Morgunblaðið - 19.06.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNÍ 1976
15
200 mílur Frakka:
Útfærsla við nýlendur
t FRAMHALDI af frétt I Mbl. s.l. fimmtudag um að franska stjórnin
hefði boðað útfærslu auðlindalögsögu f 200 mílur við strendur hvaða
fransks yfirráðasvæðis, sem væri, hafði blaðið samband við Einar
Benediktsson sendiherra f Parfs f gær og spurði hann nánari fregna af
málinu.
Kvaðst Einar hafa fengið þær ráðuneytinu, að Frakkar hefðu
upplýsingar í franska utanríkis- hér í huga auðlindalögsögu við
Portúgal:
Maður lét Ufið
í óeirðum eftir
kosningafund
Evora, Portúgal 18. júní. Reuter.
EINN maður lézt af skotsárum og
sex slösuðust er til átaka kom f
bænum Evora f suðurhluta Portú-
gals, eftir framboðsfund þar í
gærkvöldi. Stuðningsmenn Otelo
Carvalho gerðu aðsúg að Antonio
Ramalho Eanes, er hann var að
ganga f átt til bifreiðar sinnar að
fundinum loknum. Öryggisverðir
hans skutu þá af vélbyssum upp f
loftið og óeirðalögreglan kom á
staðinn.
Norðmenn
herði eftirlit
í Barentshafi
Björgvin 18. júnf NTB.
AÐ MINNSTA kosti 35 spánsk-
ir og 20 portúgalskir togarar
eru við veiðar í Barentshafi úti
fyrir Noregsströndum og þessi
mikli fjöldi skipa er ekki i
neinu samræmi við þann veiði-
kvóta sem þessum tveimur
þjóðum hefur verið úthlutað-
ur. Norðmenn munu því að öll-
um líkindum leggja til á fundi
á Norðausturatlantshafsfisk-
veiðinefndinni um mánaða-
mótin, að hert verði á eftirliti
með þessum veiðum með
ákveðnum aðgerðum. Knut
Vartdal fiskimálastjóri Noregs
sagði þetta i samtali við
Fiskaren. Hann sagði að þær
ráðstafanir væru hugsaðar til
þess að hægt yrði að fylgjast
með eðlilegu samræmi milli
fjölda fiskiskipa og veiðikvóta
og væri þá hægt að grípa til
nauðsynlegra aðgerða ef grun-
ur léki á að farið væri fram úr
aflakvóta sem leyfður væri.
Síðar lézt einn maður af skot-
sárum og sex manns voru sárir,
þar á meðal fréttamaður Reuters,
Alberto Pontes. Ekki er vitað
hver hleypti af því skoti sem varð
manninum að ban'a. Lögreglan
kvaðst ekki hafa skotið og vitni
segja að einu skothvellirnir sem
hafi heyrzt hafi verið úr vélbyssu
öryggisvarðanna.
Kommúnistaflokkurinn f Portú-
gal hefur mjög mikið fylgi í Evora
og nágrenni hennar og nýtur Car-
valho þar trausts, enda þótt hann
hafi verið sviptur öllum völdum
og áhrifum eftir að Eanes braut á
bak aftur tilraun kommúnista til
valdaráns í nóvember sl.
Stjórnmálafréttaritarar segja
að þessi átök i Evora hafi orðið til
að óhug hafi slegið á fólk í Portú-
gal, þar sem kosningabaráttan
vegna forsetakosninganna hefur
gengið hingað til friðsamlega fyr-
ir sig.
strendur nýlendna sinna, fremur
en við strendur Frakklands. Hann
sagði ennfremur, að franska
þingið kæmi saman til auka-
fundar í júlíbyrjun, og væri við
því búizt, að frumvarpið yrði
tekið fyrir á þeim fundi.
Eins og áður er fram komið, er
ráð fyrir því gert f texta frum-
varpsins, sem franska stjórnin
hefur samþykkt að leggja fyrir
þingið, að stjórninni verði heimilt
að lýsa yfir 200 mflna auðlinda-
lögsögu, þegar og ef hún telur rétt
að gera það.
Þá fékk Mbl. þær upplýsingar
hjá Henrik Sv. Björnsyni, ráðu-
neytisstjóra í utanríkisráðuneyt-
inu, að útfærsla auðlindalögsögu
við strendur nýlendna Frakka
stangaðist ekki á við samninga
þeirra við Efnahagsbandalagið.
Meðal nýlendna Frakka er
Martinique, svo og eyjaklasarnir
St. Pierre og Miquilon við Ný-
fundnaland, hvaðan þorskveiðar
hafa verið stundaðar hingað til.
