Morgunblaðið - 10.06.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976
íslenzkir
kammertónleikar
Fyrir rúmu ári, þegar yfir-
standandi listahátíð var um þad
bil ad íara út um þúfur, eða
eins og málin stóðu þá, aó lista-
hátíó yrói ekkí haldin, geróu
listamenn haróa hríó aó stjórn
listahátíóar, sem bar fyrir sík
félevsi. bessu svöruóu íslenzkir
tónlistarmenn, aó þeir væru
reióubúnir til starfa án endur-
Kjalds. Má vera aó framlaK Isl.
tónlistarmanna sé af mör.Kum
ekki taliö mikils viröi en þessi
ákvöröun og samstaöa allra ís-
lenzkra listamanna. var þunKt
lóö á metaskálunum. er ák’ öró-
un var tekin um aó halda yfir-
standandi listahátiö. b.lenzku
kammertónleikarnir ao Kjar-
valsstöóum í f»ær, voru fyrir
marKra hluta sakir fróöleKÍr. en
á þeim tónleikum bar hæst leik-
ur Guönýjar Guömundsdóttur i
Tzipane eftir Ravel ok ílutninK-
ur átta hlásara undir stjórn
Páls P. Pálssonar á blásaraokt-
ettinum eftir Stravinský. Tón-
leikarnir hófu.st meö þjóölaKa-
útsetninKU fyrir píanókvintett
eftir undirritaóan, sem, því
miður, veróur aö seKjast eins ok
er, voru væKast saKt illa teföar.
Klarinett-kvintett var ntesta
verkefni, ok var marKt vel Kcrt
i því verki. Þaö fer aó vera
nauösynk’Kt, aö ísl. hljóöfæra-
leikurum sé sköpuö aöstaöa til
aö fást viö kammertónlist, sem
sérRrein, annars veröur enRÍn
mynd á meöferö or túlkun
slfkra verka. Þaö e.r ekki nÓR aö
vera Róöur hljóöfæraleikari.
Kammertónlist er nauösynleRt
aö kvnna sér sérstakleRa ok æfa
undir stjórn or KaRnrýni sér-
menntaös tónlistarmanns.
SiRuröur Snorrason var helzt
of hlédræRur or svo mjöR. aö
stundum heyröist varla til
hans. Eftir hlé sönR SÍRríóur E.
Tðnllst
Á LISTAHÁ TÍÐ
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
MaRnúsdóttir ísl. þjóðlöR i
raddsetninRu Haflióa Hall-
Rrímssonar. LöRÍn eru fínleRa
ok falleRa unnin or voru mjÖR
vel flutt. Á meðan Guöný Guð-
mundsdóttir lék TzÍRane eftir
Ravel, heyrðist ýlfur úr kyndi-
kerfi hússins, sem á mörRum
tónleikum hefur veriö eins kon-
ar ..basso eontinuo", en var tek-
iö úr sambandi meö fyrrRreind-
um afleiöinRum. ÞeRar ýlfriö
hætti var salurinn hljóöur, svo
aö heyra mátti saumnál detta.
Vonandi veröur sá háttur hafö-
ur á, aö slökkva á þessu bann-
setta loftræstikerfi á na*stu tón-
leikum. Guöný lék TzÍRane Rav-
els af þrótti or skaphita or
vakti leikur hennar mikla
hrifninRu áheyrenda. Síðasta
verkið var oktett Stravinskýs,
sem blásarar úr sinfóníuhljóm-
sveit Islands léku undir stjórn
Páls P. Pálssonar. Leikur
þeirra var sérleRa Klæsik’Rur,
en án allrar listrænnar mótun-
ar. FlutninRur þessa verks
verkaói á undirritaöan eins or
leikin va>ri lúórasveitarmars.
Þaö var hverRÍ slakaö á, þar
sem tónhendinRarnar tóku viö
hver af annarri án þess aö eÍRa
sér niöurlaR eóa upphaf. Sem
saRt, RlæsileRur en kaldur leik-
ur Jón ásr.
