Morgunblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 36
Al'GLYSINGASIMÍNN ER:
22480
AUGLÝSLNGASÍMINN ER:
22480
FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
Bíræfnir þjóf-
ar á ferð um
miðjar nætur
INNBROT var framið f fbúðar-
húsi í Ulíðunum f fvrrinótt og
stolió 15 þúsund krónum f
peningum. Var heimilisfólk í
fastasvefni og vissi ekkert um
innbrotió fyrr en það kom aó sval-
huró opinni um morguninn.
Þetta er þriðja innbrotið í þess-
ari viku, sem framkvæmt cr á
þennan sama hátt. Innbrots-
þjófurinn brýtur upp svalahuró
og lætur greipar sópa i ibúðinni á
meóan heimilisfólk sefur. Sagói
Ivar Hannesson rannsóknar-
lögreglumaóur við Mbl. í gær, aó
full ástæóa væri fyrir fólk aó aó-
gæta vel aó svalahuróum sínum,
ef þaó vildi losna vió heimsóknir
eins og þessar. Sagói fvar aó
læsingar á huróunum væru yfir-
leitt alltof veigalitlar og þaó eina
sem dygói væri aó krækja
huróunum aftur.
BRIDGE:
Jafntefli og
tveir sigrar
á OL í gær
Monte Carlo, 20. maí. Frá
Jakobi R. Möller:
Dagurinn í dag hefir verió vió-
buróaríkur, einkum vegna þess aó
Marokkó og Mexíkó mættu ekki
til ieiks vió við Israel og Suóur-
Afríku og bar önnur þjóðin því
við að hún hefði farið til ítalíu og
villst og þess vegna ekki mætt til
Framhald á bls. 20
Við þröskuld sumarsins.
Ljósmynd Mbl. RAX.
Tillögur fiskifræðinga:
Leyft verði að veiða
15 bús. lestir af síld
Ilafrannsóknastofnunin
hefur lagt til við sjávarút-
vegsráðuneytið að le.vft
verði að veiða 15 þúsund
tonn af síld á komandi
haustvertíö við Suðurland.
í fyrra lagði stofnunin til
að leyft yrði að veiða 10
þúsund tonn af síld og sam-
þ.vkkti ráðuneytið það.
Matthfas Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra tjáði Morgun-
blaðinu í gærkvöldi að tillögur
Hafrannsóknastofnunarinnar
Hundrað landsbyggðar-
slökkviliðsmenn heim-
sækja Keflavíkurflugvöll
100 slökkviliðsstjúrar og slökkvi-
liðsmenn vfðs vegar að af landinu
munu heimsækja slökkviliðið á
Keflavfkurflugvellí n.k. sunnu-
dag f boði þess til þess að kvnnast
starfi þess og starfsfvrirkomu-
lagi.
Gestirnir munu hlýða á fyrir-
lestra Keflavíkurflugvallar-
manna um starf liðsins, kynnast
tækjabúnaði þess sem er mjög
fullkominn og m.a. munu þeir
skoða þau 48 stórvirku tæki sem
liðið hefur til umráða og einnig
munu þeir skoða Orionvél,
Panthonþotu og þyrlu. pidsvoði
verður settur á svið, björgun af
slysstað og sitthvað fleira sem við-
kemur starfi slökkviliðsmanna.
Að sögn Sveins Eiríkssonar
slökkviliðsstjóra er ráðgerð dag-
skrá fyrir gestina í 6—8 klukku-
sundir.
væru það nýkomnar að engin
ákvörðun hefði enn verið tekin
um aflamagn og tilhögun síld-
veiðanna í haust. Sagði ráð-
herrann að taka þyrfti ákvörðun
um leyfilegan hámarksafla og
skiptingu hans milli nótaveiði- og
reknetabáta.
Sem fyrr segir var leyft að
veiða 10 þúsund tonn af síld á
haustvertíðinni í fyrra. Reyndin
varð sú, að ýmsir bátar fóru upp
fyrir leyfilegt mark og alls
veiddust rúmar 13 þúsund lestir.
Hafa viðurlög við slíkum brotum
nú verið hert með lögum frá
Alþingi um upptöku ólöglegs afla.
Islenzk framleiðsla:
Bílfelgur og troll-
bobbingar úr áli?
HÉR á landi eru nú staddir tveir
danskir verkfræðingar á vegum
Sameinuðu þjóðanna, en sam-
kvæmt upplýsingum Sveins
Björnssonar framkvæmdastjóra
Iðnþróunarsjóðsins eru þeir að
vinna að verkefni sem varðar
fslenzka málmiðnaðinn og nýja
framleiðslumöguleika fyrir hann.
Til dæmís er í þvf sambandi verið
að kanna möguleika á
framleiðslu varnings úr áli og
m.a. hefur verið rætt um fram-
leiðslu á netakúlum fyrir botn-
vörpur og einnig hefur verið rætt
um möguleika á framleiðslu á
bílfelgum úr áli.
