Morgunblaðið - 19.06.1976, Blaðsíða 19
MORC.UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNI 197«
19
Kafli úr ræðu
Guðmundar
Guðmunds-
sonar
útgerðar-
manns á
sjómanna-
daginn
„Starfið er margt en
eitt er bræðrabandið”
GUÐMUNDLR Guð-
mundsson útgerðar-
maður frá ísafirði var-
fulltrúi útgerðarmanna
við hátíðahöld sjómanna-
dagsins í Reykjavík. Ilér
fer á eftir kafli úr ræðu,
sem Guðmundur flutti:
A þessum sjómannadeKÍ
veröa aó verðleikum heiðraðir
þeir menn, s.m fremur öðrum
hafa borið þunfjann í barátl-
unni fyrir rétti okkar í
landhelgismálinu og verið þar í
fararbroddi, starfsmenn Land-
helgisgæslunnar og þá sérstak-
lega áhafnir varðskipanna.
Það hefir vakið verðskuldaða
athygli og aðdáun allra af hve
mikilli festu og stillingu þessir
menn hafa rækt hið erfiða hlut-
verk í viðureign við marfalt
ofurefli.
Sá árangur sem náðst hefir er
fyrst og fremst frammistöðu
þessara manna að þakka.
Það verður nú að kosta kapps
um það að búa þannig að land-
helgisgæslunni að hún verði
þess umkomin að gegna því
erfiða hlutverki, sem
framundan er.
Breyttir útgerðarþættir hafa
valdið því að víðast hvar er nú
ekki um það að ræða að
unglingar eigi þess kost að
nema handtökin við hin ýmsu
störf er lúta að sjósókn svo til
jafnóðum og þeir vaxa úr grasi
og verða með því fullgildir þátt-
takendur jafnskjótt og líkam-
legum þroska er náó.
Þessi snerting varð til þess að
fleiri gáfu sig að sjómehnsk-
unni fyrr á tímum.
Vegna þessara breytinga þarf
að taka þennan þráð upp i öðru
formi og koma á aukinni verk-
mennt í sjómennsku á stigi
unglingafræðslu.
Ég er á þeirri skoðun að
fræðslukerfið sem við búum við
miðist einum of mikið við það
að bókvitið sé það sem fyrst og
fremst gildir.
Það eru ekki allir jafnmót-
tækilegir fyrir þeim áhrifum,
sem þurr bókarlærdómur
skilur eftir sig.
Vinnan göfgar manninn var
sagt og mun sannmæli.
Reynslan hefir margoft sýnt
fram á það að sá einstaklingur
sem finnur sjálfan sig i starfi,
sem fellur að hæfileikum hans,
hann á í vændum að öðlast þá
lifsfyllingu. sem gefur lífinu
gildi.
Það er stöðugt að verða meir
áberandi í okkar þjóðlífi hve
margir eru haldnir rótleysi og
leita lífshamingjunnar á þeim
sviðum og við þær kringum-
stæður, þar sem hana er alls
ekki að finna.
Að velja sér lífsstarf er vissu-
lega mikilsverð ákvörðun og
mestu varðar að viðkomandi
einstaklingur geri sér grein fyr-
ir því hvert hugurinn stefnir.
Við unga menn vildi ég segja.
Sjómennskan er heilbrigt og
gott starf. Þar tel ég mig geta af
reynslu mælt eftir að hafa
stundað þá atvinnu á þriðja tug
ára.
Þö stundum komi fram í hug-
ann leiði yfir löngum fjarvist-
um frá heimili og ástvinum þá
hverfur það fljótt fyrir tilhugs-
un um að eiga von á ánægju-
legri heimkomu með góðan
afla.
Ungir og hraustir menn fá
óvíða frekar útrás fyrir ómælda
starfsorku en við störfin á sjón-
um.
Meðal útvegsmanna og sjó-
manna þarf jafnan að vera gott
samstarf og ríkja gagnkvæmur
trúnaður, ef vel á að vera. Sem
betur fer er þetta viða fyrir
hendi og þekki ég vart annað af
minni reynslu.
Mikill þorri útvegsmanna er
uppalinn við og á sjó og kunna
þeir því af eigin raun betur að
meta allar kringumstæður en
ella væri.
Þrátt fyrir allt amstur á verð-
bólgutimum held ég að íslend-
ingar geti litið vongóðir til
framtiðarinnar.
Landið er sem fyrr fagurt og
frítt og náttúran svo til óspillt
af mengunarvöldum nútímans.
Sú kynslóð æskufólks, sem
nú er að komast til þroska er
myndarleg og vel af guði gerð
andiega og líkamlega. mögu-
leikar til menntunar hafa
aldrei verið meiri.
Láti þetta unga fólk ekki
glepjast um of í kapphlaupinu
eftir einskisverðum lystisemd-
um, þá er það áreiðanlega þess
umkomið að axla byrðarnar og
taka við þegar þess vitjunar-
tfmi kemur.
Þrátt fyrir allt dægurþras
ættum við jafnan að hafa t huga
það sem Hannes Hafstein segir
i ljóðinu:
„Starfið er margt, en eitt
er bræðrabandið,
boðorðið hvar sem þér
í fylking standið,
hverníg sem stríðið þá og þá
er blandið
það er að elska, byggja og
treysta á landið."
Fyrir hönd útvegsmanna flyt
ég sjómönnum, ástvinum þeirra
og íslendingum öllum bestu
kveöjur og árnaðaróskir.
