Morgunblaðið - 21.05.1976, Síða 23

Morgunblaðið - 21.05.1976, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976 23 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Sumarhús kvenfélags Öldunnar er til leigu fyrir félagskonur. Nánari uppl. i simum 35644, 38206, 42468. Til leigu skrifstofuhúsnæði til leigu í Bolholti 4. Uppl. í símum 30520 og 1 7912. tapaö fundiö Kvenarmbandsúr tapaðist þriðjud. 11. þ.m. sennil. i Háaleitishverfi, Hliðahv. eða strætisvagni leið nr. 8. Skil- vís finnandi vinsaml. hringi i sima 82856. Hestaeigendur athugið Get bætt við mig 30 hrossum i árs hirðingu. Fast verð aðeins 30 þús. sem greiðist við móttöku. Tilboð sendist i póstbox 6, Horna- firði. Verzlunin hættir Allar vörur seldar með mikl- um afslætti. Barnafataverzlunin Rauðhetta Iðnaðarhúsinu v/Hallveigar- stig. Ódýrt — Ódýrt Nýir kjólar frá kr. 5.900 Dragtin, Klapparstíg 37. Ibúð í Kópavogi 2ja til 4ra herb. rbúð óskast til leigu. Uppl. í kvöld og næstu kvöld i sima 40502 eftir kl 18. Steypum bílastæði gangstéttir og heimkeyrslúr. Girðum einnig lóðir. Simi 71381. Heybindivél til sölu Upplýsingar i sima 99-31 86, milli kl. 7 og 8 i kvöld. Góð mold til sölu Heimkeyrð i lóðir. Uppl. i síma 42001 og40199. Pipulagnir Tek að mér viðgerðir, breyt- ingar og uppsetningu Dan- foss ofnhitastilla, einnig ný- lagnir. Simi 44114 kl. 12—13 og 20—22. Glæsileg kökusala að Hallveigarstöðum laugar- dag 22. maí frá kl. 2. e.h. Félag einstæðra foreldra. Tvær kristilegar myndir verða sýndar í Tjarnarbæ (áður Tjarnarbíó) laugardaginn 22. maí kl. 2.00. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill á meðan húsrúm leyfir. i.o. G.T. Þingstúka Reykjavíkur hefur fund í kvöld, föstudag 21. mai kl. 8.30. Kosnir verða fulltrúar á stórstúkuþing og Umdæmísstúkuþing. / ' Islands , j ölduflotu 3 11798og 19533 Föstudagur 21.5 kl. 20.00 Þórsmerkurferð. Miðasala og upplýsingar á Skrifstof- unni. Laugardagur 22.5. kl. 13.00 Ferð á sögustaði í nágrenni Reykjavíkur. Stansað m.a. við Þinghól, Gálgakletta, Skansinn og Garðakirkju á Alftanesi. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson sagnfræðingur. Verð kr. 600 gr. v/bilinn. Lagt upp frá Umferðamið- stöðinni (að austanverðu). Ferðafélag íslands. Laugard. 22/5 kl. 13 Seljadalur, létt ganga í fylgd með Tryggva Halldórssyni. Verð 500 kr. Sunnud. 23/5 Kl. 10 Gengið úr Vatnsskarði um Fjallið eina, Máfahliðar, Grænudyngju og Trölla- dyngju. Fararstj. Gísli Sig- urðsson. Verð 900 kr. Kl. 13 Keilir. Fararstj. Þorleifur Guð- mundsson. Sogin létt ganga. fararstj. Friðrik Danielsson. Verð 700 kr., frítt fyrir börn i fylgd með fullorðnum. Brottför frá B.S.Í., vestan- verðu. Aðalfundur Útivistar verður á Hótel Sögu, Bláa Salnum, kl. 20.30 i kvöld (föstudag 21 /5). Útivist. radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar húsnæöi óskast Lagerhúsnæði Lagerhúsnæði óskast strax. Má gjarnan vera óeinangrað og óupphitað. Stærð 100—200 fm. Aðkeyrsla nauðsynleg. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Lagerhús- næði — 3959". Iðnaðarhúsnæði Okkur vantar ca 300 ferm. húsnæði fyrir léttan og mjög þrifalegan iðnað. Vinsam- legast sendið nafn yðar merkt „perma" 3958 til Mbl., svo við getum haft sam- band við yður. VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK Í Z3 ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LÝSIR í MORGUNBLAÐINU — Æskulýðsráð Framhald af bls. 13 hvort sem þeir eru heilbirgðir eða búa við einhverja fötlun. Mun þetta vera f fyrsta sinn sem bygging í eigu hins opin- bera er hönnuð með þessu móti. Má því segja að hér sé um tíma- mótahúsnæði að ræða hvað þetta snertir. — Byrjað verður á bygging- unni nú í sumar og ég vona að húsið verði mjög langt komið eða jafnvel búðið um áramótin 1977—78. Úttekt