Morgunblaðið - 21.05.1976, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1976
Dagskipunin til norsku landsliðsmannanna:
yy
Lesið ekki blöðin
yy
□
□
Frá Guðmundi Stefánssyni fréttamanni
Morgunblaðsins í Noregi, 20. maf.
---------□
Það var dauft hljóðið í norsku blöðunum í dag, sigur
íslands yfir Noregi í gær kom greinilega sem reiðarslag
yfir Norðmenn. Ekki sízt vegna þess, að leikurinn átti að
sýna hve sterkt norska liðið væri fyrir leikinn gegn
Svfum 16. júnf, en sá leikur er liður í undankeppni HM.
Kjell Schou Andreasen, annar norsku landsliðsþjálfar-
anna, gaf sínum mönnum þá dagskipun að lesa ekki
norsku blöðin í dag. Sagðist hann vona að enn leyndust
einhverjar glæður sjálfstrausts meðal leikmanna sinna
og þær vildi hann ekki að yrðu alveg drepnar.
Arbeiderbladet birti frásögn af islenzka liðið hafi ekki verið
leiknum undir fyrirsögninni
„Norska landsliðið er komið á
botninn" og hin blöðin segja frá
leiknum í svipuðum dúr. Blöðin
fjalla um getuleysi norska liðsins,
en minna er fjallað um frammi-
stöðu íslenzka liðsins. Þó segir
Dagbladet í sinni grein, að
lélegt og það verði að hafa í huga
að á Islandi sé knattspyrnuvertíð-
in varla hafin.
I Aftenposten segir á forsíðu að
Islendingar hafi verið einir um að
fagna og birt er mynd af hressum
íslendingum með íslenzka fán-
ann. A íþróttasíðu segir siðan í
J
I
y
Sumarmótin að byrja
hjá sundmönnimum
SUMARKEPPNISTÍMABILIÐ er í þann veg að hefjast hjá sundfólkinu og
verður fyrsta mót sumarsins í Laugardalslauginni í næstu viku. Er þar um
sundmót KR að ræða. Síðan rekur hvert mótið annað. Átta landa keppnin
verður síðan f Wales um aðra helgi og þar verða íslendingar meðal
þátttakenda ásamt Skotum, Norðmönnum, Belgum, ísraelsmonnum, Spán-
verjum, Svisslendingum og gestgjöfunum frá Wales. Liðið sem tekur þátt í
þeirri keppni hefur enn ekki endanlega verið valið en búast má við að það
verði gert að sundmóti KR loknu
Meistaramótið í sundi
SUNDMEISTARAMÓT íslands fer fram í sundlauginni i Laugardal dagana
1 6., 1 9. og 20. júni næstkomandi. Keppt verður i 25 greinum og má gera ráð
fyrir því að á þessu móti muni okkar fremsta sundfólk gera lokatilraun til að
ná Ólympiulágmörkunum — hafi það ekki þá þegar tryggt sér farseðil á
Ólympíuleikana.
Fyrsti dagur mótsins verður miðviku-
dagurinn 1 6 júní og verður þá keppt í
eftirtöldum greinum 1500 m skrið-
'sundi karla, 800 metra skriðsundi
kvenna og 400 metra bringusundi
karla
Laugardaginn 19 júní verður keppt
í 100 metra flugsundi kvenna, 200 m
baksundi karla, 400 m skriðsundi
kvenna, 200 m bringusundi karla,
100 m bringusundi kvenna, 100 m
skriðsundi karla, 100 m baksundi
kvenna, 200 m flugsundi kvenna, 200
m fjórsundi kvenna, 4x100 m fjór-
sundi karla og 4x100 m skriðsundi
kvenna
Sunnudaginn 20 júní fer síðasti
hluti móisins síðan fram og verður þá
keppt í 100 m flugsundi karla, 200 m
baksundi kvenna, 400 m skriðsundi
karla, 200 m bringusundi kvenna,
100 m bringusundi karla, 100 m
skriðsundi kvenna, 100 m baksundi
karla, 200 m flugsundi kvenna, 200
m fjórsundi karla, 4x.100 m fjórsundi
kvenna og síðasta grein mótsins verður
4x200 metra skriðsund karla
Þátttökutilkynningar þurfa að berast
stjórn SSÍ fyrir laugardaginn 12. júní
Þátttökugjald er kr 100 fyrir hverja
skráningu
Lengi lifi Knapp og landsliðsnefndin hrópuðu leikmenn fslenzka
landsliðsins að leiknum f Noregi loknum f fyrrakvöld.