Brezhnev sakar
Bandaríkin um
að auka spennu
á Indlandshafi
Moskvu —9. júní — NTB
I VEIZLU, sem Leonid Brezhnev
aöalritari sovézka kommúnista-
flokksins hélt Indiru Gandhi í til-
efni opinberrar heimsóknar
hennar til Sovétríkjanna i
Moskvu í Rær, sakaói hann Banda-
rikjainenn um aó auka á spennu
Indlandshafi. Hann nefndi ekki
hína nýju herstöó Bandaríkja-
manna á eynni Diego Garcia, en
stjórnmálaskýrendur telja ótví-
rætt aó flokk.sleiðtogínn hati
höföað tíl hennar. Hann sagöi
Sovétmenn hafa gefiö ótvírætt til
kynna aö þeir hyggðu ekki á hern-
aóarumsvif á Indlandshafi, og
ætluöust þeir til aö Bandaríkja-
menn geróu slíkt hiö sama.
— 5 Arabaríki
Framhald af bls. 1
yfirlýsingu sína um sameigin-
legar hersveitir aöildarrikjanna,
sem sendar yróu til að skakka
leikinn í Líbanon, hafði stjórn
Sýrlands skýrt frá því, aó her-
sveitir frá Líbýu og Alsír væru á
leið til Sýrlands til að ganga í lið
með Sýrlendingum í því skyni að
stilla til friðar i Líbanon, og hefói
ákvöröun um sameinaðar aðgerð-
ir herja þessara ríkja verið tekin
á æðstu stööum í Damaskus,
Alsírborg og Trípólí. Skömmu
síðar bárust þær fregnir, að sveit-
ir úr her íraks hefðu lagt af stað
frá Bagdad til að gegna sérstöku
hlutverki i höfuðborg Líbanons.
sýningarsalur
Tökum allar gerðir notaðra bifreiða i umboðssölu
iat 850 71 270.000 Fiat 128 Rally 75 950 000
iat 126 '74 550.000 Fiat 128 Rally '76 1 150.000
iat 126 '75 600.000 Fiat 132 special '73 900 000
iat 125 71 450 000 Fiat 132 GLS 74 1 200 000
iat 125 special '72 550 000 Fiat 132 GLS 75 1 400 000
iat 124'67 240.000 Fiat 131 Mirafiori '76
iat 125 P'72 450.000 1 400 000
iat 125 P 73 520.000 Ford Escort 74 750 000
iat 125 P 75 800 000 Toyota Crown '70 700 000
iat 127 Berlina '72 400 000 Toyota Carina '74 1.250.000
iat 127 Berlina '73 500 000 Sunbeam Flunter '70 400 000
iat 127 Berlina '74 600.000 Lada Station '74 750.000
iat 127 Berlina '75 750.000 Landa Topáz 2103 '74
iat 1 28 Berlina '72 460.000 800.000
iat 128 Berliria '73 570 000 Austin Mini '74 550.000
iat 128 Berlina 74 700.000 Citroen GS 1220 '74
iat 128 Berlina '75 900 000 1.350.000
iat 128 Rally 73 650 000 Datsun 180 B, árg 1972,
iat 128 Raily ' /? 100.000 verð 1200 þús.
án þess að nánar væri skilgreint i
hverju þetta hlutverk yrði fólgið.
Þáttur Iraks í hernaðarumsvif-
um þessum er óljós, en óstaðfest-
ar fregnir frá Kaíró voru um, að
Egyptar og íraksmenn hefðu hætt
vió að taka þátt í aðgerðum Ar-
ababandalagsins vegna ágrein-
ings við Sýrlendinga.
Forsætisráðherra Líbanons,
Abdel-Salam Jalloud, reyndi i dag
að koma á vopnahléi milli her-
sveita Sýrlendinga og PLO, sem
barizt hafa hatrammlega í Beirút
undanfarna sólarhringa. Stanz-
laus skothríö dundi i borginni.
Utvarpsstöð í Beirút, sem er á
valdi vinstri mannaflutti jafnóð-
um tíðindi af gangi bardaganna,
þar til útsendingar þess hættu
skyndilega i dag. Hafa útvarps-
stöðvar vinstri sinna flutt' fregnir
af bardögum í Trípólí og Sídon.
Skriðdrekasveitir Sýrlendinga
voru enn á þjóðvegi nálægt vígi
Kamals Jublatt, Ieiðtoga vinstri
sinna i Líbanon, í námunda við
Aley. Sjónarvottar báru, að skrið-
drekaliðið virtist ekki hyggja á
stórræði í bráðina, og var ástand-
ið á þessum slóðum fremur rólegt
eftir mikla bardaga, sem þar geys-
uðu i gær og ollu bæði mannfalli
og eignatjóni.