Lifið heil.
20% verðlækkun
á trjám og runnum, aðeins í nokkra
daga. Gerið góð kaup. Nú kosta sumar-
blómin aðeins 36 krónur. Blómstrandi
Dahlíur og Retúníur.
KI9IN6L UnVPfíR BRffUT
Birki
Reynir
Ribs
Fjallaribs
Glansmispill
Birkikvistur
RauStoppur
BrekkuviSir
ViSja
Rósarunnar
Vaftoppur
Humall o.fl
GARÐSHORN
Við Reykjanesbraut
Fossvogi
Sími 40500
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KLUKKAN 10 TIL 22
Landsfundur Kven-
réttindafélagsins
ræðir starfsval,
menntun og uppeldi
14. LANDSFUNDUR Kvenrétt-
indafélags Islands er haldinn i
Reykjavfk dagana 18.—20. júní
197(5. Um 50 kjörnir fulltrúar
niunu sa'kja fundinn.
Fundurinn var settur að Ilótel
Sögu. föstudagskvöldið 18. júní
kl. 20:80 og voru þar ýmis
skemmtiatriði og kaffiveitingar.
Að venju sóttu félagsmenn og
annað áhugafólk setningar-
fundínn. Að öðru levti er fundur-
inn haldinn að Hallveigarstöðum.
Aðalumræðuefni fundarins að
þessu sinni er: „Uppeldi, mennt-
un og starfsval á jafnréttisgrund-
velli". Frummælendur eru: Marta
Sigurðardóttir fóstra og Herdís
Egilsdóttir kennari, sem tala um
frumbernsku og forskólaskeið.
Kristín Tómasdóttir kennari og
Kristján J. Gunnarsson fræðslu-
stjóri tala um skyldunámsstigið
og siðan tala Guðrún Halldörs-
dóttir skólastjóri og Sveinn Sig-
urðsson skólastjóri um starfs-
menntun og starfsval.
Kvenréttindafélag Islands var
stofnað 27. janúar 1907 og verður
því 70 ára i byrjun næsta árs,
Stofnandi félagsins var Bríet
Bjarnhéðinsdóttir, einn af frum-
herjum i réttindabaráttu ís-
lenzkra kvenna.
Nú geta jafnt karlar sem konur
verið félagar í Kvenréttindafélag-
ínu. en auk þess eiga aðild að
félagínu kvenfélög viðs vegar um
landið.
Markmið félagsins er m.a. að
vinna að auknum mannréttind-
um, sér í lagi jafnrétti karla og
kvenna.
Kvenréttindafélag íslands er
deild í Alþjóðasambandi kvénna
(International Alliance of Wo-
men) og mun væntanlega senda
fulltrúa á þing samtakanna. sem
verður haldið i New York 20. —
29. júlí n.k.
Bílareiptog meðal
skemmtiatriða á
sandspyrnukeppni
SANDSPYRNUKKPPNl Kvart-
míluklúbbsins fer fram á morgun
á söndum við Ilraun i Ölfusi og
hefst klukkan 14. Allur ágóði
rennur í nýja akstursbraut, sem
klúbburinn a-tlar að útbúa við
Geitháls.
Sandspyrnukeppni er í því fólg-
in að farartækin aka stutta vega-
lengd á sandinum. Þau verða að
vera á löglegum hraða, svo mestu
máli skiptir i keppninni að við-
bragð sé gott. Að sögn Björns
Emiissonar, stjórnarmanns í
klúbbnum, hafa 30 bilar verið
skráðir til keppninnar. og eru
þeir útbúnir á margvíslegan hátt
til að ná sem beztri spyrnu. Keppt
er i þremur flokkum, jeppa-,
fólksbila- og bifhjólaflokki.
Hljómlist verður leikin á svæð-
inu og þar verða ýmis skemmti-
atriði, svo sem bilareiptog. Byrjað
verður að selja aðgöngumiða
klukkan 12.
Mót barnastúkna í Galtalæk
UM HELGINA dagana 19. og 20.
júní, verður haldið vormót barna-
stúkna I Galtalækjarskógi, en
mótið munu sækja félagar um
8—10 stúkna á Suðurlandssvæð-
inu. Þetta er I annað skipti sem
slíkt mót er haldið.
Gist er eina nótt i Galtalæk og
hefst dagskrá á laugardeginum
kl. 1,6 þar sem hinar ýmsu barna-
stúkur munu koma með dagskrár-
atriði, en að öðru leyti verða
þarna iþróttir, knattspyrna og
viðavangshlaup og um kvöldið
verður diskótek og varðeldur. Á
sunnudeginum halda íþróttir
áfram og fleiri dagskráratriði. en
mótinu lýkur siðdegis á sunnu-
dag. Ungtemplarar, unglingaregl-
an og Umdæmísstúka nr. I standa
að mótinu.
Séra Kjartan Orn
í FRETT frá hátíðahöldum sjó-
mannadagsins i Vestmannaeyjum
misritaðist nafn séra Kjartans
Arnar Sigurbjörnssonar. Biður
blaðið viðkomandi velvirðingar.
í SÝNINGARSAL OKKAR ER
Á ÖLLU ÞVÍ SEM TILHEYRIR
SUMARSTARFI
HÚSEIG ANDANS.
Aðgangseyrir s*
kr 100 —
Byggingaþjónusta Arkitekta
Grensásvegi 11