Morgunblaðið - 19.06.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNI 1976
5
Norrænir músíkdagar í Reykjavík
3 sænskir ein-
leikarar með
Sinfóníiinni
AÐRIR tónleikar Norrænu múslkdag-
anna. verða haldnir I Háskólablói I
dag og hefjast kl. 13. Sinfóniuhljóm-
sveit Islands leikur undir stjórn Páls
P. Pálssonar en með hljómsveitinni
koma fram þrir einleikarar frá
Sviþjóð.
Fyrsta verkið á efnisskránni er Til
Apollon eftir danska tónskáldið Knud-
áge Riisager sem er nýlátinn Riisager
var það tónskáld Dana sem hvað mest
hefur verið flutt eftir erlendis og af
tónskáldskap hans ber hæst balletta.
Hann var m a. formaður danska tón-
skáldafélagsins og siðar rektor Tón-
listarháskólans i Kaupmannahöfn.
Næsta verkið er básúnukonsert eftir
Hans Eklund sem nú er kennari i hljóm
fræði við Tónlistarháskólann I Stokk-
hólmi Einleikari i þvi verki er Christer
Torgé, sem er frægasti básúnuleikari
Svia Hann er fyrsti básúnuleikari
útvarpshljómsveitarinnar I Stokkhólmi
en sú hljómsveit er álitin ein sú besta í
Evrópu. Torgé hefur unnið til margra
verðlauna fyrir leik sinn.
Patria er verk eftir finnska tónskáldið
Leif Segerstam, ungt tónskáld. sem
hefur áunnið sér mikla frægð Seger-
stam er auk þess einn besti hljóm-
sveitarstjóri á Norðúrlöndum.
Þar næst kemur annað finnskt verk
Konsert fyrir flautur eftir Einojúhani
Rautavaara, sem er eitt þekktasta tón-
skáld Finna Hann er prófessor við
Sibeliusarakademiuna i Helsinki og
árið 1965 hlaut hánn Sibeliusarverð-
launin VerkifTer samið fyrir einleikar-
ann Gunillu von Bahr, sem er einn
frægasti flautuleikari á Norðurlöndum
Leikur hún á margar flautur, þ.á m
bassaflautu. altflautu og pikkólóflautu
Raunar leikur Gunilla von Bahr jöfnum
höndum gamla og nýja músik, og
hefur hlotið mikið lof fyrir grammófón-
plötu-upptökur sinar.
Seinasta á efnisskránni er verk eftir
danska tónskáldið Ole Buck og nefnist
það Álfar Buck er ungur maður sem
hefur hvarvetna hlotið mikið lof fyrir
tónsmiðar sínar Einsöngvari i þvi verki
er sænska söngkonan llona Maros
Hún syngur i sænska Útvarpskórnum
sem er einn besti kór sinnar tegundar i
heiminum og auk þess hefur hún mikið
flutt nútímatónlist með Maroshópnum,
og hvarvetna fengið frábæra dóma.
Tónlist
fyrir
áhugafólk
Á NORRÆNU músíkdogunum sem
nú standa yfir hér í Reykjavík verða
frumflutt fimm verk sem sérstaklega
eru samin fyrir áhugatónlistarfólk I
Reykjavík og verða þau flutt I
Háteigskirkju og á Kjarvalsstöðum I
kvöld kl. 20 en eitt verkanna verður
frumflutt degi siðar i Lindarbæ, á
morgun, sunnudag kl. 13, og endur-
tekið kl. 1 7 sama dag.
Hvað tónleikana í dag áhrærir þá
mun Hljómsveit Tónlistarskólans flytja
verkið Re-Bah-Beil sem finnska tón-
skáldið Jukka Tiensu (f 1 948) samdi
fyrir hljómsveitina, en Tiensu er með
efnilegustu tónskáldum í Finnlandi og
hlaut hann Koussevitzky-verðlaunin
1973. Þetta verk pantaði NOMUS
Þá mun Kór Tónlistarskólans flytja
verkið Bæn eftir kornungt norskt tón-
skáld, Magnar Am. en þetta verk hefur
nýlega verið tekið upp á plötu í Noregi
undir stjórn Karstens Andersens.
Strengjaleikarar úr Sinfóníuhljómsveit-
inni leika með undir stjórn Marteins
Friðrikssonar og norska söngkonan
Anne Bolstad Haugen syngur einsöng
Danska tónskáldið Helmer Nörgárd
hefur samið verk fyrir Kirkjukór
Háteigssóknar, sem nefnist Sálmar
1976, strengjakvartett og flauta leika
undir i verkinu en verkið var pantað af
Nomus. Sænska tónskáldið Lennart
Hedwall hefur skrifað sex kórlög, sem
nefnast Árstíðaljóð, fyrir Kór Mennta-
skólans við Hamrahllð. Þetta verk var
einnig samið af tilhlutan NOMUS.
Norska Tónskáldið John Persen er
Sami að uppruna og hefur hann samið
verkið Sámesiidat — cSv fyrir Karla-
Gunnilla og Róbert von Bahr með
flauturnar sem Gunnilla leikur á
fyrir hljómleikagesti I Háskólabfói
f dag.
tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir
hana yfir 40 ólík verk. Siðastliðið ár
var hún einleikari á 1 20 hljómleik-
um og segir það sína sögu um
vinsældir hennar.