Megnið af málmiðnaðinum
íslenzka hefur unnið á sviði
þjónustuiðnaðar, en að könnuðu
máli er álitið að það séu miklir
möguleikar á því að fyrirtækin
hefji meiri framleiðslu á
ákveðnum vörum. Mörg málm-
iðnaðarfyrirtæki sýndu þessari
könnun mikinn áhuga en aðstoð
til fyrirtækjanna yrði þá væntan-
lega í formi véla og tækja. Margar
hugmyndir eru til umræðu og
sumar komnar að framleiðslu-
stigi, en mál þessi munu skýrast á
næstunni, þvf mögulegt er að SÞ
verði að kippa að sér hendinni
varðandi aðstoð vegna fjárhags-
örðugleika.
Þá er hér einnig staddur ung-
verskur sérfræðingur í sambandi
við gosefnarannsóknir, en i því
sambandi er rekin tilraunaverk-
smiðja á Akranesi þar sem perlu-
steinn úr Prestahnjúk í Kalda-
dal er þaninn út og seldur í
byggingarefni. Til greina kemur
að selja slíkt hráefni óþanið úr
landi og vinna það erlendis í sam-
vinnu við önnur fyrirtæki.
Yfirdýralæknir
sækir Galloway-
sæði til Skotlands
YFIRDVRALÆKNIR, Páll ■ A.
Pálsson, mun á næstu dögum
halda utan til Skotlands, til að
sækja þangað djúpfryst sæði úr
nautum af Gallowaykyni. Fer yf-
irdýralæknir með sæðið til Hrfs-
eyjar, þar sem risin er holda-
nautastöð eins og kunnugt er.
Jónas Jónsson, formaður undir-
búningsstjórnar nautastöðvarinn-
ar, sagði í samtali við Mbl. í gær,
að bygging nautastöðvarinnar
hefði verið svo vel á veg komin í
fyrrahaust, að ákveðið var
að kaupa tuttugu kvígur til stöðv-
arinnar. Hafa þær verið aldar í
vetur. Nú á að ganga frá girðingu
kringum stöðina, og verður hún
þá alveg einangruð eins og tiltek-
ið var í lögum um stöðina.
Er þvf ekkert til fyrirstöðu að
flytja inn sæðið og sæða kvigurn-
ar. Þegar þeir nautkálfar, sem af
sæðinu vaxa, hafa aldur til geta
bændur fengið sæði úr þeim.
Verður það hálfblendingssæði.
Verður kynbótum sfðan haldið
áfram þar til hreinn stofn er feng-
Kókstríð
í Eyjum
Kókstrfð rfkir nú í Eyjum en
þar er um að ræða deilu milli
umboðsaðila kók og smásala f
Eyjum. Er kók ekki selt i
Eyjum um þessar mundir
vegna deilunnar sem snýst um
það að smásalar telja umboðs-
aðilana leggja of mikið á
drykkinn.
Morgunblaðið hafði sam-
band við Georg Ólafsson verð-
lagsstjora og sagði hann að
verið væri að kanna þessi mál í
Eyjum um þessar mundir.
Friðrik og
Karpov tefla
úrslitaskák-
ina í dag
STÓRMEISTARARNIR
Friðrik Ólafsson og
Anatoly Karpov heims-
meistari heyja í dag
úrslitaskák Euwe-
skákmótsins í Amsterdam.
Verður Friðrik að vinna
skákina, til að eiga mögu-
leika á sigri í mótinu.
Friðrik hefur svart í skák-
inni. Karpov er efstur með
3 vinninga, Friðrik og
Timman hafa 2lÆ vinning
og Browne hefur 2 vinn-
inga.
Tvœr freigátur sóttu aöÆgi
TVÆR brezkar freigátur,
Salisbury F-32 og East-
borne F-73, sóttu að varð-
skipinu Ægi í gær á miðun-
um út af Hvalbak með
þeim afleiðingum að
árekstri varð ekki forðað.
Ægir var þá að koma að 15
brezkum togurum sem voru að
veiðum, en þeir hífðu veiðarfærin
þegar varðskipið nálgaðist. Salis-
bury sigldi þá stjórnborðsmegin
fram úr Ægi mjög nálægt skipinu
og snarbeygði síðan I bakborða
fyrir varðskipið, sem þá hafði
Eastborne á bakborðshlið og gat
þvi ekki beygt frá. Rakst stefni
Ægis á Salisbury þegar freigátan
snarbeygði fyrir yarðskipið.
Óverulegar skemmdir urðu á Ægi
en talið er að gat hafi komið á
bakborðssiðu freigátunnar. Engin
slys urðu á mönnum og Ægir er
áfram á miðunum við gæzlustörf.