Eftir að fregnin barst um þessa
fyrirætlun Frakka birti Mike
Burton, formaður samtaka
brezkra togaraeigenda, yfirlýs-
ingu þar sem hann réðst harka-
lega á brezku stjórnina fyrir slæ-
lega frammistöðu hennar í fisk-
veiðimálum.
I yfirlýsingunni sagði m.a.:
„Hver svo sem tilgangurinn er og
hverjar sem afleiðingarnar verða,
er ljóst, að hér er franska stjórnin
enn einu sinni að leggja áherzlu á
þá afstöðu sína, sem felst í öllum
hugsanlegum stuðningi við
franskan fiskiðnað. Við leggjum á
móti skammsýni, máttleysi og
stöðugan skort á viðbúnaði, en
þetta virðist ráða stefnu ríkis-
stjórnar okkar í fiskveiðimálum."
Lögreglu-
sljórinn myrtur
ERLENT
Buenos Aires 18. júní
Ntb. Reuter.
YFIRMAÐUR argentfsku lögregl-
unnar Casareo Cardozo hershöfð-
ingi var myrtur f morgun er hann
var að koma til heimilis sfns f
Buenos Aires ásamt konu sinni,
móður og dóttur. Konurnar þrjár
slösuðust allar alvarlega. Cardozo
var að stfga út úr lyftunni við
fbúð sfna þegar sprenging kvað
við og beið hann samstundis
bana. Algerlega var óljóst hver
hefur komið sprengjunni fyrir.
Lýst var yfir neyðarástandi í
höfuðborginni, er uppvíst varð
um tilræðið og innanrikisráð-
herra Argentínu, Albano
Harquindeguy, hefur sjálfur tek-
ið að sér að stjórna rannsókn
málsins. Cardoso er annar lög-
reglustjórinn í Argentínu sem
myrtur er á röskum tveimur ár-
um. Alberto Villar var drepinn í
nóvember 1974 og lýstu þá
Montoneros skæruliðasamtök
vinstri-perónista víginu á hendur
sér. Cardoso er sjöundi hershöfð-
inginn sem drepinn er síðan
Maria Estela Peron var látin vfkja
frá völdum.
Mikil spenna var i höfuðborg-
inni fram eftir degi og lögregla og
hermenn höfðu mikinn viðbúnað.
Óbreyttum borgurum var ráðlagt
að vera sem allra minnst á kreiki.
Bretar geta ekki skorazt undan
framkvæmd fiskveiðistefnu EBE
— segir Roy Hattersley
1 FYRRADAG lét Roy Hattersley,
aðstoðarutanrfkisráðherra Breta,
svo um mælt f umræðum f brezka
þinginu um þróun mála innan
Efnahagsbandalagsins frá nóvem-
ber 1975 til loka aprílmánaðar
s.l„ að Bretar hefðu ekki laga-
legan rétt til að skorast undan
framkvæmd sameiginlegrar fisk-
veiðistefnu bandalagsrfkjanna.
Sagði Hattersley, að hér væri um
að ræða stefnu, sem st jórn thalds-
flokksins hefði samþykkt
skönimu áður en samningur um
inngöngu Breta f bandalagið var
undirritaður.
„Endurskoðun krefst sam-
hljóða samþykktar allra aðildar-
ríkjanna og hvert þeirra, sem er,
gæti komið i veg fyrir að hvaða
breytingartillaga okkar sem væri
næði fram að ganga,“ sagði Roy
Hattersley.
„Innan bandalagsins gera menn
sér vel grein fyrir þörfum brezku
útgerðarinnar. Tæki bandalagið
ekki tillit til þessara þarfa, mundi
það strfða gegn anda þeim, sem
bandalagið er reist á. Slfkt áfall
fyrir brezku útgerðina myndi um
leið skaða alvarlega orðstír
bandalagsins, og sá skaði yrði
ekki auðveldlega bættur,“ sagði
Roy Hattersley.
Staðreyndin er sú, að
núverandi fiskveiðistefna banda-
lagsins er ekki stefna, sem Bretar
geta komið í veg fyrir með því að
beita neitunarvaldi sínu hjá
bandalaginu.
Skýjaborgir og
loftkastalar
Ein er sú sýning, sem mikla
athygli hefur vakið, þótt hún
láti lítið yfir sér og sé lítið
auglýst og henni fylgi jafnvel
engin sýningarskrá né neinn
leiðarvísir, sem að sjálfsögðu er
stór ókostur.
