Morgunblaðið - 30.05.1976, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1976
Vönduð karlmannaföt
kr. 10.975 — Flauelsbuxur kr. 2.060 —
Nylonúlpur kr. 5.000 — Terelynebuxur kr.
2 675 — Terelynefrakkar kr. 3.575 — og
5.650 — Leðurlíkijakkar unglingastaarðir kr
6.250 — Sokkar kr 130 — Nærföt, skyrtur,
peysur o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22
Til sölu í Keflavík
3ja herb. íbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi við
Faxabraut. Bílskúr fylgir.
Uppl. gefa: Magnús B Jóhannsson, sími 2934
og Garðar Garðarsson hdI , simi 1 733.
Sumarbústaður
við Meðalfellsvatn til sölu. Bústaðurinn er um
35 ferm. með 28 ferm. verönd. Afgirt svæði er
um 40x40 metrar að mestu ræktað. Uppl. í
síma 1 8941 í dag og morgun, kl. 4 — 7 e.h.
Bætt
þjónusta
við
Ford-eigendur
Unnið er nú að endurskipulagningu varahluta-
verzlunar okkar. Meðal annars er verið að taka
upp tölvuvinnu á varahlutaskrá og pöntunum.
Óhjákvæmilegt er að þessar breytingar valdi
truflunum á varahlutaþjónustunni á næstu vik-
um.
Um leið og við biðjumst velvirðingar á þessari
röskun, vonumst við til að geta mætt óþægind-
um með ofanbættri varahlutaþjónustu við við-
skiptavini okkar eftir breytingar.
SVEINN
EGILSSON HF
Skeifunni 17 sími 85100
R'O'RTANGIR — SKRÚ FSTYKKI
G. J. Fossberg, vélaverzlun hf.
Pósthólf 1382
Skúlagötu 63 - Reykjavlk
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
■
Hjólbarðaþjónustan, Laugavegi172 simi 21245
YEAR
Laugavegi 1 70—172 Simi 21240
— Biblíuslóðir
Framhald af bls. 20
flísum, og þar eru miklir skálar
og íbúðir skreyttar veggmyndum,
íburðarmikil baðhús og garður
einn ekki íburðarininni og
stendur hann lægra en
byggingarnar.
Norðaustan við stærsta hallar-
húsið fundust minjar stórrar
sundlaugar og lágu vatnsleiðslur
að henni. Laugin er hvorki meira
né minna en 32 m á lengd og 18 á
breidd. Þykjast fornleifa-
fræðingarnir vissir um, að þarna
sé komin laugin sem Aristóbúlus
týndi í lífinu. Laugin er dýpst
fjórir metrar. Eftir henni miðri
gengur pallur frá botni og þvert
yfir; er hann helmingi lægri en
laugin frá botni að bakka. Hafa
þeir getað stjáklað þar um, sem
ekki þorðu út á djúpið. Einnig
hefur mátt skipta lauginni i tvær
með því að hálftæma hana. Breið
steinþrep liggja niður í laugina
báðum megin skilveggjarins.
Einum megin við laugina er skáli,
ætlaður baðgestum að líkindum.
En með hinum þremur hliðunum
liggja breiðir stígar. Munu þeir
hafa verið steinlagðir áður. En
Heródes virðist hafa látið verpa
þá mold og gera garð í kringum
laugina. Fundust blómaker til
merkis um það, sum á sínum
gömlu stöðum, en önnur höfðu
látið eftir sig holur. Hefur verið
þarna sannnefndur unaðsreitur
og Heródes vonandi hvílzt þar vel
að unnum dáðum.
Þegar höllin eyddist af fólki
hnignaði garðinum og
byggingunum fljótt og urðu rústir
einar áður langt leið. Þó stóð
norðurveggur hallarinnar lengi
uppi og allt fram að Býzanstíma.
Þá kom jarðskjálfti og felldi
hann. Upp frá því var þarna auðn
þar til fornleifafræðingarnir
komu og grófu upp þessar minjar
um blóðrika stjórnartíð
Heródesar konungs.
ERIC SILVER
— Minning
Halldór
Framhald af bls. 38
við lækni. Hann var lagður inn á
Landakotsspítala fljótlega eftir
komuna til Reykjavíkur. Var
skorinn upp, en bati lét á sér
standa. Fréttir bárust litlar af
líðan Halldórs hingað vestur, eða
það óljósar, að af þeim varð lítið
ráðið. Fólk bjóst þó við því, að
þess mundi langt að bíða, að hann
kæmi til starfa á ný, þótt honum
batnaði sjúkleikinn.
Sunnudaginn 23. mai voru
fánar í hálfa stöng á húsum í
Súðavík. Halldór Magnússon
hafði andazt á Landakotsspitala
kl. 15 daginn áður. Sama dag var
ég að slíta barna- og unglinga-
skólanum í Súðavík og hafði lokið
við að flytja skólaslitaræðuna
skömmu fyrir klukkan þrjú síð-
degis. Var þetta kannski til-
viljun? Ég veit það ekki.
Halldór Magnússon var
hamingjumaður í einkalífi. Hann
kvæntist 6. desember 1958 ágætri
konu, Huldu Engilbertsdóttur,
Þórðarsonar sjómanns á Efri-
Grund í Súðavik, sem fædd er22.
okt. 1931.
Börn þeirra eru: 1. Kristinn vél-
skólanemi í Reykjavík, f. 9. júlí
1955, kvæntur. 2. Elin Elísabet, f.
28. okt. 1956, ógift heima. 3.
Hreinn, f. 16 marz 1960, nemandi
í Núpsskóla. 4. Hlynur, f. 24. nóv.
1967, nemandi í barnaskóla Súða-
víkur.
Auk þessara barna ólu þau
hjónin upp Ásu Valgerði Einars-
dóttur, sem fædd er 29. nóv. 1953,
en hún er dóttir Huldu og Einars
Jóhannessonar læknis í Svíþjóð,
Björnssonar frá Hofsstöðum í
Skagafirði. Hún er stúdent og
kennari að menntun. Var kennari
við barna- og unglingaskólann í
Súðavík s.l. vetur.
Súðavík hefur misst mikið við
fráfall Halldórs Magnússonar, en
mest eiginkona hans og börn og
aðrir vandamenn. Vottum við
hjónin þeim einlæga samúð. Og
Halldóri þökkum við stutt, en
ánægjuleg kynni.
Auðunn Bragi Sveinsson.