Morgunblaðið - 30.05.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.05.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAl 1976 c\ r> MYNDLIST VERC2LD BIBLIUSLOÐIRI Laugin þar sem morðið var framið Á fyrstu öld fyrir Krist skipuðu Rómverjar Heródes konung í Gyðingalandi. Heródes var ekki Gyðingur, og því var hann sí- hræddur við uppreisnir og innrás- ir. Framdi hann mörg ódæðisverk til styrktar veldi sínu, eins og kunnugt er. Meðal ann- ars Iét hann myrða 17 ára gamlan mág sinn, er Aristóbúlus hét. Hafði Herödes gert hann að æðstapresti, en pilturinn varð brátt vinsælli en Heródesi þótti gott. Af- réð Heródes þá að koma sem honum fyrir lleródes í nýrri m.vnd um kattamef *vi Kris,s Það varð í Jeríkó, í höll Alexöndru, móður Aristóbúlusar. Heródes gerði sér upp vináttu við piltinn og tókst að leiða hann afsíðis. Nokkrir vinir og þjónar Heródesar voru i för með þeim. Þeir komu að tjörnum, sem voru þar i hallargarðinum. Heitt var I veðri og lögðust kunningjar og þjónar Heródesar til sunds í tjarnirnar, en þeir Heródes og Aristóbúlus stóðu á bakkanum og horfðu á. Þar kom, að Heródes hvatti Aristóbúlus til að taka þátt í leik sundmannanna, er ærsluðust í tjörnunum. Gerði Aristóbúlus það. Þá var komið að kvöldi og orðið rokkið. Heródes hafði lagt á ráð með kunningjum sínum fyrir fram. Og þegar Aristóbúlus kemur niður i laug- ina taka þeir hann og halda í kafi þar til hann drukknar. Heródes PETFR DSTINOV grét piltinn ákaflega og gerði út- för hans með mikilli viðhöfn. Nú þykjast ísraelskir fornleifa- fræðingar hafa fundið laugina þar, sem Aristóbúlusi var drekkt. Er það I Jórdandalnum, skammt utan við Jeríkóborg. Þar komu fornleifafræðingarnir niður á mikla vetrarhöll. Eru rústirnar í bland frá tíma Heródesar og konunganna á undan honum. Fundist hafa peningar og leir- munir, sem bera því vitni, að Heródes hefur látið stækka höllina snemma á valdaskeiði sínu. En Alexander Janneus hefur líklega látið reisa hana. Hann var við völd á árunum 103—76 f. Kr. Höll þessi hefur verið hin dýr- legasta I rústum hennar vottar fyrir stórum móttökusal lögðum Framhald á bls. 36 PÍSLAVOTTAR líðandi stundar f FANGELSUM f Indónesfu sitja 53 þúsund manns af stjórnmála- ástæðum og bfða dóms. En flestir þessara manna hafa beðið dóms f 10 ár eða lengur. Og líklega verða þeir að bfða enn um sinn. Jafnvel vita fæstir hvað þeim er gefið að sök. Hér verður einn maður tekinn til dæmis. Óei Tjú Tat er 54 ára gamall Indónesi af kfnverskum ættum. Hann er kvæntur og á þrjú börn. Hann býr þó ekki með konunni og börnunum, því hann er gistivinur Indönesfustjórnar og situr í einu fangelsinu hennar; hafði hann setið þar f 10 ár, þegar mál hans kom fyrir rétt. Óei nam lög f háskóla, gerðist atkvæðamikill lögfræðingur og HÉR verSur sagt af hamingjusömum myndlistarmanni. sáttum viS lifið og tilveruna. Hann heitir Zurab Tsereteli og býr i Tbilisi i Sovétrikj- unum. Zurab er svo ánægður, að hann vaggar á göngu. Og þegar hann brosir (hann er sibrosandi, blessaður) baðast andlit hans skæru skini, hvorki meira né minna. Indónesía: Óei Tjú Tat vegnaði honum vel framan af. Hann var f Lögmannafélagi Indónesfu og einnig f Bandalagi háskólamanna. En hann var líka framarlega f flokki, sem hét Partindó. 