Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976 11 !»•'* s i L J # t * Sýniréttarhöld haldin í Angola ^ ÞRETTÁN málaliðar sem börðust i borgarastríðihu í Angóla — tiu Bretar, tveir Bandaríkjamenn og einn Argentínumaður — hafa verið leiddir fyrir rétt i Luanda. ákærðir fyrir „glæpi gegn mannkyninu' Réttarhöldin hafa þegar vakið mikið umtal þótt þau séu rétt hafin Angólamenn hafa reynt að sannfæra útlendinga um að réttarhöldin verði heiðarleg og eyða tali um að þau þjóni póli- tiskum tilgangi Því hefur á hinn bóginn verið haldið fram, að þetta verði ein mestu sýni- réttarhöld, sem efnt hafi verið til í Afríku Réttarhöldin fara fram í svo- kallaðri verzlunarhöll, þar sem strangur vöróur er við alla út- ganga Dómssalurinn tekur 300 manns í sæti og færri k,/fTido' að en vilja Á leiðinni þ ngaó anga gestir fram hjá háum veggmyndum sem eiga að sýna dásemdir lífs fólks i Angóla undir fyrrverandi lendustjórn Portúgala ny Svör hafa ekki fengizt við þvi hvort málaliðarnir verða teknir af lifi samkvæmt angólskum lögum ef þeir verða fundnir sekir Fáir eru hins vegar i nokkrum vafa um að málalið arnir fái að minnsta kosti langa fangelsisdóma Angólastjórn hefur boðið áheyrnarfulltrúum að fylgjast með réttarhöldunum og þeir mynda svokallaða ..alþjóðlega rannsóknarnefnd" um starf- semi málaliða Fulltrúarnir sem sitja ? nefndinni eru á milli 30 og 50, meðal annars frá Ein- ingarsamtökum Afríku, sam- tökum blökkumanna í Suður- og Suðvestur-Afríku. Frelsis- samtökum Palestínu, Sviþjóð, Bandarikjunum, Kanada, Tanzaníu, Guineu-Bissau, Kongó-Brazzaville, Ástralíu, Belgiu, Hollandi, Brazilíu, Víet- nam, Rússlandi. Kap Verde oq Kúbu Kunnasti sakborningurinn er Costas Georgiou, 25 ára kýp- urbúi, öðru nafni „Callen of- ursti" og fyrrverandi majór í FNLA, fylkingu Holdens Roberto Hann er eftirlýstur í Bretlandi vegna frétta um fjöldamorð á málaliðum 14 febrúar Portúgalskur málaliði í Angóla Assad og Arafat: ordnir óvinir • EF Hafez Assad forseti hefði sent sýrlenzkt herlið langt inn I Líbanon fvrir nokkrum ár- um stæðu Mið- austurlönd í log- um. Nú eru tsraels- menn hinir rólegustu svo að Bandarfkjamenn hljóta að hafa Svikari í augum Palestínumanna fullvissað hann um að hann þvrfti ekkert að óttast úr þeirri átt, Rússar virðast einnig hafa veitt samþvkki sitt. Assad er þar með orðinn svikari í augum Palestfnumanna og þeir eru haMtulegir óvinir. En sýrlenzki forsetinn hefur oft komizt í hann krappann og jafnan borið sigurorð af óvinum sfnum. Hann hefur verið lengur við völd en nokkur annar sýrlenzkur valdhafi frá stríðslokum. Aður en Assad hrauzt til valda f nóvember 1970 hafði hann unnið að því ártim saman að bola andstæðingum sínum í Baath-flokknunt úr áhrifastöðum. Hann hafði einnig vakandi auga með þvf sem gerðist í heraflanum, sem völd hans byggjast á. Þegar hann varð landvarnaráðherra vildi hann ekki láta af starfi yfirntanns flughersins. Faðir Assads, Ali Assas, var kunnur fvrir baráttu sfna gegn nýlendustjórn Frakka. og afi hans, Sleilman. barðist gegn Tyrkjum. Fjölskvlda hans var fátæk. hann átti fimm bræður og tvær systur og ólst upp í þorpinu Kardaha suðaustur af hafnarborginni I.atakia. Hann hevrir til múhameðskum sórtrúarflokki sem er áhrifamestur. Undirstöðurnar sem völd Assads hvíla á eru þrjár: (1) Alawitar (2) Flugherinn og (3) Baath-flokkurinn. Alawitar eru voldugir í heraflanum. símar 25590 21682 3ja herbergja kjallaraíbúð i timburhúsi við Bjargarstig sérinngangur og hiti, laus strax, útborgun aðeins 2 milljónir sem má skipta á 16 mánuði. 4ra herbergja ca 100 ferm v/Efstaland (2. hæð efsta) íbúðin er sérstaklega vel skipulögð og allar innrétting- ar eru vandaðar og miklar. 4ra herbergja risibúð v/Hofteig, 3 svefnher- bergi eru i ibúðinni, íbúðin er laus til afhendingar nú þegar. 4ra herbergja endaíbúð v/Álfaskeið Hf. Þvotta- hús á hæðinni, bílskúrsréttur. 6 herbergja endaíbúð v/Hjallabraut Hf. 4 svefnherb. ibúðin er ca 150 ferm. Haqstæð lán áhvilandi laus 1 /7 76. Byggingarlóð við Unnarbraut Seltjarnarnesi sem má byggja á einbýlishús eða tvíbýlishús. Raðhús á tveim hæðum við Öldutún Hf. 3 stór svefnherb. eru i húsinu, möguleiki fyrir 4. herbergið. Bíl- skúr fylgir. „ MIPBORG Lækjargötu 2 Nýja Bíó) Simar 25590 og 21682 Heimasímar Jón Rafnar 52844 Hilmar Biörqvinsson hdl. 42885 MINNI Væntanlegir húskaupendur ath.: Þessi fallegu hús, fullfrágengin að utan með olíumöl á bílastæði heim að bilskúrsdyrum, svo og með fullfrágenginni aðalgötu og gangstétt, eru til sýnis á 1 9:30—21 og á laugardag kl Upplýsingar um húsin verða veittar á sama tíma. Hús í sérflokki — Lokuð gata — Veðursæld íbúðaval Kambsvegi 32, R., símar 34472 - 38414 Sýning á búningateikningum Lárusar Ingólfssonar LAUGARDAGINN 5. júnf hófst sýning á Kristalssal f Þjóóleik- húsinu á búningateikningum eftir Lárus Ingólfsson. I.árus starfaði við Þjóðleikhúsió allt frá opnun þess, 1950, þar til hann lét af starfi yfirleikmyndateiknara um sfóustu áramót. Haföi hann þá starfaó sem leikari, leikmvnda- og búningateiknarv við flestar sýningar leikhússins í 25 ár. Á sýningunni á Kristalssal eru milli 80 og 90 búningateikningar eftir Lárus viö 14 leiksýningar. Meóal teikninganna eru búninga- teikningar hans við vígslusýningu Þjóóleikhússins á Nýársnóttinni 1950, en meðal annarra sýninga má nefna Islandsklukkuna, Mann og konu, Tyrkja-Guddu. Blóö- brullaup. George Dandin. Rak- arann i Sevilla. Brúðkaup Fjgarós, Mutter Courage og fleiri. Sýningin verður opin i tengsl- urn við Ieiksýningar leikhússins meðan á Listahátið stendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.