Morgunblaðið - 10.06.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976
15
(Jr The Guardian.
Afli Breta minnkar
um 10.000 tn á ári
vegna samningsins
• •
Ongþveitisástand í brezka fiskiðnaðinum
BRETAR hafa nú þungar
áhyggjur af því að þorsk-
verð í Bretlandi muni
rjúka upp úr öllu valdi
með samkomulaginu við
íslendinga um lausn fisk-
veiðideilunnar, auk þess
sem fyrirsjáanlegt er
verulega minna framboð.
í The Times segir frétta-
maður blaðsins í Hull,
Neville Hodgkinson, að
samtök brezkra togara-
eigenda telji að þær
veiðitakmarkanir sem í
samningunum felist
dragi úr afla brezkra tog-
ara, einkum þorskafla,
um 100.000 t. á ári. Þó svo
að fiskinnflutningur
muni vega he'r nokkuð
upp á móti sé ljóst að
brezkar húsmæóur muni
þurfa að láta meir af
hendi rakna fyrir soðn-
inguna. Mataræðissér-
fræðingur blaðsins,
Patricia Tisdall, segir
jafnframt í grein, að við
þetta bætist aó verð-
hækkanirnar muni ekki
aðeins ná til þorsks, held-
ur og til ýsu og kola, auk
þess sem skortur er á nið-
ursoðnum fiski, svo sem
laxi og túnfiski. Eini nió-
ursoðni fiskurinn, sem
unnt sé að fá á viðunandi
verði um þessar mundir,
sé sardínur.
Haft er eftir talsmanni sam-
taka togaraeigenda aö um 110
togarar séu viö íslandsveiðar,
og þá sé ekki auðvelt aö senda á
veiðar annars staðar, bæði
vegna þess að þeir séu illa til
þess fallnir og vegna veiðitak-
markana. Af þessu leiði að um
60 togarar af þessum 110 verði
teknir úr untferð og 1500 tog-
aramenn missi atvinnuna. Er
búist við að fiskveiðibæirnir
við Humru, Grimsby og Hull,
muni missa um 45 togara, Fleet-
wood 10 — 12, og afgangurinn
lendi á Aberdeen og North
Shields.
Hull, sem byggir fiskveiðar
sínar að langmestu leyti á út-
hafsveiðum, mun verða verst
úti, segir fréttamaður Times.
Þegar eru um 10.000 manns at-
vinnulausir í Hull og nágrenni,
sem er um tíundi hluti vinnu-
færra karla þar.
Hnignun úthafsveiðanna
undanfarna 18 mánuði hefur
þegar leitt til þess að 1400 sjó-
menn hefðu orðið atvinnulausir
í brezka fiskiðnaðinum, segir
talsmaður togaraeigenda. Árið
1971 var heildarafli Breta á ls-
landsmiðum 207.000 tonn, þar
af 157,000 tonn af þorski. Á
síðasta ári var heildaraflinn á
íslandsmiðum hins vegar að-
eins 111,000 tonn, þar af 91,000
af þorski. Eins og fram hefur
komið i fréttum fer brezka út-
gerðin fram á bætur frá brezka
ríkinu fyrir aflatap, togara sem
taka þarf úr umferð og fyrir
menn sem missa atvinnuna.
Þá leggja forystumenn
brezka fiskiðnaðarins, að sögn
Times, nú höfuðáherzlu á mót-
un skýrrar brezkrar fiskveiði-
stefnu sem gerir þessum
atvinnuvegi kleyft að skipu-
leggja starfsemi sína fram í
tímann, og hamla gegn þeirri
þróun að Bretar reiði sig æ
meir á fiskinnflutning. Heildar-
afli Breta árið 1974 var 713,000
tonn, og árið 1975 671,000 tonn.
Innflutningur á fiski óx hins
vegar úr 145,000 tonnum í
153,000 tonn á þessum tveimur
árum.
