Morgunblaðið - 19.06.1976, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1976
í DAG er laugardagurinn 19.
júnf, 171. dagurársins 1976.
Árdegisflóð I Reykjavik er kl.
11.54 og siðdegisflóð kl.
00 1 5 Sólarupprás I Reykja-
vik er kl. 02.54 og sólarlag
kl. 00.04. Á Akureyri er sól-
arupprás kl. 01.28 og sólar
lag kl. 01.01. Tunglið er i
suðri i Reykjavik kl. 07.14.
(íslandsalmanakið).
En hann sagði við þá:
Ekki er það yðar að vita
tima eða tíðir, sem faðir-
inn setti af sjálfs sins
valdi, en þér munuð öðl-
ast kraft. er heilagur andi
kemur yfir yður. og þér
munuð verða vottar minir
bæði i Jerúsalem og i allri
Júdeu og Samariu og til
yztu endimarka jarðarinn-
ar. (Postulasagan 1,
7—9).
| KROS5GATA
LÁRÉTT: 1. hljómar 5.
saur 7. flát 9. slá 10. sefaðir I
12. 2 eins 13. svelgur 14.
ólfkir 15. áma 17. kven-
mannsnafn.
LÓÐRÉTT: 2. fljóta 3. bar-
dagi 4. ára 6. aldan 8. A um
Ó 9. sveifla 11. skar (aftur
á bak) 14. gyðja 16. eftir.
Lausn á sfðustu
LÁRÉTT: 1. gramur 5. tak
6. rá 9. partur 11. ar 12.
una 13. ár 14. nám 16. RA
17. ataði
LÓÐRÉTT: 1. garpanna 2.
at 3. mattur 4. U.K. 7. áar 8.
grafa 10. UN 13. áma 15. át
16. R1
I HEIMILISDÝR ~1
STÁLPUÐ læða, grábrönd-
ótt með hvíta bringu,
fannst í Hljómskálagarðin-
um. Uppl. í síma 15678 eft-
ir kl. 5 síðd.
| FRÁ HÖFNINNI j
ÞESSI skip komu og fóru
frá Reykjavíkurhöfn á
þjóðhátíðardaginn og i
gær:
Fjallfoss kom frá út-
löndum og Bæjarfoss af
ströndinni. Brúarfoss kom
frá útlöndum. Þá kom Esja
úr strandferð en Hekla fór
í strandferð. í gærmorgun-
kom togarinn Ingólfur
Arnarson af veiðum. Detti-
foss fór til útlanda og
Hvítá fór. Þá kom franska
hafrannsóknaskipið Thal-
assa.
Hofsjökull er væntan-
legur frá útlöndum i dag
og um helgina er Lagarfoss
væntanlegur, einnig frá út-
löndum.
KRAKKARNIR á myndinni sem eiga heima suður f
Kópavogi, efndu fyrir nokkru til hlutaveltu að Þing-
hólsbraut 7, til ágóða fyrir Styrktarfél. vangefinna. Þau
afhentu ágóðann félaginu og reyndist hann vera rúm-
lega 10.000 krónur. Krakkarnir heita: Guðmundur II.
Sveinsson, Gústaf Alfreðsson, Helgi Þ. Magnússon, Jón-
as B. Sigurgeirsson, Ingibjörg II. Jónsdóttir og Sigur-
geir Orri Sigurgeirsson.
Síðasta óskin verður að vera óháð, góði.
ÁRIVAO
MEILLA
ÁTTRÆÐUR varð þjóðhá-
tíðardaginn Séra Friðrik
A. Friðriksson fyrrverandi
prófastur á Húsavík, sem
jafnframt átti þennan dag
60 ára stúdentsafmæli.
ATTRÆÐUR er i dag, 19.
júní, Magnús Magnússon
frá Móakoti í Grindavík,
nú Túngötu 9 þar í bæ.
Hann tekur á móti gestum
á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar að Arnar-
hrauni 8 Hafnarfirði í dag.
í DAG verða gefin saman í
hjónaband í Neskirkju
Halldóra Guðrún Tryggva-
dóttir, Tryggvastöðum Sel.,
og Helgi Ingvarsson
Hávallagötu 44. Heimili
brúðhjónanna verður á
Tryggvastöðum.
GEFIN verða saman í
hjónaband, í dag af séra
Braga Friðrikssyni, í Bú-
staðakirkju Rebekka G.
