Morgunblaðið - 10.06.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNÍ 1976
7
Breyttir
starfshættir
landhelgisgæzlu
Flest löggæzluskipa
okkar eru löskuð, að vísu
misjafniega mikið, og
þarfnast viðgerða. Þess-
um viðgerðum verður nú
sinnt, eftir því sem að-
stæður leyfa, jafnframt
því að haldið verður uppi
fullri gæzlu á miðunum.
Ljóst er, að farsæl og frið-
samleg lausn landhelgis-
deilunnar við Breta hefur í
för með sér breytta starfs-
hætti gæzlunnar. Hún
getur nú betur sinnt
margháttuðu eftirlits-
starfi, sem átökin við
Breta komu nær i veg fyr-
ir, m.a. með veiðarfærum
erlendra og innlendra
fiskiskipa á miðunum.
Slíkt eftirlit er þegar kom-
ið á gott skrið. Sem betur
fer hafa veiðarfæri flestra
skipa reynzt lögleg, þó
með einni undantekningu.
V-þýzki togarinn Bremer-
haven var staðinn að þvi
að vera með klædda
vörpu og möskvastærð
allt niður i 45 mm. Sá
togari hefur nú verið
sviptur veiðiheimildum og
visaðaf íslandsmiðum
Það er mjög mikilvægt,
að gæzlunni gefist tóm til
að sinna slíkum eftirlits-
störfum, bæði með inn-
lendum og erlendum
veiðiskipum. Ekki síður að
nú verða hin alfriðuðu
hrygningar- og uppeldis-
svæði ungfisks virt í
raun. Þá skiptir og miklu
máli, að sjávarútvegs-
ráðuneytið getur nú friðað
án fyrirvara um ákveðinn
tima einstök hafsvæði,
sem ungfiskur kann að
ganga á, ef fiskifræðingar
telja slíkt æskilegt frá
fiskverndarsjónarmiði.
Þjóð í
þakkarskuld
Starfsmenn landhelgis-
gæzlunnar hafa á undan
fömum mánuðum sinnt
sínum skyldustörfum með
þeim hætti, að þar er
þjóðin öll i þakkarskuld.
Við erfiðar aðstæður hafa
þeir torveldað ólöglegar
veiðar verulega og styrkt
þá samningsaðstöðu, sem
að lyktum leiddi til viðun-
andi skammtíma samn-
inga og viðurkenningar
mótaðilans á 200 mílna
fiskveiðilandhelgi okkar.
Það er mikið lán að engir
löggæzlumanna okkar á
miðunum skuli hafa týnt
lífi eða slasazt, svo orð sé
á gerandi, T öllum þeim
hildarleik, sem nú er að
baki. Þar munaði þó oft
mjóu og átökin höfðu svo
sannarlega þróazt á það
hættustig, að hvenær sem
er gat leitt til lífstjóns.
Sem betur fer fannst
lausn á deilunni áður en
kom til svo alvarlegra at-
burða: lausn, sem fól í sér
fulla viðurkenningu á fisk-
veiðilandhelgi okkar.
Hefði stjórnarandstað
an hinsvegar fengið vilja
sinn í þessu efn^ þ.e. sam-
komulagsleiðinni verið
lokað, væri landhelgis-
átökin enn i fullum gangi,
með öllum þeim hættum,
sem þeim var samferða
— og landhelgishags-
munum okkar fórnað í
baráttu fyrir „markmiði"
óskyldu fiskverndarsjón-
armiðum, þ.e. úrsögn úr
Nato, sem er pólitískt trú-
aratriði íslenzkra komm-
únista.
Sjávarútvegs-
ráðstefna FSN
Þeim sigri, sem nú hef-
ur náðst, þarf þegar að
fylgja eftir með óhjá-
kvæmilegum fiskverndar-
aðgerðum, sem miði að
því, að helztu nytjafiskar
okkar nái sem fyrst eðli-
legri stofnstærð á ný, svo
þeir geti gefið hámarksaf-
rakstur í þjóðarbúið. Þetta
er máski stærsta og af-
drifaríkasta verkefni núlif-
andi kynslóðar í landinu.
Skynsamleg stjórnun
veiða og vinnslu er óhjá-
kvæmilegur undanfari ár-
angurs f því efni. Þar
þurfa heildarsjónarmið en
ekki þröng hagsmuna-
sjónarmið afmarkaðra
svæða að ráða ferð, þótt
réttmætt tillit þurfi að
taka til allra landshluta
Norðlendingar riða á
vaðið með ráðstefnu um
þetta efni. Fjórðungssam
band Norðlendinga efnir
til ráðstefnu nk. laugar-
dag, þar sem sveitar-
stjórnarmenn, hagsmuna-
aðilar í sjávarútvegi og
fiskvinnslu á Norðurlandi,
fulltrúar sjávarútvegs-
ráðuneytis og fiskfræð-
ingar þinga um nýtingu
hafsvæðisins fyrir Norður-
landi, frá Horni að Langa
nesi. Markmið ráðstefn-
unnar er að undirbúa sam-
ræmda stefnu í þessu efni
á grundvelli könnunar á
stöðu sjávarútvegs og
fiskvinnslu í landsfjórð-
ungnum. Ráðstefnunni
verður fylgt eftir með
skipun nefndar sem held-
ur starfi hennar áfram, og
leggur niðurstöður sínar
fyrir fjórðungsþing FSN,
sem haldið verður i Siglu-
firði i ágústlok nk. Von-
andi tekst hér til sem til er
stofnað.
(MtDSENDING
lll Broyt eigenda
Þann 12. júní kemur sérstakur
viðgerða- og þjónustubíll frá
Breyt verksmiðjunum til lands-
ins. Bíllinn, ásamt norskum
sérfræðingi mun ferðast um
landið og veita Broyt eigendum
ókeypis yfirferð og stillingu á
vélum þeirra. Ferðin hefst á
Seyðisfiröi.
Skrifið eða hringið í Velti h/f,
Suðurlandsbraut 16, sími
35200, og pantið Broytbílinn til
ykkar.
Sérfræðingurinn metur ástand
vélarinnar, fer yfir og stillir
vökvakerfið, og gerir við. Við-
gerðir og varahlutir eru gjald-
skyld, en yfirferð og um það bil
50-90 stillingaratriði eru ó-
keypis.
Pantið Broytbílinn til ykkar
strax í dag, svo að hægt sé
að senda bílinn og sérfræðinga
á vinnustað ykkar!
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16*Simi 35200
Ég óska eftir Breyt yfirferö og Nafn________________________________________________
stillingu. Látið Braytbílinn
koma við hjá mér. Heimilisfang_________________________________Sími
Vinnustaður
T résmíðameistarar
óskast til að gera tilboð i að endurnýja þök á þrem
samliggjandi húsum við Miklubraut. Upplýsingar i
síma 10573.
BLÓMAKER
GARÐÞREP
MOSAIK HF. SssSS*4
Til sölu
sérlega vel með farinn Mercury Comet Custom
árgerð '74. Vökvastýri — sjálfskiptur. Ekinn
28 þús. km.
Upplýsingar í sima 13699 kl. 12 —14 og
34521, kl. 19 — 20.
PHIUPS
PHILIPS
KANN TÖKIN A TÆKNINNI