Gunnilla leikur á fjórar flautu-
tegundir, piccolo, venjulega, alt og
bassaflautur Auk þess að hún er
fjölhæfur flautuleikari þá er eigin-
maður hennar, Robert von Bahr,
einnig flautuleikari, þannig að flaut-
an er vinsælt hljóðfæri i þeirri fjöl-
skyldu — Maðurinn minn er versti
gagnrýnandi sem ég fæ, sagði
Gunnilla og brosti er við ræddum
við hana i gær — Hann finnur
óspart að því sem miður fer, en ég
tek þvi vel því nauðsynlegt er að fá
gagnrýni þeirra sem vel þekkja til.
— Það er gaman að vera komin
hingað til íslands og við ætlum að
eyða hér viku til að skoða okkur um
og hvila okkur, því i sumar verður
nóg.að gera heima í Sviþjóð. Hver
Flautan vinsœl
í fjölskyldunni
Gunnilla von Bahr meðal einleikara í Hásk6labí6i í dag
HVER stórviðburðururinn rekur
annan ( listaheiminum. listahátið
stendur yfir i Reykjavik þessa
dagana og I gærkvöldi voru fyrstu
hljómleikarnir á „Norrænu músik-
dögunum". i dag fara fram í
Háskólabíói aSrir tónleikar þess-
arar hátiðar og meSal þeirra sem
koma fram er sænski flautuleikar-
inn Gunnilla von Bahr. Er hún
einn fjölhæfasti flautuleikari i
heimi og eini flautuleikarinn á
NorSurlöndum, sem hefur fullan
starfa af þvi aS leika einleik meS
hljómsveitum.
Á hljómleikunum i dag leikur hún
verk eftír finnska tónskáldið
Rautavaara, en það er sérstaklega
samið fyrir hana Rautavaara er þó
ekki eina tónskáldið, sem samið
hefur verk fyrir Gunnitlu, þvi 25
hljómlistahátiðin rekur aðra og ég.
vinn núna að þremur plötuupptök-
um, segir Gunnilla, en þegar hafa’
verið gefnar út 13 hljómplötur með
henni sem einleikara
Eiginmaður hennar, Robert von
Bahr, rekur hljómplötuútgáfu i
Stokkhólmi og hefur sérhæft sig i
sigildum verkum Hann hefur gefið
út nokkrar hljómplötur með konu
sinni sem einleíkara og meðal
annarra sem hann hefur gefið út
plötur með er sænska óperusöng-
konan Birgitta Nilsson Auk þess að
hlusta á leik konu sinnar i Háskóla-
biói i dag og slappa af hér á landi
vinnur hann að undirbúningi að
hljómplötu með islenzkum tónlistar-
mönnum, sem dreift yrði á alþjóð-
legum markaði
„Má ég þáfrekar
biðja um Island”
.Chríster. Torgé meó básúnuna
sfna á Hótel Borg I gær. (ljósm.
RAX)
CHRISTER TORGÉ er senni-
lega þekktastur sænskra bás-
únuleikara þó ekki sé hann
nema 33 ára gamall. Á hljóm-
leikunum f Háskólabfói mun
Torgé flytja verk samið af
Ilans Eklund sérstaklega fyrir
Torgé ásamt 24 hljóðfæraleik-
urum úr Sinfónfuhljómsveit-
inni undir stjórn Páls P. Páls-
sonar. Verkið hefur Torgé flutt
10 sinnum opinberlega og það
sfðasta sem hann gerði áður en
hann hélt til tslands var að
Ijúka upptöku á verkinu sem
sfðan verður gefin út á hljóm-
plötu f sumar.
Christer Torgé er nú f annað
sinn staddur hér á landi, fyrra
skiptið var 1972 er hann kom
hingað með Útvarpshljómsveit-
inni í Stokkhólmi árið 1972.
Rabbað við
básúnu-
leikarann
Christer Torgé
frá Svíþjóð
Líkaði Torgé þá mjög vel dvölin
á íslandi og sagðist vera ánægð-
ur með að fá tækifæri til að
taka þátt í „Norrænu músik-
dögunum" hér á landi er blaða-
maður Morgunblaðsins ræddi
við hann i gær.
— Ég dvaldi hér í fimm daga
1972 og allan timann var mjög
gott veður hér á landi og hitinn
um og yfir 20 stig, sagði Torgé.
— Héðan héldum við síðan til
Flórens á Italíu og þar var hit-
inn yfir 40 stig þannig að
hvorki var verandi innan húss
eða utan — má ég þá frekar
biðja um tsland. Annars er það
slæmt hversu sjaldan norrænir
tónlistarmenn koma til tslands,
því hér er dýrlegt að vera, nátt-
úran stórkostleg og andrúms-
loftið tært, Eg vona að ég kom-
ist út úr bænum á morgun til að
skoða heitu hverina t.d., áður
en ég fer heim til Sviþjóðar
sagði Torgé.
— Ég var á æfingu með ís-
lenzku tónlistarmönnunum í
morgun, sagði Torgé, og gekk
æfingin mjög vel. Sannaði fyrir
mér það sem ég reyndar vissi
fyrir að íslendingar eiga mjög
góða hljómlistarmenn og ég
hlakka til að leika á þessum
hljómleikum í Háskólabíói,
sagði Torgé að lokum.
Eitt h vað
fyrir alla
Konur og „kalla”
í Festi
í kvöld
*
GudÍÓt^and.seaiSegir
9Ömtudansa
N^-^ÍeuiuraöeinsUam;
^sTe^-ngu.
SÆTAFERÐIR FRATORGI
B.S.Í. OG
HAFNARFIRÐI.
Framhald á bls. 18