fyrirsögn „Verra getur það varla
orðið“. í grein sinni segir
Aftenposten m.a. að hafi annar
aðilinn leikið knattspyrnu þá hafi
það verið íslendingar.
LENGI LIFI
KNAPP OG NEFNDIN
í búningsherbergjum íslenzka
liðsins að leiknum loknum rikti
mikil kátína og að frumkvæði
Sigurðar Dagssonar hrópuðu allir
leikmennirnir „Lengi lifi Knapp
og nefndin". Viðtöl eru við Knapp
í blöðunum og segir hann það sitt
álit að islenzka liðið hafi verið
nær því að vinna 2:0 heldur en
það norska að ná jafntefli 1:1.
Knapp segist lítið geta sagt um
norska liðið, það sé ekki hans
hausverkur og blöðin taka það
fram að um leið og hann hafi
mælt þessi orð hafi hann glott
ismeygilega. Það glott hafi ekki
verið misskilið.
í blöðunum segir að íslenzku
atvinnumennirnir hafi verið af-
burðamenn á vellinum og þeir
hafi gert út um leikinn. I sama
streng tekur Georg „Aby“ Eric-
son landsliðsþjálfari Svía, sem
fylgdist með leiknum. — Norska
liðið var hreinlega lélegt og við þá
Guðgeir Leifsson og Ásgeir Sigur-
vinsson réðu norsku leikmennirn-
ir hreinlega ekki.
Norsku blöðin klifa á því að það
hafi verið nógu slæmt að tapa
þrívegis landsleik á Islandi hér á
árum áður, þó svo að enn eitt
tapið bættist ekki við — og það á
eigin heimavelli. Tom Lund sem
verið hefur hálfgerður guð
meðal norskra knattspyrnumanna
undanfarin ár segir norska lands-
liðið hafi átt skilið að tapa þessum
leik. — Við lékum eins og 11
taugahrúgur, sagði Tom Lund.
Fyrsti leikur „KGB-liðsins”
gep Banðaríkiamönnum í kvöM
BANDARtSKA landsliðið leikur
gegn Suðvesturlandsúrvali I
handknattieik ( kvöld og hefst
leikurinn klukkan 18.15 í Laugar-
dalshöllinni og verður áhorfend-
um seldur aðgangur. Leikur þessi
verður ekki skráður sem lands-
leikur en í raun er það hluti þess
landsliðshóps sem landsliðs-
nefndin nýskipaða hefur valið er
leikur þennan leik. Meðal Ieik-
manna SV-Iandsliðsins verða þeir
Geir Hallsteinsson, Viðar Sfmon-
arson, Birgir Finnbogason og Þór-
arinn Ragnarsson — FH-ingarnir
sterku sem á síðasta vetri tryggðu
félagi sfnu bæði sigur í fslands-
mótinu og bikarkeppninni.
