Morgunblaðið - 21.05.1976, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAt 1976
27
Magnús Guðbjörnsson:
Hvað er spíritismi?
Flestir, sem komnir eru til vits
og ára, hafa heyrt minnst á spírit-
ismann og þeir eru ekki ófáir
íslendingar, sem taka fullt mark á
honum. En á suma menn verkar
það eins og veifað sé rauðri dulu
framan í naut, þegar minnst er á
þetta mál.
Tvær meginástæður valda þess-
um furðulegu viðbrögðum. Ann-
ars vegar er ástæðan sá regin-
misskilningur kreddutrúarmanna
að spíritisminn sé í andstöðu við
sanna kristna trú — hins vegar
yfirþyrmandi lærdómshroki
margra efnishyggjumanna.
Andstaða kreddutrúarmanna
byggist á þvf, að þeir rangtúlka
ýmsar tilvitnanir úr Biblíunni.
Við þá þýðir ekkert að rökræða.
öðru máli gegnir hins vegar um
efnishyggjumenn, sem reyna
a.m.k. að færa skynsamleg rök
fyrir andstöðu sinni gegn
kenningum spíritismans. Efn-
ishyggjumennirnir segja: „Þið
spíritistar talið um ódauðlega
sál, er lifi lfkamsdauðann
og framhaldslff í öðrum
heimi, sem sé samofinn þeim jarð
neska — veröld eða tilverusvið,
sem raunar sé á ýmsan hátt lík
þeirri jarðnesku, þó hún sé einnig
að mörgu leyti harla frábrugðin
henni. Þið segið að framliðnir séu
í áþreifanlegum lfkama, klæðist
fötum búi í húsum — þar séu
borgir, menntastofnanir, já meira
að segja fjöll, dalir, vötn, fossar,
tré, blóm, alls konar dýr, fuglar, í
stuttu máli allar tegundir lffvera
og margt fleira, sem mannleg
hugtök ná ekki yfir! Hvílfk fá-
sinna! Það er augljóst mál, að við
sjáum ekkert af þessu í kringum
okkur — getum hvorki vegið það
né mælt. Þessvegna er þetta ein-
tóm vitleysa og hugarburður —
ásköpuð óskhyggja um framhalds-
líf vegna ótta við dauðann.“
Svona hugsa og tala svonefndir
efnishyggjumenn og virðast hafa
sterk rök fyrir sfnu máli, vegna
þess að skilningarvit venjulegs
fólks geta ekki greint neitt af
þessum „æðri veruleika“. En vill
þá ekki gleymast að ekki er vitað
til að nein manneskja hafi séð
atóm með berum augum, en þó
neitar enginn að þau séu til?
Augu mannsins skynja aðeins lft-
inn hiuta af veruleikanum og það
sama má segja um önnur skilning-
arvit mannsins, þau eru of mikl-
um takmörkunum háð til að geta
skynjað innsta eðli veruleikans.
Atómið er ósýnilegt. öll orka er
ósýnileg, síbreytileg, og eilíf.
Andinn er írumorsök alls efnis og
ótortimanlegur, hvort sem hann
birtist í lífverum eða annars stað-
ar í ríki náttúrunnar í öllum
hennar fjölþættu myndum. And-
inn er æðsta stig efnisins og efnið
ef lægsta stig andans. Þetta er í
raun og veru eitt og hið sama,
enda þótt fjölbreytnin sé næstum
takmarkalaus, hvort heldur er í
hinum sýnilega eða ósýnilega
heimi. Hin vísindalegi spíritismi
hefur þegar sannað að framhalds-
lífið er staðreynd. Þeir, sem mót-
mæla þessu, eru í raun og veru
aðeins að auglýsa fáfræði sína.
Én hverjar eru þá sannanir
hins visindalega spíritisma? Fyrst
og fremst sannanir þær, sem
fengist hafa um áratuga-skeið á
miðilsfundum, þar sem stórkost-
leg fyrirbæri gerast, er leiða ótví-
rætt í ljós, að maðurinn lifir lík-
amsdauðann og þar eð framliðnir
hafa getað sannað að þeir séu enn
lifandi, t.d. með þvf að rifja upp
liðna atburði, sem þeir einir vissu
um og fundargestir miðilsins, er
engin ástæða til að rengja frá-
sagnir þeirra og lýsingar á því
hvernig umhorfs er í „hinum
heiminum".