1 þeim hópi voru vinstrisinnaðir klofningsmenn úr Þjóðernissinnaflokki Indónesfu. Þar eð Óei var einn af oddvitum flokksins hafði hann náið sam- neyti við Súarnó forseta. Var Óei raunar ráðherra án ráðuneyt- is f stjórn Súarnós þar til hún hætti árið 1966. Árið 1965 var gerð uppreisn gegn yfirstjórn Indónesfuhers. Uppreisnin fór út um þúfur, en mörg hundruð þúsund manna voru fangelsuð. Hinn 13. maf 1966 var stjórn Súkarnós forseta sett af, en daginn eftir var Óei hand- tekinn. Honum var gefið að sök að hafa sent frá sér yfirlýsingu, er uppreisnin var gerð; í þeirri orð- sendingu stóð, að uppreisnin væri innansveitarmál hersins og annað ekki. Héldu sækjendur f máli Sælir eru þeir sem hlaupa ekki útundan sér Zurab er f blóma lífsins. 42 ára gamall. Hann er fjölhæfur svo, að af ber, og leggur stund á málverk, myndhögg. mósaik og tréskurð. Þó er fnest um það vert, að hann vinnur fyrir opnum tjöldum. Verk hans eru nefnilega þóknanleg landsfeðrunum Margir starfsbræður hans eiga ekki þvi láni að fagna. En list Zurabs er ,, viðurkennd". Hún er lofuð opinber- lega seint og snemma. Zurab var til dæmis að fá Lenínverðlaunin. Þau eru mest viðurkenning i Sovétrikjun- um fyrir afrek í listum og visindum. Verk Zurabs eru öll þrungin ein- lægri gleði og ánægju. Þau eru jarð- bundin og alveg ópólitísk að auki, enda hafa yfirvöldin umbunað Zurab fyrir vikið. Rikið er alltaf að panta hjá honum minnismerki og hann af- Óeis þvf fram, að yfirlýsing þessi væri á sömu lund og yfirlýsingar Kommúnistaflokks Indónesfu um fyrrnefnda uppreisn. Töldu sækj- endur, að lfkingin með yfirlýsing- unum væri gild sönnun þess, að Óei hefði átt þátt f uppreisninni, enda þótt hann ætti f orði kveðnu sæti í rfkisstjórn Súkarnós og hefði auk heldur aldrei verið f Kommúnistaflokki Indónesíu. Sögðu sækjendurnir, að yfirlýs- ing Óeis hefði verið til þess ætluð að „grafa undan rfkisstjórninni“. Varð sú staðreynd létt á metun- um, að Óei hefði verið f stjórn- inni f fimm mánuði eftir upp- reisnina. Vitni báru það við réttarhöldin yfir Óei, að hann hefði ekki stofn- að til margnefndrar yfirlýsingar hefði hann hins vegar lagt til, að bætt yrði f hana yfirlýsingu um stuðning við Súkarnó forseta. Og varð það alls ekki sannað, að Óei hefði „stundað niðurrifsstarf- semi“. Þrátt fyrir það var hann dæmdur. Hann var dæmdur til þréttán ára fangavistar — að frá- dregnum þeim tíma, sem hann hefði „verið í haldi". Þá komu þau sér vel þessi tíu ár, sem hann hafði beðið dóms! — DAVID WATTS. greiðir pantanirnar af sérstakri ánægju. Hann vinnur verk sín i þeim stíl, sem honum sýnist hverju sinni og allt fágætlega vel; er þar ýmist fyrirhafnarlaus immpressjónismi, eða expressjónismi, og svo mætti lengi telja. Stundum má kenna I myndum Zurabs áhrif eftirlætismál- ara hans Picassos. Chagalls eða Van Goghs. En stundum hefur hann til hliðsjónar frumstæðar myndir úr forngeorgískri list. styttur af naut- um, vasa og ker, og minna verk hans þá oft á hina haglegu kritversku gripi frá tfmum Minosar konungs. En svo vill til, að Zurab var i sex ár við fornleifa- og þjóðháttarannsóknir í heimasveit sinni, Georgíu. Það þarf vart að taka fram, að Zurab velur sér aldrei trúræn eða stjórnarfjandsamleg myndefni. Þau þóknast ekki yfirvöldunum og þau þóknast ekki honum. Sumir mynd- listarmenn i Sovétrikjunum vinna úr svona efnum. En þeirfá enga borgun og verða að mála i svefnherbergjun- um heima hjá sér, eins og þar er nú þokkalegt. En það er mátulegt á þá. Það er ef til vill merkilegast um verk Zurabs, að aldrei verður