Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNI 1976 3 Nokkrum þús. króna stolið úr Sparisjóði Kópavogs Þjófarnir stálu lyklum sparisjóðsstjórans og komust þannig inn VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins er nú tekið að fjalla um verð- ákvörðun á loðnu vegna hugsan- Veiðarfæri könnuð LANDHELGISGÆZLAN hef- ur að undanförnu fylgzt vel með erlendum skipum, sem hér stunda veiðar innan fisk- veiðilögsögunnar. Um hvíta- sunnuna bar þessi starfi varð- skipanna þann árangur að vestur-þýzki togarinn Bremer- haven var staðinn að veiðum með ólöglegan poka. Var hann strikaður út af skrá þeirra þýzku togara, sem heimild hafa til veiða innan 200 míln- anna. Samkvæmt upplýsingum Gunnars H. Ólafssonar, skip- herra, voru í gær 22 brezkir togarar að veiðum við landið, tveir voru á heimleið og einn á leiðinni til landsins. Þá var 21 vestur-þýzkur togari að veiðum við landið og einn á leið utan. Þrir Belgar voru að veiðum og tveir Færeyingar. legra loðnuveiða I sumar. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson mun fara til loðnu- rannsóknar og leitar norður af Vestfjörðum og Norðurlandi seinna í þessum mánuði en síðan er gert ráð fyrir að hefja tilrauna- veiðar á loðnu um mánaðamótin júní—júlí. Að sögn Hjálmars Vilhjálms- sonar, fiskifræðings, leggur Bjarni Sæmundsson upp i rann- sóknarleiðangur umhverfis landið þessa dagana og mun hann í leiðinni kanna svæðið norður í hafi með tilliti til loðnunnar. Rannsóknarskipið er síðan væntanlegt til hafnar aftur um 16. júní og í kringum 20. júní heldur skipið síðan í leiðangur gagngert til að athuga svæðið norður af Vestfjörðum og fyrir Norðurlandi og leita þar loðnu. Hjálmar sagði, að sjávarútvegs- ráðuneytið hefði fyrir nokkru auglýst eftir skipum sem hefðu hug á að taka þátt í tilraunaveið- um á loðnu í sumar og fengið margar umsóknir. V,æri gert ráð fyrir 4—5 skipurf til þessara veiða og væri ætlunin að þau Framhald á bls. 18 ÞJÓFAR voru á kreiki í Spari- sjóði Kópavogs 1 fyrrinótt. Kom- ust þeir inn 1 sparisjóðinn með lyklum sparisjóðsstjórans, sem þeir höfðu stolið á heimili hans fvrr um nóttina. Ekki komust þjófarnir inn f peningageymslu sparisjóðsins, sem er mjög ramm- byggileg, og það eina sem þeir höfðu upp úr krafsinu voru nokk- ur þúsund króna í peningum, að sögn rannsóknarlögreglunnar f Kópavogi. Ekki voru þetta einu þjófngð- irnir í Kópavogi þessa sömu nótt. Þjófarnir fóru einnig upp á efri hæðir hússins Digranesvegur 10, þar sem sparisjóðurinn er til húsa. Brutu þeir upp hurðir hjá sjúkrasamlaginu og tann- lækningastofu. Ollu þeir miklum skemmdum en munu hafa haft lítið upp úr krafsinu. Auk lykl- anna stálu þeir peningaveski úr buxum sparisjóðsstjórans og sömu leiðis stálu þeir veski með nokkrum tugum þúsunda í öðru húsi í Kópavogi. Komust þjófarn- ir inn í báðar íbúðirnar með því að reisa stiga upp að svölum. Voru íbúar í báðum íbúðunum í fasta svefni. Rannsóknarlögreglan i Kópa- vogi hefur mál þetta til rannsókn- ar. Hefur hún beðið Mbl. á koma því á framfæri, að ef einhver hef- ur orðið var við ferðir bifreiðar- innar Y — 100 þessa umræddu Framhald á bls. 18 Þessi mvnd var tekin 1934 af Robert Kenneth Wilson við Loch Ness og á að sýna Nessie. Sumir hafa haldið þvf fram að hér væri um bakugga á.hval að ræða. Leiðangur New York Times: Nú á að upplýsa Loch Ness leyndardóminn Morgunblaðið kaupir einkarétt á fréttum og myndum UM ÞESSAR mundir stendur yfir við Loch Ness i Skotlandi umfangsmesta og nákvæmasta tilraun, sem gerð hefur verið til að ganga úr skugga um hvort einhvers konar skepna eða skrýmsli á sér bústað í vatninu. Leiðangur þessi, sem skipaður er um 30 þekktum bandarísk- um visindamönnum, verkfræð- ingum og tæknimönnum, er gerður út af bandariska stór- blaðinu New York Times og bandarísku visindaakademí- unni. Takmark leiðangurs- manna er að komast að því i eitt skipti fyrir öll hvort eitthvert óvenjulegt fyrirbæri sé að finna í Loch Ness, hvað sem það kann að vera, og verður störf- um ekki hætt fyrr en gátan hefur verið leyst. Leiðangurinn kann að taka 2—3 vikur, allt sumarið, og fari svo, að ekki fáist niðurstaða á þessu ári, verður að ári haldið áfram með enn fullkomnari tækjabúnaði ef unnt verður að finna slfkan búnað. Leiðangursmenn hafa hins vegar á aö skipa einhverj- um fullkomnasta ljósmynda-, bergmálsmælinga- og liffræöi- rannsóknarbúnaði, sem völ er á. Morgunblaðið hefur keypt einkarétt á íslandi af frásögn- um og myndum af leiðangrin- Dr. Robert Rines leióangurs- stjóri t.v. við undirbúningsstörf um borð 1 leiðangursskipinu á Loch Ness nú í vikunni. ásamt dr. Harold Edgerton frum- kvöðli á sviði neðansjávarljós- myndunar. um og mun ásamt nokkrum stærstu blöðum heims flytja fyrstu fréttir. Á laugardag og sunnudag birtast i blaðinu fyrstu greinarnar og myndirnar frá leiðangrinum og siðan jöfn- um höndum eftir þvi sem þær berast til blaðsins. Tilraunaveiði á loðnu hefst um mánaðamótin f mm mmmm Olíuverzlun ísiands hefur keypt eignir British Petroleum hér á landi. Á næstunni mun nýtt, íslenskt einkenni, stuttnefniö OLÍS taka við af BP merkinu. Bensintankar, birgðageymslur, bifreiðar og tæki féiagsins verða m.a. þannig merkt framvegis. Olís hefur þó áfram umboð fyrir BP og MOBIL oiíur og aðrar vörur þessara framleiöenda. OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HE m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.