Yfirlýsingar PLO og vinstri
sinnaðra bandamanna þeirra í
Líbanon gefa til kynna að þeir
hyggist ekki gefast upp fyrir Sýr-
lendingum í bardögum í Líbanon,
heldur berjast til síðasta blóó-
dropa. Telja þeir, sem aðstöðu
hafa til að fylgjast með gangi
mála í landinu, að Sýrlendingar
hafi í hyggju að umkringja höfuð-
borg landsins og bíða síðan átekta
i einn eða tvo daga, áður en
ákvörðun verður tekin um hvort
þeir geri innrás í borgina. Verði
sú raunin er fyrirsjáanlegt gífur-
legt mannfall, í liði PLO og
vinstri sínna eða fjöldamorö eins
og fréttamaður Reuter orðar það,
þegar ráðizt verður á vígi þeirra i
Beirút.
íbúar borgarinnar eru þegar
farnir að finna fyrir nokkurs kon-
ar umsátursástandi. Vatn er af
skornum skammti, rafmagnslaust
er að mestu, olía er nær ófáanleg
og langar biðraðir eru við brauð-
gerðarhús borgarinnar.
I dagrenningu hæfðu tvær
sprengjur amerískt sjúkrahús í
Beirút og lét einn starfsmaður
lífið, en önnur slys urðu ekki á
mönnum. Sagði bandarískur
sendiráðsstarfsmaður, að sprengj-
urnar hefðu komið úr austurátt,
þaðan sem hægri menn ráða lög-
um og lofum. Annað sjúkrahús i
grenndinni varð einnig fyrir
sprengju, en fregnir hafa ekki
borizt af mannskaða þar.
Brezka utanríkisráðuneytið
sagði í dag, að loftárásir hefðu
verið gerðar á íbúóarhverfi í Bei-
rút í dag, og þar hefði kylfa verið
látin ráða kasti.
Var fullyrt, að manntjón hefði
orðið mikið í þessum árásum, án
þess að unnt væri að nefna áreið-
anlegar tölur, og skorað á alla
aðila, sem þátt taka í þeim að
leggja niður vopn. Talsmaður
ráðuneytisins sagði, brezku
stjórnina vera mjög uggandi
vegna ástandsins í Líbanon.
William Scranton, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, sagði í gær, að Sýr-
lendingar hefðu sýnt mikla
ábyrgðartilfinningu í tilraunum
sínum við að koma á friði í Líban-
on. Hann tjáði fréttamönnum, að
undanfarnar vikur hefðu Banda-
ríkin unniö að þvi ásamt Sýrlend-
ingum, Israelsmönnum. Egypt-
um, Jórdönum, Frökkum og öðr-
um að koma á friði í Libanon, og
væri þetta starf fyrst og fremst að
þakka Assad Sýrlandsforseta.
Scranton sagði það skoðun sina,
að þar til ró væri komin á i Líban-
on yrði nær ómögulegt að koma á
sáttum í deilunum fyrir botni
Miðjarðarhafs.
— Ford og Carter
Framhald af bls. 1
Fords orðið 956 kjörmenn gegn
863 kjörmönnum Reagans. Til að
hljóta útnefningu repúblíkana
þarf alls fylgi 1.130 kjörmanna,
og þess er vænzt að atkvæði
margra þeirra kjörmanna sem
enn eru óskuldbundnir muni falla
Ford i skaut. Aðstoðarmenn for-
setans kváðust í dag vera mjög
ánægðir með úrslit forkosning-
anna og spáðu því að forsetinn
muni sigra strax f fyrstu atkvæða-
greiðslu á flokksþinginu f Kansas
City í ágúst.
