ókomin ár "