Jónsdóttir Lyngholti 19
Keflavík og Björgvin Hall-
dórsson Lyngholti 9 Kefla-
vik. Heimili ungu hjón-
anna verður að Lyngholti 9
þar í bæ.
| FRÉ I I IR
KVENFÉLAG Kópavogs
fer f sumarferð sína
laugardaginn 26. þ.m. og
verður lagt af stað kl. 1
síðd. frá félagsheimilinu.
Félagskonur eru beðnar að
tilkynna þátttöku sína í
sfma: 40689 — Helga,
41149 — Lóa, eða 41853V
Guðrún.
KVENFÉLAG Háteigs-
sóknar. Sumarferðin verð-
ur farin 27. júní n.k. Konur
eru beðnar að tilkynna
þátttöku sina fyrir n.k.
fimmtudag f síma: 83556
— Sigurbjörg, eða síma
16917 — Lára.
KVENFÉLAGIÐ Seltjörn.
Jónsmessuferð félagsins
verður farin að kvöldi 24.
júní og verður lagt af stað
frá félagsheimilinu kl. 7
sfðd. Kvöldverður snædd-
ur í Valhöll. Konur eru
beðnar að tilkynna þátt-
töku sína fyrir sunnudags-
kvöld í sima 18851 — 23205
eða 20423
DAGANA frá og me8 18. — 24. júní er kvöld
og helgarþjónusta apótekanna I borginni sem
hér segir: í Laugavegs Apóteki, en auk þess er
Holts Apótek opið til kl. 22 þessa daga nema
sunnudag
— Læknastofur eru lokaðar á laugardögum
og helgidögum. en hægt er að ná sambandi
við lækni á göngudeild Landspitalans alla
virka daga kl. 20—21 og á laugardögum frá
kl. 9—12 og 16—17, simi 21230. Göngu
deild er lokuð á helgidögum. Á virkum dögur
kl. 8—17 er hægt að ná sambandi við lækni i
síma Læknafélags Reykjavikur 11510. en þvi
aðeins að ekki náist i heimilislækni. Eftir kl.
17 er læknavakt i síma 21230. Nánari
upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu
eru gefnar i símsvara 18888. — Neyðarvakt
Tannlæknafél. íslands i Heilsuverndarstöð-
inni er á laugardögum og helgidögum kl.
17—18
C MII/DAUHC heinisóknartíni
jJUItnMnUo AR. Borgarspítalinn.
Mánudaga — föstudaga kt. 18.30—19.30,
laugardaga — sunnudaga kl. 13.30—14.30
og 18.30—19. Grensásdeild: kl. 18.30-—
1 9.30 alla daga og kl. 1 3— 1 7 á laugardag og
sunnudag. Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16
og kl. 18.30—19.30. Hvita bandið: Mánud
— föstud. kl. 19—19.30, laugard. —
sunnud. á sama tima og kl. 15—16. —
Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl.
15—16 og 18.30—19.30. Kleppsspitali:
Alla daga kl. 15—16 og 18.30—19.30.
Flókadeild: Alla daga kl. 15.30—17. —
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á
helgidögum. — Landakot: Mánud. — föstud.
kl. 18.30 — 19.30. Laugard. og sunnud. kl.
15—16. Heimsóknartimi á barnadeild er alla
daga kl. 15—17. Landspitalinn: Alla daga kl.
15—16 og 19—19.30. Fæðingardeild: kl.
15—16 og 19.30—20. Barnaspitali Hrings-
ins kl. 15—16 alla daga. — Sólvangur:
Mánud — laugard. kl. 15—16 og 19.30----
20. — Vifilsstaðir: Daglega kl. 15.15—
16.15 og kl. 19.30—20.
O n r IU BORGARBOKASAFNREYKJA
O U I IM VÍKUR: — AÐALSAFN Þing
holtsstræti 29A. sími 12308. Opið mánudaga
til föstudaga kl. 9—22. Laugardaga kl.
9—18. Sunnudaga kl. 14—18. Frá 1. maí til
30. september er opið á laugardögum til kl.
16. Lokað á sunnudögum. — STOFNUN Árna
Magnússonar. Handritasýning I Árnagarði
Sýningin verður opin á þriðjudögum kl. 2—4.
Sýningin er helguð landnámi og sögu þjóðar-
innar á fyrri öldum. í myndum eru meðal
annars sýnd atriði úr islenzku þjóðlífi, eins og
það kemur fram i handritaskreytingum.
ÁSGRÍMSSAFN Bergstaðastræti 74 er opið
alla daga nema laugardaga frá kl. 1.30 til 4
síðdegis. Aðgangur er ókeypis.