Á vígstöðvum demókrata vann
hinn 51 árs gamli, brosglaði millj-
ónamæringur Jimmy Carter at-
kvæði 210 kjörmanna. Þar með
nýtur hann nú stuðnings 1.115
kjörmanna eða nálægt þeirri tölu,
sem þarf til að hljóta útnefning-
una, — 1.505. Talið er að hann
muni auðveldlega afla sér þess
fylgis sem á vantar frá fylgis-
mönnum frambjóðenda sem hann
hefur sigrað, úr röðum óskuld-
bundinna kjörmanna og frá ríkj-
um sem enn eiga eftir að velja
kjörmenn. Frambjóðandi hins
frjálslynda arms Demókrata-
flokksins, Morris Udall, sem ekki
hefur sigrað i neinum forkosning-
um, en orðið í öðru sæti í átta
þeirra, og hefur á bak við 350
kjörmenn, viðurkenndi í gær, að
sigurlíkur hans væru engar og gaf
í skyn að hann myndi draga sig í
hlé. Udall hafði sagt að ef Carter
sigraði í Ohio hefði hann þar með
tryggt sér útnefningu flokksins.
Carter hringdi í gærkvöldi til
Udalls og sagðí síðar að þeir
hefðu skipzt á „gagnkvæmum
stuðningsyfirlýsingum". Þetta
þykir benda til þess að Udall
muni ekki leggja lið þeirri hreyf-
ingu í flokknum sem nú reynir
allt hvað af tekur að koma í veg
fyrir að Carter hljóti útnefningu.
Þá ræddi Carter einnig við
Frank Church öldungadeildar-
þingmann sem unnið hefur fjórar
forkosningar, og kvaðst hann
hyggja á slikar viðræður við tvo
fyrrverandi frambjóðendur í for-
kosningum demókrata — George
Wallace og Henry Jackson, sem
samtals hafa á bak við sig fylgi
404 kjörmanna. Church gaf sterk-
lega í skyn á blaðamannafundi f
gær að hann myndi taka til athug-
unar tilboð frá Carter um varafor-
setaframboð, en slíkt tilboð hefði
þó ekki borizt. Viðleitnin til að
stöðva útnefningu Carters virðist
þvi ekki geta byggt á nokkru öðru
hugsanlegu forsetaefni en Hubert
Humphrey, sem vitað er að er
ekki hrifinn af Carter, en hefur
enn ekki gefið ótvirætt til kynna
hvort hann láti undan þrýstingi
um að taka þátt í baráttunni.
Jerry Brown sagði eftir sigur-
inn í heimaríki sínu, að hann væri
„aðeins að byrja“. „I öllum rikj-
um sem ég hef keppt i hefur
Jimmy Carter tapað,“ sagði hann.
En hann hefur aðeins um 200
kjörmenn á bak við sig og stjórn-
málaskýrendur telja Carter ekki
stafa veruleg hætt af siðbúnu
framboði hans.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
Áreiðanlegar heimildir á fundin-
um herma að fimm lönd, Kólum-
bía, Ekvador, Venezuela, Hondúr-
as og Costa Rica hefðu lagt fram
ályktunartillögu á þinginu þar
sem krafizt er loforðs af hálfu
Chilestjórnar um að virða mann-
réttindi í landinu og leyfa mann-
réttindanefnd samtakanna að
hefja nýja rannsókn á ástandinu í
þessum málum í Chile.
— Tilrauna-
veiði
Framhald af. bls. 3
héldu á loðnusvæðið fyrir norður-
landi í kringum mánaðamótin
júní—júlí hvort sem rannsóknar-
skipið væri þá búið að finna þar
einhverja loðnu eða ekki. Væri
gert ráð fyrir að til þessara veiða
kæmu frekar til greina þau skip
sem væru með búnað bæði fyrir
flotvörpu og nót, enda þótt önnur
skip sem hefðu yfir djúpri nót að
ráða kæmu einnig vel til greina
— Innbrot
Framhald af bls. 3
nótt, þá hafi hann samband við
lögregluna. Bifreið þessi er í eigu
sparisjóðsstjórans og stálu þjóf-
arnir henni um nóttina og óku á
henni frá heimili sparisjóðsstjór-
ans að sparisjóðnum, þar sem þeir
skildu bifreiðina eftir. Bifreið
þessi er appelsínugul að lit og af
gerðinni Volvo. Innbrotin voru
framin í húsunum Digranesvegur
10, Hraunbraut 24 og Sunnubraut
34.
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 14
borgarstjórn farin út af sporinu.