Miðilsfyrirbæri eru ákaflega
fjölþætt og enginn vegur að telja
þau öll upp í stuttri blaðagrein.
En hitt er vfst, að hver sá alvöru-
vfsindamaður, sem hefur gefið
r Sumir versla
dýrt-aðrir versla
hjá okkur.
Okkar verð eru ekkí tilboð
h heldur árangur af *
hagstæðum innkaupum.
lkg EGG
kr420
Austurstrætl 17 Starmýri 2
„ÖRYGGI FRAMAR ÖLLU"
Til sölu
Saab 99 2ja dyra. 1975 ktn 5.300.
Saab 99 2ja dyra. 1973. GóS kjör.
Saab 99 4ra dyra. Sjálfskiptur. 1 972.
Saab 99 1971.
Saab 95 station. 1974. 7 sæta.
Saab 95 station. 1972.
Saab 96 1972. km 48.000.
Saab 96 1971.
BDORNSSON
SKEIFAN 11 SÍMI 81530
AUGI.ÝSINGASIMINN ER:
22480
|H«r0unlil«bib
sér tíma til að rannsaka öll þessi
fyrirbæri af kostgæfni og með
mikilli þolinmæði, hefur undan-
tekningarlaust komist að þeirri
niðurstöðu, að hér er um raun-1
veruleg fyrirbæri að ræða, sem
ekki verða skýrð á neinn annan
hátt en þann, að maðurinn lifir
líkamsdauðann.
Margir vísindamenn hófu rann-
sóknir sínar með það eitt fyrir
augum að afhjúpa það, sem þeir
töldu vera hrein svik. En allir
sannfærðust þeir að lokum um, að
liklegt sé að mannssálin sé ódauð-
leg. Það er sannað mál, að fram-
haldslffið er staðreynd, hvort sem
mönnum líkar það betur eða verr.
En hvort mannssálin, einstak-
lingsvitundin, eða hvað menn
vilja kalla það, er eilíf, er að
sjálfsögðu hvorki hægt að sanná |
né afsanna.
Spíritisminn er ekki trúar-!
brögð. Hann er náttúruvísindi. Að
vísu á frumstigi enn sem komið
er, en ekki er nein ástæða til að
efast um, að stórstfgar framfarir á
sviði vísindanna, munu að lokum
safna saman svo miklu magni
sannana fyrir sannleiksgildi spír-
itismans, að þeir, sem bera brigð-
ur á kenningar hans i framtíð-
inni, munu standa í sömu sporum
og þær örfáu hræður, sem enn í
dag halda því fram að jörðin sé
flöt eins og pönnukaka — hvað
sem öllum vísindalegum sönnun-
um um hið gagnstæða líður!
Það tók margar aldir fyrir vís-
indamenn fyrri tíma — að ekki sé
nú talað um fólk almennt — að
fallast á kenninguna um að jörðin
er hnöttur. Menn voru meira að
segja brenndir á báli sem villu-
trúarmenn fyrir að halda því
fram að jörðin snerist kringum
sólina. Sennilega mun það taka
enn lengri tíma áður en það verð-
Framhald á bls. 23
Vönduð karlmannaföt
kr. 10.975 — Flauelsbuxur kr. 2.060 —
Nylonúlpur kr. 5.000 — Terelynebuxur kr.
2.675 — Terelynefrakkar kr. 3.575 — og
5.650 — Leðurlíkijakkar unglingastærðir. kr.
6.250 — Sokkar kr. 130 — Nærföt, skyrtur,
peysur o.fl. ódýrt.
Andrés Skólavörðustíg 22.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum frá
klukkan 1 4:00 til 1 6:00. Er þar tekið á móti
hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og
er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 22. maí verða til viðtals:
Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi
Gústaf B. Einarsson, varaborgarfulltrúi
Vélsmiðjur -
Frystihús
Fyrirliggjandi ammoníakrör, heildregin í stærðum
1/2 tomma til 4ra tomma
Plötujárn, ýmsar þykktir
HEÐINN
Sími 24260