Kjarnorkuverin í Kaliforníu:
TILLAGA UM STÓR-
AUKNAR ÖRYGGIS-
KRÖFUR VAR FELLD
Los Angeles 9. júnf—AP.
TILLAGA um að innleiða mjög
strangdr takmarkanir á starfsemi
kjarnorkuvera, sem margir sér-
fræðingar hafa sagt að myndu
þýða bann við þessari tegund
orku, var felld með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða kjósenda 1
Kaliforníurfki í gær. Var búizt
við að þegar öll atkvæði hefðu
verið talin næmi fylgi við tillögu
þessa aðeins um þriðjung þeirra.
Ralph Nader, neytendamálafor-
sprakkinn kunni, sem barizt hef-
ur fyrir samþykkt þessa frum-
varps, sagði að ástæðan fvrir þess-
um ósigri væri „stórlega afbökuð
og röng upplýsingadreifing stórra
orkuvera og olfufélaga sem beitt
hafa sér að alefli gegn tillögunni.
Dame Sybil
Thorndike
er látin
London 9. júnf — NTB
DAME Sybil Thorndike, ein af
fremstu leikkonum Bretlands á
þessari öld, lézt í London i dag, 93
ára að aldri. Hún var einkum
þekkt fyrir leik sinn i verkum
Shakespeares og Bernard Shaws.
Hún varð fyrst til að leika
Jóhönnu af Örk í „Heilagri
Jóhönnu“ eftir Shaw árið 1924, en
fyrir leik sinn f þvi hlutverki
hlaut hún mikla frægð. Henni
þótti þó ekki siður takast vel upp i
melódramatískum verkum og létt-
um gamanleikjum síðar meir. Að
mati gagnrýnenda tiáði hún há-
punkti leikferils síns 87 ára að
aldri er hún árið 1969 lék aðal-
hlutverkið í „There Was an Old
Woman" í nýja leikhúsinu í Lond-
on sem ber nafn hennar. Hún var
virk leiksviðsleikkona til níræðis-
aldurs.
Andstæðingar frumvarpsins,
sem sögðu það bjóða heim efna-
hagshruni og nýrri orkukreppu,
voru kampakátir yfir úrslitunum.
Frumvarpið snerist ekki aðeins
um öryggismál við kjarnorkuver,
heldur væri um að tefla atvinnu-
mál, efnahagsmál og orkuþörf
íbúanna. Ef frumvarpið hefði ver-
ið samþykkt hefði öllum raforku-
verum í Kaliforníu verið lokað
fyrir árið 1987, ef öryggisráðstöf-
unum sem krafizt er i því hefði
ekki verið framfylgt. í a.m.k. 10
rikjum Bandaríkjanna til viðbót-
ar er verið að athuga sams konar
frumvarp.
Nú bjóða
Rússar upp á
gervikavíar
Moskvu 4. júní — AP
EFTIR áratugslanga tilrauna-
starfsemi hefur Sovétmönnum
loksins tekizt að búa til gervikav-
iar. Ilann Iftur út eins og ekta-
kavfar, hann bragðast svipað og
ektakavíar og Ivktar svipað og
ektakavlar. En hann er hins vegar
mestan part gerður úr hleyptri
mjólk og ýmsum öðrum náttúru-
legum efnum, sem eru alls óskyld
hinum eftirsóttu styrjueggjum.
Svarti liturinn kemur frá tei og
járnklóríði, og bragðið og Ivktin
frá lax- og síldarhrognum. Þrjú ár
eru sfðan skýrt var fyrst frá þess-
ari uppgötvun en fyrst nýlega
voru Sovétmenn orðnir svo vissir
1 sinni sök að þeir hófu fram-
leiðslu á gervikavfarnum fyrir
sovézkan neytendamarkað á
reglubundnum grundvelli.