á húsnæði til félagsstarfsemi — Það er stefna borgaryfir- valda að koma upp slikum stöðvum sem víðast í hverfum borgarinnar Vmsum kann því að þykja það skjóta skökku við að byrja á slíku i tiltölulega nýju hverfi, þar sem eldri hverfin hafa orðið um langa hrið að vera án slíkrar þjónustu. Skýringin er sú að i gömlu hverfunum er þegar komin upp ýmiss konar hús- næði fyrir félagsstarf, á vegum félaga og einstaklinga, sem gera þörfina e kki eins brýna og í tiltölulega einangruðum hverfum eins og Arbæ og Breiðholti. — Æskulýðsráð hefur ákveðið að gera ýtarlega úttekt á húsnæði félagsstarfsemi í hinum ýmsu borgarhverfum og miða framtíðarverkefni sín við niðurstöður þeirrar úttektar. — Ég held að tilhögun slíkrar niðurstöðu sé mjög til þess fallin að ýta undir frjálsa félagsstarfsemi vegna þess að dugmiklir foringjar slíkra félaga hafa iðulega orið að eyða dýrmætum tíma sínum í að koma þaki yfir félög sín og hafa þá haft minni tima en ella til beins starfs. — Þá hefur æskulýðsráð unnið að tillögu um styrktar- reglúr til frjálsra félaga og vona ég að frá þeim verði end- anlega gengið á þessu ári svo að þær komist í gagnið á næstu fjárhagsáætlun. Er ég sann- færður um að þær verði félög- unum mjög til framdráttar í þeirra starfi. AH. flutning Framhald af bls. 12 menn gagnteknir af flutningnum Þetta verk er i níu köflum og er frábærlega vel skrifað með þvi að nota til fullnustu alla valda krafta, hljómsveit, kór og einsöngvara. Þannig er það trygging fyrir þvi, að flutningur verði oft endur- tekinn, þar sem verkið er viðbót við þaer tónbókmenntir, sem sannarlega endurgjalda riflega hverskyns fyrir- höfn. Sem heild var uppfærslan mjög mikill ávinningur öllum þeim, sem áttu þvi láni að fagna að geta verið við- staddir." Framhald af bls. 19 „Af viðræðum mínum við for- ráðamenn fisksölumála í Bandaríkjunum gat ég ekki skilið annað en hugsanlegt væri að stórauka sölu frystra sjávar- afurða frá lslandi þar i landi í nánustu framtíð," sagði Guð- mundur. „Mér fannst t.d. vera mjög létt hljóð I umboðsmönn- um okkar og gæta mikillar bjartsýni varðandi framtíðar- horfur á sölu frystra sjávaraf- urða þangað. Eins og komið hefur fram hefur orðið stöðug magnaukning í sölu frysts fisks þangað undanfarið og þrátt fyr- ir að fiskblokk lækkaði veru- lega um tima, þá held ég að megi segja þegar litið er yfir lengri tima, að verðlag hafi stöðugt farið hækkandi. Þeir aðilar sem ég ræddi við vildu að sjálfsögðu engu spá um hvort vænta mætti frekari hækkana en í því sambandi verður að hafa I huga, að fiskurinn á i harðri samkeppni við aðrar teg- undir matar, svo sem kjúklinga og kjöt, sem getur eðlilega haft veruleg áhrif. Hins vegar heyrðist mér á flestum að þörf væri á meiri fiski á markaðnum og var ekki sízt átt við þær tegundir sem við Islendingar framleiðum." Guðmundur var spurður að því hvort hann teldi möguleika á því, að Bandaríkjamenn gætu orðið sjálfum sér nógir i fisk- öflun og framleiðslu i náinni framtið eftir útfærsluna í 200 mílur. „Slíkt tel ég mjög ólik- legt,“ sagði Guðmundur. „Ástæðan fyrir því er sú, að sjávarútvegi Bandaríkjamanna hefur hnignað mjög á sl. tveimur áratugum og það hefur orðið lítil endurnýjun á fiski- skipum þeirra, ef undan eru skilin mjög fullkomin túnfisk- veiðiskip á vesturströndinni. Það hefur orðið æ erfiðara að fá hæfa og góða fiskimenn á þennan úrelta fiskiskipaflota og þess vegna hefur eigin afli þeirra minnkað stöðugt. Banda- ríkjamenn eru þannig orðnir mjög háðir innflutningi, því að ef ég man rétt þá er það ekki nema um aldarfjórðungur frá því að þeir gátu séð sér sjálfir fyrir 80—90% af þörfinni á þeim fisktegundum sem Is- lendingar og aðrar Evrópuþjóð- ir selja þangað núna, en siðan hefur þetta dæmi algjörlega snúist við.