Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNÍ 1976
29
VELVAKAIMIDI
Velvakandi svarar' I síma 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
O Fyrsta staupið
Sigriður Asmundsdóftir
skrifar:
„Húsmóðir“ skrifar í „Vel-
vakanda" hinn 4. júní síðastl. og
lýsir vanþóknun sinni á ráðstöfun
menntamálaráðherra viðvíkjandi
vínveitingum. Veslings konan: Já
margt er nú mótlætið.
Ekki væri nú mikið um áfengis-
vandamál ef aldrei væri tekið
fyrsta staupið, frúin þekkir senni-
lega ekki fólkið, bæði karla og
konur, sem orðið hafa vínnautn-
inni að bráð, og eyðilagt líf sitt og
vandamanna sinna, og allar þær
hörntungar sem af áfengisnautn
geta skapazt. Það ætlar sér vist
enginn að verða áfengissjúkling-
ur þegar hann byrjar að neyta
veiganna. En gamalt máltæki
segir: Fyrsta staupið tekur
maðurinn, annað staupið tekur
hið næsta, en þriðja staupið tekur
manninn.
Ömurlegt er að sjá dauða-
drukknar konur og ungar stúlkur
sem ekki kunna fótum sínum for-
ráð á neinn hátt, og finnst mér
það sízt sæma okkur konum að
mæla með áfengisneyziu, og væri
það verðugt verkefni fyrir konur
svona að nýloknu kvennaári að
hamla gegn áfengistízkunni eftir
mætti.
Heill sé menntamálaráðherra,
og heill sé öllum þeim, sem vinna
að góðum og göfugum málum
meðal þjóðar vorrar. Ekki veitir
af.
0 Lokaðá
laugardögum
Maður, sem kallar sig
barnakarl, skrifar:
Það var á síðast liðnu hausti að
leikvallanefnd Reykjavíkur kom
á leikvöllinn á horni Njálsgötu og
Rauðarárstígs. Þessir herrar
furðuðu sig á því að konurnar,
sem þarna vinna, skuli geta
gengið í þessum kafsandi og
sögðu að þetta væri engum bjóð-
andi. Nú fyrst í gær bregður svo
við að menn koma frá bænum og
taka mörg bflhlöss af sandi af
leikvellinum, sem var nauðsyn og
setja svo perlumöl yfir. En þeir
verða að setja yfir allan völlinn,
annað er ómynd.
Hvenær ætlar bærinn að sjá um
að leikvallakonur fái frí á laugar-
dögum, eins og annað starfsfólk
borgarinnar. Konurnar hafa farið
fram á þetta, en verið svarað að
þá mundu þær ekki skila nógu
mörgum vinnustundum. Þetta er
fyrirsláttur. Það er vel hægt að
jafna því.
Það er athugandi að borgin veit-
ir þessa þjónustu fyrír ekki neitt
og er tsland eina norræna landið
sem það gerir. Sumir vellirnir eru
lokaðir á laugardögum.
# Hvað um börnin?
Velvakandi vil rétt skjóta
því að, hvort ekki sé rétt að at-
huga hvernig það kæmi við börn-
in og barnakonurnar, ef leikvellir
væru lokaðir á laugardögum. Það
sakar ekki stöku sinnum að líta
svolítið til þeirra líka, þegar
teknar eru ákvarðanir um vinnu-
tíma þeirra, sem gæta barna.
Nýlega talaði móðir ein við Vel-
vakanda og spurði hvort rétt væri
að börnum á barnaheimilum
Reykjavíkur hefði verið fækkað
um nær 100 vegna kjarasamninga
fóstranna, eftir að takmarkað var
hve mörg börn hveufóstra mætti
hafa. Hún kvaðst koma með barn
sitt á eitt af barnaheimilum
borgarinnar og sjá að húsrými
væri svo sannarlega ekki við nögl
skorið, svo ekki gæti það verið
það. Fannst henni alveg fjarstæða
i þeim barnaheimilisvandræðum
sem eru, að fækkað væri á
heimilunum. Þar væri hvorki ver-
ið að hugsa um börn né mæður.
Það mun rétt vera, að með
nýjum lögum og reglugerð sem
vinstri stjórnin setti, var það fest
að ekki mættu vera fleiri börn á
hverjar tva>r fóstrur en að meðal-
tali 16, það er að tvær gættu frá
12 og upp í 20 barna. Og að sjálf-
sögðu fylgir það að fækka varð
börnum á barnaheimilum í
borginni. Dagheimilin í borginni
munu vera 17 eða 18 talsins, svo
auðvelt er að sjá hvort það munar
ekki um það, ef fækkar á hverjum
stað. Séu börnin nær 100, sem
fækkar um, þá eru það meira en
heilt dagheimili.
Þar fyrir utan eru leik-
skólarnir, sem munu vera álíka
margir svo og skóladagheimilin
þrjú.
Jú, það mætti stöku sinnum líta
á það, að þessar stofnanir eru
fyrir börnin og til hagræðis fyrir
mæðurnar, en ekki sérstaklega
byggðar fyrir starfsfólkið.
læti, en kannski ekki ófreskja,
heldur aðeins þægindagráðugur
dekurdrengur með ákveðnar illar
hvatir, sem aðrir höfðu æst upp 1
honum.
Paui sneri sér að Gautier. Hann
sagði næstum þvf virðulega.
— Helen hefur rétt fyrir sér,
Jaeques. Við verðum að horfast í
augu við þetta. Við vorum fífl að
halda að þetta kæmist ekki upp.
Eg ek aftur heim til hallarinnar.
— Ætlarðu að segja lögregl-
unni allt sem gerzt hefur? spurði
Gautier.
— Já.
— Og skýra frá mfnum þætti f
málinu?
— £g skal auðvitað forðast að
bendla þig meira við málið en
nauðsynlegt er. Þú ert vinur
minn.
— Auðvitað, sagði Gautier og
skaut hann.
Hann hné niður við fætur Hel-
enar. Hún æpti ekki. Hún hopaði
eins og ósjálfrátt á hæli og greip
höndum fyrir e.vrun fáein andar-
tök. I)avid stökk til hennar til að
grípa hana ef hún hrasaði.
HÖGNI HREKKVÍSI
■x.nf l»76
9 A M,NauKht
„Hvaé'varð um alla peningana?4
AUÐVELT IUPPSETNINGU -
ÖHDVEGIS GEYMSLA
Reiöhjól, sláttuvélar, garðyrkjuáhöld
o.fl. þurfa líka „þak yfir höfuðið”
HÖFUM Á LAGER KANADÍSK
GARÐHÚS ÚR STÁLI
10% AFSLÁTTUR
AAn^ort klrnAir ondsst
%funna'/ S4þ&á'thb(m h.i.
Akureyri ■ Glerárgötu 20 Simi 2-22-32
Reykjaytk - Sudurlandsbraut 16 ■ Simi 3-52-00
LSHenán
16975 SMIIVUVEGI6 SÍMI 44144
Skodsborgarstóllinn
Hátt sæti. Háir armar, höfuðpúði og íhvolft
bak fyrir góða hvíld
Ný stóltegund hönnuð fyrir þá, sem erfitt eiga með að rísa upp
úr djúpu sæti, þurfa góðan stuðning og þægilega hvildarstell-
ingu.
Stóllinn er framleiddur fyrir áeggjan forstöðumanna elli- og
endurhæfingarstofnanna hér á landi.
Nafnið gáfum við honum, án nokkurrar hugmyndar um hvort
svo góður stóll sé til á þvi fræga hvildarsetri.