Ekki ganga þó framleiðendur
svo langt að halda þvi fram að
gervikavíarinn komi i stað hins
ekta, en þeir vonast þó til þess að
hann leiöi til þess að hinn al-
menni borgari geti á ný leyft sér
að finna kavíarbragð. Kavíar hef-
ur orðið æ sjaldgæfari og dýrari á
sovézkum innanlandsmarkaði
undanfarin áratug vegna þess að
hrygningarstöðvar styrjunnar
hafa verið eyðilagðar vegna
áhrifa iðnvæðingarinnar. Arið
1965 gátu Sovétmenn keypt kílóið
af bezta kavíar á 18 rúblur. í dag
— ef kavíar finnst á annað borð
— kostar kílóið 45 rúblur, sem er
þriðjungur af meðal mánaðar-
launum sovézkra borgara. Gervi-
kavíarinn kostar hins vegar 11
rúblur kilóið, og hann hefur þeg-
ar selzt vel, þótt framleiðsla hans
sé enn í lágmarki.
ERLENT
Málaliðar fyrir
rétt í Angóla
Luanda 9. júní — Reuter.
BtJIZT var við því að þúsundir
Angólabúa myndu fara i fjölda-
göngur I höfuðborginni Luanda 1
dag til að lýsa stuðningi við máls-
höfðun á hendur 13 hvitum mála-
liðum, en réttarhöld ( málinu
eiga að hefjast á föstudag. Mála-
liðarnir, — níu Bretar, tveir
Bandaríkjamenn, tri og Argen-
tfnumaður — náðust f borgara-
styrjöldinni f landinu og eiga, að
sögn lögfræðings Bandarfkja-
mannanna, yfir höfði sér dauða-
dóm. Að sögn lögfræðingsins er
málið á hendur mönnunum 13
ekki á traustum grundvelli byggt
og flestar sannanirnar byggðar á
sögusögnum.
A UÐÆFIPA ULS GETTYS RENNA TIL
ÞRIGGJA SONA OG ELLEFU KVENNA
Los AtiReles 9. júní Reuter.
ERFÐASKRÁ olíuauð-
jöfursins Pauls Getty
hefur verið birt og sam-
kvæmt henni renna 650
milljónir dollara til sona
hans og ellefu kvenna.
Tekið var fram í erfða-
skránni að fé mætti ekki
ganga til sonarsonar
hans, Pauls Getty III,
sem komst í fréttir fyrir
fáeinum árum er ræn-
ingjar höfðu hann á brott
með sér og kröfðust þess
að fá tvær og hálfa millj-
ón dollara í lausnargjald.
Getty elzti var þá mjög tregur
til að reiða fram féið en gerði
það á endanum. Konurnar ell-
efu sem fá ýmist fé eða hluta-
bréf eru lítt þekktar og aðeins
er nefnt heimilisfang einnar
þeirra. Sú fær eitt þúsund
hlutabréf í fyrirtækinu Getty
Oil Co., en hvert hlutabréf er
um það bil 165 dollara virði nú.
Ekki er vitað til að konur þess-
ar hafi verið í þjónustu millj-
arðamæringsins.
Þá ákvað Getty að fimmtiu
þúsund dollarar skyldu renna
til að reisa minnismerki úr
marmara um hann og eftirkom-
endur hans á Malibu.
Synirnir þrir eru Jean Ron-
ald Getty, Gordon Peter Getty
Paul Getty.
og J. Paul Getty jr. Þá fékk
fyrrverandi eiginkona hans.
sem hann skildi við fyrir tutt-
ugu árum 55 þúsund dollara á
mánuði það sem hún á eftir
ólifað.
1 erfðaskránni var klausa um
að geri einhver sem þar er ekki
nefndur kröfu til arfs og þvkist
vera eiginkona eða sonur skuli
viðkomandi aðeins hljóta tíu
dollara og þó því aðeins að þeir
geti lagt fram viðhlitandi máls-
skjöl sem renni stoðum u'ndir
kröfur þeirra.
Getty lézt í London á laugar-
dag 83 ára gamall. Hann mun
einnig hafa látið eftir sig gífur-
leg önnur verðmæti sem bund-
in eru i fyrirtækjum og hluta-
bréfum víða um heim.