Er hér um að ræða sýningu
íslenzkta arkitekta á teikning-
um og líkönum bygginga, sem
aldrei hafa risið. Sýningin hefst
á tillöguuppdrætti Rögnvaldar
Ólafssonar að háskólabyggingu
í Reykjavík frá 1913, og er hug-
myndin í fslenzkum burstastíl
og mikill skaði, að hún skyldi
ekki virkjuð, þvi að það væri
æðri menntun mikill sómi að
geta státað af slikri skólabygg-
ingu í höfuðborginni nú.
Síðan getur að lfta ýmsar
„húsgerðarskrítlur", sem
maður þakkar guði fyrir að
fengu að vera í friði á teikning-
unum eða lfkönunum, svo sem
tillögur Guðjóns Samúelssonar
að byggingum á Skólavörðu-
holtinu og annarri af stúdenta-
heimili í Reykjavík, hið fyrra í
eins konar nýklassískri empire-
stílsblöndu, en hið síðara er lík-
ast betrunarhúsi. Hvað tillögu-
líkani Sigurðar Guðmundsson-
ar að nýskipan Grjótaþorps
áhrærir, virðist aðeins vanta
fallbyssur í garði og fyrir
framan húsin til að kóróna
verkið (1940).
Hins vegar er hugmyndin að
veitingastað og vatnsgeymum á
Öskjuhlíð bráðsnjöll (Sigurður
Guðmundsson og Sigurður
Thoroddsen (1940)). —Fjölda-
framleidd íbúðareining Einars
borsteins Ásgeirssonar er
skemmtileg, einkum er hann
gerir Hallgrímskirkjubáknið
manneskjulegt með því að setja
svipaða íbúðareiningu yfir
kirkjuna. Sumarbúðir lista-
manna, sumarskóli, barnaleik-
völlur og hótel eftir Valdísi
Bjarnadóttur (skólaverkefni,
aðskild) bera vott um
manneskjulegt hugmyndaflug i
andstöðu vió hina ísköldu og
beinu linu rasspúðavinnunnar,
Hundertwasser segir réttilega:
„Gætið ykkar á hinni beinu
línu, hún leiðir til glötunnar
mannkynsins.“ „Hin beina lfna
er guðlast, hin einasta lfna sem
ekki skapar, hin beina lína leið-
ir til helvftis!“ — Bókstaflega
skal þetta ekki tekið, en er
tímabær aðvörun, sem hefði
getað forðað mannkyninu frá
miklum mistökum, ef menn
hefðu ljáð slíku eyra nokkrum
áratugum fyrr.
Af mörgu öðru, er athygli
vekur, má nefna skemmtilega
tillögu í sambandi við Klaustur
Karþúsíumanna eftir Sigur-
laugu Sæmundsdóttur
(1962—63, skólaverkefni).
Aðalskipulag Þorlákshafnar,
samkeppnistillaga frá 1971
eftir Gunnlaug Baldursson,
Sigurlaugu Sæmundsdóttur og
Sigurfinn Sigurðsson, er um
margt athyglisverð. en af
hverju staðla þetta yndislega
þorp, eða t.d. Eyrarbakka, þar
sem mannlegar tilviljanir eru
einmitt það, sem gefur þeim
hlýlegt og aðlaðandi svipmót.
Það má kalla þessa staði síðustu
vígi gamla tímans á Suðurlandi
og ætti miklu frekar að friða og
varðveita þessi þorp, lagfæra,
og flikka upp á þau. en láta
reglustikuna spjalla þau. — Til-
löguuppdráttur Skarphéðins
Jóhannssonar og Guðmundar
Kr. Guðmundssonar um kirkju
á Laugaráshæð er snjall og
hefði tvímælalaust átt að út-
færa hann, en sóknarnefnd
mun hafa hafnað þessari verð-
launatillögu í þágu þyngsla-
legri byggingar.
Margt fleira athyglisvert
getur að lita á þessari sýningu.
bæði gott og slæmt og hún er
mikill lærdómur leikum (sem
lærðum), og sýnir og sannar
hvílíkur skaðvaldur reglustrik-
an getur verið, ef heitt og frum-
legt hjarta slær ekki á bak við
þann, er mundar hana.
En annars, — furðulegt má
vera hvað tilfinningar manna
fyrir húsagerðarlist og mynd-
list geta breytzt á nokkrum ára-
tugum, svo að jafnvel leikmenn
brosa í kampinn, er þeim
verður litið á sumar tillögurn-
ar, þetta eru tímanna tákn!
Bragi Ásgeirsson:
Tillaga að nýskipan Grjótaþorps: Sigurður Guð-
mundsson.
Sumarbúðir listamanna: Valdís Bjarnadóttir.