Morgunblaðið - 19.06.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JUNÍ 1976
29
VELVAKANDI
Einhvern tfma hefði þessi tfzkuflfk þótt tfðindum sæta, en hún er
nýtt frá Vuokko og er á tízkusýningunni á Nytjalistasýningunni á
listahátíð f Norræna húsinu. Raunar stendur sýningin enn og tískusýn-
ingar kl. 4 f dag og kf. 4 á morgun.
Ahorfendur eru sýnilega svolftið hissa á þessari tfzkuflfk.
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
% Kennslusjónvarp
Hér höfum við bréf frá J.P.
um þarft málefni:
Vonandi kemur að því fyrr en
seinna að ráðamenn menntamála
hér á landi koma auga á þann
góða og mjög aðkallandi mögu-
leika að hefja skipulagða kennslu
á ýmsum gagnlegum fræðum i
sjónvarpinu. Vissar námsgreinar
mætti vafalaust kenna þarna al-
veg og aðrar að verulegum hluta
með aðstoð skóla. Þarna geta not-
ið menntunar ungir sem aldnir
eftir vild og getu. Þessi háttur á
uppfræðslu mun flestum hugs-
andi mönnum ofarlega i hug eink-
um þegar sýnt er að sjónvarpið er
óhemju sterkt afl til mótunar og
ljóst er að þar nemur fólk furðu
fljótt lög, ljóð og mælt mál, t.d. í
auglýsingunum. Væri sá háttur
hafður á að setja kennsluna í
sjónvarpið, en ekki inn í lokaðar
skólastofur, í hundraða vís um
allt land, væri hægt að spara gíf-
urlegar fjárhæðir i nýbyggingu
og rekstri skólahúsnæðis og þar
með hætta öllum þeim hvimleiða
barlómi um fjárskort og þreng-
ingar á því sviði, sem um áratuga-
skeið hefur dunið á landsmönn-
um. Einnig mætti þá fækka kenn-
urum í stórum stil og gætu þeir
sem lakari tökum hafa náð á
kennslu og eru jafnvel ekki meir
en svo æskilegir í því starfi, þá
snúið sér að öðrum verkefnum,
sem þeir næðu vonandi betri tök-
um á. Einnig i fækkun kennara
mundu sparast fjárfúlgur, sem
kæmi sér sennilega ekki illa fyrir
ríkiskassann. En mest um vert er
að allar líkur eru á því, að ef rétt
er að málum unnið, að þetta fyrir-
komulag leiddi til mikilla fram-
fara í menntun fólksins í landinu,
og margur telur að það sé fyrst og
fremst tilgangurinn með rekstrin-
um á því bákni sem okkar stór-
fenglega menntakerfi er.
0 Ekki hætta við
hálfnað verk
„Húsmóðirin" skrifar:
Ég er frjálslyndur kapítalisti og
vildi ekki láta Vesturveldin hætta
við hálfnað verk, þegar búið var
að sigra nasismann, þvi að þá var
kommúnisminn eftir. Og ekkert
frelsi finnst hjá honum. Hinn
frjálsi heimur stakk bómull misk-
unnarleysisins upp i eyrun og
heyrði ekki angistarvein Ung-
verjalands, og ekkert mátti gera
Tékkóslóvakíu til frelsunar. Og
svo kom, að sumir borgarflokkar
rugluðust svo, að þeim fannst það
sjálfsagt að taka upp vinsamlega
samskipti við Rússa. Þá sýndi
kommúnisminn sitt rétta andlit.
Og allir þekkja ævintýrið um
Willy Brandt.
Sjálfsagt þótti lika að Banda-
rikjamenn hálfpartinn gæfu
Rússum korn. Nú höfðu þeir bæði
töglin og hagldirnar, og Brezhnev
setti á svið Helsinkiráðstefnuna.
Þar voru samþykkt ferðafrelsi og
ýmislegt, sem sjálfsagt þykir hjá
öðrum þjóðum. Þetta átti svo auð-
vitað allt að svíkja. En nú verður
allt óhægara vegna Helsinkisam-
þykktarinnar. Og svo fær maður
núna meiri fréttir að austan, og
þeim á að gefa gaum. Nú fær
maður að vita, að það er hungur
og matarskortur á hverju ári í
bezta landbúnaðarlandi heims
eftir hér um bil 60 ára stjórn, þar
sem hagkerfi Karls Marx er
kokkabókin, og enginn kapital-
ismi finnst. Eg er viss um að ef
uppskerubrestur hefði orðið vest-
an hafs, hefði einhver i þeim
hópi, sem gekk hér um götur,
þegar Nixon var hér, borið spjald,
sem á hefði staðið: „1 hve mörg-
um ríkjum Bandaríkjanna er mat-
arskortur og hvað hafa margir
horfallið í þinni stjórnartíð?"
