Morgunblaðið - 10.06.1976, Síða 20
20
MORG' JNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNl 1976
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Barnaspitali
Hringsins
Fóstra óskast i fast starf frá 15. júli n.k
eða eftir samkomulagi Umsóknir, er
greini aldur, menntun og fyrri störf ásamt
meðmælum óskast send Skrifstofu ríkis-
spítalanna fyrir 1 júlí n a.
Nánari upplýsingar veitir yfirhjúkrunar-
kona, sími 24160
Fóstra óskast nú þegar til afleysinga í
sumar Upplýsingar veitir yfirhjúkrunar-
kona, sími 24160
Endurhæfingar-
deild
Yfirsjúkraþ/álfari óskast til starfa frá 1 júli
n k eða eftir samkomulagi Umsóknir ber
að senda Skrifstofu rikisspitalanna fyrir
27 júni n k Nánari upplýsingar veitir
yfirlæknir
S/ukraþ/álfari óskast til starfa nú þegar
eða eftir samkomulagi Nánari upplýsing-
ar veitir yfirlæknir.
Reyk/avík, 8. /úní, 19 76
Skrifstofustarf
Skrifstofustúlka óskast til starfa allan dag-
inn frá og með 1. júli n.k. Góð ensku-
kunnátta nauðsynleg, Norðurlandamál
æskilegt (sænska). Verzlunarskólapróf
eða hliðstæð menntun skilyrði, og reynsla
i skrifstofustörfum æskileg. Starfsaðstaða
er 1 flokks. Hér er um framtíðarstarf að
ræða, sem er vellaunað
Tilboð sendist afgr Mbl. merkt: ,,skrif-
stofustarf — 8632", ekki seinna en 15.
júní n.k.
Er matsveinn
Óska eftir stöðu á bát, humar eða trolli
Upplýsingar í sima 15189
Trésmiðir
Nokkrir trésmiðir óskast strax eða siðar.
Mótauppsláttur — uppmæling.
Sigurður Pá/sson
Símar 344 72 og 384 14.
Viðskipta-
fræðingur óskast
Viðskiptafræðingur óskast til starfa á
skrifstofu vorri að Háaleitisbraut 9,
Reykjavik Þarf að geta hafið störf sem
fyrst Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir
hádegi n.k mánudag 14 merkt V-8635.
Skýrs/uvélar ríkisins
og Reykjavíkurborgar.
Þórisós h.f. óskar eftir að ráða eftirtalda
starfsmenn:
1. Verkstjóa
á verkstæði og skal hann vera vélvirki eða
bifvélavirki, með reynslu i viðgerðum á
vinnuvélum.
2. Verkstjóra
sem hefur reynslu i vegagerð.
3. Verkstæðismann
með reynslu i viðgerðum á vinnuvélum.
4. Mælingarmann
(sumarvinna)
Upplýsingar um ofangreind störf eru
veittar á skrifstofunni að Vagnhöfða 5.
Skal umsóknum skilað þangað fyrir 1 5.
júlí n.k
Ritari —
Safnvinna
Stúlka óskast til ritarastarfa og safnvinnu.
Reynsla i vélritun eftir segulbandi æski-
leg. Framtiðarstarf. Tilboð sendist aug-
lýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 15.
júni n.k merkt. „R — 8634".
Heildverslun —
Viðskipti
Vil taka þátt í viðskiptalífinu með
fjármagni eða vinnu. Verslunarmenntun,
trúnaðarmál Tilboð sendist i box 312
Reykjavík fyrir mánudag.
Stúlka óskast
til afleysinga í húsgagnaverzlun hálfan
daginn Upplýsingar i síma 8651 1 .
2. vélstjóra
og matsvein
vantar á M.B. Maríu Júlíu B.A. 36, sem
er á linuveiðum og rær frá Patreksfirði.
Upplýsingar í símum 94-1 305 og 1 242.
Saumakonur
helzt vanar óskast strax. Upplýsingar
gefnar á staðnum
Flalldór Emarsson,
Henson, sportfatnaður,
Sólvallagötu 9.
Frá skólunum
í Mosfellssveit
Við Gagnfræðaskólann í Mosfellssveit er
laus staða raungreinakennara og hálf
staða iþróttakennara stúlkna. Stunda-
kennara vantar til kennslu á iðnbraut og
verzlunarbraut 9. bekkjar. Uppl. gefur
skólastjórinn Gylfi Pálsson, símar 66186
og 66153
Við Barnaskólann á Varmá eru lausar
kennarastöður. Aðalkennslugreinar
stærðfræði, eðlisfræði og tónmennt.
Uppl. gefur skólastjórinn, Tómas Stur-
laugsson, símar 66267 og 661 75
Lausar stöður
hjukrunarfræðinga.
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga eru
lausar til umsóknar:
Heilsugæslustöð Hafnar í Hornafirði, nú
þegar.
Heilsugæslustöð Laugaráss í Biskups-
tungum, nú þegar.
Heilsugæslustöð Kópaskers frá 1 . ágúst
1 976
Heilsugæslustöð Húsavíkur frá 1. des
1 976.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Uppl eru veittar í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og
j í viðkomandi heilsugæslustöðvum. Um-
sóknir ásamt upplýsingum um menntun
; og fyrri störf sendist ráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamá/aráðuneytið
Vanan matsvein
vantar á m/b Árna Magnússon SU 17.
Uppl í síma 99-3208.
Hraðfrystihús Stokkseyrar.
Sölumaður
Reglusamur ög ábyggilegur maður óskar
eftir sölumannsstarfi hjá góðu fyrirtæki.
Tilboð sendist Mbl. merkt: Sölumaður
2138.
Fóstru vantar
að Leikskóla Jósepssystra Hafnarfirði.
Upplýsingar hjá forstöðukonu í síma
50198.
VANTAR ÞIG VINNU gj
VANTAR ÞIG FÓLK %