vart í þeim neinnar áhyggju eða angistar. Hann fæst aldrei við skuggahliðar mannlífsins. Menn eiga ekki að blína alltaf á það, sem miður fer. Zurab er bjartsýnismaður i myndlistinni. Hann málar ekki hugdjarfa, vigreifa og brosmilda stáliðjumenn i hetju- stil, sem var algengur hér forðum. En allt, sem hann gerir Ijómar og geislar einskæru léttlyndi, gleði og ánægju. Verk hans eru „jákvæð". Fyrir stuttu gerði hann geysistóra mósaikmynd á vagnstöðinni i Tbilisi. Hún var svona jákvæð. Zurab dró þar upp furðuveröld með stórum vargn- hjólum og undarlegum bilum og strætisvögnum úr leikfangalandi hugans. Einu sinni skipulagði hann ika leikvöll á baðstað einum. Þá hlóð hann I kringum grunna tjörn högg- myndum af skritnum. feitum fiskum lögður skærri. marglitri mósaik. Maður verður svo ósjálfrátt léttur i lund, þegar hann sér þetta. Það virð- ist svo sjálfvakið og barnslega glað- legt. Þegar ég spurði Zurab. hvernig i ósköpunum stæði á þvi. að aldrei nokkurn tima bæri skugga á myndir hans fékk ég þetta svar: „Mér geðj- ast að öllu. Ég á ótal vini. Ég geri það, sem mér gott þykir og það, sem mér þykir ekki gott geri ég ekki." Mér er spurn, hvort þetta sé ein- hvern veginn tengt þessari skoðun. sem hann hafði áður látið uppi: ,, Það er tvennt ólikt, listir og stjórnmál." lika leikvöll á baðstað einum. Þá hlóð hann í kringum grunna tjörn höggmyndum af skrítnum, feitum fiskum lögður skærri. marglitri mós- aik. Maður verður svo ósjálfrátt létt- ur í lund, þegar hann sér þetta. Það Framhald á bls. 37 Hér i blaðinu sagði síðastliðinn sunnudag frá furðufuglinum Howard Hughes, auð- kýfingnum sem lika eftir andlátið heldur áfram að vera mönnum ráðgáta, Hér ræðir breski blaða- maðurinn SIMON WINCHESTER einkan lega eina af hinum mýmörgu dularfullu hliðum á Hughes: samvinnu hans við bandarisku leyniþjón- ustuna. NÝLEGA lézt Howard Hughes af einhverjum veik- indum i einkaþotu sinni á leiðinni frá Acapulco til Houston. Það er vist ekki hægt að segja, að Hughes hafi orðið harmdauði mörg- um, eða bandariska þjóðin hafi misst mikils þegar hann fór Þó mun óhætt að fullyrða, að nokkrir menn syrgi hann. Það eru oddvit ar leyniþjónustunnar CIA Til þess eru ærnar ástæður. Ég leyfi mér að segja, að ekki veit ég hvað CIA hefði tekið til bragðs. ef Hughes hef ði ekki notið við Snauður af flestu nema fé Það er augljóst, að Hughes hafði til að bera margt, sem CIA gat fært sér i nyt. í fyrsta lagi var hann forrikur og mjög umsvi' a- mikill I viðskíptum. Hann gat þvi annazt alls kyns við- kvæmnismál fyrir CIA án þess, að mikið bæri á. Þá var hann mjög gefinn fyrir leynd. Þaðkunna leyniþjón- ustumenn náttúrulega að meta. I þriðja lagi vildi hann veg vestræns kapítalisma sem mestan. Þarf varla að eyða orðum að þvi, að það þyki mann- kostur i CIA. En i fjórða lagi var Hughes mikill föður- landsvinur. Þetta ætti nú að duga. Enda er vafalitið langt siðan CIA bauð Hughes til samvinnu. Að sjálfsögðu hvílir enn mesta leynd yfir þeim félagsskap. Kann þó að vera. að saga hans verði bráðum Ijósari úr þvi. að Hughes með einni af kvikmyndadísum sínum — GINGER ROGERS Hughes er allur. í bili skal tekið unnuglegt dæmi. Það er raunar ekkert smádæmi. Það er ekki langt frá þvi að sovézkur kafbátur sökk til botns undan Hawaii. Svo djúpt var þar, sem kafbátur- inn sökk, að algeng ráð dugðu ekki til, að hann næðist upp. En CIA-menn vildu ólmir fá hann og er