Morgunblaðið - 30.05.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAl 1976
7
ÞEGAR líða tekurá gleðidag-
ana, tímabilið milli páska og
uppstigningardags, þá fara
að koma nýir tónar I lofsöng
guðspjallstextanna um upp-
risuna, þá fara þeir líka að
minna á andann og hátíð
hans sem f vændum er,
hvítasunnuna.
Aðventan er undirbúnings-
tími jólanna, langafastan er
undirbúningur páskahátiðar-
innar og eins getum við sagt,
aðsíðari hluti gleðidaganna
og dagarnir eftir uppstign-
ingardag séu undirbúnings-
tími hvítasunnunnar.
Jólin hafa greinilega sér-
stöðu í hátíðahaldi okkar.
Páskarnir koma þar næstir,
hvað það snertir að ná til
fólksins, hafa raunveruleg
áhrif á líf þess. Við sjáum
hins vegar bæði af kirkjusókn
og öðru, að hvítasunnan virð-
ist hafa sáralítil áhrif beint
eða óbeint á hugi mannanna.
Þessa gætir minna til
sveita, þar sem víðast hvar er
fermt á hvitasunnu. En þá er
hún fyrst og fremst orðin að
fermingarhátíð og þá sáralít-
ið minnt á hið rétta hátíðar-
efni. Ég fann þetta glöggt,
þegar ég var prestur á Sauð-
árkróki og flutti ferminguna
frá hvitasunnu fram á pálma-
sunnudag. Þá datt kirkjusókn
mjög niður á hátíðinni og fólk
var ekki nógu opið fyrir hátíð
andans sjálfri.
Það kemur líka mjög inn i
myndina nú hin síðustu ár,
aðfólk notar hvítasunnuna æ
meira til ferðalaga. Sú hátt-
semi fólks setur nú orðið
einnig sterkan svip á pásk-
ana og m.a.s. jólin sleppa
þar ekki lengur.
Þetta vekur okkur til um-
hugsunar um það, hve kristið
trúarlíf er ótrúlega háð fjöl-
skyldu-og heimilislífi. Þar
sem slikt fer úr skorðum, þar
líður kirkju- og safnaðarlíf fyr-
ir. En þetta er einnig öfugt.
Þar sem slaknar á þeim
böndum, sem tengja fjöl-
skyldu og kirkju, þar reynist
fjölskyldunni einnig hætt.
Þetta hlýtur að vera okkur
alvarlegt umhugsunarefni
En það sem er þó kannski
ekki sísta ástæðan fyrir þvi,
að hvifasunnan hefur ekki
Horft mót
hvíta-
sunnu
haldið i fólkið, er sú stað-
reynd, að sjálft hátíðarefnið
höfðar ekki til einstaklingsins
á sama hátt og tilefni jóla og
páska. Fæðing frelsarans á
jólum og upprisa hans á
páskum verka öðruvisi á ein
staklinginn, krefjast miklu
persónulegri afstöðu en
minningarhátíð um stofnun
kirkjunnar og sendingu heil-
ags anda. Kirkjan sem stofn-
un á ærið misjafna sögu sem
eðlilegt er. Hún er öðrum
þræði mannleg stofnun og
hlýtur að bera þess merki,
merki sem ekki eru öll fagn-
aðarefni á hvitasunnu finnst
okkur.
Hitt hátiðarefnið, sending
andans, er eitthvað svo
óáþreifanlegt og óljóst, segja
margir, og bæta við, að þeir
skilji það heldur ekki til hlítar.
Já, það er sennilega full
ástæða til að spyrja: Hvað er
heilagur andi? — og reyna
að veita við því svör. En
svörin verða kannski ekki
nógu einhlit og afgerandi.
Andi Guðs hefur verið
starfandi meðal mannanna
frá upphafi. Hann vann sitt
verk t.d. í gegnum innblásna
spámenn og trúarhetjur. í
manninum Jesú frá Nasaret
birtist hann með nýju móti,
sterkari og máttugri en
nokkru sinni fyrr. Þegar hann
svo hætti að starfa á jörðinni,
þá kom andi hans með enn
nýju móti inn í mannlega
tilveru. Hann kom sem kraft-
ur til góðs, hann kom sem
hvetjandi, líknandi, jákvætt
afl, sem umleikur mennina,
og hver sem opnar líf sitt fyrir
honum, verður nýr og sterkari
maður eftir. Slíkur máttur var
að sjálfsögðu til áður en
Kristur kom, en á hvítasunn-
unni kom hann með nýju
móti. Hann kom sem andi
Krists, mótaðuraf þeirri lífs-
hugsjón, sem Kristur hafði
gefið mönnunum. Og kirkjan
var stofnuð til að vera eins
konar farvegur fyrir áhrif
Krists með þessu móti inn í
nannlegt líf.