Hann taldi ekkert atriði geta
orðið algilt í skipulagsmálum og
sagði að frá þessum hlutum væri
ekki hægt að ganga í eitt skipti
fyrir öll. Davíð kvaðst ekki full-
viss hvor leiðin væri réttari,
mikið væri til í tillögum skipu-
lagsnefndar þó ekki væri hægt að
fullyrða um réttmæti þessara
kvaða. Hann taldi eðlilegt að
fylgja einhverri stefnu. Þá kvaðst
h^nn undrandi ef menn héldu að
fólk sem komið væri á efri ár
stæði í meiriháttar mannvirkja-
gerð. Það væri skrýtið ef unga
fólkið væri ekki þar sem vaxtar-
broddurinn væri, og þar mætti
vænta fjölda barna sem sletta
vildi úr klaufunum og því ekki
óeðlilegt að einhver óróleiki yrði.
í sambandi við stéttir í borgar-
hverfum kvaðst Davíð ekkí sjá
þær. Ef hann væri staddur í
Austurstræti gæti hann ekki sagt:
þarna er maður úr Hlíðunum,
þessi er af Melunum, þessi úr
Breiðholtinu og svo framvegis,
frá sér litu þeir allir eins út. Síð-
ast sagði Davið aö Alfreð Þor-
steinsson hefði sagt í blaðagrein
að hann (Davíð) kæmi sjaldan í
Breiðholtið og þekkti því ekki
ástandið þar. Davfð sagðist ekki
skilja þetta öðru vísi en þar væri
eitthvert útkikk framsóknar-
manna. Sigurjón Pétursson gagn-
rýndi Kristján Benediktsson og
sagði hann ekki hafa talað um
málin sem alvarlegan hlut. Hann
ítrekaði að þetta væri alvarlegt
mál og ef borgarfulltrúar töluöu
við lögregluyfirvöld, félagsmála-
yfirvöld eða skólana kæmust þeir
að sannleikanum og þá yrði
kannski hægt að leggjast á eitt og
bjarga málunum.
Magnús L. Sveinsson minnti á
að við hlið þessa margumrædda
hverfis hefði verið ætlunin að
setja raðhúsahverfi. Þetta hefði
hins vegar verið strikað út og
fjölbýlishús sett í staðinn.
Siðan koma menn á eftir og
segja „Hverfið er orðið svo þétt-
býlt“. í þessu sagðist Magnús ekki
sjá samhengi, og að kvöð til að
stjórna byggingu stórra íbúða
væri óþörf. Ef eftirspurnin segði
til sín yrðu stórar fbúðir byggðar.
Magnús lagði síðan áherslu á að
lögmálið um framboð og eftir-
spurn yrði látið ráða.
Markús Örn' Antonsson sagði
fullkomlega eðlilegt að skipulags-
yfirvöld gripu til sinna ráða og að
það væru haldlítil rök að skipu-
lagsnefnd hefði haft i huga ein-
hverja auðkýfinga í sambandi við
stóru íbúðirnar i Breiðholtinu.
Hann sagði stóru íbúðirnar vera
eins konar akkeri fyrir litlu íbúð-
irnar því þær væru i raun ekki
annað en hótel sem fólk byggi í, i
eitt til tvö ár. Ölafur B. Thors
sagði að sin ósk væri að sem mest
samsvörun yrði milli borgar-
hverfa. Lagði hann svo fram nýja
tillögu sem samsvaraði þeirri
fyrri um að a.m.k. 12.5% íbúða
yrðu aó vera yfir 4 herb. í norð-
austurdeild Breiðholts III.
Alþýðubandalagsmenn létu bóka
að stundarhagsmunir bygginga-
fyrirtækis ættu ekki að ráða ferð-
inni í skipulagsmálum Reykjavík-
ur. Borgarstjóri JJirgir tsleifur
Gunnarsson (S) I
kvaðst sjá vand-
ann en ekki vera
fullviss um að
tillaga skipu-
lagsnefndar
væri lausnin og______________
segði því nei þegar tillagan yrði
borin upp. Já, sögðu Markús örn
Antonsson, Ólafur B. Thors,
Margrét Einarsdóttir, Sigurjón
Pétursson, Þorbjörn Broddason,
Guðmunda Helgadóttir, Valgarð
Briem, Guðmundur G. Þórarins-
son, Guðmundur Magnússon og
Elín Pálmadóttir. Nei sögðu Hilm-
ar Guðlaugsson, Magnús L.
Sveinsson, Kristján Benedikts-
son, Davíð Oddsson og borgar-
stjóri Birgir ísleifur Gunnarsson.