BÚSTAÐASAFN. Bústaðakirkju sími 36270.
Opið mánudaga — föstudaga —
HOFSVALLASAFN Hofsvallagötu 16. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 16—19. — SÓL-
HEIMASAFN Sólheimum 27, simi 36814.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 14—21.
BÓKABÍLAR bækistöð i Bústaðasafni. simi
36270. — BÓKIN HEIM, Sólheimasafni.
Bóka og talbókaþjónusta við aldraða, fatlaða
og sjóndapra. Upplýsingar mánud. til föstud.
kl. 10—12 i sima 36814 — FARANDBÓKA-
SÖFN. Bókakassar lánaðir til skipa, heilsu
hæla, stofnana o.fl. Afgreiðsla i Þingholts-
stræti 29A, simi 12308. — Engin barnadeild
er opin lengur en til kl. 19. — KVENNA-
SOGUSAFN ÍSLANDS að Hjarðarhaga 26. 4
hæð t.v., er opið eftir umtali. Simi 12204. —
BÓKASAFN NORRÆNA HÚSSINS: Bóka
safnið er öllum opið, bæði lánadeild og
lestrarsalur. Bókasafnið er opið til útlána
mánudaga — föstudaga kl. 14—19. laug-
ard.—sunnud. kl. 14—17. Allur safn
kostur, bækur, hljómplötur, timarit er heim
ilt til notkunar, en verk á lestrarsal eru þó
ekki lánuð út af safninu. og hið sama gildir
um nýjustu hefti timarita hverju sinni. List-
lánadeild (artotek) hefur grafikmyndir til útl .
og gilda um útlán sömu reglur og um bækur.
— AMERÍSKA B0KASAFNIÐ er opið alla
virka daga kl. 13—19. — ÁRBÆJARSAFN
opið klukkan 13—18 alla daga nema mánu-
daga. Strætisvagn frá Hlemmtorgi — leið 10.
LISTASAFN Einars Jónssonar er opið kl.
1.30—4 siðd. alla daga nema mánudaga. —
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30— 1 6.
— ÞJÓÐMINJASAFNIÐ er opið þriðjudaga.
fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl.
1.30—4 siðdegis. SÆDÝRASAFNIÐ er opið
alla daga kl. 10—19.
BILANAVAKT
svarar alla virka daga frá kl. 1 7 síÖdegis til kl.
8 árdegis og á helgidógum er svarað allan
sólarhringinn. Siminn er 27311. Tekið er við
tilkynningum um bilanir á veitukerfi borgar
innar og í þeim tilfellum öðrum sem borgarbú
ar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstarfs-
manna.
I Mbl.
fyrir
50 árum
Þennan brandara er
að finna í blaðinu.
Aðalpersónurnar
eru Jóhanna og Frið-
þjófur. — Og hér
kemur svó brandar-
inn; eins og hann er 1 blaðinu: „Kona.
Heyrðu, Friðþjófur. Ég skal segja þér það,
að ég hefi engin efni á að setja kross á
leiðið þitt þegar þú ert dauður.
Friðþjófur: Það er ekki nauðsynlegt,
Jóhanna mín. Komdu bara tvisvar í viku
suður í kirkjugarð og setztu á leiðið mitt.
Þú hefir verið minn kross alla ævi, svo
það er ekki mikið þótt þú sért lika kross á
leiði mínu.“
GENGISSKRÁNING
NR. 112 —18. júnf 1976.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Randarfkjadollar 183,70 184,10*
1 Sterlingspund 326,20 327,20*
1 Kanadadollar 188,95 189,45*
100 Danskar krónur 3004,85 3013.05*
100 Norskar krónur 3310,65 3319,65*
100 Sænskar krónur 4129.10 4140,40*
100 Finnsk mörk 4716,20 4729,10*
100 Franskir frankar 3878,50 3889,10
100 Belg. frankar 463,50 464,80*
100 Svissn. frankar 7372,50 7392,60*
100 Gyllini 6712,85 6731,15*
100 V.-Þýzk mörk 7139,80 7159,30
100 Lírur 21,50 21,56*
100 Austurr. Seh. 995,95 998,65*
100 Escudos 590,50 592,10*
100 Pesetar 270,40 271,10*
100 Yen 61,39 61,55*
100 Reikningskrónur —
Vöruskiptalönd 99,86 100,14
1 Reikningsdollar —
Vöruskipt alönd 183,70 184,10*
* Brfyting frásfðustu skráningu.