Landsliðsnefndin — sem geng-
ur undir nafninu KGB, Karl,
Gunnlaugur Birgir, hefur auk
fyrrnefndra leikmanna valið eft-
irtalda til leiksins: Guðjón
Erlendsson Fram, Árna Indriða-
son Gróttu, Steindór Gunnarsson
Val, Þorbjörn Guðmundsson Val,
Pálma Pálmason Fram, Pétur
Jóhannsson Fram, Þorberg Aðal-
steinsson Víkingi, Bjarna
Guðmundsson Val.
fastlega má gera ráð fyrir að
allir þessir leikmenn fái landsleik
á næstunni, en meiningin er að
þeir verði meðal 20-24 leikmanna,
sem æfa munu með landsliðinu
fram yfir b-liða keppnina seinni
Frá letk Bandarfkjamannanna við Fram f vikunni, Framararnir Birgir
og Pálmi hafa greinilega verið of seinir til varnar. (Ljósm. RAX).
part vetrar 1977. I þessum hópi
eru nokkrir leikmenn sem aldrei
hafa leikið i landsliði, þeir
Þorbjörn Guðmundsson, Þorberg-
ur Aðalsteinsson og síðast en ekki
sízt Þórarinn Ragnarsson. Hann
er nú 28 ára gamall og oftsinnis
verið orðaður i sambandi við
landslið en aldrei fengið náð fyrir
augum þeirra sem valið hafa. Nú
virðist þó landsleikur loksins vera
innan seilingar hjá Þórarni, sem
('
X'PLYMPÍULEIKAR
f/ÍÆKVísri/Æ rTvca/l fr/H HCdpeH Oa
I~€li4dHd/V) /Stto VAA. /iode/LT~
<i/>«xerr rni, d.s.n. d*//*/
<5‘/‘■‘-ye/iVind// ddcd/A/ifí, oc,
H/LiM Síd/ÍA iT ! , S/Lrdrt. i ÍA//C ■
Stoua, oo UA/t-tt s~. / hÁstó'h*!
oT/toífdr sé,
*/' Gn/l/iCrr H/íirCíd
1 ryníTn f,r// oiUiHd
ri/t,/t OPH/r/t .
Hodd/n T/C. fd/Vfd
"d//
/rur//, /o do
K/l/r4 6 c,/4r* f Jf/w HAr/r/
/*rt, s/o /rte-p He,rt/)
af mörgum er talinn bezti horna-
maðurinn í íslenzkum handknatt-
leik.
í ÆFINGABUÐUM
1 REYKJAVlK
Bandaríska landsliðið hefur nú
dvalið hér á landi í tæpa viku og
leikið fjóra leiki við F'ram, ÍR, FH
og Viking. Hafa Bandarlkjamenn-
irnir sigrað öll þessi 1. deildarlið
með tveggja til fimm mark mun.
Fara Bandaríkjamennirnir heim-
leiðis á laugardaginn.
Það er sjaldgæft að erlendir
íþróttamenn komi hingað til lands
í æfingabúðir, hitt er mun algeng-
ara að íslendingar fari til annarra
landa til að fá betri aðstöðu. Þetta
hafa Bandríkjamennirnir þó gert,
æft i Laugardalshöllinni fyrir
hádegi dag hvern síðustu viku og
síðan leikið þar að kvöldinu. Hef-
ur þeim að sögn líkað mjög vel
dvölin hér og öll aðstaða.
Aðalfundur
J /'OH/tHé pps/,////, nrr/
<5 H/t/te TT hhsta sih-
HfTd/i. CHiSd, dte/ST-
R/Iih/J r/IHASHé /OPOJLOS
untT/t t> KA.I//ÍÍ .
JSHd m Of At, -
DAeHBdn hahs röc-juf/,
Uo~Uh\ t.eenn ífr //,
HKRR
fí OKunn rurUAi f?TtTT (hítth
#í/»'<Zír Kast hth shóch,ir/7HH .
s-UÞym 7>AHfu. HHSrnv/
t HtJ HOHeH /<?71 O c t/H~/v fULt—.
AÐALFUNDUR Handknattieiks-
ráðs Reykjavíkur verður haldinn
í Krystalsal Hótels Loftleiða
þriðjudaginn 1. júní nk. og hefst
kl. 20.30. Fundarefhi venjuleg
aðalfundarstörf og lagabreyt-
ingar.