það skiljanlegt. Voru þeir i öngum sinum og engum datt neitt nýtilegt i hug. Ekki fyrr en einhver minnt- ist þess. að Howard Hughes átti griðarstóran og haglega gerðan pramma búinn afar- sterkum krönum. Var þessi prammi á floti undan Kali- forníuströnd og hafður til málmefnavinnslu af hafs- botni. Það vita menn svo úr fréttum, að CIA notaði orammann til þess að ná kafbátnum upp. Náðist að visu ekki nema helmingur af bátnum. En CIA-menn létu mikið yfir þeim fróð- leik, sem þeim hefði áskotnazt i bátnum. Þetta var fyrir tveimur árum. Þessi saga og aðrar álika hafa vakið efa sumra um það. að Hughes hafi verið lifs. þegar þetta gerðist. Hefur jafnvel verið ýjað að þvi, að Hughes hafi dáið fyrir tiu árum. Hér verður ekkert fullyrt nema það. að hann var sannarlega á lifi fyrir rúmum áratug. Og sú var tiðin, að hann gekk um á meðal vor. Hann vakti þá óskipta athygli manna. hvar sem hann fór, enda fékkst hann ekki við smámuni. Einhverju sinni dró hann upp tékkheftið og skrifaði ávisun á upphæð. sem nam 23,5 milljónum dollara. Hann var þá að kaupa kvik- myndaver. Öðru sinni seldi hann fyrirtæki (Trans World Airlines) fyrir 556.3 milljónir dollara. Þess á milli setti hann hraðamet eða „uppgötvaði" kvik- myndastjömur. Má nefna Jean Harlow úr þeim hópi. Á þessum árum fór Hughes ekki með neinni leynd. En árið 1966 skipti heldur betur um. Um það leyti var Hughes nýbúinn að selja hlut sinn í Trans World Airlines. Hann hélt þá til Las Vegas, settist þar upp á efstu hæð hótels, Desert Inn að nafni, og sást ekki upp frá þvi. Óðara þutu upp ótal skýringar á þessari skyndilegu breyt- ingu. Eru nú til svo margar þjóðsögur um Hughes, að duga mundu heilli þjóð frá upphafi til enda menningar skeiðs hennar. Þvi miður voru þetta allt hugarórar og studdust við ekkert nema aðrar sögusagnir. En Hughes dvaldist i leyni sinu i Desert Inn og kom hvorki út né talaði til lýðsins. Áhugi almennings nærð- ist auðvitað á leynd- inni. í tiu ár hefur það verið fjölda manna stöðugt um- hugsunarefni að Hughes væri haldinn hreinlætisæðí og yrðu starfsmenn hans að þvo sér margsinnis áður en þeir nálguðust hann. Svo fréttist, að hann væri hættur að skera neglur sinar og hár og sofa á nóttunni. Ekki alls fyrir löngu kom hann til London. Þegar hann fór þaðan aftur tóks einhverjum flugvallar- manni að sjá hann i svip. Það skipti engum togum, að flugvallarmanninum varð ekki vært fyrir ásókn fréttamanna. sem vildu ólmir vita, hvort neglur Hughes væru i rauninni 50 sentimetrar á lengd eða ekki. Þetta er án efa lofsverður áhugi. Það hefði þó kannski verið nær að spyrja um aðra hluti. Hughes var einn rikasti maður heims. Lika er vitað að hann gerði ýmis viðvik fyrir CIA. Hver voru þau og hvers kyns voru þau? Var ætlunin aðeins að hækka hag kapitalismans. eða var um að ræða fjöl- þjóðleg samsæri og undir- róðursstarfsemi af versta tagi? Þvi miður hefur þess- um spurningum ekki verið svarað enn, og það hlýtur að varpa nokkrum skugga á minningu Howard Hughes. Það er svo að sjá, að Hughes hafi verið orðinn snauður af flestu nema fé um það er hann dó. Það er heldur nöturlegt, að þó nokkur timi leið. þar til lik hans var heimt úr likhúsi sjúkrahússins, þar sem hann andaðist. Ekki einu sinni CIA-menn komu að sækja það. Svona var hann einmana, „auðugasti" maður heims. . . — SIMON WINCHESTER. VANGASVIPUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.