Stalín vissi hvað hann var að
gera, þegar hann hafði lokað land-
inu og enginn fékk þaðan að
koma, nema syngja lofsönginn,
þegar heim kom.
Hann skar heldur ekki við nögl
rúblurnar, sem fóru í áróðurinn.
Árangurinn lét heldur ekki á sér
standa og meira að segja hér
„norður við heimskaut i sval-
köldum sævi" ortu mörg skáld um
hann iofið, svo bogaði af þeim
svitinn.
Mér dettur í hug hvort það
hvarflar ekki núna að Brezhnev,
þegar hann verður að leita á náðir
Ameríku um kornkaup, að
kannski væri uppskeran meiri hjá
honum, ef hann hefði ekki eftir
skipun Stalíns drepið úr hungri
5V4 milljón bænda i Ukrainu á
sínum ungu dögum. Á siðasta
kommúnistaþingi var viðurkennt
að skóskortur væri í Sovétrikjun-
um. Það þótti vera.mesta smán
fyrir einn bónda, ef hann gat ekki
svo mikið sem skóað konu sína.
En kommúnisminn gerir hvort
tveggja, að hann getur hvorki
fætt né skóað almenning i Rúss-
landi. Hvaða blessun hefur hag-
kerfi Karls Marx fært heiminum?
Og hve lengi á það að liðast?
Annar kafli
Hann var hærri og þreknari en
hún hafði búizt við. Herðabreiður
og með sterklegar hendur. And-
litið sem hún þekkti mætavel af
mvndum frá búkakápunum, var
ótrúlega kraftmikið og karlmann-
legt. Við þennan fyrsta fund
fannst Malin sem mvnd þessa
manns greyptist inn f huga henn-
ar, hvert minnsta smáatriði, svart
grásprengt hárið, dökkar auga-
brýnnar, frekjulegur munnurinn
og umfram allt augun sem lýstu
langar leiðir af ráðríki og
einurð...
Frá þvf andartaki sem hann
gekk inn í herbergið var þessi
iitli hópur viðstaddra á hans
valdi, svo algerlega að engu var
lfkara en allir hefðu breytzt f
leikbrúður. Ylva leit á hann með
tilheiðslusvip og aðdáunin lýsti af
henni langar leiðir, Cecilia hag-
ræddi sér eins og ósjálfrátt svo að
eggjandi harmurinn nvti sfn bet-
ur, Kári reyndi árangurslaust að
láta eins og ekkert væri og meira
að segja Björg virtist leita eftir
því að lesa úr svip drottnarans í
hvaða skapi hann vaeri þessa
stundina.
HÖGNI HREKKVÍSI
. 1976
McNaunht
Syndicate, lnc
„Hó'gni er í búningsklefanum'
Plötujárn — stangarjárn.
Fyrirliggjandi plötujárn í þykktum frá 5 mm til
50 mm, einnig ýmsar gerðir stangarjárn . .
J. Hinriksson
Vélaverstæði.
Veiðileyfi
í Geitabergsvatni
eru komin til sölu.
Ferstikla,
Hvalfirði.
p| Star innréttingar
-við allra hæfi -í öll herbergi
Star-innréttingar eru samsettar úr einingum, sem f ram-
leiddar eru í Svíþjóð á vegum stærstu innréttingafram-
leiðenda Evrópu.
Þær geta hentað í allar stærðir eldhúsa, — en ekki aðeins
i eldhús, heldur í öll önnur herbergi hússins.
Star-innréttingar eru bæði til í nýtízku stil og með göml-
um virðulegum blæ, en eru allar gerðar samkvæmt kröf-
um nútímans.
Komið með teikningu af eldhúsinu eða hinum herbergj-
unum, þar sem þið þurfið á innréttingu að halda. Við
gef um góð ráð og reiknum út, hvað innréttingar eins og
ykkur henta muni kosta.
Stuttur afgreiðslufrestur. Einstaklega hagstætt verð.
Bústofn, Klettagarðar 9
Sundaborg — Sími: 8-10-77
Kvikmyndaviðburður
Frumsýnum