“ —Þekktur leikari Framhald af bls. 11 heldur Tékka i erlendri mynd. Alls hefur hann 35 sinnum leikið aðalhlutverk i kvikmynd og sagði hann að honum byðust tækifæri til að leika í mun fleiri myndum. Það taldi hann hins vegar óheppi- legt þar sem slíkt kæmi niður á gæðunum. Héðan heldur Kuznetsov til Od- essa þar sem hann mun vinna að enn einni mynd. Eins og áður sagði er fyrri myndin í kvöld i Háskólabíói en hin seinni I Laugarásbiói annað kvöld. — Kiwanis Framhald af bls. 24 og markmiðið var að stofna hér á landi alþjóðasamband eigin- kvenna Kiwanismanna, Ki-wives internatiopal, sem síðan varð að veruleika 1. maí sl. við hátíðlega athöfn i Kiwanishúsi Vestmanna- eyinga. 4. maí voru bandarísku full- trúarnir gestir Sinawik í Reykja- vik og önnuðust fullgildingu klúbbsins i Ki-wives Inter- national, að viðstöddum um 100 félagskonum og gestum. Forseti Ki-wives International: Mrs Betty Murphy, Alex- andria, virginia. Forseti Landssambands Sinawik á íslandi: Frú Þórunn Gests- dóttir, Rvík. Forseti Sinawik í Reykjavík: Frú Hjördis Magnúsdóttir, Rvik. Forseti Sinawik í Vestmannaeyj- um: Frú Hrefna Sighvatsdótt- ir, Vestm. eyjum. (Frá Sinawik) — Spíritismi Framhald af bls. 27 ur almennt viðurkennt sem klárt þekkingaratriði, að spiritisminn hefur rétt fyrir sér um framhalds- lífið og þá nýju veröld, sem við tekur fyrir allt sem lifsanda dreg- ur að jarðvistinni lokinni. Þá munu spíritistar ekki lengur verða svívirtir sem villutrúar- menn, heldur munu hinir raun- verulegu villutrúarmenn verða dregnir fram i dagsljósið, þvi að það er öruggt, að sannleikurinn mun sigra að lokum. Og sá sann- leikur er, samkvæmt kenningum spiritismans, að öll tilveran er grundvölluð á óhagganlegum náttúrulögmálum, sem gilda ekki aðeins í þessum heimi, heldur einnig i þeirri stórkostlegu ver- öld, sem verður heimkynni okkar allra, hvort sem við erum efnis- hyggjumenn eða fylgjum ein- hverjum ákveðnum trúarbragða- kenningum, þegar við verðum kvödd á brott héðan. Tilveran er ekki tilgangslaus glundroði eins og efnishyggju- menn trúa, eða geggjuð eins og sumar kennisetningar kreddutrú- armanna gefa í skyn. Tilveran er réttlát og hefur tilgang. Það hef- ur spírítisminn margsannað. Spiritistar eru hrakyrtir fyrir að boða þetta fagnaðarerindi sannleikans. Það skaðar okkur ekkert. Þvert á móti. En satt bezt að segja er orðið timabært, að andstæðingar spíritismans reyni að koma með sannanir fyrir mál- flutningi sínum en ekki innan- tómar fullyrðingar og marklausa þvælu. Þúsundir, ef ekki tugþús- undir bóka, fjalla um þessi efni, á flestum tungumálum jarðarbúa, svo auðvelt er að fræðast um þessi efni, ef menn kæra sig um það. Allir, sem segjast bera virðingu fyrir staðreyndum. ættu að hug- leiða þetta. — Eða eru það ein- vörðungu spíritistar, sem eiga að koma með óhrekjandi sannanir fyrir sínum málstað? Sé svo, hafa þeir óneitanlega uppfyllt þá kröfu svo um munar. Það stað- festir vitnisburður þeirra fjöl- mörgu vísindamanna og merkra andans manna, sem veitt hafa sannleiksleitandi fólki ómetan- lega fræðslu um þessi efni. — Pöntunar- félag Framhald af bls. 26 Sammála er ég öðrum um að ræða þurfi mál dagsins i dag og líta til framtiðar. EN það er á öllum tim- um nauðsyn að horfast í augu við staðreyndir. — Hefðu allir haldið að sér höndum og enginn risið gegn ofríki BLJ og Árna, hefði ENGIN stjórn verið kosin í P.fél., því að það væri ekki til. — Það er líka nauðsyn að leiðrétta rang- hermi BLJ, þótt leiðindaverk sé. — En virða verður honum til vorkunnar, þótt hann sniðgangi sannleikann, því að með þeim eru litlir kærleikar. Ég fagna hinni nýju stjórn og óska henni heilla í starfi. Marteinn M. Skaftfells. — Um frum- — Hægt að . . .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.