Þar sem trúarjátningin tal-
ar um áhrif andans, talar hún
m.a. um ..fyrirgefningu synd-
anna og eilíft líf". —- Við
gætum orðað þetta um og
sagt, að við tryðum, að andi
Krists hefði þau áhrif á
mannlegt lif, að við ættum
kost á fyrirgefningu synda
okkar, hann hjálpaði okkur
einnig til að sigra dauðann
og leiddi okkur til lífs með
Guði, þar sem hvers manns
bíður nýtt andlegt svið, þar
sem þorskabraut hans, sú
sem hófst hér á jörð, heldur
áfram að ósegjanlega háleit-
um markmiðum.
Þegarég horfi mót hvíta-
sunnunni, þá gleðst ég. Og
gleði mín er fólgin í vissunni
um, að sá andlegi máttur,
sem einkenndi lif Jesú Krists,
hann umlykurallt mannlegt
líf. Okkar er aðeins að opna
lif okkar fyrir honum i bæn
og trú, þá helgast það, þá
verður það sterkara í kærleik,
von og trú, að sannleiksást
og friðarvilja.
Hvar værum við menn, ef
andi Guðs, hið góða afl í lífi
okkar, drægi sig i hlé eða
hyrfi, léti okkureina um lífs-
baráttuna. í skásta tilfelli má
sennilega líkja því við það
ástand, sem skapast þar sem
foreldrar hætta að hugsa um
ungbörn sin, en láta þau af-
skiptalaus i vanmegna bar-
áttu við óblíð veraldaröfl En
sennilegra er þó, að ástandið
yrði líkara því, sem gerðist,
ef sólin hætti að skína. Þá
frysti allt i hel.
Þetta sýnir okkur kannski,
hve gleðiefni hvítasunnunnar
er mikið i raun og veru, og
hve ríka ástæðu við höfum til
að þakka Guði fyrir þær gjaf-
ir, sem við höfum þegið í
heilögum anda hans og kirkj-
unni, sem gerð var að farvegi
hans.
íhugum þetta á komandi
dögum og gleymum ekki
Guði, þegar hátíðin gengur i
garð.
Reiðskólinn Geldingaholti
Nýjung fyrir fulloröna
Lærið undirstöðuatriði reiðmennsku
-k Komið með eigin hest ef þið viljið.
Kennsla innan og utan gerðis.
+ Áseta og taumhald.
Brottfarardagar: 8. júli, 15. júlí, 22. júlí 29. júlí og 5. ágúst.
Allar nánari upplýsingar.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
Jarðýta til sölu
Caterpillar D6c PS jarðýta, 140 hestöfl,
með rifkló, skekkjanlegu ýtublaði og halla-
strokkum, árgerð 1973. — Vélin er með
nýjum beltum, skóm, öllum rúllum og drif-
hjólum. Ýtublað með nýrri klæðningu.
Tímamælir: ca. 4800 tímar.
— Þessi jarðýta er í mjög góðu lagi. —
Véladeild
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240
Húsbyggjendur
VÖRUKYNNING
OPIÐ
sunnud. 30. maí kl. 14.—16.
Hafið meðferðis teikningar.
TILBOÐ — SAMNINGAR
húsbyggjendum að
kostnaðarlausu
Sameiginlegur vöru- Sérhæfðir á sviði bygg-
sýningarsalur og sölu- ingariðnaðar. Allt frá
skrifstofa um 40 fyrir- steinsteypu — upp í
tækja. teppi
Gjörið svo vel — Allt á einum stað
IÐNVAL
Byggingaþjónusta
Bolholti 4 Reykjavík.
noví/
FYRIR VIÐRAÐANLEGT
Nýja Novis samsfæðan er ætluð ungu fólki
á öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lausn fyrir þö, sem
leita að litríkum hillu- og sköpasamstæðum,
sem byggja mö upp í einingum.eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Krlstján Siggeirsson hf.
J L Húsið
Híbýlaprýði
Dúna
Akranes: Verzl. Bjarg
Borgarnes: Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Siglufjörður: Bólsturgerðin
Akureyri: Augsýn hf.
Húsavík: Hlynur sf.
Selfoss: Kjörhúsgögn
Keflavík: Garðarshólmi hf.
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJAN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA